Síða 6 af 20

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 17:11
af GuðjónR
Revenant skrifaði:
thrkll skrifaði:
dori skrifaði:Þú getur bókað að þeir föstu vextir sem eru í boði hækka langt á undan breytilegu vöxtunum.

Veit einhver hvort einhverstaðar sé hægt að sjá söguleg gögn um vexti bankanna einhvers staðar? T.d. til að sannreyna að þetta?

Getur séð Þróun breytilegra útlánsvaxta Landsbankans frá 2008 ‐ 2021 á vef Landsbankans.

Það vantar óverðtryggða fasta vexti þarna.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 18:54
af Hjaltiatla
Er að fara endurfjármagna sjálfur. Fasteignarmat er búið að hækka ágætlega á minni fasteign og ætlaði ég að endurfjármagna hjá Landsbankanum en þeirra fasteignarmats reiknivél tekur ekki mið af nýja fasteignarmatinu fyrr en 1.sept (hefði þá getað tekið óverðtryggt lán með föstum vöxtum 4,25% næstu 3 árin). Arion banka fasteignarmats reiknivélin tekur gildi 1.júlí þannig að ég sætti mig við 4,35 % vexti hjá Arion banka í stað þess að bíða til sept.
Greiddi inná lánið mitt í dag og lánið uppfærðist inná heimabankanum íen þegar ég fer inná endurfjármögnunarsíðu arion banka þá er gamla talan sem ég skuldaði þeim áður en ég greiddi inná lán, reikna með að það er einhver næturkeyrsla sem uppfærir það kerfi og ég get farið í gegnum greiðslumat á morgun.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 01. Júl 2021 19:15
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Er að fara endurfjármagna sjálfur. Fasteignarmat er búið að hækka ágætlega á minni fasteign og ætlaði ég að endurfjármagna hjá Landsbankanum en þeirra fasteignarmats reiknivél tekur ekki mið af nýja fasteignarmatinu fyrr en 1.sept (hefði þá getað tekið óverðtryggt lán með föstum vöxtum 4,25% næstu 3 árin). Arion banka fasteignarmats reiknivélin tekur gildi 1.júlí þannig að ég sætti mig við 4,35 % vexti hjá Arion banka í stað þess að bíða til sept.

Það er rétt hjá þér, aukagreiðslurnar sjást daginn eftir og það borgar sig ekki að bíða fram í september, þá verður hugsanlega komið allt annað vaxtastig.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 12:32
af GuðjónR
Jæja, þá er ég búinn að festa vextina í 36 mánuði í 4.05% þori ekki öðru en að taka mark á seðlabankastjóra.
Kostar 10.600 á mánuði eins og staðan er í dag en sá munur mun minnka hratt í haust þegar Seðlabankinn hækkar stýrivextina.
Pínu súrt en á sama tíma öryggi í því að vita alltaf nákvæmlega hvað maður þarf að borga mánaðarlega.
Lít á þetta sem tryggingu, þ.e. borga 127.200 kr. á ári aukalega fyrir stöðugleika.
Svo endurskoðar maður þetta eftir 36 mánuði þegar bindingunni líkur.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 13:10
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Jæja, þá er ég búinn að festa vextina í 36 mánuði í 4.05% þori ekki öðru en að taka mark á seðlabankastjóra.

Helsti ókosturinn við að festa vexti, er að þá er maður farinn að vona að allt fari í fokk, svo maður hafi tekið rétta ákvörðun :crazy :crazy :crazy

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 13:27
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:

hehehehe góður punktur!
Annar stór galli er sá að maður getur ekki breytt til baka eða greitt upp fyrr en eftir 36 mánuði nema borga uppgreiðslugjald.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 15:35
af falcon1
Því miður fokkaði fasteignamatið 2021 mínum möguleikum á festa vexti. En fasteignamatið lækkaði töluvert frá 2020 þegar ég hefði líklegast bara átt að slá til og festa vextina. Ég tók ekki eftir þessu rugli fyrr en bara núna þegar ég fór að hugsa um þetta aftur. Óskiljanlegt að fasteignamat lækki á nýbyggingu á milli ára.
Sem betur fer hækkar fasteignamatið 2022 þannig að ég fell í eðlilegt vaxtarþrep en tekur ekki gildi hjá mínum banka (Landsbankinn) fyrr en 6. september.

Þetta kerfi fokkar í manni endalaust!

