Síða 3 af 20

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 05. Maí 2021 10:02
af Plushy
Er ég að fara tortíma sjálfum mér með því að taka verðtryggt lán í dag?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 05. Maí 2021 10:12
af jericho
Plushy skrifaði:Er ég að fara tortíma sjálfum mér með því að taka verðtryggt lán í dag?


Fer eftir upphæðinni. Ég tók t.d. hámarkslán (verðtryggt) hjá lífeyrissjóði mínum, sem ég var að breyta í óverðtryggt í síðustu viku. Þar sem verðbólgan jókst um 0,7% á milli mánaða, þá hækkaði höfuðstóllinn á þessu verðtryggða láni um 300þús kr, á einum mánuði (sem hefði ekkert gerst hefði ég verið aðeins fyrr að breyta yfir í óverðtryggt).

[edit] Punkturinn minn er sem sagt, ef þú ræður við afborganirnar, þá er óverðtryggt líklegast betri kostur.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 05. Maí 2021 10:23
af jonfr1900
Plushy skrifaði:Er ég að fara tortíma sjálfum mér með því að taka verðtryggt lán í dag?


Þú ert ekki að gera þér neina greiða með þessu. Það verður mikið um gjaldþrot um miðjan áratuginn þegar allt hagkerfið á Íslandi fer í drasl (aftur).

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 05. Maí 2021 10:44
af Dr3dinn
Að veita verðtryggð lán núna minnir mig á :

https://www.youtube.com/watch?v=ml9MWzF2bpQ

aka. We want your children.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 05. Maí 2021 20:14
af dadik
Plushy skrifaði:Er ég að fara tortíma sjálfum mér með því að taka verðtryggt lán í dag?


Alls ekki. Ég var með verðtryggð lán í 16 ár og fór í gegnum dotcom bust og bankahrun án þess að finna mikið fyrir þessu. Þetta er samt dýr lán og aðrir betri kostir í boði. Ég þú skilur samt hvað þú ert að gera er allt í lagi að taka þetta. Ef þetta er spurning um leigu vs að kaupa með verðtryggðu eru kaupin alltaf betri kostur.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 10:04
af KRASSS
https://www.visir.is/g/20212109163d/spa ... ta-19.-mai

Fréttin sem allir voru að bíða eftir

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 11:51
af Hentze

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 13:51
af jonfr1900
Þetta hérna þýðir einfaldlega að efnahagurinn er farinn til fjandans og þeir vita ekkert hvað á að gera til að redda málunum. Smá vísbending, það er ekki hægt að redda þessu.

Spá stýrivaxtahækkun og hömlum á fasteignalán (mbl.is)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 15:49
af GuðjónR
Skil ekki alveg rökin að hækka vexti til að minnka verðbólgu, hefði haldið að aukinn vaxtakostnaður þýddi hærra verð fyrir vörur og þjónustu sem kallar á hærri laun sem aftur ýtir upp verðlagi.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 16:17
af Hizzman
GuðjónR skrifaði:Skil ekki alveg rökin að hækka vexti til að minnka verðbólgu, hefði haldið að aukinn vaxtakostnaður þýddi hærra verð fyrir vörur og þjónustu sem kallar á hærri laun sem aftur ýtir upp verðlagi.


bara gamli 'góði' Íslenski vítahringurinn! þetta er samkvæmt einhverri efnahagsfræði sem hefur reyndar alls ekki virkað á Íslandi! Dæmigerði íslendingurinn veit varla hvað prósentur og vextir er..

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 16:22
af hagur
GuðjónR skrifaði:Skil ekki alveg rökin að hækka vexti til að minnka verðbólgu, hefði haldið að aukinn vaxtakostnaður þýddi hærra verð fyrir vörur og þjónustu sem kallar á hærri laun sem aftur ýtir upp verðlagi.


