Síða 6 af 89

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 12. Ágú 2021 19:21
af mjolkurdreytill
Erum við að tala um jarðskjálftavirknina sem er að eiga sér stað 90 km frá Reykjanestánni?

Eða skjálftavirknina á Kjalarnesi? :megasmile

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 12. Ágú 2021 22:07
af jonfr1900
mjolkurdreytill skrifaði:Erum við að tala um jarðskjálftavirknina sem er að eiga sér stað 90 km frá Reykjanestánni?

Eða skjálftavirknina á Kjalarnesi? :megasmile


Það er jarðskjálftavirknin sem er á Reykjanestánni núna og síðan jarðskjálftavirkni sem er allt að 100 km frá landi á Reykjaneshrygg. Eldgos sem verða lengra frá landi eru minna vandamál en eldgos sem verða næst ströndinni. Annars á virknin einnig eftir að færast nær Henglinum og það ferli virðist vera fast af einhverjum óþekktum ástæðum og það er slæmt grunar mig. Ætli það losni ekki með stórum jarðskjálftum á næstu mánuðum til árum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 13. Ágú 2021 17:41
af jonfr1900
Ætli það sé hægt að gera eitthvað varðandi fólkið sem hagar sér eins og fábjánar fyrir framan vefmyndavél Rúv. :-k

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 13. Ágú 2021 18:48
af mikkimás
Tja, það er gígur þarna rétt hjá...

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 13. Ágú 2021 20:54
af jonfr1900
Eitthvað þarf að gera. Það eru fleiri en ég orðnir þreyttir á þessum fávitum sem eru alltaf að trufla myndina á Rúv.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Ágú 2021 00:19
af Henjo
jonfr1900 skrifaði:Eitthvað þarf að gera. Það eru fleiri en ég orðnir þreyttir á þessum fávitum sem eru alltaf að trufla myndina á Rúv.


Eitthvað þarf að gera, ég er bara labba og það eru eitthverjir hálvitar búnir að plantar myndavélum útum allt. Má það bara?! Eitthvað þarf að gera

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 16. Ágú 2021 18:11
af jonfr1900
Það hefur opnast nýr gígur í eldgosinu. Þetta mun aðeins breyta hraunflæðinu.

2021-08-16 (10).png
2021-08-16 (10).png (1.91 MiB) Skoðað 5505 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 16. Ágú 2021 19:20
af mjolkurdreytill
Það sést nú ekki nógu vel á þessari mynd hversu stórt nýja opið er í samanburði við stóra gíginn.

Hinsvegar get ég ímyndað mér að stóri gígurinn sé svona hundraðfalt stærri en nýja gosopið.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 16. Ágú 2021 21:22
af jonfr1900
Það sést ekkert á vefmyndavél Rúv vegna þoku á svæðinu. Svona er staðan á nýja gígnum núna.

2021-08-16 (20).png
2021-08-16 (20).png (1.36 MiB) Skoðað 5439 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 16. Ágú 2021 23:17
af jonfr1900
Það fjölgar gígunum sem eru að gjósa þarna núna.

2021-08-16 (27).png
2021-08-16 (27).png (1.33 MiB) Skoðað 5395 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 23. Ágú 2021 03:22
af jonfr1900
Það þarf nú talsvert til þess að ná í gegnum alla þessa þoku.

2021-08-23 (9).png
2021-08-23 (9).png (648.09 KiB) Skoðað 5196 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 13:19
af jonfr1900
Það þarf að ráða manneskju í fullt starf við að stugga þessu fólki sem er að troða sér fyrir framan myndavélina hjá Rúv í burtu. Óþolandi fábjánar sem eyðileggja þetta fyrir öðrum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 13:29
af mjolkurdreytill
Mastrið sem myndavélin er fest á er búin að standa þarna síðan rétt eftir að gosið hófst og er miklu meira en bara myndavél.

