Síða 3 af 5

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 22. Jún 2021 14:53
af Jón Ragnar
Dr3dinn skrifaði:Núverandi kauptilboð er upp á 7milljarða á 95,5 :)
(búið að selja fyrir 4,8milljarða)

Væntanlega lífeyrissjóðir að kaupa sem fengu að kaupa lítið í sjálfu útboðinu.

20% upp á einum degi...sleppur fyrir þá sem vilja selja strax.

Sá ekki betur en maður er skuldbundinn í 180 daga eftir kaup? :)

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 22. Jún 2021 14:58
af Dr3dinn
Jón Ragnar skrifaði:
Dr3dinn skrifaði:Núverandi kauptilboð er upp á 7milljarða á 95,5 :)
(búið að selja fyrir 4,8milljarða)

Væntanlega lífeyrissjóðir að kaupa sem fengu að kaupa lítið í sjálfu útboðinu.

20% upp á einum degi...sleppur fyrir þá sem vilja selja strax.

Sá ekki betur en maður er skuldbundinn í 180 daga eftir kaup? :)

Getur keypt og selt eins og þú vilt?

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 22. Jún 2021 15:10
af Jón Ragnar
Örugglega Play útboðið sem ég hef þetta úr! :)

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 22. Jún 2021 15:19
af thrkll
Jón Ragnar skrifaði:Sá ekki betur en maður er skuldbundinn í 180 daga eftir kaup? :)

Þessir 180 dagar eru hefðbundnar söluhömlur á seljandanum og tengjast ekki þeim sem tóku þátt í útboðinu. Það þýðir að ríkið má að jafnaði ekki selja fleiri hluti af bankanum næsta hálfa árið en þú mátt selja og kaupa bréfin á markaði eins og þú kýst.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 22. Jún 2021 16:00
af urban
gnarr skrifaði:
urban skrifaði:hvernig á þetta að vera skam ?
Það er engin annar að fara að hagnast á bréfunum hans Guðjóns en Guðjón.
Það geta alveg aðrir hagnast á restinni sem að á eftir að selja, það geta líka allir tapað á þessu, en það er engin annar að fara að hagnast á hlutnum hans Guðjóns (bara svona svo að ég nefni hann)

auðvitað á síðan eftir að selja helling í bankanum ennþá, auðvitað er alveg hægt að einkavinavæða þann hluta og álíka, en kommon, menn eru komnir með sinn hluta af bankanum í hendurnar, það er rosalega erfitt að fakea það.

Hvert heldurðu eiginlega að peningarnir hanns Guðjóns hafi farið? Þeir fóru beint í bankann, svo að ef einhver í bankanum er að gera eitthvað shady, þá var Guðjón að setja peninga beint í vasan hjá þeim einstakling.

Ef að ég kaupi tölvu frá þér þá fara peningarnir ekki beint í tölvuna.
Þeir fara til þín.

Ríkissjóður var að selja.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 10:19
af GuðjónR
Rúmir fimm millljarðar skiptu um hendur í gær eða yfir 10% bréfanna. Greinilegt að margir eru að innleysa skyndi hagnað og alvörufjárfestar sæta lagi og kaupa enda gengið ennþá lágt. 20% ávöxtun á nokkrum mínútum er ekki slæmt en ég ætla að bíða, þessi bréf eiga svo mikið meira inni.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 15:43
af Black
Lottó vinningshafinn um daginn hefði s.s getað tvöfaldað vinninginn sinn ef hann keypti bréf í íslandsbanka ?

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 15:48
af GuðjónR
Black skrifaði:Lottó vinningshafinn um daginn hefði s.s getað tvöfaldað vinninginn sinn ef hann keypti bréf í íslandsbanka ?

Það var milljón á mann max.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 16:11
af Hizzman
Black skrifaði:Lottó vinningshafinn um daginn hefði s.s getað tvöfaldað vinninginn sinn ef hann keypti bréf í íslandsbanka ?

'hefði' - já, skemmtilegt orð!

þú yrðir milljarðamæringur ef þú hefðir vitað í gær hvað gerist í dag, nokkra daga í röð!

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 16:16
af MrIce
Black skrifaði:Lottó vinningshafinn um daginn hefði s.s getað tvöfaldað vinninginn sinn ef hann keypti bréf í íslandsbanka ?