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 15:51
af Dr3dinn
falcon1 skrifaði:Því miður fokkaði fasteignamatið 2021 mínum möguleikum á festa vexti. En fasteignamatið lækkaði töluvert frá 2020 þegar ég hefði líklegast bara átt að slá til og festa vextina. Ég tók ekki eftir þessu rugli fyrr en bara núna þegar ég fór að hugsa um þetta aftur. Óskiljanlegt að fasteignamat lækki á nýbyggingu á milli ára.
Sem betur fer hækkar fasteignamatið 2022 þannig að ég fell í eðlilegt vaxtarþrep en tekur ekki gildi hjá mínum banka (Landsbankinn) fyrr en 6. september.

Þetta kerfi fokkar í manni endalaust!

Lenti í svipuðu, munaði einhverju smá á að ná í lægri vextina hjá LB.. þ.e. hefði komist í lægri vexti í sept. (fasteignamats ves)

0,2% eða bíða til sept.... tek hærri vexti.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 16:01
af Hallipalli
falcon1 skrifaði:Því miður fokkaði fasteignamatið 2021 mínum möguleikum á festa vexti. En fasteignamatið lækkaði töluvert frá 2020 þegar ég hefði líklegast bara átt að slá til og festa vextina. Ég tók ekki eftir þessu rugli fyrr en bara núna þegar ég fór að hugsa um þetta aftur. Óskiljanlegt að fasteignamat lækki á nýbyggingu á milli ára.
Sem betur fer hækkar fasteignamatið 2022 þannig að ég fell í eðlilegt vaxtarþrep en tekur ekki gildi hjá mínum banka (Landsbankinn) fyrr en 6. september.

Þetta kerfi fokkar í manni endalaust!

Hvar sjáiði þessa reiknavél? ég er nýbúin að kaupa og fasteignamatið var að hækka TALSVERT á minni íbúð en ég sé engan mun í þessum reiknivélum

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 20:53
af Dr3dinn
Leiðrétt og ritskoðað af Dr3dinn

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 22:12
af worghal
Hjaltiatla skrifaði:Er að fara endurfjármagna sjálfur. Fasteignarmat er búið að hækka ágætlega á minni fasteign og ætlaði ég að endurfjármagna hjá Landsbankanum en þeirra fasteignarmats reiknivél tekur ekki mið af nýja fasteignarmatinu fyrr en 1.sept (hefði þá getað tekið óverðtryggt lán með föstum vöxtum 4,25% næstu 3 árin). Arion banka fasteignarmats reiknivélin tekur gildi 1.júlí þannig að ég sætti mig við 4,35 % vexti hjá Arion banka í stað þess að bíða til sept.
Greiddi inná lánið mitt í dag og lánið uppfærðist inná heimabankanum íen þegar ég fer inná endurfjármögnunarsíðu arion banka þá er gamla talan sem ég skuldaði þeim áður en ég greiddi inná lán, reikna með að það er einhver næturkeyrsla sem uppfærir það kerfi og ég get farið í gegnum greiðslumat á morgun.

Gerði nákvæmlega það sama og þú.
Er með tvö lán hjá landsbankanum (íbúðar- og aukalán) en þeir geta ekki endurfjármagnað á nýju fasteignamati fyrr en í september af því það eru of margir í sumarfríi (þetta er það sem mér var tjáð í símanum).
Spurði hjá Arion og það var nánast hlegið og sagt að þeir byrji 1. júl.
Ég sló til og endurfjármagnaði með Arion og skrifaði undir mest allt í dag og klára þetta á mánudaginn. :happy

Með þessu komst ég úr drasl vöxtum og lækka greiðslubyrgðina næstum um 70þ á mánuði og enda með eitt lán \:D/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 02. Júl 2021 22:48
af GuðjónR
Dr3dinn skrifaði:
Hallipalli skrifaði:
falcon1 skrifaði:Því miður fokkaði fasteignamatið 2021 mínum möguleikum á festa vexti. En fasteignamatið lækkaði töluvert frá 2020 þegar ég hefði líklegast bara átt að slá til og festa vextina. Ég tók ekki eftir þessu rugli fyrr en bara núna þegar ég fór að hugsa um þetta aftur. Óskiljanlegt að fasteignamat lækki á nýbyggingu á milli ára.
Sem betur fer hækkar fasteignamatið 2022 þannig að ég fell í eðlilegt vaxtarþrep en tekur ekki gildi hjá mínum banka (Landsbankinn) fyrr en 6. september.

Þetta kerfi fokkar í manni endalaust!

