Síða 1 af 1

Hanska fyrir teikningar

Sent: Mán 29. Mar 2021 22:34
af ChopTheDoggie
Sæl öll,
Ég er búinn að vera teikna í spjaldtölvunni minni í smá tíma núna og var að velta fyrir mér hvar væri hægt að kaupa svona spes hanska?
Kannski er eitthvað obvious nafn fyrir þetta sem ég veit ekki um, en finn þetta hvergi hér hjá okkur á klakanum..Þarf kannski að panta þetta að utan? (seinasta sem ég vil gera)
Dæmi:

Re: Hanska fyrir teikningar

Sent: Mán 29. Mar 2021 23:03
af mjolkurdreytill
Eitthvað leyfi ég mér að efast um það að þetta sé til hérna heima. Veit hinsvegar ekkert um það.

Efnið í þessu virðist vera spandex/Lycra og það virðast fáir halda því fram að snertiskjárinn finni ekki fyrir þessu. Semsagt efnið er ekki aðalatriðið heldur formið.

Mér dettur einna helst í hug að þú gætir fundið einhverja bómullarvettlinga og hreinlega klippt af þeim. Í versta falli látið saumastofu sauma þetta fyrir þig.

Re: Hanska fyrir teikningar

Sent: Þri 30. Mar 2021 00:15
af ChopTheDoggie
mjolkurdreytill skrifaði:Eitthvað leyfi ég mér að efast um það að þetta sé til hérna heima. Veit hinsvegar ekkert um það.

Efnið í þessu virðist vera spandex/Lycra og það virðast fáir halda því fram að snertiskjárinn finni ekki fyrir þessu. Semsagt efnið er ekki aðalatriðið heldur formið.

Mér dettur einna helst í hug að þú gætir fundið einhverja bómullarvettlinga og hreinlega klippt af þeim. Í versta falli látið saumastofu sauma þetta fyrir þig.


Takk fyrir svarið, ég held að það sé bara planið ef ég finn ekki svona hanska hér til sölu, ég er sjálfur búin að vera nota micro-fiber cloth á skjánum en það tekur augljóslega svo mikið pláss af skjánum í notkun og þarf alltaf laga það.

Ég hef slökkt á touch input og er með palm rejection í teikniappinu þannig að það ætti voðalega lítið að skipta máli hvort skjárinn finni fyrir hanskanum eða ekki (klúturinn hefur allavega enga áhrif eftir að ég hafi slökkt á touch input)

Re: Hanska fyrir teikningar

Sent: Þri 30. Mar 2021 16:02
af oliuntitled
Hef ekki séð þetta hér á landi en virðist vera nóg til á ebay.
Snögga leiðin er að finna góðann hanska hérna og klippa hann til samt.

https://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R ... g&_sacat=0

Viðbót: Virðist vera kallað Anti-Fouling glove skv ebay leitinni.

Re: Hanska fyrir teikningar

Sent: Mið 31. Mar 2021 11:03
af tryggvhe
https://is.sportsdirect.com/riley-cuein ... e=76600703


Snooker hanskar til sölu í SportsDirect, sýnist þetta vera það sem þú ert að leita af. Er meira að segja á aflsætti og alles $$$ :D

ps: Er ekki alveg 100% á því hvort þetta triggerar touchpadið, getur eflaust komist að því.

Re: Hanska fyrir teikningar

Sent: Mið 31. Mar 2021 12:47
af gnarr
tryggvhe skrifaði:https://is.sportsdirect.com/riley-cueing-glove-766007#colcode=76600703


Snooker hanskar til sölu í SportsDirect, sýnist þetta vera það sem þú ert að leita af. Er meira að segja á aflsætti og alles $$$ :D

ps: Er ekki alveg 100% á því hvort þetta triggerar touchpadið, getur eflaust komist að því.


Þessir eru "hinn helmingurinn" af hanskanum. Semsagt fyrir þumal, vísifingur og löngutöng. Hann þarf fyrir baugfingur og litlafingur.

Re: Hanska fyrir teikningar

Sent: Mið 31. Mar 2021 12:52
af Hizzman
Hef séð iðnaðarmenn sem eru að festa loftplötur nota þunna hvíta hanska. Kosta væntanlega ekki mikið í byggingavöruverslunum. Skæri.