Síða 22 af 91

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 26. Apr 2023 11:45
af Gustaf
Ef það færi að gjósa þarna hvernig myndi gosið dreifa sér?
Virkjunin, Bláa lónið og í raun allt svæðið í kring er flatlendi nema fyrir einstaka fjöll/hæðir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 26. Apr 2023 13:15
af KristinnK
Hauxon skrifaði:Ég vinn hjá Loftmyndum, við rekum http://www.map.is

Þetta er off-topic, en ég notaði oft hjá ykkur Tímavélina svokölluðu þar sem hægt var að vera með loftmyndir frá tvemur ólíkum tímasetningum og svissað á milli með línu. Nú finn ég hvergi Tímavélina lengur. Er búið að fjarlægja hana, eða get ég fundið hana einhvers staðar?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 26. Apr 2023 22:09
af urban
KristinnK skrifaði:
Hauxon skrifaði:Ég vinn hjá Loftmyndum, við rekum http://www.map.is

Þetta er off-topic, en ég notaði oft hjá ykkur Tímavélina svokölluðu þar sem hægt var að vera með loftmyndir frá tvemur ólíkum tímasetningum og svissað á milli með línu. Nú finn ég hvergi Tímavélina lengur. Er búið að fjarlægja hana, eða get ég fundið hana einhvers staðar?

Þarftu ekki að vera að skoða eitthvað ákveðið sveitarfélag ?

Ég fæ þetta t.d. upp á
https://map.is/vestm/
en ekki á https://www.map.is/base/

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 26. Apr 2023 23:19
af jonfr1900
Hauxon skrifaði:Rafkerfið er eins og peer-2-peer network og einhver skakkaföll vegna jarðhræringa gætu valdið rafmagnstruflunum en varla langtíma rafmagnsleysi. Landsnet er að styrkja dreifikerfið og er að vinna í að koma Suðurnesjalínu 2 af stað. Gallinn þar er að Sveitarfélagið Vogar hefur ekki verið samþykkt þeim tillögum sem hafa settar fram sem hefur tafið verkefni eitthvað, veit ekki hver staðan er á því núna. Orkuöryggi á Suðurnesjum verður tölvuvert betra með SN2.

Ég vinn hjá Loftmyndum, við rekum http://www.map.is og lesum inn jarðskjálftagögn og get ekki séð að það hafi verið neitt sérstakt í gangi á Reykjanesi undanfarna daga. Þetta virkt svæði og alltaf slatti af smáskjálftum þarna vegna eðlilegra hreyfinga. Ef það er að fara að gjósa þarna aftur væru þúsundir skjálfta stærri en 1 á sólarhring en ekki einhverjir tugir. Auk þess fengum við örugglega að heyra af mælingum um þenslu á jarðskorpunni.

Alveg gaman að skoða skjáltagögn en harla ólíklegt að maður geti spáð fyrir um gos með því að horfa á skjálftana svona á skjánum án þess að greina gögnin og geta borið saman við líkön úr fyrri atburðum. Næsta gos gæti orðið á morgun eða eftir þúsund ár.

Það þarf hvorki þúsundir jarðskjálfta eða stóra jarðskjálfta til þess að koma af stað eldgosi. Þó svo að það sé mjög algeng staða á Íslandi vegna þess hvernig jarðfræðin virkar oft. Það er kvika rís hratt upp í gegnum jarðskorpuna í jarðskorpu sem er köld og brotnar með látum. Það er ekki tilfellið lengur með eldstöðina Reykjanes. Þar hafa verið kvikuinnskot og lög af kviku verið að byggjast upp í jarðskorpunni síðan árið 2019, hugsanlega einnig fyrr á þessu svæði.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 27. Apr 2023 09:06
af Nariur
Hauxon skrifaði:Ég vinn hjá Loftmyndum, við rekum http://www.map.is og lesum inn jarðskjálftagögn og get ekki séð að það hafi verið neitt sérstakt í gangi á Reykjanesi undanfarna daga. Þetta virkt svæði og alltaf slatti af smáskjálftum þarna vegna eðlilegra hreyfinga. Ef það er að fara að gjósa þarna aftur væru þúsundir skjálfta stærri en 1 á sólarhring en ekki einhverjir tugir. Auk þess fengum við örugglega að heyra af mælingum um þenslu á jarðskorpunni.

Alveg gaman að skoða skjáltagögn en harla ólíklegt að maður geti spáð fyrir um gos með því að horfa á skjálftana svona á skjánum án þess að greina gögnin og geta borið saman við líkön úr fyrri atburðum. Næsta gos gæti orðið á morgun eða eftir þúsund ár.

