Síða 5 af 20

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 31. Maí 2021 00:03
af GuðjónR
Tbot skrifaði:Ef fólk hefur ekki tekið eftir því þá hækkuðu fæsteignagjöldin hjá borginni á milli ára um 14%.
Heldur þú virkilega að þetta hafi engin áhrif.
Einnig aukin skattheimta hjá borginni í gegnum lóðaverð, nýtt skattur hjá þeim heitir bara því fallega nafni innviðagjald.

Hækkun á fasteignagjöldum endurspeglar hækkanir á fasteignaverði, þetta þýðir að fasteignamatið hefur hækkað um 14% milli ára.
Sveitarfélögin græða feitt á þessari fasteignabólu.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 31. Maí 2021 10:42
af GullMoli
Jæjar, vextir lána hafa aðeins hækkað. Hef að vísu eingöngu verið að skoða Óverðtryggð lán með fasta vexti.

Sé að Frjálsi hækkaði vextina úr 4.00% í 4.40%. Íslandsbanki úr 4.20% í 4.45%.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 31. Maí 2021 10:47
af codec
falcon1 skrifaði:Hátt vaxtastig er einmitt merki um lélegt hagkerfi, enda hefur það verið viðloðandi við íslenskt hagkerfi frá stofnun lýðveldisins.

Núverandi vaxtastig er eðlilegt miðað við það áfall sem skall á okkur, það sem er ekki eðlilegt er að Hagstofan er að mæla svona mikla verðbólgu. Ég ber nákvæmlega ekkert traust til Hagstofunnar í þessum efnum, ég tel að þeir séu að mæla alltof háa verðbólgu. En það kemur í ljós þegar Seðlabankinn fer að hækka vextina eitthvað að ráði og hvort að afleiðingarnar verði fjöldagjaldþrot í ýmsum greinum eða ekki.
Eftir því sem fleiri heimili eru í óverðtryggðu lánum því gætilegar þarf Seðlabankinn að stíga, hann getur ekki farið sömu leið og þegar allir voru með verðtryggt og fundu varla fyrir neinu - nema þá að setja hundruðir heimila í gjaldþrot í leiðinni.
Væri góð blanda það, fjöldagjaldþrot heimila ofan á mikið atvinnuleysi.

Ég sé ekki betur en að verðbólgan sé því miður raunveruleg ekki síst þar sem fasteignamarkaðurinn er inni í vísitölunni og hann er í ruglinu. Hann er reyndar búin að vera það lengi en virðist bara vera komin á amfetamín stera núna. Eins eru verðhækkanir almennt maður sér það á heimilisbókhaldinu.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 31. Maí 2021 11:06
af B0b4F3tt
Landsbankinn að hækka breytilega vexti um 0,15%. Ekki eins slæmt og ég átti von á.

https://www.landsbankinn.is/frettir/202 ... lanavextir

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 31. Maí 2021 13:48
af rapport
Tbot skrifaði:Sami söngur um dollar og evru.

Miðað við þennan söng ætti bara að vera einn eða tveir gjaldmiðlar í heiminum.

Samt eru gjaldmiðlar eins og svissneskur franki að virka ágætlega og fyrir evru þá var þýska markið einn stöðugasti gjaldmiðillin, þ.e. eftir seinni heimstyrjöldina.

Það eru ansi margir þættir sem spila inn í hagtölur/vísitölu meðal annars hækkanir hjá borginni langt umfram launahækkanir.

Ef fólk hefur ekki tekið eftir því þá hækkuðu fæsteignagjöldin hjá borginni á milli ára um 14%.
Heldur þú virkilega að þetta hafi engin áhrif.
Einnig aukin skattheimta hjá borginni í gegnum lóðaverð, nýtt skattur hjá þeim heitir bara því fallega nafni innviðagjald.

Já, það væri þægilegt að hafa bara einn gjaldmiðil í heiminum og sleppa við þessar gengisáhættu og hafa almennilegt gegnsæi.

Nkl. ótal óskildar mælingar sem skapa VNV. Það er mjög óeðlilegt að húsaleiga hækki því að verð á Cheerios hækki.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 31. Maí 2021 18:12
af KRASSS
B0b4F3tt skrifaði:Landsbankinn að hækka breytilega vexti um 0,15%. Ekki eins slæmt og ég átti von á.

https://www.landsbankinn.is/frettir/202 ... lanavextir

Þessi hækkun mun gerast oft á árinu held eg, margt smátt gerir eitt stórt.

