Síða 1 af 5

Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 07. Jún 2021 09:52
af Maggibmovie
Eru menn að spá í að bjóða?

https://isb.ipo.is/Home/Index

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 07. Jún 2021 10:37
af GuðjónR
Er ekki stórgróði í þessu?

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 07. Jún 2021 13:14
af thrkll
Ég held að þessir hlutir fáist á mjög góðu verði. Verðmat bankans skv. útboðsgenginu er 142-158 ma.kr.

Greining Fossa markaða segir hins vegar að verðmatið sé 222-242 ma.kr. og Jakobsson Capital er með 155-218 ma.kr. Ef verðmat greiningaraðilanna er rétt er því í versta lagi hægt að kaupa þessi hluti á sanngjörnu verði og í besta lagi á mjög hagstæðu verði. Arðsemi eigin fjár hjá Íslandsbanka á síðasta ársfjórðungi var 7,7% sem er yfir markmiði.

Ein önnur pæling. Erlendir sjóðir hafa skuldbundið sig til að kaupa ca. 15% af hlutunum í útboðinu. Og sömuleiðis eru það erlendir ráðgjafar (Citigroup, JP Morgan) sem standa að baki 90% sölutryggingarinnar sem er á útboðinu. Er aðkoma þessara erlendu aðila ekki að fara að stuðla að aukinni eftirspurn eftir hlutunum? Og í þokkabót virðist stefnan sett á skráningu bankans erlendis í náinni framtíð, sem hlítur að hafa áhrif.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 07. Jún 2021 13:33
af Viktor
:fly

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 07. Jún 2021 22:19
af BudIcer
Jájá, hendum í 5k hluti.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 08. Jún 2021 19:11
af Minuz1
takk fyrir að benda á þetta, hefði misst af þessu ef það væri ekki fyrir þig

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 09. Jún 2021 00:27
af jonfr1900
GuðjónR skrifaði:Er ekki stórgróði í þessu?

Nei. Þegar þetta er komið til braskara þá verður 2008 endurtekið eftir nokkur ár.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 09. Jún 2021 12:56
af Zethic
jonfr1900 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Er ekki stórgróði í þessu?

Nei. Þegar þetta er komið til braskara þá verður 2008 endurtekið eftir nokkur ár.

Gaman að sjá sófasérfræðingana. Ég fæ að vera með

Öll fjárfesting er áhætta. En það eru tvær leiðir sem bankafjárfesting getur skilað þér gróða.

1. Hlutabréfin sem þú kaupir á 100 kr aukast í virði og þú selur þau fyrir 120 kr (mínus kostnað milligöngu aðila)
2. Bankinn skilar arði. Ath að hagnaður != arður

Í seinna dæmi þarftu að setja einhverja almennilega upphæð til að þetta sé þess virði. Ef þú kaupir fyrir 50.000 kr (lágmarkið) og bankinn skilar 7% arð þá er ca 3.500 kr á ári ekki þess virði að mínu mati
Ef við miðum við 4,2 ma. kr arð árið 2020 skipt á 636.363.630 hluti er arðgreiðslan 6,6 kr á hlut sem þú (kannski) færð fyrir 79 kr á hlut.
Þetta er því eins öruggur og stöðugur "gróði" og hægt er að finna en ég myndi ekki segja "stórgróði"

Einnig er gott að hafa í huga að arður er skattskyldur yfir 300.000 kr
https://www.skatturinn.is/einstaklingar ... jur/ardur/

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 09. Jún 2021 22:07
af jonfr1900
Zethic skrifaði:

Þetta er voðalega 2007 ársins ræða. Vandamálið hérna er íslenska krónan, þetta er í raun ekkert nema bara gervipeningur sem ræður ekki við svona fjármálagjörninga eins og á að reyna hérna (aftur). Íslendingar munu renna á rassinn með þetta með allt saman (aftur). Nema að næst er ekki víst að hægt verði að koma íslenska ríkinu til bjargar eins og síðast.

Eftir einkavæðingu Íslandsbanka þá verður Landsbankinn einkavæddur þá verður íslenska fjármálakerfið komið á nákvæmlega sama stað og það var árið 2006/2007. Síðan endurtekur 2008 sig með einhverjum hætti. Þessi saga mun endurtaka sig með einhverjum hætti og niðurstaðan mun verða mjög svipuð.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Lau 12. Jún 2021 17:13
af GuðjónR
Gengið verður 71-79 meðan gegni Arion er 144.
Birna bankastjóri sagði verðmatið miðast við eigið fé bankas en svona banki er mikið meira en eigið fé.
BjarniB færi aldrei að einkavinavæða ríksibanka öðruvísi en að verðleggja hann langt undir verðmæti hans.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Lau 12. Jún 2021 18:04
af daaadi
Edit: var að ruglast

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Sun 13. Jún 2021 14:15
af Dúlli
Hélt að menn yrðu meira spenntir.

