Síða 1 af 2

Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 20:16
af Dúlli
Jæja þá byrjar fjörið, einhverjar skoðanir ? einhver að kaupa ?

https://www.arctica.is/play/

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 21:30
af GuðjónR
Nei takk…

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 22:14
af Roggo
Alveg bókað! Bara spurning hversu miklu maður skal henda í þetta.

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 22:24
af GuðjónR
Ætla frekar að kaupa í WOW, líst mun betur á það..

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 22:25
af Dr3dinn
Nei takk

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 22:28
af GullMoli
Hafið í huga að þetta er ekki í OMX kauphöllinni, heldur hliðarmarkaðnum First North.

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 22:49
af urban
Þó svo að ég ætti nóg af peningum, þá held ég að ég myndi aldrei setja þá í flugfélag, hvað þá lággjalda flugfélag með langar flugleiðir, þau eru ekki mörg sem að hafa lifað góðu lífi.

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 23:12
af cramer
GullMoli skrifaði:Hafið í huga að þetta er ekki í OMX kauphöllinni, heldur hliðarmarkaðnum First North.

Geturu útskýrt þetta nánar. Vil vita meir.

Þakkir.

Daniel

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 23:22
af russi
cramer skrifaði:
GullMoli skrifaði:Hafið í huga að þetta er ekki í OMX kauphöllinni, heldur hliðarmarkaðnum First North.

Geturu útskýrt þetta nánar. Vil vita meir.

Þakkir.

Daniel

Stutta útskýring er sú að OMX þá þurfa fyrirtæki að fylla í fleiri box, líkt og ársfjórðungs uppgjör, hafa vissa starfsmenn og fleira. Mun meira regluverk sem þarf að uppfylla.

First North er ekki þannig, heldur er það meira hugsað fyrir minni og ný félög og oft hentugur fyrir StartUp fyrirtæki sem vilja koma sér á markað sem dæmi. Þar nægir til dæmis að skila ársuppgjöri.

T.d er Solid Clouds að fara á markað í First North í lok júní eða byrjun júlí. Myndi frekar setja pening þangað, því ef þeir fara að vaxa þar, gætu þeir vaxið mun hraðar en flest flugfélög

Re: Play Útboð

Sent: Mán 14. Jún 2021 23:48
af Dúlli
russi skrifaði:

Takk fyrir þennan mola.

En þetta solid clouds, er það ekki á erlendum markaði ? helvíti dýrt að vera með erlend bréf þegar maður er að skoða sig um í þessum stóra heimi.

Re: Play Útboð

Sent: Þri 15. Jún 2021 00:06
af russi
Dúlli skrifaði:
Takk fyrir þennan mola.

En þetta solid clouds, er það ekki á erlendum markaði ? helvíti dýrt að vera með erlend bréf þegar maður er að skoða sig um í þessum stóra heimi.

Nei, það er ekki á neinum markaði eins og er, nema þeim gráa. Þetta er Íslenskt fyrirtæki sem er i tölvuleikjagerð. Eru t.d nokkrir þar innanhúss sem voru hjá CCP þegar það var að byrja. Er með einn leik í gangi núna sem er að taka inn ágætis tekjur og annar sem kemur fljótlega

Re: Play Útboð

Sent: Þri 15. Jún 2021 00:15
af kizi86
Semsagt verðleggja fyrirtækið á vel yfir 5 milljarða, fyrirtæki sem þá hefur á utboðsdegi, aðeins farið í eitt flug....

Og þessi fyrirvari...

Re: Play Útboð

Sent: Þri 15. Jún 2021 21:36
af Dúlli
Ein samt pæling, hvernig sáu þið á hvaða markaði félög eru, er svo mikill byrjandi en þetta er áhugavert.

Re: Play Útboð

Sent: Þri 15. Jún 2021 22:09
af Njall_L
Er þetta ekki bara dæmi um high risk, high reward fjárfestingu? Ætla sjálfur ekki að taka þátt, langar að sjá þá taka af stað með farþega innanborðs fyrst…

Re: Play Útboð

Sent: Þri 15. Jún 2021 22:21
af GullMoli
Dúlli skrifaði:Ein samt pæling, hvernig sáu þið á hvaða markaði félög eru, er svo mikill byrjandi en þetta er áhugavert.

Stóð nú bara í fréttum um þetta, t.d. hérna:
https://www.visir.is/g/20212122157d/hlu ... aestu-viku
"Hlutafjárútboð Play fyrir skráningu félagsins á First North markaðinn hefst þann 24. júní klukkan 10."

http://www.nasdaqomxnordic.com/hlutabref

Þarna er "Aðalmarkaður" og svo "First North GM". Ef þú velur svo "ICE" í markaður þá sérðu að það eru eingöngu 4 Íslensk félög á First North. Virðist ekki vera mikil velta á þessum markaði miðað við Aðalmarkaðinn, get ímyndað mér að það sé ekki alveg jafn auðvelt að losa sig við hlutabréf þar.

Re: Play Útboð

Sent: Mið 23. Jún 2021 20:11
af Dúlli
Gaman að fylgjast með þessu.

Sýnist að ég sé algjörlega hættur við að taka þátt í play, loka slaggurinn var ransóknir hjá ríksskattstjóranum.

Re: Play Útboð

Sent: Fim 24. Jún 2021 16:48
af Bengal
Keypti slatta - high risk high reward, þetta er gefins peningur að mínu mati.

Re: Play Útboð

Sent: Fös 25. Jún 2021 19:33
af Dúlli
https://www.vb.is/frettir/Play/169229/? ... y6bECK3fFU

Sýnist að það hafi verið góð eftirspurn.

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 20:59
af Dúlli
Bara ágætis byrjun á þessu, byrjar í 22 krónum á hlut.

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 21:05
af GuðjónR
Dúlli skrifaði:Bara ágætis byrjun á þessu, byrjar í 22 krónum á hlut.

Borga 22 kr. fyrir hverja krónu í froðu. Þetta félag á ekkert. Er þetta félag fimmtán sinnum verðmætara en Icelandair?

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 21:11
af Cascade
GuðjónR skrifaði:
Dúlli skrifaði:Bara ágætis byrjun á þessu, byrjar í 22 krónum á hlut.

Borga 22 kr. fyrir hverja krónu í froðu. Þetta félag á ekkert. Er þetta félag fimmtán sinnum verðmætara en Icelandair?

Ekki bara hægt að bera saman verð per hlut

Það eru mismunandi margir hlutir í hverju fyrirtæki

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 21:15
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:
Dúlli skrifaði:Bara ágætis byrjun á þessu, byrjar í 22 krónum á hlut.

Borga 22 kr. fyrir hverja krónu í froðu. Þetta félag á ekkert. Er þetta félag fimmtán sinnum verðmætara en Icelandair?

Mér í er raun sama, sel strax og þetta var easy money. :megasmile

Til að hafa getað keypt í þessu félagi þurfti ég að droppa allri rökhugsun og prisipum, sorp félag en þetta skilar í budduna.

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 21:26

Ef það lækkar ekki :wtf

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 21:48

Ætla ekki að bíða það lengi :megasmile

Re: Play Útboð

Sent: Fim 08. Júl 2021 22:23
af russi
Dúlli skrifaði:Bara ágætis byrjun á þessu, byrjar í 22 krónum á hlut.

Hvar ertu að sjá þessu tölu? Þetta byrjar ekki fyrr en á morgun