ISB hækkar fasta vexti

Þá hækka fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,20%, fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,55%.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 00:13
af jonfr1900
B0b4F3tt skrifaði:Landsbankinn að hækka breytilega vexti um 0,15%. Ekki eins slæmt og ég átti von á.

https://www.landsbankinn.is/frettir/202 ... lanavextir

Hjá flestum mun þetta hækka mánaðargreiðslur af húsnæðisláninu um 6.000 kr til 20.000 kr eftir stærð og öðrum þáttum. Bara þessu 0,15%.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 09:47
af dori
jonfr1900 skrifaði:

Ha? Ertu með 150 milljón króna lán? Þetta er hækkun 0,15 prósentustig á ársgrundvelli þannig að þetta hækkar vexti um 125 kr. á mánuði fyrir hverja milljón sem þú skuldar.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 10:33
af gnarr
dori skrifaði:

Ég er ekkert rosalega læs á þessa hluti, en er þetta ekki gróflega svona:
50.000.000 * 0.15% / 12 = 6.250kr á mánuði

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 10:38
af appel
Fasteignagjöld að hækka meira á árinu en vextir bankanna. Sveitafélögin græða svakalega.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 12:56
af dori
gnarr skrifaði:
dori skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:Landsbankinn að hækka breytilega vexti um 0,15%. Ekki eins slæmt og ég átti von á.

https://www.landsbankinn.is/frettir/202 ... lanavextir

Hjá flestum mun þetta hækka mánaðargreiðslur af húsnæðisláninu um 6.000 kr til 20.000 kr eftir stærð og öðrum þáttum. Bara þessu 0,15%.

Ha? Ertu með 150 milljón króna lán? Þetta er hækkun 0,15 prósentustig á ársgrundvelli þannig að þetta hækkar vexti um 125 kr. á mánuði fyrir hverja milljón sem þú skuldar.

Ég er ekkert rosalega læs á þessa hluti, en er þetta ekki gróflega svona:
50.000.000 * 0.15% / 12 = 6.250kr á mánuði

Ég les það þannig en mér finnst afar hæpið að segja að "hjá flestum" hækki afborganir um 6-20 þúsund við þessa breytingu. Ég geri ráð fyrir að "flestir" séu með lægra fasteignalán en 50 milljónir.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 13:36
af jonfr1900
dori skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:Landsbankinn að hækka breytilega vexti um 0,15%. Ekki eins slæmt og ég átti von á.

https://www.landsbankinn.is/frettir/202 ... lanavextir

Hjá flestum mun þetta hækka mánaðargreiðslur af húsnæðisláninu um 6.000 kr til 20.000 kr eftir stærð og öðrum þáttum. Bara þessu 0,15%.

Ha? Ertu með 150 milljón króna lán? Þetta er hækkun 0,15 prósentustig á ársgrundvelli þannig að þetta hækkar vexti um 125 kr. á mánuði fyrir hverja milljón sem þú skuldar.

Ég notaði 48.000.000 króna grunn í þennan útreikning (hef kannski gert mistök, þar sem þetta er fyrsta tilraun hjá mér til að reikna þessa vitleysu). Ég er ekki með fasteignalán á Íslandi og þakka fyrir það á hverjum degi eftir að ég áttaði mig á stöðu mála. Það er rosalega mikið þegar greiðslur á húsnæðisláninu hækka um 75.000 kr á ári þó svo að fólk sé með óverðtryggt húsnæðislán.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 17:28
af Cascade

Ertu með fasteignalán í öðru landi?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 01. Jún 2021 17:49
af jonfr1900
Cascade skrifaði:

Nei. Í Danmörku þarf maður ekki að kaupa húsnæði ef maður vill það ekki. Þar er hægt að leigja húsnæði þangað til maður fer ofan í gröfina ef það er það sem maður vill.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 10:28
af thrkll
DV - Ásgeir seðlabankastjóri með eftirtektarvert ráð fyrir Íslendinga – „Ég mæli með að fólk festi vexti“

Mjög áhugavert.

Einhverjar líkur á öðru en að vextir muni hækka eitthvað almennilega á næsta vaxtaákvörðunardegi, 25. ágúst? Greiðslubyrði óverðtryggðra lána myndi þá aukast og áhyggjur Seðlabankans raungerast.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 11:33
af rapport
thrkll skrifaði:DV - Ásgeir seðlabankastjóri með eftirtektarvert ráð fyrir Íslendinga – „Ég mæli með að fólk festi vexti“

Mjög áhugavert.

Einhverjar líkur á öðru en að vextir muni hækka eitthvað almennilega á næsta vaxtaákvörðunardegi, 25. ágúst? Greiðslubyrði óverðtryggðra lána myndi þá aukast og áhyggjur Seðlabankans raungerast.

Ég var að fara pósta þessu hingað. Það eiginlega segir sig sjálft að ef þú getur fest vexti þegar þeir eru í lágmarki, þá er ertu að tryggja þér góð kjör til framtíðar.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 12:14
af GuðjónR
rapport skrifaði:

Gallinn er bara sá að þú ert að festa í 3 ár í senn, t.d. Landsbankinn er með 3.45% breytilega og 4.25% fasta vexti, munurinn er 0.8% eða 160.000 kr. af 20M láni á ári. Þannig að spurningin er, hversu langan tíma tekur breytilega lánið að fara í 4.25% ? ... spurning sem engin getur svarað.
En varnaðarorð seðlabankastjóra hafa töluvert vægi í umræðunni.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 13:08
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Gallinn er bara sá að þú ert að festa í 3 ár í senn, t.d. Landsbankinn er með 3.45% breytilega og 4.25% fasta vexti, munurinn er 0.8% eða 160.000 kr. af 20M láni á ári. Þannig að spurningin er, hversu langan tíma tekur breytilega lánið að fara í 4.25% ? ... spurning sem engin getur svarað.
En varnaðarorð seðlabankastjóra hafa töluvert vægi í umræðunni.