Fólkið sem er þarna er bara að njóta besta staðarins og hefur örugglega ekki hugmynd um það að það sé myndavél á mastrinu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 13:46
af raggos
Hefur einhver hér heyrt af hverju vísir og mbl hafa gefið upp á bátinn sínar vefmyndavélar. Maður myndi halda í einfeldni sinni að þetta sé svona set it and forget it dæmi svo lengi sem fólk láti búnaðinn í friði.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 14:13
af Daz
raggos skrifaði:Hefur einhver hér heyrt af hverju vísir og mbl hafa gefið upp á bátinn sínar vefmyndavélar. Maður myndi halda í einfeldni sinni að þetta sé svona set it and forget it dæmi svo lengi sem fólk láti búnaðinn í friði.


Af því að MBL hefur tvisvar misst sína vél undir hraunrennslið? Aðeins of mikil áhersla á "forget it" þar :fly

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 14:21
af mjolkurdreytill
raggos skrifaði:Hefur einhver hér heyrt af hverju vísir og mbl hafa gefið upp á bátinn sínar vefmyndavélar. Maður myndi halda í einfeldni sinni að þetta sé svona set it and forget it dæmi svo lengi sem fólk láti búnaðinn í friði.


Myndavél Vísis var neðarlega á Stóra Hrút þar sem enginn eða fáir voru að fara. Núna er mikið af umferðinni á því svæði og spurning hvort þessu var hætt á fjárhagslegum grundvelli eða hvort einhverjir fiktuðu í vélinni.

Ég veit ekki hvar vefmyndavél MBL stóð/stendur en ef mig misminnir ekki var hún á hólnum sem er við gíginn. Sá hóll er korter í að fara undir hraunið og spurning hvort mbl ákvað að bjarga vélinni áður en þeir misstu þriðja eintakið.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 15:25
af jonfr1900
mjolkurdreytill skrifaði:Mastrið sem myndavélin er fest á er búin að standa þarna síðan rétt eftir að gosið hófst og er miklu meira en bara myndavél.

Fólkið sem er þarna er bara að njóta besta staðarins og hefur örugglega ekki hugmynd um það að það sé myndavél á mastrinu.


Myndagögn benda til annars.

Þessi mynd er frá 20-Ágúst.
2021-08-20 (3).png
2021-08-20 (3).png (1.76 MiB) Skoðað 4950 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 26. Ágú 2021 21:58
af raggos
Og mbl vélin í nátthaga er aftur komin í loftið. MBL er greinilega ekki alveg hætt þessu verkefni

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 28. Ágú 2021 18:53
af jonfr1900
Núna flæðir hraunið án þess að eldgos sé sjáanlegt á yfirborðinu. Þetta er mjög áhugavert.

2021-08-28 (7).png
2021-08-28 (7).png (2.61 MiB) Skoðað 4733 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 28. Ágú 2021 22:17
af GunZi
Það flæðir ennþá hmm

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 29. Ágú 2021 21:32
af jonfr1900
Þokan blokkar útsýnið á gíginn en það er hressilegt hraunflæði niður í Nátthaga núna. Þannig að eitthvað gengur á í eldgosinu núna.

2021-08-29 (8).png
2021-08-29 (8).png (1.41 MiB) Skoðað 4608 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 07. Sep 2021 00:44
af jonfr1900
Það er möguleiki á að eitthvað sé að gerast á nýjum stað en þetta er allt saman óstaðfest og gæti því verið rangt.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 08. Sep 2021 12:09
af Climbatiz
fann þennan fugl randomly fljúgandi fyrir framan myndavélina :Þ

Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 08. Sep 2021 12:22
af Mossi__
Climbatiz skrifaði:fann þennan fugl randomly fljúgandi fyrir framan myndavélina :Þ

Mynd


Fokkinn fávita fugl.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 12. Sep 2021 02:38
af jonfr1900
Eldgosið í Fagradalsfjalli virðist vera búið að breyta sér á ný. Stóra spurningin er hinsvegar hvort að núna gjósi 24 klukkutíma alla daga. Ef það er raunin, þá mun hraunið ná mun lengra en það hefur gert síðustu vikur á mun styttri tíma. Stefan á hrauninu yrði þá niður að strönd miðað við hallann á landslaginu sem er þarna.