Síða 9 af 20

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 17. Nóv 2021 15:59
af falcon1
Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.

Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:30
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.

Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.

Sömuleiðis, góð tilfinning að vera með 4.05% fasta vexti næstu þrjú árin.
Stýrivextir eiga eftir að fara yfir 5% á því tímabili og bankavextir sjálfsagt í 7-8% eða hærra, fer eftir verðbólgu.

Svo verður annað hrun, þetta minnir mig á tímabili frá 2005 og að bankahruni, þegar allir fóru í gengislán svo hrundi gengið og öll lán hækkuðu um 30% á einni nóttu. Þessa fasteignaverðshækkanir sem hafa átt sér stað eru engan vegin sjálfbærar.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:46
af falcon1
Æ ég ætla nú rétt að vona að það verði nú ekki svo slæmt að það verði álíka hrun og 2008. :(
Finnst samt gott að geta verið öruggur um að vita alltaf nákvæmlega hvaða upphæð ég þarf að borga í lánið næstu 5 árin sama hvað gerist með vexti og verðbólguna. Hef litla trú á að verðbólgan hjaðni mikið þar sem verðbólga erlendis er á töluverðri siglingu líka.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:50
af worghal
falcon1 skrifaði:Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.

Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.

sama hér, get sofið rótt eftir að hafa farið í endurfjármögnun og fest vexti um daginn \:D/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:53
af Hjaltiatla
Fasteignamarkaðurinn gæti orðið fórnarlamb verðbólgu
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/11/17/fasteignamarkadurinn_gaeti_ordid_fornarlamb_verdbol/

Enn kemur verðbólgan í bakið á Seðlabankanum
https://www.ruv.is/frett/2021/11/17/enn-kemur-verdbolgan-i-bakid-a-sedlabankanum


Maður er eitthvað að reyna að lesa í stöðuna. Mann grunar að verkalýðsforustan eigi eftir að láta í sér heyra þar sem Seðlabankastjóri er að vara við launahækkunum.

Hver veit svosem hvernig Covid ástandið á eftir að þróast , en talað er um að kostnaður á erlendum vörum hækki (vegna hærri flutningskostnaðar). Öfunda ekki fólk sem er að koma sér inná fasteignarmarkaðinn þar sem það er minna framboð á íbúðum en eftirspurnin (hjálpar ekki til ef verð á byggingarvörum og launakostnaður verður hærri á næstunni við að reisa ný hús).Gæti alveg trúað að fasteignaverð hækki enn frekar.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 18:39
af GuðjónR
https://www.visir.is/g/20212187484d/lan ... kkar-vexti

Í kjölfar breytinganna verða breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum 4,20%. Lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,65%.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 18:52
af hagur
Vúhú, ég er sáttur við mína 3.9% föstu vexti næstu c.a 2.5 árin. Að festa vextina síðasta vor var greinilega rétt ákvörðun.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 19:21
af vesley
Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 19:34
af Klemmi
Held að þetta sé í fyrsta skipti frá því að ég tók fyrst lán í byrjun 2015, sem það hefur borgað sig að vera með fasta óverðtryggða vexti.

Gleður mig að ég er loksins með hagstæðustu lánatýpuna, en á sama tíma hef ég borgað helvíti mikið aukalega hingað til, og auðvitað súrt að fagna verðbólgunni og hækkandi vaxtastigi.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 19:37
af GuðjónR
vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti

Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…

hagur skrifaði:Vúhú, ég er sáttur við mína 3.9% föstu vexti næstu c.a 2.5 árin. Að festa vextina síðasta vor var greinilega rétt ákvörðun.

Góður!
Ég beið aðeins of lengi, samt sáttur með 4.05%

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 20:19
af vesley
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti

Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…


Kæmi mér ekki á óvart en spurning hvort það muni vara lengi.
Er líka núna að borga aukalega á lánin meðan vextirnir eru enn lágir. Aðeins að rífa það niður um nokkra þúsundkalla :lol:

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 24. Nóv 2021 20:36
af hagur
vesley skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti

Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…


Kæmi mér ekki á óvart en spurning hvort það muni vara lengi.
Er líka núna að borga aukalega á lánin meðan vextirnir eru enn lágir. Aðeins að rífa það niður um nokkra þúsundkalla :lol:


Já það er óvitlaust. Reyna að lækka höfuðstólinn eins mikið og hægt er áður en maður dettur í 7% vextina 2024 (eða neyðist yfir í verðtryggt aftur).

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 25. Nóv 2021 20:22
af bjoggi
Það er áhugavert að skoða þetta skjal sem Landsbankinn birti í dag: https://www.landsbankinn.is/uploads/doc ... a-2008.pdf

Þetta er mín spá m.v. það sem Landsbankinn gaf út um daginn. Ég festi mína vexti í 3 ár í 4,35%, sé ekki eftir því.
Mér sýnist þetta stefna í a.m.k. 4,5-4,7% næsta sumar, þ.e.a.s. breytilegir vextir.
PNG image.png
PNG image.png (196.6 KiB) Skoðað 3719 sinnum

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 25. Nóv 2021 22:49
af jonfr1900
Vesenið af þessu upphlaupi Seðlabanka Íslands verður talsvert árið 2022 og 2023.