Og hugsaðu þér þá sem hefðu keypt bitcoin á 2$ og selt þegar þetta var $60k stykkið!
Alltaf gaman að vera gáfaður eftirá :sleezyjoe

Annars bara til hamingju GuðjónR að hafa fengið 50% uppí 3090 á einum degi :guy :guy

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 16:21
af Hizzman
fékk líka 1m, gerði undantekningu, hef mjög takmarkaðan áhuga á íslenskum fjármálamarkaði.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 23. Jún 2021 16:59
af MrIce
Ég gat ekki talað sjálfan mig á meira en 80þúsund fyrir íslenskan markað, búinn að horfa á eftir alltof miklu hérna heima. Verð sáttur ef ég næ út 3090 fyrir þetta eftir 2-3 ár (svona þegar 3090 suppy fer að komast í lag :megasmile )

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Fös 25. Jún 2021 19:07
af Dúlli
Helvíti er þetta spenanndi, íslandsbanki lokaði í dag í 99.8 krónum, spurning hvort þetta fara yfir 100 kr eftir helgi.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 28. Jún 2021 19:43
af gnarr

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 28. Jún 2021 20:52
af Hjaltiatla
gnarr skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/06/28/segir_soluna_minna_a_upphaf_hrunsins/

Jæja GuðjónR , hvort viltu vera kallaður hákarl eða ryksuga :lol:

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 28. Jún 2021 21:00
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:
gnarr skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/06/28/segir_soluna_minna_a_upphaf_hrunsins/

Jæja GuðjónR , hvort viltu vera kallaður hákarl eða ryksuga :lol:

Hákarl! hahahaha...

Ég er alveg sammála Þorvaldi Gylfasyni, ástandið í dag er farið að minna ískyggilega á tímann sitthvoru megin við hrunið.
Einkavinavæðing bankanna og Símans, auðvelt aðgengi að húsnæðislánum bankanna og hvernig fasteignaverð hækkaði út í eitt og svo rétt eftir hrun stofnun WOW.
Allt þetta er að gerast aftur.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 29. Jún 2021 19:01
af GuðjónR
Dúlli skrifaði:Helvíti er þetta spenanndi, íslandsbanki lokaði í dag í 99.8 krónum, spurning hvort þetta fara yfir 100 kr eftir helgi.

Lokagengið í dag 103
Milljón orðin að 1.303.774.-
Takk BjarniB.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 29. Jún 2021 19:22
af Dúlli
já sá það, easy 150þ í vasan hjá mér. ætla halda þar til þetta fer í 120-130 krónur.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 30. Jún 2021 23:13
af GuðjónR
Þessi mynd segir allt sem segja þarf....

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 12. Júl 2021 19:11
af GuðjónR
Ég held maður sé ekkert að fara selja fyrr en í fyrsta lagi eftir arðgreiðslur á næsta ári.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... m_markmid/

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mán 12. Júl 2021 23:51
af Daz
GuðjónR skrifaði:Ég held maður sé ekkert að fara selja fyrr en í fyrsta lagi eftir arðgreiðslur á næsta ári.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... m_markmid/

Það eru 2 milljarðar hluta í Íslandsbanka á markaði, ef allir hlutir fá jafn margar krónur í arð, hvað þarf þá arðgreiðslan að vera til að þínir 12.000 hlutir skili einhverju sem skiptir þig máli? :money :money :money

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 13. Júl 2021 09:52
af GuðjónR
Daz skrifaði:

Það tikkar allt, en það sem mestu máli skiptir er að þessi flotta afkoma hækkar virði bankans.
Gengið stökk úr 105 í 108.5 strax við opnun í morgun.

Eftir næsta uppgjör/arðgreiðslur þá spái ég að gengið verði amk 137 (kannski fyrr), ég myndi vilja eiga þessa hluti þangað til gengið nær 158 en þá er virðið tvöfalt meira en á kaupdegi. Það er ekkert óraunhæft, bara spurning hversu langan tíma það tekur.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Þri 13. Júl 2021 10:58
af Daz
GuðjónR skrifaði:

Setjandi á mig spámannshattinn segi ég að þessi hækkun (105->108,5) séu fleiri krónur en þú færð í arðgreiðslur (3,5 kr per hlut, myndi vera 7 milljarða arðgreiðsla. Einhverstaðar sá ég að bankinn miðaði við 50% af hagnaði í arðgreiðslur, svo það væri þá 14 milljarða hagnaður fyrir árið).

Ég giska svo á að gengið hækki fyrir og lækki eftir að arðgreiðslur hafi verið greiddar út.

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 14. Júl 2021 09:55
af GuðjónR
Þessi fækkun hluthafa var svo fyrirsjánaleg, það heldur aftur af hækkunum meðan fólk sættir sig við 35% hagnað.
Þegar litlu hluthöfunum fækkar þá neyðast hákarlarnir til að borga hærra verð fyrir útistandandi hluti og verðið fer upp.
https://www.visir.is/g/20212133038d/hlu ... ur-thusund

Re: Hlutafjárútboð Íslandsbanka

Sent: Mið 14. Júl 2021 11:19
af machinefart
GuðjónR skrifaði:Þessi fækkun hluthafa var svo fyrirsjánaleg, það heldur aftur af hækkunum meðan fólk sættir sig við 35% hagnað.
Þegar litlu hluthöfunum fækkar þá neyðast hákarlarnir til að borga hærra verð fyrir útistandandi hluti og verðið fer upp.
https://www.visir.is/g/20212133038d/hlu ... ur-thusund

"Sætta sig við" bara 35% ávöxtun á mánuði... Þú verður ansi fljótt ríkur með þá ávöxtunar kröfu ef það gengur eftir.