Já, þetta er alltaf gambl, eins og strákurinn með podcastið nefnir, þú ert að veðja á móti bankanum, sem hefur meiri þekkingu og upplýsingar heldur en meðal Jóninn.

Ég ákvað hins vegar að taka seðlabankastjóra alvarlega, og er að vinna í að festa vextina. Smá tilfæringar til að ná niður fyrir 50% af fasteignamati, en þá býður Landsbankinn 4.05% vexti í stað 4.25%, aðeins skárra að hækka um 0.6% heldur en 0.8%, hvert prósentubrot skiptir máli á þessum háu upphæðum sem fasteignalán eru almennt :(

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 13:34
af Dr3dinn
Klemmi skrifaði:

Sammála og var að festa allt.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 14:46
af Hallipalli
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:
thrkll skrifaði:DV - Ásgeir seðlabankastjóri með eftirtektarvert ráð fyrir Íslendinga – „Ég mæli með að fólk festi vexti“

Mjög áhugavert.

Einhverjar líkur á öðru en að vextir muni hækka eitthvað almennilega á næsta vaxtaákvörðunardegi, 25. ágúst? Greiðslubyrði óverðtryggðra lána myndi þá aukast og áhyggjur Seðlabankans raungerast.

Ég var að fara pósta þessu hingað. Það eiginlega segir sig sjálft að ef þú getur fest vexti þegar þeir eru í lágmarki, þá er ertu að tryggja þér góð kjör til framtíðar.

Gallinn er bara sá að þú ert að festa í 3 ár í senn, t.d. Landsbankinn er með 3.45% breytilega og 4.25% fasta vexti, munurinn er 0.8% eða 160.000 kr. af 20M láni á ári. Þannig að spurningin er, hversu langan tíma tekur breytilega lánið að fara í 4.25% ? ... spurning sem engin getur svarað.
En varnaðarorð seðlabankastjóra hafa töluvert vægi í umræðunni.

Ég er á sama báti og GuðjónR enjoy it while it last :) en bara spurning næsta hækkunn verður hún 0.2% eða 1.2% eða 2% maður veit aldrei neitt.... Kannski kemur Covid-20 og fáum 1% vexti og þeir sem festu geta ekki endurfjármagnað.... þetta er svo sturlað að maður þurfi að hafa svona miklar áhyggjur af svona :D

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 15:37
af GuðjónR
Hverjar eru líkurnar á því að bankarnir hækki fasta vexti núna eða á næstunni?
Eru svona hækkanir ekki oftast tengdar vaxtaákvörðunum Seðlabanka og því næsta hækkun í fyrsta lagi í ágúst?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 15:41
af dori
GuðjónR skrifaði:Hverjar eru líkurnar á því að bankarnir hækki fasta vexti núna eða á næstunni?
Eru svona hækkanir ekki oftast tengdar vaxtaákvörðunum Seðlabanka og því næsta hækkun í fyrsta lagi í ágúst?

Þú getur bókað að þeir föstu vextir sem eru í boði hækka langt á undan breytilegu vöxtunum.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 16:28
af thrkll
dori skrifaði:Þú getur bókað að þeir föstu vextir sem eru í boði hækka langt á undan breytilegu vöxtunum.

Veit einhver hvort einhverstaðar sé hægt að sjá söguleg gögn um vexti bankanna einhvers staðar? T.d. til að sannreyna að þetta?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 16:59
af GuðjónR
thrkll skrifaði:
dori skrifaði:Þú getur bókað að þeir föstu vextir sem eru í boði hækka langt á undan breytilegu vöxtunum.

Veit einhver hvort einhverstaðar sé hægt að sjá söguleg gögn um vexti bankanna einhvers staðar? T.d. til að sannreyna að þetta?

Ég var að leita af því en fann ekkert, hringdi í bankann og spurði og þetta er víst þannig að breytilegu vextina þarf að tilkynna með fyrirvara en föstu vextina ekki. Ég ákvað því að festa þá í 4.05% til þriggja ára frá og með deginum í dag. Það eru of mörg hættumerki á lofti og þegar seðlabankastjóri kemur með svona yfirlýsingar þá er betra að taka mark á þeim.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 17:00
af Revenant
thrkll skrifaði:
dori skrifaði:Þú getur bókað að þeir föstu vextir sem eru í boði hækka langt á undan breytilegu vöxtunum.

Veit einhver hvort einhverstaðar sé hægt að sjá söguleg gögn um vexti bankanna einhvers staðar? T.d. til að sannreyna að þetta?

Getur séð Þróun breytilegra útlánsvaxta Landsbankans frá 2008 ‐ 2021 á vef Landsbankans.