Inflation: why it’s temporary and raising interest rates will do more harm than good

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 09:14
af Hjaltiatla
Aukn­ar lík­ur á því að Seðl­a­bank­inn stíg­i stærr­i skref
https://www.frettabladid.is/markadurinn/auknar-likur-a-thvi-ad-sedlabankinn-stigi-staerri-skref/

Spurning hvað Seðlabankinn gerir 9.Febrúar varðandi stýrivexti (mikilli verðbólgu spáð og íbúðaverð ennþá að hækka)
https://www.sedlabanki.is/utgefid-efni/vidburdir/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 09:39
af hagur
Fasten your seatbelts folks ....

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 11:21
af vesley
Guð blessi tilvonandi vextina mína :shock:
Styttist í að maður fari að skoða að færa lánið úr Birtu yfir til einhvers annars. Ekki i boði að festa vexti þar og vaxtahækkanir hraðari en allir eiga von á.

Þessi 2% entust ekki lengi :lol:

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 12:33
af gunni91
https://www.visir.is/g/20222215202d/bei ... nn-a-arinu

Það má held ég búast við lágmark 0.5% hækkun á stýrivöxtum í febrúar...

Feginn að hafa náð að festa vexti í 4.15%... (var þá með breytilega 3.45% þegar ég endurfjármagnaði).

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 13:11
af GuðjónR
Það verður 0.75% hækkun að lágmarki, gætum séð 1% hækkun.
Þetta er svo mikil sturlun, öll aðföng eru að hækka vegna hækkunar á heimsmarkaði en Seðlabankinn vinnur gegn því með því að hamla gegn styrkingu krónunnar og á sama tíma hækka vexti þar sem verðbólgan fer á flug einmitt vegna ytri aðstæðna.
Væri ekki nær að leyfa krónunni að styrkjast til að vega á móti þessum hækkunum í stað þess að hækka vexti sem líka fara út í verðlag?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 13:19
af gunni91
GuðjónR skrifaði:Það verður 0.75% hækkun að lágmarki, gætum séð 1% hækkun.
Þetta er svo mikil sturlun, öll aðföng eru að hækka vegna hækkunar á heimsmarkaði en Seðlabankinn vinnur gegn því með því að hamla gegn styrkingu krónunnar og á sama tíma hækka vexti þar sem verðbólgan fer á flug einmitt vegna ytri aðstæðna.
Væri ekki nær að leyfa krónunni að styrkjast til að vega á móti þessum hækkunum í stað þess að hækka vexti sem líka fara út í verðlag?



It's all about "balance"

Eins og við vitum hafa okkar helstu atvinnugreinar alltaf fengið að ganga framfyrir heimilin (glatað) . Ef krónan styrkist of mikið, hægist á túristum til Íslands, útflutningur á fiski verður dýrari fyrir Evrópu o.s.f, segir sig nokkuð sjálft.

Ég er samt hjartanlega sammála þér að leyfa krónunni að styrkjast og leyfa localnum aðeins að njóta ódýrari innflutnings á helstu hráefnum og matvöru, tala nú ekki um ef fólk vill ferðast erlendis osf.

En þá kemur aftur að spurningunni, hvert er/telst eðlilegt exchange rate á helstu gjaldmiðlum?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 15:52
af hagur
gunni91 skrifaði:
En þá kemur aftur að spurningunni, hvert er/telst eðlilegt exchange rate á helstu gjaldmiðlum?


Dollarinn á 60 kall eins og c.a árið 2007 takk :sleezyjoe

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 18:41
af falcon1
Ég verð að segja það að mér finnst þessi tvö síðustu gjaldeyrisinngrip Seðlabankans mjög skrítin í ljósi þess að verðbólgan er að komast á flug og fyrirsjáanlegt að það verði mjög mikill þrýstingur á verðhækkanir innanlands vegna hækkana á aðföngum erlendis frá sem svo leiðir til aukinnar verðbólgu.
Sterkara gengi hefði vegið upp á móti því að einhverju leyti og það er ekki eins og gengið mætti ekki vera sterkara.

Ég setti bensín á bílinn minn áðan og brá dáldið að sjá að verðið sé komið í 255 kr.-, styttist í að líterinn muni kosta 300 kr.- arrgg...

Mér þykir líklegt að vextir muni hækka um 0,75-1% í næstu ákvörðun en ætla að vera bjartsýnn og spá "aðeins" 0,5% hækkun.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Lau 29. Jan 2022 20:26
af rapport
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=68140

Það er verið að auka hratt peningamagn í umferð hér innanlands og þá lækkar virði hverrar krónu hér innanlands.

Seðlabankinn er að gera rétt með að halda genginu veiku því það er engin innistæða fyrur sterku gengi.

Ríkisstjórnin virðist taka fullan þátt í þessu sbr.

https://www.visir.is/g/20222204956d

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 30. Jan 2022 07:18
af Manager1
falcon1 skrifaði:...
Ég setti bensín á bílinn minn áðan og brá dáldið að sjá að verðið sé komið í 255 kr.-, styttist í að líterinn muni kosta 300 kr.- arrgg...
....

277kr úti á landi þannig að já, það styttist verulega í 299.9kr, gerist sennilega á þessu ári :shock:
Verðið var í 249.9 mjög lengi en svo þegar 250kr múrinn var brotinn þá hækkaði verðið mjög hratt.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 09. Feb 2022 08:53
af Hjaltiatla
Stýr­i­vext­ir hækk­a um 0,75 prós­ent­u­stig

https://www.frettabladid.is/markadurinn/styrivextir-haekka-um-075-prosentustig/