Það er verið að reyna að kæla hagkerfið með vaxtahækkun, láta fólk halda að sér höndum - minnka eftirspurn. Sem "ætti" þá að draga úr verðbólgu ... en ég hef bara ekki séð þetta virka hingað til á Íslandi, eiginlega bara þvert á móti. Það virðist sama hvað er gert hérna, verðlag leitar alltaf upp á við og verðbólgan með.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 16:27
af kusi
GuðjónR skrifaði:Skil ekki alveg rökin að hækka vexti til að minnka verðbólgu, hefði haldið að aukinn vaxtakostnaður þýddi hærra verð fyrir vörur og þjónustu sem kallar á hærri laun sem aftur ýtir upp verðlagi.


Miðlunarferli peningastefnunnar eru gerð góð skil i eftirfarandi rammagrein úr Peningamálum:
https://www.sedlabanki.is/lisalib/getfi ... temid=1055

Í grófum dráttum má segja að hærri vextir leiða til þess að eftirspurn í hagkerfinu minnkar, t.d. með því að draga úr lántökum einstaklinga og fyrirtækja og auka sparnað. Eftir því sem dregur úr eftirspurn þá minnkar þrýstingur til verðlagshækkana. Það eru fleiri kraftar þarna að verki en þetta er líklega sá sem er auðveldast að vefja hausnum um. Á móti gerist það þegar vextir lækka að fólk gengur á sparnað því það er minna unnið með því að spara, fólk tekur frekar lán því það er ódýrara, húsnæði, hlutabréf og aðrar eignir hækka í verði* sem fær fólk til að upplifa sig ríkara (auðsáhrif) og eykur veðrými sem aftur eykur lántökur frekar. Fólk hefur þannig bæði meiri pening milli handanna og er viljugra til að eyða. Aukin eftirspurn í hagkerfinu leiðir svo til verðhækkana.


* Að öðru óbreyttu hækkar eignaverð þegar vextir lækka og það lækkar þegar vextir hækka.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 16:37
af vesley
kusi skrifaði:* Að öðru óbreyttu hækkar eignaverð þegar vextir lækka og það lækkar þegar vextir hækka.



Eignarverð lækkar ? :lol:

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 14. Maí 2021 17:12
af codec
Hizzman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Skil ekki alveg rökin að hækka vexti til að minnka verðbólgu, hefði haldið að aukinn vaxtakostnaður þýddi hærra verð fyrir vörur og þjónustu sem kallar á hærri laun sem aftur ýtir upp verðlagi.


Minnka eftirspurn á húsnæðismarkaði.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 10:08
af blitz
https://skra.is/um-okkur/frettir/frett/ ... idretting/

Þetta eru rosalegar tölur - mesta hækkun milli mánaða frá 2007. Tölur fyrir apríl koma í dag - verður mjög fróðlegt að sjá.

Vaxtaákvörðun á morgun - verður einnig fróðlegt að sjá hvort vextir verða óbreyttir og að þjóðhagsvarúðartækjum verði beitt, t.d. með auknum takmörkunum á veðsetningu eða takmark á greiðslur sem hlutfall af tekjum: https://www.sedlabanki.is/fjarmalastodu ... ignalanum/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 11:20
af GuðjónR
3.3% hækkun milli mánaða er sturlun, hvernig à ungt fólk að safna sér fyrir útborgun?
Og er húsnæðisliðurinn ekki 1/3 hluti af verðtryggingunni?

Ég ætla að vera bjartsýnn og spá óbreyttum vöxtum á morgun.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 11:53
af Mossi__
Ég var einmitt að gera mér vonir um að geta flutt á þessu ári, og tekjurnar komnar á þann stall að það var vel mögulegt.

Svo ákvað fasteignamarkaðurinn að fara í þennan algjöra chaos.

Ég ætla ekki að taka þátt í þessu partýi. Frekar bara að sjá hvernig malin þróast.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 12:39
af Dr3dinn
Held að stéttarfélögin muni gera meiri launakröfur ef þeir hækka vexti um of, þannig það kæmi mér á óvart að sjá miklar hækkanir.
(einhverjar hækkanir en litlar)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 16:01
af dadik
vesley skrifaði:
kusi skrifaði:* Að öðru óbreyttu hækkar eignaverð þegar vextir lækka og það lækkar þegar vextir hækka.



