Síða 1 af 1

Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 12:40
af gRIMwORLD
Hvað finnst ykkur um verðlagningu í Bláa Lóninu?

Nú er ekki lengur árskort í boði fyrir fjölskyldur en í staðinn er hægt að kaupa sumarkort með 4 mánaða gildistíma fyrir....dadadaaaaaa....sama verð og gömlu árskortin.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 12:45
af brain
Ferðamanna verðlagning komin aftur ?

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 12:55
af Hizzman
Finnst fólki þessi br..ndpollur í alvöru spennandi?

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 13:48
af gRIMwORLD
Hizzman skrifaði:Finnst fólki þessi br..ndpollur í alvöru spennandi?


Það er einmitt málið, á erfitt meðað að finna hvað er svona merkilegt við þetta sem áskilur þessa verðlagningu.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 13:54
af mjolkurdreytill
Fátt meira spennandi en botnleðjan. 50% leir og 50% punghár.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 16:29
af kjartanbj
Aldrei farið í þennan drullupoll og ætla aldrei, viðbjóðurinn sem er þarna sem engin sér er ógeð, tæmt í fyrsta skipti fyrir nokkrum árum síðan 1999 og sagan segir að þeir sem unnu við það þurftu að skrifa yöundir NDA enda hægt að ímynda sér hvsð hefur fundist

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 19:47
af benony13
Ég skil vel að fólk sæki í þetta þó að ég geri ekki mikið af því sjálfur. Án þess að hafa kynnt mér þetta þá velti ég fyrir mér hvort það sé mikill verðmunur á Bláa Lóninu og því nýja Sky Lagoon :-k
Það er síðan steyptur botn í Bláa Lónu og hefur verið í nokkur ár.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 20:40
af appel
kjartanbj skrifaði:Aldrei farið í þennan drullupoll og ætla aldrei, viðbjóðurinn sem er þarna sem engin sér er ógeð, tæmt í fyrsta skipti fyrir nokkrum árum síðan 1999 og sagan segir að þeir sem unnu við það þurftu að skrifa yöundir NDA enda hægt að ímynda sér hvsð hefur fundist


Úff, það er nóg að sjá botn sumra sundlauga suma daga, plástrar, skeinipappírsleifar, húðflögur. Það sem þessi ógegnsæji mjólkurlitur felur er líklega ekki mjög skemmtilegt. Svo veit ég nú ekki um hvort klóri sé bætt í lónið einsog í sundlaugum.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 21:20
af kjartanbj
Engin klór, það er bara talað um að vatnið endurnýist á 24 tíma fresti, það hreinsast samt ekki botninn

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mán 31. Maí 2021 21:25
af JVJV
Hann er ryksugaður daglega held ég, það er ansi oft símar að stífla ryksuguna.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Þri 01. Jún 2021 18:51
af razrosk
fólk hefur fundið dauða fugla, saur og allskonar viðbjóð þarna.. maður veit aldrei hvort að maður sé að stíga á sand / leir eða skít

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 06:58
af DabbiGj
Þið eruð svona hressir

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 10:05
af Mossi__
Jæja strákar.

Hvernig hafiði það þessa dagana?

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 10:19
af Moldvarpan
Ég elska hvað það eru allir fljótir að stökkva á neikvæðu lestina á vaktinni :D

En afhverju ekki að prófa eh nýtt, Sky lagoon er soldið 2021 sko :)

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 10:48
af appel
Já, íslendingar doldið þórðarglaðir og fljótir að fordæma allt á grundvelli fáfræði sinnar.

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 10:50
af Viktor
Já, kemur manni á óvart hvað Vaktarar hafa miklar áhyggjur af Bláa Lóninu #-o

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 20:57
af natti
gRIMwORLD skrifaði:Hvað finnst ykkur um verðlagningu í Bláa Lóninu?

Nú er ekki lengur árskort í boði fyrir fjölskyldur en í staðinn er hægt að kaupa sumarkort með 4 mánaða gildistíma fyrir....dadadaaaaaa....sama verð og gömlu árskortin.


Jah... fljótt á litið er þetta ekkert galið verð "miðað við" margt annað...
Tengjum það t.d. næsta commenti...

Moldvarpan skrifaði:Ég elska hvað það eru allir fljótir að stökkva á neikvæðu lestina á vaktinni :D

En afhverju ekki að prófa eh nýtt, Sky lagoon er soldið 2021 sko :)


Ég fór einmitt í Bláa Lónið síðasta sumar... og Sky Lagoon fyrir uþb viku síðan. ("Sky Leiðin", þessi dýrari nb.)
Bæði skiptin voru mjög kósí... en til samanburðar þá er Sky Lagoon dýrara í grunninn og með minna "innifalið".