Engar áhyggjur. Hann Jón hefur ekki græna glóru um hvað hann er að tala og finnst mjög gaman að spá hamförum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 30. Apr 2023 21:49
af Hauxon
urban skrifaði:
KristinnK skrifaði:
Hauxon skrifaði:Ég vinn hjá Loftmyndum, við rekum http://www.map.is

Þetta er off-topic, en ég notaði oft hjá ykkur Tímavélina svokölluðu þar sem hægt var að vera með loftmyndir frá tvemur ólíkum tímasetningum og svissað á milli með línu. Nú finn ég hvergi Tímavélina lengur. Er búið að fjarlægja hana, eða get ég fundið hana einhvers staðar?

Þarftu ekki að vera að skoða eitthvað ákveðið sveitarfélag ?

Ég fæ þetta t.d. upp á
https://map.is/vestm/
en ekki á https://www.map.is/base/

Tímaflakkið svokallaða var sett inn til kynningar á www.map.is. Viðskiptavinir með samning við okkur (t.d. Vestmannaeyjar) geta hins vegar fengið þetta inn á kortasjárnar sínar. Veit að margir sakna þess að hafa þetta inni á mappinu en svona eru nú bara viðskiptin. Það er kannski kynning á
Pepsi í Kringlunni þar se mþu getur fengið fría dós, svo þarftu að borga fyrir hana þegar kynningin er búin. :megasmile

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Maí 2023 01:06
af jonfr1900
Nariur skrifaði:
Hauxon skrifaði:Ég vinn hjá Loftmyndum, við rekum http://www.map.is og lesum inn jarðskjálftagögn og get ekki séð að það hafi verið neitt sérstakt í gangi á Reykjanesi undanfarna daga. Þetta virkt svæði og alltaf slatti af smáskjálftum þarna vegna eðlilegra hreyfinga. Ef það er að fara að gjósa þarna aftur væru þúsundir skjálfta stærri en 1 á sólarhring en ekki einhverjir tugir. Auk þess fengum við örugglega að heyra af mælingum um þenslu á jarðskorpunni.

Alveg gaman að skoða skjáltagögn en harla ólíklegt að maður geti spáð fyrir um gos með því að horfa á skjálftana svona á skjánum án þess að greina gögnin og geta borið saman við líkön úr fyrri atburðum. Næsta gos gæti orðið á morgun eða eftir þúsund ár.

Engar áhyggjur. Hann Jón hefur ekki græna glóru um hvað hann er að tala og finnst mjög gaman að spá hamförum.

Ég er búinn að vera í jarðfræði með einhverjum hætti síðan 1992, eða frá 12 ára aldri. Á þessum tíma hef ég safnað mikilli reynslu í þessu. Ég veit alveg hvað ég er að tala um. Náttúran gerir hinsvegar það sem hún vill, þegar hún vill og það er engin leið að vita hvort hvenær næsta eldgos hefst svo öruggt sé. Hinsvegar er hægt að sjá hvenær það er farið að styttast í eldgos. Það er farið að styttast í eldgos í Fagradalsfjalli og einnig hugsanlega í eldstöðinni Reykjanes, sem hefur þó verið þannig að þar hafa komið kvikuinnskot sem hafa ekki komið af stað eldgosi. Hversu lengi það mun haldast er ekki hægt að segja til um en líklega verður það ekki að eilífu þannig.

Helsta vandamálið hjá mér fyrir tíma internetsins var skortur á gögnum sem ég hafði aðgang að. Það hefur breyst og er orðið betra í dag.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Maí 2023 02:21
af absalom86
jonfr1900 skrifaði:

hvenær verður húsið hjá mér í 220 komið undir hraun segiru?

Sent: Mán 01. Maí 2023 11:43
af jonfr1900
Þegar Brennisteinsfjöll fara að gjósa norðamengin. Það hefur ekki borið á slíkri virkni undanfarið. Það er miklu líklegra að það gjósi í sunnanverðum Brennisteinsfjöllum fyrst.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 09:01
af GuðjónR
Ég veit um einn Vaktara sem verður spenntur við þessa frétt:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... _i_morgun/

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 12:06
af Hauxon
jonfr1900 skrifaði:....
Ég er búinn að vera í jarðfræði með einhverjum hætti síðan 1992, eða frá 12 ára aldri. Á þessum tíma hef ég safnað mikilli reynslu í þessu. Ég veit alveg hvað ég er að tala um. Náttúran gerir hinsvegar það sem hún vill, þegar hún vill og það er engin leið að vita hvort hvenær næsta eldgos hefst svo öruggt sé. Hinsvegar er hægt að sjá hvenær það er farið að styttast í eldgos. Það er farið að styttast í eldgos í Fagradalsfjalli og einnig hugsanlega í eldstöðinni Reykjanes, sem hefur þó verið þannig að þar hafa komið kvikuinnskot sem hafa ekki komið af stað eldgosi. Hversu lengi það mun haldast er ekki hægt að segja til um en líklega verður það ekki að eilífu þannig.

