Síða 2 af 91

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 22. Maí 2021 20:11
af mjolkurdreytill
https://link.springer.com/article/10.1007/BF02600367

Ég ætla að skilja þetta eftir hérna.

Bara svona ef fólk heldur virkilega að 8 metra hóll sé eitthvað svaka vísindalegur :D

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 22. Maí 2021 21:10
af GuðjónR
hagur skrifaði:Eigum við ekki bara að gera ráð fyrir því að þarna sé að verki fólk sem veit eitthvað aðeins hvað það er að gera?

Greinilega ekki :megasmile

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 23. Maí 2021 01:53
af jonfr1900
Nýr gígur hérna?

2021-05-23 (2).png
2021-05-23 (2).png (936.39 KiB) Skoðað 13109 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 14:18
af jonfr1900
Það er komin útskýring á því hvað er að gerast í miðju hrauninu.

Miðlunarlón grunnskilyrði fyrir hraunskildi

Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur segir á Facebook í dag að það sé að myndast miðlunarlón við gíginn. Þaðan vellur yfir í mestu kvikustrókahrinunum. Þorvaldur segir að þetta sé athyglisvert því að myndun svona lóns sé grunnskilyrði fyrir myndun hraunskjaldar eða dyngju.

Leiðigarðar og stíflur koma til greina í Nátthaga (Rúv.is)

Svona eldgos standa yfir í áratugi og það er alveg eins gott að fara að hugsa um það hvert á að færa Grindavík þar sem það er væntanlega innan þess svæðis sem fer undir hraun eftir 10 til 30 ár. Þó gæti eldgosið aukist á næstu mánuðum og því stytt þennan tíma. Ég reyndar held að þarna sé að byggjast upp eldkeila svipað og það sem sést á Snæfellsnesi þó að þarna í fréttinni sem talað um dyngju eldstöð. Hvernig þetta endar verður að koma í ljós en það mun taka 50 ár væntanlega að sjá fram á þann enda.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 14:57
af zetor
jonfr1900 skrifaði:Það er komin útskýring á því hvað er að gerast í miðju hrauninu.

Ef það kemur til þess að hraun renni að byggðarlögum, já jafnvel yfir heilt byggðarlag, þrátt fyri tilraunir með varnargarða og kælingar. Þá býst ég við þvi að flestir fari og starfsemi flytjist til Reykjanessbæjar.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 17:19
af Climbatiz
goodbye Blue Lagoon, good riddance

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 17:42
af Mossi__
zetor skrifaði:

Issss... Voga á Vatnsleysu.

Pláss. Uppbygging. Höfn.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 19:44
af mikkimás
Vogar eru líka að fara undir á næstu 3 mánuðum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 20:15
af jonfr1900
Það má einnig minnast á það að það getur gosið í fleiri eldstöðvum á sama tíma og eldgosið í Fagradalsfjalli. Það er ekkert sem stöðvar slíka atburðarrás. Það eru góðar líkur á að Fagradalsfjall sé að breytast í nýja eldstöð sem muni gjósa reglulega næstu 2 til 5 milljónir ár og hlaða utan á sig í samræmi við það.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 24. Maí 2021 20:44
af mikkimás
Alveg er ég hneykslaður á Þorvaldi Þórðarsyni að sjá ekki fyrir greinileg endalok siðmenningar á Reykjanesskaganum:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/05/24/eldgosid_gaeti_throast_i_dyngjugos/

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 25. Maí 2021 14:12
af Mossi__
mikkimás skrifaði:Vogar eru líka að fara undir á næstu 3 mánuðum.