Hvar sjáiði þessa reiknavél? ég er nýbúin að kaupa og fasteignamatið var að hækka TALSVERT á minni íbúð en ég sé engan mun í þessum reiknivélum

Þetta 4,05 dót er ekki í reiknivélunum.... þarft að hafa samband við bankann.
Stendur líka ekki alltaf augljóst á heimasíðunni en er í vaxtatöflunni.

Jú þetta er hérna...
https://www.landsbankinn.is/einstakling ... tryggd-lan

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 03. Júl 2021 11:00
af Hjaltiatla
worghal skrifaði:Gerði nákvæmlega það sama og þú.
Er með tvö lán hjá landsbankanum (íbúðar- og aukalán) en þeir geta ekki endurfjármagnað á nýju fasteignamati fyrr en í september af því það eru of margir í sumarfríi (þetta er það sem mér var tjáð í símanum).
Spurði hjá Arion og það var nánast hlegið og sagt að þeir byrji 1. júl.
Ég sló til og endurfjármagnaði með Arion og skrifaði undir mest allt í dag og klára þetta á mánudaginn. :happy

Með þessu komst ég úr drasl vöxtum og lækka greiðslubyrgðina næstum um 70þ á mánuði og enda með eitt lán \:D/

Ég er með blandað lán verðtryggt lán og óverðtryggt lán á frekar óhagkvæmum vöxtum miðað við stöðuna í dag (tók lán 2018).Var að klára að sækja um endurfjármögnun hjá Arion banka og sótti um óverðtryggt lán með föstum 4,35 % vöxtum í 3 ár. Sótti um nýtt lán með sem lengstum lánstíma til að geta haft betri stjórn á mánaðarlegum afborgunum (mun samt greiða aukalega inná lánið í hverjum mánuði). Miðað við þetta er ég að lækka mánaðarlega afborgun um sirka 18 þúsund á mánuði miðað við núverandi lán (en var reyndar að greiða ágætis upphæð inná lánið þannig mögulega gæti það spilað inní þann part). Nýja fasteignarmatið gerði það að verkum að ég komst uppí 30% eignarmyndun eftir að ég greiddi smá auka upphæð inná lánið og get því fengið hagstæðara lán.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 19. Júl 2021 10:45
af GuðjónR
Jæja, þá hafa föstu vextirnir hækkað.
Ég festi mína um mánaðarmótin í 4.05%
Þeir eru komnir í 4.2% og það án aðkomu seðlabankans.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 19. Júl 2021 12:19
af Hjaltiatla
Sýnist Landsbankinn hafi verið seinastir til að hækka vexti á óverðtryggðu lánunum.
Mynd

Annars er ég að fá í gegn 100% óverðtryggt lán á 4,35% vöxtum hjá Arion , Lánið er núna í Þinglýsingu.
Mæli með að prófa að setja inn nýja lánið inná Aurbjorg.is til að sjá hvaða áhrif það hefur að greiða aukalega inná lánið.

Edit: Landsabankinn hefur greinilega hækkað lán með breytilegum vöxtum í Júní en hækkað lán með föstum vöxtum í Júlí.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 08:13
af Hjaltiatla
Peningastefnunefnd kynnir vaxtaákvörðun kl. 8.30

https://www.visir.is/g/20212147069d/pen ... n-kl.-8.30

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 08:38
af blitz
Hjaltiatla skrifaði:
Peningastefnunefnd kynnir vaxtaákvörðun kl. 8.30

https://www.visir.is/g/20212147069d/pen ... n-kl.-8.30

Vextir upp

https://www.sedlabanki.is/utgefid-efni/ ... gust-2021/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 09:02
af Dr3dinn
blitz skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
Peningastefnunefnd kynnir vaxtaákvörðun kl. 8.30

https://www.visir.is/g/20212147069d/pen ... n-kl.-8.30

Vextir upp

https://www.sedlabanki.is/utgefid-efni/ ... gust-2021/

Hjúkket að ég festi vexti um daginn.....

Minnir mig samt á þessa grein ( Þarf ég há­skóla­próf í hag­fræði til að eiga fast­eign? ) :

https://www.visir.is/g/20212105857d

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 09:05
af jericho
Munur á stýrivöxtum Seðlabankans og óverðtryggðum vöxtum hjá lífeyrissjóðnum mínum hefur nánast aldrei verið meiri. Stýrivextirnir mega hækka töluvert áður en lífeyrissjóðurinn hækkar óverðtryggðu vextina, fjandinn hafi það!

Mynd

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 09:26
af Klemmi
Já, bankarnir hafa étið upp mikinn hluta af því sem hefði átt að skila sér til lántaka, enda einfalt og þægilegt í krafti samstöðu og fákeppni.

