Síða 1 af 1

Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 13:44
af GuðjónR
Stórtíðindi í Silfrinu áðan!
Bjarni Ben segir að efnað fólk eigi ekki að skipta sér af stjórnmálum. Er hann að stimpla sig út?

Bjarni Ben skrifaði:Þetta snýst um það að þeir sem hafa efnast á Íslandi geti beitt sér í krafti auðs, þá verður að tempra sama hvaðan þeir koma. Slíkir aðilar eiga ekki að fá að komast upp með það að hafa áhrif á gang stjórnmálanna í landinu, hverjir semja lögin og um hvað þau eru, það er kjarni málsins.

Ég vissi ekki betur en hann væri í stjórnmálum í krafti auðs sem fulltrúi elítunnar.
Hann er af Engeyjarætt sem er eins sú auðugasta og áhrifamesta á Íslandi á lýðveldistímanum.

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 14:11
af Revenant
Bjarni Ben er á háum launum sem ráðherra en hann á ekki í neinum félögum skv. hagsmunamati (>1milljón kr í félagi eða >1% ef virði eigna félags er meira en 230millj kr).

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 14:38
af Zethic
GuðjónR skrifaði:Stórtíðindi í Silfrinu áðan!
Bjarni Ben segir að efnað fólk eigi ekki að skipta sér af stjórnmálum. Er hann að stimpla sig út?

Bjarni Ben skrifaði:Þetta snýst um það að þeir sem hafa efnast á Íslandi geti beitt sér í krafti auðs, þá verður að tempra sama hvaðan þeir koma. Slíkir aðilar eiga ekki að fá að komast upp með það að hafa áhrif á gang stjórnmálanna í landinu, hverjir semja lögin og um hvað þau eru, það er kjarni málsins.

Ég vissi ekki betur en hann væri í stjórnmálum í krafti auðs sem fulltrúi elítunnar.
Hann er af Engeyjarætt sem er eins sú auðugasta og áhrifamesta á Íslandi á lýðveldistímanum.

Skólabókadæmi um hugtakið 'popúlismi'
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=80930

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 15:56
af Zethic

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 16:27
af GuðjónR
Zethic skrifaði:Athyglisverð tímasetning.. https://www.ruv.is/frett/2021/05/30/sam ... -afsokunar

Marklaus afsökunarbeiðni og tímasetningin tengist auðvitað kosningum og þessum vandræðagangi í Silfrinu þar sem þingmenn og ráðherrar þurfa að svara fyrir þessa glæpamenn sem hafa ekki pung til þess að gera það sjálfir.
Og Sjálfstæðisflokkurinn situr uppi með Svarta Pétur (Kristján Þór) og eru því í vondri stöðu því það er ekki gott að þurfa að svara fyrir skipulagað glæpastarfssemi, sérstaklega ekki korter í kosningar.

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 17:22
af vesley
GuðjónR skrifaði:
Zethic skrifaði:Athyglisverð tímasetning.. https://www.ruv.is/frett/2021/05/30/sam ... -afsokunar

Marklaus afsökunarbeiðni og tímasetningin tengist auðvitað kosningum og þessum vandræðagangi í Silfrinu þar sem þingmenn og ráðherrar þurfa að svara fyrir þessa glæpamenn sem hafa ekki pung til þess að gera það sjálfir.
Og Sjálfstæðisflokkurinn situr uppi með Svarta Pétur (Kristján Þór) og eru því í vondri stöðu því það er ekki gott að þurfa að svara fyrir skipulagað glæpastarfssemi, sérstaklega ekki korter í kosningar.

Kristján Þór bíður sig ekki fram aftur og því er flokkurinn að losna við hann af þingi.

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 20:29
af thrkll
GuðjónR skrifaði:Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Er Bjarni samt að segja þetta? Hér er það sem hann sagði:

Bjarni Ben skrifaði:Þetta snýst um það að þeir sem hafa efnast á Íslandi geta beitt sér í krafti auðs. Þá verður að tempra. Sama hvaðan þeir koma, sama hvaðan þeir koma. Og slíkir aðilar eiga ekki að fá að komast upp með það að fara að hafa áhrif á gang stjórnmálanna í landinu, hverjir semja lögin og um hvað þau eru. Það er kjarni málsins.