Eignarverð lækkar ? :lol:


Fasteignir eru reyndar mjög lengi að lækka. Fljótar að hækka, seinar niður. Gott dæmi er þegar Íslandsbanki spáði 10% hækkun á fasteignaverði á næstu 12 mánuðum. Daginn eftir hækkuðu allar eignir um 10% :D

Lækkunin kemur yfirleitt fram með því að nafnverð stendur í stað. Þú keyptir íbúð á 50m og vilt ekki selja hana á minna en 50m. Ári seinna selurðu svo íbúðina á 50m en þá væri verðbólgan búin að éta upp 4-5% miðað við núverandi árferði.

Svo hafa komið tímabil þar sem húsnæðisverð lækkar á eftir ár. Minnir að 1986-1996 hafi raunverð lækkað á hverju ári.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 16:03
af blitz

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 16:33
af GuðjónR

Þetta er svoooo slæmt!

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 16:36
af Klemmi


Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,7%,


Þetta er svo bilað! Og það er enginn sem hagnast á þessu, nema fólkið sem er að minnka við sig eða selja fasteignir og ætla ekki að kaupa aðra í staðin. Og það er fólkið sem þarf síst á þessum peningum að halda.

Allir hinir þurfa ekki einungis að borga meira fyrir eignina, heldur hækka lánin hjá þeim sem eru með verðtryggð lán, þar sem íbúðarhlutinn er enn inn í vísitölunni, og greiða svo einnig hærri fasteignagjöld til sveitarfélagsins.

Er skrítið að það séu kröfur um launahækkanir, þegar þessi stærsti útgjaldaliður heimilisins rýkur upp úr öllu valdi?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 16:43
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:


Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,7%,


Þetta er svo bilað! Og það er enginn sem hagnast á þessu, nema fólkið sem er að minnka við sig eða selja fasteignir og ætla ekki að kaupa aðra í staðin. Og það er fólkið sem þarf síst á þessum peningum að halda.

Allir hinir þurfa ekki einungis að borga meira fyrir eignina, heldur hækka lánin hjá þeim sem eru með verðtryggð lán, þar sem íbúðarhlutinn er enn inn í vísitölunni, og greiða svo einnig hærri fasteignagjöld til sveitarfélagsins.

Er skrítið að það séu kröfur um launahækkanir, þegar þessi stærsti útgjaldaliður heimilisins rýkur upp úr öllu valdi?

Þetta er snarbilað!

Það virðst bara vera tvennt í stöðunni fyrir unglinga í dag, flytja til útlanda eða búa inn á foreldrum þangað til þeir fara á elliheimilið.
Nærð ekki að eignast neitt þegar ástandið er svona nema eiga ríka foreldra sem bakhjarla.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 21:35
af Viktor
Klemmi skrifaði:Er skrítið að það séu kröfur um launahækkanir, þegar þessi stærsti útgjaldaliður heimilisins rýkur upp úr öllu valdi?


Launahækkanir hækka líka húsnæðisverð :)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 18. Maí 2021 22:20
af falcon1
Ég spái óbreyttum vöxtum, það er einfaldlega of mikil óvissa ennþá í kringum hvernig efnahagskerfið á eftir að jafna sig eftir COVID áfallið og hvort að COVID sé yfirhöfuð búið (að klárast) eða ekki. Það er frekar að Seðlabankinn fari í markvissari aðgerðir til að kæla húsnæðismarkaðinn t.d. með því að lækka leyfilegt veðhlutfall (hámarkslán) eða eitthvað slíkt. En vissulega eru aðvörunarljós farin að blikka engu að síður þannig að stýrivaxtaákvörðunin er frekar tvísýn hvort verði óbreyttir eða hækkaðir stýrivextir.