Síða 1 af 1

Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 15:50
af ZiRiuS
Ég er búinn að fá nokkra pósta frá "fyrirtækinu" Exploit.is og Techstate.is sem virðist vera í eigu sama einstaklingsins. Einhver gaur og "fyrirtæki" sem ég kannast ekkert við og hef aldrei verið í tengdum viðskiptum við. Er að spá hvar svona "fyrirtæki" eru að fá emailið mitt, hvort að þau séu að fá þetta í gegnum einhver breaches eða hvað? Ég sendi honum fyrirspurn en fékk engin svör. Frekar spes og shady shit...

Kannast einhver við þetta? Ætla að vona að viðkomandi sé ekki vaktari :fly

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 16:33
af vatr9
Kannast við óumbeðinn póst frá Techstate.io með efnislínunni "Fyrirspurn um tilboð í þjónustur - Vefsíður - Vefhönnun - Farsímaforrit"

Þetta er undirritunin:
Sigurður Þór Friðþórsson,
+354 846 63 14
Meðeigandi og fulltrúi,
Techstate.is

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 16:38
af oliuntitled
techstate.is síðan vill meina að þeir séu búnir að vinna fyrir meðal annars reykjavíkurborg, virðist vera að gera sig út fyrir öryggi, penetration testing og þannig dót.

Lénið er hýst í póllandi en er með skráð íslenskt heimilisfang á isnic.
Hef ekki heyrt um þá áður.

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 16:49
af Dropi
Það er skítafýla af þessu öllu, exploit síðan byrjaði á að routa mig eitthvert sem mér leist ekkert á, eitthvað loading script sem kom upp með fontum sem ég tengi alls ekki við atvinnumenn heldur fonta sem koma þegar asískar síður nota eitthvað ljótt default letur. Ég tók ekki eftir hvaða addressu ég var kominn á og lokaði þessu hið snarasta.

Hafið þið ekki líka tekið eftir mikill aukningu á drasl niðurstöðum á google, sem koma alltaf fyrst, þegar þú leitar að einhverju á íslensku? Getur verið frekar sannfærandi þangað til þú skoðar urlið. Þetta lyktar svolítið af einhverju AI generated clickbait.

Mynd

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 17:12
af Atvagl
Dropi skrifaði:Hafið þið ekki líka tekið eftir mikill aukningu á drasl niðurstöðum á google, sem koma alltaf fyrst, þegar þú leitar að einhverju á íslensku? Getur verið frekar sannfærandi þangað til þú skoðar urlið. Þetta lyktar svolítið af einhverju AI generated clickbait.


Ég lenti á daginn á einhverri vefsíðu með hundruðum, ef ekki þúsundum af stuttum how-to greinum á íslensku. Eftir stuttan lestur á einni greininni var ég alveg kjaftstopp vegna málfarsins - það féll akkúrat í svona uncanny-valley-íslensku svo ég hélt fyrst að ég væri að lesa færeysku, en við nánari athugun var þetta greinilega íslenska.
Textinn var þó það vel framsettur og málfræðilega réttur að hann minnti ekkert á Google Translate.
Ég hugsaði það sama og þú, hvort þetta væri ekki einhver ný gervigreindar spam-herferð sem dælir út úr sér SEO-uðum greinum á 100 mismunandi tungumálum og á randomly generated lénum.

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 20:21
af razrosk
Dropi skrifaði:Það er skítafýla af þessu öllu, exploit síðan byrjaði á að routa mig eitthvert sem mér leist ekkert á, eitthvað loading script sem kom upp með fontum sem ég tengi alls ekki við atvinnumenn heldur fonta sem koma þegar asískar síður nota eitthvað ljótt default letur. Ég tók ekki eftir hvaða addressu ég var kominn á og lokaði þessu hið snarasta.

Hafið þið ekki líka tekið eftir mikill aukningu á drasl niðurstöðum á google, sem koma alltaf fyrst, þegar þú leitar að einhverju á íslensku? Getur verið frekar sannfærandi þangað til þú skoðar urlið. Þetta lyktar svolítið af einhverju AI generated clickbait.

Mynd


hættu að nota google og notaðu duckduckgo þá ættiru að sleppa við svona drasl niðurstöður? :fly

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 21:19
af asigurds
Fékk einmitt sama póst og hef ekki ekki komið nálægt þessu dóti.

"Góðan daginn
Ég heiti Sigurður Þór og er fulltrúi fyrirtækisins Techstate.
Við erum framúrskarandi fyrirtæki á sviðum vefhönnunar, markaðsþjónustu og prentunar á íslandi - Við höfum starfað með leiðandi stofnunum á Íslandi frá því að fyrirtækið var stofnað, og einnig viðskiptavinum úr einkageiranum. Við erum að bæta við okkur viðskiptavinum og við vildum kanna hvort áhugi sé fyrir hendi hjá ykkur að fá tilboð í eitthvað af eftirfarandi þjónustum sem við bjóðum upp á :

- Vefsíður
- Vefverslanir
- Vefverslanir með tenginu í DK bókunarkerfi
- Markaðsþjónustur á netinu
- Graffísk hönnun
- Kynningarmyndbönd
- Prentunar þjónusta
- Filmur og uppsetningar

Okkar vonir og væntingar með fyrirtækið okkar er að byggja langtíma viðskiptasamband byggt á fagmennsku, trausti og trúnaði og uppfylla allar ykkar þarfir á sviði markaðsþjónustu og vefhönnunar. Við bjóðum alltaf upp á frábæra þjónustu á mjög vel samkeppnishæfu verði!


Með bestu kveðjum og ósk um jákvæð viðbrögð,

Sigurður Þór Friðþórsson,
+354 846 63 14
Meðeigandi og fulltrúi,
Techstate.is"

Hvar hann hefur komist yfir netfangið mitt hef ég ekki hugmynd um.

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 21:54
af Viktor

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Mið 28. Apr 2021 22:04
af ZiRiuS
Sallarólegur skrifaði:https://www.pfs.is/neytendur/oumbedin-fjarskipti-hvada-reglur-gilda/


Tilkynnti hann í fyrra þegar ég fékk fyrst póst (sem var meira að segja nafnlaus þá) og PFS talaði allavega ekkert meira við mig eftir það.

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Fim 29. Apr 2021 09:17
af Dropi
razrosk skrifaði:hættu að nota google og notaðu duckduckgo þá ættiru að sleppa við svona drasl niðurstöður? :fly


Sem ég og geri, það er erfitt að brjóta þennan vana en sennilega er ég kominn í 50/50 hlutfall að nota duckduckgo og google. Það er merkilega góð leitarvél, en hún er stundum frekar heimsk með context. Þær hafa sína styrki, Google er svo ad-heavy að stundum þarftu að fara langt niður á síðuna til að sjá raunverulegu fyrstu niðurstöðuna, ekki bara milljón auglýsingar að þykjast vera niðurstöður.

Google er líka farnir að vera svo graðir á auglýsingar, ég er farinn að gæla mér að fara yfir í iPhone bara til að losna við að vera adtracked í drasl í framtíðinni. Stórefast að Google komi með sambærilegan fídus.

Re: Tæknifyrirtæki að brjóta fjarskiptalög

Sent: Fös 30. Apr 2021 09:26
af Dr3dinn
Er að lenda í glötuðum google niðurstöðum á íslensku og ensku... brotnaði eitthvað hjá þeim? :)

Var að leita af undirbúnings kúrsum í cisco og fékk bara indverskar sölu "help" síður og youtube sölu help síður.

Spurning hvort það sé bara búið að kaupa allar niðurstöðurnar?