Til samanburðar, ódýrustu pakkarnir:

Bláa Lónið - Comfort:
  • Verð: 6.990
  • Innifalið: handklæði, kísilmaski þarna útí lóninu á kísilbarnum.
  • + Einn drykkur að eigin vali...
vs
Sky Lagoon - Pure Leiðin:
  • Verð: 8.500kr
  • Innifalið: Handklæði, og "Sjö skrefa ritúal" -->> aðgengi að gufubaði, smá body maski ef svo má að orði komast. Má segja að sé sambærilegt við "andlitsmaskann" í bláa lóninu.
  • Enginn drykkur innifalinn í verði...

Semsagt, í grunninn fyrir ódýru pakkana... þá er bláa lónið ódýrara og þú getur fengið þér Prosecco án þess að bæta við kostnað.
Hvað fáum við auka fyrir "dýru" pakkana...

Bláa Lónið - Premium:
  • Verð: 8.990
  • Sama og í comfort (muna, drykkur innifalinn)
  • + Baðsloppur og inniskór
  • + fleiri andlitsmaskar
  • + Auka freyðivínsglas ef þú pantar borð á Lava Restaurant eftir lónið...

vs

Sky Lagoon - Sky Leiðin
  • Verð: 13.900kr
  • Sama og í "pure"
  • "Einkaklefi" til að sturta og fara í/úr sundfötunum ásamt "Ský húðvörum"
  • --- Sky húðvörurnar: shower gel og hárnæring... og body lotion á brúsa... Ég man ekki hvað sambærilegt var í Bláa Lóninu því þetta er eiginlega það ómerkilegt að það tæki því ekki að nefna þetta. Ég vona að fólkið í "Comfort" leiðinni fái nú amk shampoo...
  • --- Til viðbótar, orðið á götunni segir að þetta sé nú bara eins og "nýju" klefarnir í Bláa Lóninu hvort eð er....
  • Ennþá enginn drykkur innifalinn...

Raunverulega "sambærilegur pakki", er því Blá Lónið Comfort (6.990) vs. Sky Lagoon Sky (13.990), þarna munar 7.000kr og þú færð samt meira fyrir peninginn í Bláa Lóninu.
Og í Bláa Lóninu er allskonar auka stuff sem hægt er að sækja í ef maður vill, eins og t.d. að bóka sig í nudd. Ekkert þvíumlíkt í Sky Lagoon.


Til viðbótar, þa er bæði veitingastaður hjá Bláa Lóninu til að fá sér gott að snæða eftir að hafa verið ofaní, en einnig er mini-veitingastaður sem hægt er að fara í meðan maður er í lóninu en vill kannski fá sér að borða.
Í Sky Lagoon er kaffihús þar sem hægt er að fá sér ristaða samloku og annað smá bakkelsi eftir að hafa verið ofaní, en ekkert á meðan dvölinni stendur.

Það sem Sky Lagoon hefur framyfir Bláa Lónið er að það er á höfuðborgarsvæðinu. Fín staðsetning upp á að gera sér glaðan dag með vinahóp án þess að þurfa rútuferð til að komast aftur heim.
Og ég mun örugglega fara aftur í Sky Lagoon einmitt á þeim forsendum.
Ég mun líka alveg fara aftur í Bláa Lónið, enda var það bara fín dagsferð með fjölskyldunni.

(Þannig að þegar þið farið í Sky Lagoon... nema að þið hafið þörf fyrir að sturta ykkur án þess að neinn sjái til, ekki eyða $$ í dýrari pakkann.)

Hvað árs... uh, 4 mánaða kortin varðar, þá má benda á að 6. mánaða kort í sund í Reykjavík kostar 19.460, og sumarkort Bláa Lónsins á 24.900 er því ekkert langt frá...

(Það skal tekið fram að ég er á engan hátt tengdur hvorki Bláa Lóninu né Sky Lagoon.)

Tuðpúkar spjallsins skrifaði:[...]

Þið hefðuð gott að því að skella ykkur í Bláa Lónið...

Re: Árskort verður sumarkort....en sama verð

Sent: Mið 02. Jún 2021 22:57
af Brimklo
Mun aldrei gleyma því þegar ég fór fyrst í bláa lónið. Ég og fyrrverandi fáum svona leir til að skella í smettið á okkur, byrjum svo að rölta um lónið og ég sá 2 túrista teygja sig niður í botninn, ná þar í leir, og smyrja honum í andlitið á sér fullann af skít, hárum og eh fleira gúrme. mun held ég aldrei gleyma því.