Hér kemur fram að hann vilji ekki að auðmenn geti haft:
1. áhrif á gang stjórnmála í landinu
2. áhrif á hverjir semja lögin
3. áhrif á um hvað lögin eru

Númer 2 og 3 er sjálfsagðar skoðanir enda er það hvort tveggja löggjafinn (Alþingi) sem á að semja lögin og er stjórnarskrárgjafinn (þ.e. ákveður hverjir semja lögin). Hvað fyrsta atriðið varðar held ég að við verðum að gefa Bjarna að hann eigi við að auðmenn eigi ekki að hafa áhrif á gang stjórnmála í landinu í krafti auðs síns. Allir þátttakendur í lýðræðissamfélagi hafa tækifæri á að hafa áhrif á stjórnmálin, svo sem með þátttöku í kosningum eða með því að bjóða sig fram. Ég held að það sé mjög langsótt að Bjarni eigi hér við að auðmenn eigi ekki að hafa þessi réttindi eins og aðrir.

Sem sagt - titillinn ætti kannski að vera "Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga að hafa áhrif á stjórnmál í krafti auðs síns".

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 21:00
af Hjaltiatla
Enda XD vinstri flokkur. Gunnar Smári gæti átt samleið með Bjarna fljótlega, kallinn allur að mýkjast og er í ríkisstjórn með VG.

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Sun 30. Maí 2021 21:15
af jonfr1900
Bjarni er milljarðarmæringur. Það sést ekki í bókum á Íslandi vegna þess að allur auðurinn er falinn í skattaskjólum hér og þar um heiminn. Oft í formi fasteigna.

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Mán 31. Maí 2021 08:50
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Stórtíðindi í Silfrinu áðan!
Bjarni Ben segir að efnað fólk eigi ekki að skipta sér af stjórnmálum. Er hann að stimpla sig út?

Bjarni Ben skrifaði:Þetta snýst um það að þeir sem hafa efnast á Íslandi geti beitt sér í krafti auðs, þá verður að tempra sama hvaðan þeir koma. Slíkir aðilar eiga ekki að fá að komast upp með það að hafa áhrif á gang stjórnmálanna í landinu, hverjir semja lögin og um hvað þau eru, það er kjarni málsins.

Ég vissi ekki betur en hann væri í stjórnmálum í krafti auðs sem fulltrúi elítunnar.
Hann er af Engeyjarætt sem er eins sú auðugasta og áhrifamesta á Íslandi á lýðveldistímanum.

Úff, það er svo mikil Útvarps Sögu lykt af þessum þræði :pjuke Er þetta það sem koma skal frá þér Guðjón?

Bjarni hefur áhrif á stjórnmál í krafti þeirra sem kjósa hann. Ekki í krafti auðs.

Þeir sem erfa peninga hafa alveg jafn mikinn rétt á því að bjóða sig fram og kjósa og aðrir.

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Mán 31. Maí 2021 09:15
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:

Já auðvitað hefur hann rétt á því, sagði aldrei að hann hefði það ekki.
Var bara að benda á kaldhæðnina að þetta eru hans orð, þetta voru ekki mín orð.

Finnst hann doldið oft kasta grjóti í glerhúsi, t.d. þegar hann var í Hörpu að tala um fólk ætti að fara eftir sóttvarnarreglunum ... Ásmundarsalur much? Meira að segja flokksbróðir hans Gísli Marteinn gerði grín að því á Útvarpi Sögu ... nei meina RUV.

Og það er ekki langt síðan BB sagði í fréttaviðtali það vera óþolandi þegar fyrirtæki væru með peninga í skattaskjólum til að koma sér hjá því að taka þátt í samfélaginu...Panama hvað?

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Mán 31. Maí 2021 09:48
af ZiRiuS
Íslendingar eru svo fokking heimskir að þeir halda að þeir verði jafn auðugir og Sjálfstæðismenn með að kjósa þá... Flokkurinn er stærsti verkamannaflokkurinn í dag, pælið í því djóki

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Mán 31. Maí 2021 11:55
af Zethic
ZiRiuS skrifaði:Íslendingar eru svo fokking heimskir að þeir halda að þeir verði jafn auðugir og Sjálfstæðismenn með að kjósa þá... Flokkurinn er stærsti verkamannaflokkurinn í dag, pælið í því djóki

Enganvegin bundið við Íslendinga. Þetta er algengasta taktíkin sem hægri flokkar hafa notað síðan lýðveldi varð til
Þetta var bara einfaldara þegar hægt var að stjórna að öllu leiti hvað fólk las og heyrði

Boomers eru þverhausar dauðans og munu aldrei viðurkenna fyrir sjálfum sér eða öðrum að kapítalískir flokkar hafi spilað með þau alla þeirra ævi
Horfðu á Brexit og Cambridge Analytica. Gamla fólkið gleypti við öllu kjaftæðinu sem var matað ofan í þau án þess að beita rökrænni hugsun

"Skoðun min er þægilegri en staðreyndin"

Re: Bjarni Ben segir þá ríku ekki eiga erindi í stjórnmál

Sent: Þri 01. Jún 2021 08:38
af GuðjónR
=D>