Var að henda í ein kaup á nokkrum hlutum.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Sun 13. Jún 2021 15:57
af urban
GuðjónR skrifaði:Gengið verður 71-79 meðan gegni Arion er 144.
Birna bankastjóri sagði verðmatið miðast við eigið fé bankas en svona banki er mikið meira en eigið fé.
BjarniB færi aldrei að einkavinavæða ríksibanka öðruvísi en að verðleggja hann langt undir verðmæti hans.

Ef að þú hefrur áhyggjur af því að BB Einkavinavæði bankann, þá geturu keypt hann áður en það er í boði.

Þarna er verið að selja í bankanum, hverjum sem að vill (og hefur efni á) að kaupa í honum.

Það er alveg öruggt að BB er ekki að fara að einkavinavæða hlutinn þinn og það er engin annar að fara að græða á honum en þú :)

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Sun 13. Jún 2021 16:32
af Dúlli
urban skrifaði:

nkl.

Þetta eru nokkuð góð kaup líka, arionbanki er í 144 krónum á hlut. Verð sáttur ef ISB fer í 100-110 krónur og þá losar maður þetta.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 09:06
af Kull
GuðjónR skrifaði:Gengið verður 71-79 meðan gegni Arion er 144.
Birna bankastjóri sagði verðmatið miðast við eigið fé bankas en svona banki er mikið meira en eigið fé.
BjarniB færi aldrei að einkavinavæða ríksibanka öðruvísi en að verðleggja hann langt undir verðmæti hans.

Útboðsgengi Arion banka árið 2018 var 75 kr og það er nú ekki nema rúmt ár síðan gengið í Arion var í 50 kalli þannig að það alveg spurning hvort þetta sé hátt eða lágt verð...

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 12:27
af GuðjónR
Kull skrifaði:

Ágæt hækkun 50>144.
Milljón orðin að þremur á einu ári,

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 12:36
af Kull
GuðjónR skrifaði:
Ágæt hækkun 50>144.
Milljón orðin að þremur á einu ári,

Alveg hressileg hækkun, en nánast öll hlutafélög hækkað hressilega. Til dæmis Marel nánast tvöfaldast á sama tímabili. Enda bara tap að geyma pening í banka í dag, neikvæðir raunvextir, þannig að allir eru að kaupa hlutabréf.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 15:33
af GullMoli
Held að þetta sé góð fjárfesting, einstaklingar í fjármálageiranum í kringum mig vilja meina að þetta verðmat sé í lægri kanntinum.

Ágætis tækifæri til að eignast hlut í kökunni.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 16:06
af Hizzman
hvernig virkar þetta? Setur maður inn tilboð, upphæð og fjölda hluta? Fá allir jafn mikið eða er eitthvert hlutfall notað? Er þetta bara ætlað einstaklingum eða eru fyrirtæki einnig að bjóða? Hvenær er síðasti séns?

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 16:27
af GullMoli

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 14. Jún 2021 19:16
af Dúlli
Hizzman skrifaði:hvernig virkar þetta? Setur maður inn tilboð, upphæð og fjölda hluta? Fá allir jafn mikið eða er eitthvert hlutfall notað? Er þetta bara ætlað einstaklingum eða eru fyrirtæki einnig að bjóða? Hvenær er síðasti séns?

1. Setur inn upphæð sem þú vill brenna þá færðu X magn af hlutum.
2. Allir upp að 1m ættu að fá, öll boð yfir 1m fara aftast.
3. Ætlað fyrir bæði einstakling og fyrirtæki.
4. 15.06.21 - Kl 12:00

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 15. Jún 2021 23:44
af GuðjónR
Jæja, hvað skráðu þið ykkur fyrir stórum hlut?

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 15. Jún 2021 23:54
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:Jæja, hvað skráðu þið ykkur fyrir stórum hlut?

Bara veldi á mönnum.

hélt mig við 5000þ hluti sirka.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 16. Jún 2021 00:25
af thrkll
GuðjónR skrifaði:Jæja, hvað skráðu þið ykkur fyrir stórum hlut?

Ég skráði mig líka fyrir 1.000.000.

Viðskiptablaðið - 486 milljarða áskriftir í útboðinu

Lykilatriðin um niðurstöðu útboðsins:

    - Áskriftir nema 486 milljörðum, sem þýðir að gerð voru tilboð í níu sinnum fleiri hluti (!) en voru í boði.
    - Hluthafar verða 24.000 þúsund, sem er mesti fjöldi hluthafa í skráðu félagi.
    - Innlendir aðilar munu eiga 24% og erlendir 11%.
    - Verð á hverjum útboðshlut mun verða 79 kr. eins og við var búist.

Kemur ekki fram í fréttinni en þetta er stærsta IPO Íslandssögunnar, m.v. þessar tölur.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 16. Jún 2021 09:56
af GuðjónR
Er ekki ágætt að kaupa fyrir milljón á 79 selja svo fyrir 2 milljónir á genginu 158 borga 200k í fjármagnstekjuskatt og senda svo BB blóm með kveðju fyrir ókeypis 800k?