Enginn missir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 04. Jún 2021 15:03
af Benz
Ég myndi telja þetta áhugaverða tilraun og þó svo að hún hafi í heild kostað einhverjar milljónir þá má ekki gleyma því að gos getur komið upp nær mannabyggðum, s.s. Höfuðborgarsvæðinu, og haft áhrif á fleiri og dýrari innviði en þarna eru.
Hér hefur a.m.k. einn aðili fengið ákveðna niðurstöðu í þessa tilraun ;)
https://www.mila.is/um-milu/frettasafn/ ... r-profunar

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 04. Jún 2021 21:36
af kjartanbj
Það má ekki gleyma því að stór hluti af því sem kostaði að reisa þessa garða skilar sér til baka til ríkisins í formi skatta og gjalda

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 04. Jún 2021 22:07
af Mossi__
Og 30 milljónir eru ekki mikill peningur.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 05. Jún 2021 22:09
af jonfr1900
Þetta var staðan fyrir nokkrum klukkutímum.

webcam_meradalir_vestari_varnargardur_A_20210605_1819.jpg
webcam_meradalir_vestari_varnargardur_A_20210605_1819.jpg (263.37 KiB) Skoðað 12393 sinnum

2021-06-05 (2).png
2021-06-05 (2).png (1.96 MiB) Skoðað 12393 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 14. Jún 2021 02:16
af jonfr1900
Núna er eldgosið búið að breyta sér aftur og er núna stöðugt og magn hrauns sem er að koma upp virðist vera að aukast.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 15. Jún 2021 01:02
af jonfr1900
Miðað við hraðan á hrauninu í Nátthaga þá er mun hraunið ná niður á veg á nokkrum dögum miðað við stöðuna núna. Svo lengi sem flæðið stoppar ekki. Það er einnig ljóst að hraunið mun ná niður í Nátthagakrika innan skamms.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 15. Jún 2021 22:20
af jonfr1900
Hraunið er næstum því komið niður úr Nátthaga. Það er bara um 1 km niður á Suðurstrandarveg og allt sem er þar fyrir hraunið. Síðan tekur sjórinn við.

2021-06-15 (6).png
2021-06-15 (6).png (2.61 MiB) Skoðað 11994 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 16. Jún 2021 06:22
af zetor
En er ekki töluverð hækkun við enda Nátthaga? þarf hraunið ekki að bunka sig töluvert upp í dalnum áður en það fer að renna yfir suðurlandsveg?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 16. Jún 2021 08:53
af mjolkurdreytill
zetor skrifaði:En er ekki töluverð hækkun við enda Nátthaga? þarf hraunið ekki að bunka sig töluvert upp í dalnum áður en það fer að renna yfir suðurlandsveg?

Vegurinn inn í Nátthaga er lægsti punktur. Ekki eins hár og umlykjandi landslag þannig að það þarf varnargarð/hækkun þar. Annars myndi ég giska á að það gæti munað tugum metra á flatanum og svo hólunum við op Nátthaga þannig að þetta verður tálmi fyrir hraunið.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 17. Jún 2021 00:31
af jonfr1900
Samkvæmt Jarðfræðideild Háskóla Íslands þá er hraunið í Náttahaga núna að hækka og þarna er þá væntanlega kominn þokkalega stór hrauntjörn sem mun halda áfram að hækka þangað til að yfirborðið verður orðið hærra en haftið sem kemur í veg fyrir framskrið hraunsins. Þegar það loksins brestur þá verður mikill hraði á hrauninu fram að Suðurstandarvegi og út í sjó.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 18. Jún 2021 15:52
af jonfr1900
Þá er hraunið farið af stað úr Nátthaga. Þetta sést ekki rosalega vel vegna móðu í Nátthaga.

2021-06-18 (2).png
2021-06-18 (2).png (1.39 MiB) Skoðað 11743 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 18. Jún 2021 17:54
af mjolkurdreytill
Það hjálpar ekki til að myndavélin virðist reyna að fókusa í hvert skipti sem einhver labbar framan við myndavélina og það virðist vera nóg af fólki á ferð þarna.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 18. Jún 2021 19:10
af GullMoli
Held þú sért að rugla, þetta er vegslóði sem er rennandi blautur og speglast svona.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 18. Jún 2021 22:39
af jonfr1900
Það á ekki að reyna að bjarga Suðurstrandarvegi. Þetta er ekkert rosalega stór kafli sem fer undir hraun núna. Það á frekar að reyna að bjarga Grindavík og öðrum mannvirkjum síðar þegar að því kemur.

Ekki reynt að stöðva hraunrennsli yfir Suðurstrandarveg (Rúv.is)