Helsta vandamálið hjá mér fyrir tíma internetsins var skortur á gögnum sem ég hafði aðgang að. Það hefur breyst og er orðið betra í dag.

Ekkert að því að hafa áhuga og grúska. Spennandi fréttir í morgun.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 12:45
af Kjarri81
Væri alveg til í að þetta verði ekkert, væri alveg til í eitt ár sem er ekki með covid eða eldgosi :)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 13:09
af jonfr1900
GuðjónR skrifaði:Ég veit um einn Vaktara sem verður spenntur við þessa frétt:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... _i_morgun/

Það er ekkert sem bendir til þess að eldgos sé að fara að hefjast í Kötlu þessa stundina. Til þess eru þetta of fáir jarðskjálftar og það hefur ekki orðið nein breyting á óróanum. Eitthvað sem kemur strax fram samkvæmt reynslu miðað við smágosin árin 2011, 2014, 2015 og 2017 sem urðu undir jökli en náðu ekki brjótast upp jökulinn.

Það eru smávægilegar breytingar á óróanum í kringum Kötlu en það gæti tengst þessari jarðskjálftavirkni frekar en kvikuhreyfingum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 16:28
af jonfr1900
Ennþá er engin breyting á óróanum í kringum Kötlu og jarðskjálftavirknin hefur dottið niður.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 18:09
af mikkimás

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 04. Maí 2023 18:49
af jonfr1900

Þetta er bjartsýni. Þetta mun taka af ljósleiðara tengingar á suðurlandi og brýr og annað sem er þarna. Væntanlega mundi verða tjón á Vík í Mýrdal. Hvernig tjónið verður af öskunni fer eftir vindátt.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 10. Maí 2023 20:59
af jonfr1900
Þá eru GPS stöðvar í kringum Grindavík (Reykjanes eldstöðin) farnar að hreyfst. Þessi hreyfing á GPS stöðinni suður segir að kvika er að troða sér upp norðan við þá stöð. Það er einnig hreyfing SV samkvæmt fólki sem er að fylgjast með þessu í umræðum á Facebook.

GPS hreyfing í Grindavík.
GRIC_8hrap-10.05.2023.png
GRIC_8hrap-10.05.2023.png (161.68 KiB) Skoðað 1714 sinnum

Það er hægt að skoða restina af GPS stöðvunum hérna á vefsíðu Háskóla Íslands.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 10. Maí 2023 21:08
af Stuffz
Ég missti af báðum eldgosunum, vonandi nær maður á nýtt í sumar

..third times the charm.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 11. Maí 2023 16:20
af jonfr1900
Miðað við GPS gögnin sem er að finna hérna. Þá er líklega hafinn þenslu atburður í Fagradalsfjalli, sem ýtir Grindavík suður-vestur miðað við GPS stöðina þar.

Þenslan er farin að koma fram í Grindavík og Festafjalli GPS stöðvum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 11. Maí 2023 19:49
af jonfr1900
Vegagerðin sendi þetta frá sér í dag. Jarðhitinn þarna er ennþá bara 86C en mun líklega fara hækkandi á næstu mánuðum. Það er mitt persónulega mat á þessari stöðu. Þetta svæði tilheyrir eldstöðinni Henglinum.

Jarðhitavirkni undir Hringvegi (Vegagerðin.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 12. Maí 2023 09:07
af mikkimás
Er Grindavík að fara að slíta sig frá meginlandinu?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 12. Maí 2023 15:37
af jonfr1900
Þetta virðist vera talsverður jarðhiti.

Vakta hitaaukningu í Hveradölum (mbl.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 12. Maí 2023 16:13
af Nariur
Ég spái því að Hekla og Katla gjósi á morgun.
Ég hef skoðað mörg gögn og það er kominn tími á þetta.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 12. Maí 2023 21:07
af jonfr1900
Hérna er frétt Rúv um þetta svæði. Þetta er greinilega nýtt þar sem gróður er tekinn að deyja þarna. Eru einhverjar leiðir í kringum þessa leið ef það verður eldgos þarna?

Allt að 100 gráðu hiti mælist við veginn (Rúv.is)