Absúrd að ríkið geti átt meirihlut í fleiri en einum banka, en engin þrýstingur sé frá stjórnvöldum um að vaxtalækkanir skili sér almennilega til heimilanna. Það er aumingjalegt að fela sig á bakvið það að stjórnvöld eigi ekki að beita sér á þennan hátt gagnvart bönkunum. Stjórnvöld eru kosin af almenning og eiga að gæta hag hans, og þeim hag er ekki best gætt með bönkum sem geta endalaust skarað eld að sinni eigin köku, lokandi útibúum á meðan byggðar eru höfuðstöðvar á dýrustu lóð landsins.

En annars er ég bara kátur.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 09:38
af jericho

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 09:40
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Jæja, þá er ég búinn að festa vextina í 36 mánuði í 4.05% þori ekki öðru en að taka mark á seðlabankastjóra.

Helsti ókosturinn við að festa vexti, er að þá er maður farinn að vona að allt fari í fokk, svo maður hafi tekið rétta ákvörðun :crazy :crazy :crazy

Við tókum rétta ákvörðun! \:D/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 11:10
af vesley
Ég hef ennþá allavega haldið í þá ákvörðun að festa ekki vexti hjá mér. Sjá hvort það sé meiri hagur í raun að "ride the wave" heldur en að taka í bremsu og festa mig til einhverra ára.
Er með óverðtryggt lán á minni íbúð sem stendur núna í 3,1% vöxtum.
Við höfum líka alveg þannig tekjur að við getum tekið við hærri afborgunum ef til þess kemur, tókum ekki lán með þannig afborgunum að við værum á þolmörkum. Sú fasteign sem við erum í er líka ekki okkar framtíðareign og verður seld í stærri eða þá úr fjölbýli, og virðumst við hafa verið heppin með tímasetningu á kaupum, 8 mánuðum eftir okkar kaup seldist nákvæmlega eins íbúð í blokkini á móti á 18 milljónum meira. Það er auðvitað ekkert hægt að vita hvað við fáum fyrir íbúðina 5-10 árum seinna, það kemur bara í ljós :)

Hinsvegar á sama tíma höfum við líka greitt hraðar niður minni lán (bílinn) og því lækkað okkar greiðslubyrði. Ég stytti niður afborgunartímann á bílnum um tvö ár. Ásamt því erum við heppin með þann bíl og hefur hann fallið lítið sem ekkert í verði og því er hann farinn á bílasölu. Þrátt fyrir það greiðum við ennþá alltaf sömu upphæð til að borga hraðar niður.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 11:18
af Hallipalli
vesley skrifaði:Ég hef ennþá allavega haldið í þá ákvörðun að festa ekki vexti hjá mér. Sjá hvort það sé meiri hagur í raun að "ride the wave" heldur en að taka í bremsu og festa mig til einhverra ára.
Er með óverðtryggt lán á minni íbúð sem stendur núna í 3,1% vöxtum.
Við höfum líka alveg þannig tekjur að við getum tekið við hærri afborgunum ef til þess kemur, tókum ekki lán með þannig afborgunum að við værum á þolmörkum. Sú fasteign sem við erum í er líka ekki okkar framtíðareign og verður seld í stærri eða þá úr fjölbýli, og virðumst við hafa verið heppin með tímasetningu á kaupum, 8 mánuðum eftir okkar kaup seldist nákvæmlega eins íbúð í blokkini á móti á 18 milljónum meira. Það er auðvitað ekkert hægt að vita hvað við fáum fyrir íbúðina 5-10 árum seinna, það kemur bara í ljós :)

Hinsvegar á sama tíma höfum við líka greitt hraðar niður minni lán (bílinn) og því lækkað okkar greiðslubyrði. Ég stytti niður afborgunartímann á bílnum um tvö ár. Ásamt því erum við heppin með þann bíl og hefur hann fallið lítið sem ekkert í verði og því er hann farinn á bílasölu. Þrátt fyrir það greiðum við ennþá alltaf sömu upphæð til að borga hraðar niður.

Ég er í nákvæmalega því sama.... enþá svo mikil óvissa að ég ætla ride the wave :)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 25. Ágú 2021 12:08
af GuðjónR
vesley skrifaði:Er með óverðtryggt lán á minni íbúð sem stendur núna í 3,1% vöxtum.
Hvar fékkstu svona góð vaxtakjör? Skil að þú viljir bíða, ert með ágætis buffer miðað við föstu vextina.