Síða 1 af 4

Solid Clouds fer á markað

Sent: Þri 22. Jún 2021 21:40
af russi
Áhugaverður kostur fyrir þá sem hafa áhuga á hlutabréfum.
Fyrsta leikjafyrirtækið sem fer á markað hérlendis, veit að það er spenna fyrir þessu hjá mörgum og þá sérstaklega i ljósi þess að þetta fjölgar fjárfestingakostum hér á landi, allavega mun áhugaverðra en Play í mínum huga sem er líka að fara á First North

Solid Clouds Goes Public

Má líka bæta við að þar sem þetta telst sprotafyrirtæki er hægt að fá skattafslátt

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 23. Jún 2021 11:50
af thrkll
Hvernig lýsir þessi skattaafsláttur sér?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 23. Jún 2021 12:22
af Daz
thrkll skrifaði:Hvernig lýsir þessi skattaafsláttur sér?

https://www.skatturinn.is/einstaklingar ... radrattur/

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 23. Jún 2021 13:09
af russi
Daz skrifaði:Hvernig lýsir þessi skattaafsláttur sér?

Útboðsgögn lýsa þessu ágætlega

Einstaklingar með skattalegt heimilisfesti á Íslandi sem taka þátt í áskriftarbók A geta fengið lækkun á tekjuskatts- og/eða fjármagnstekjuskattsstofni um sem nemur 75% af fjárfestri upphæð. Þetta gildir um fjárfestingar á bilinu 300.000 kr. til 15.000.000 kr. á árinu 2021. Viðkomandi þarf að eiga bréfin í 3 árs annars verður afsláttur bakfærður með 15% álagi á söluári bréfanna.

Nánar hér: https://www.arionbanki.is/default.aspx? ... d385659f64

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 23. Jún 2021 13:14
af Daz
russi skrifaði: Útboðsgögn lýsa þessu ágætlega

...

Þar kemur t.d. ekki fram að ef hlutabréf eru seld áður en þriggja ára eignahald er liðið þá þarf að endurgreiða skattafsláttinn með 15% álagi. Einnig skilmálar um tengsl kaupanda við Solid clouds og upplýsingar um hámarksskattafslátt.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 23. Jún 2021 14:06
af russi
Daz skrifaði:Þar kemur t.d. ekki fram að ef hlutabréf eru seld áður en þriggja ára eignahald er liðið þá þarf að endurgreiða skattafsláttinn með 15% álagi. Einnig skilmálar um tengsl kaupanda við Solid clouds og upplýsingar um hámarksskattafslátt.

Kemur reyndar fram :-"

Viðkomandi þarf að eiga bréfin í 3 árs annars verður afsláttur bakfærður með 15% álagi á söluári bréfanna.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 23. Jún 2021 14:11
af Daz
russi skrifaði:

:guy

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Sun 27. Jún 2021 23:35
af russi
Ég fór á stúfana til að fá þetta á hreint hversu mikið fólk fær endurgreidd ef það tekur þátt i þessu og ætlar að sækja endurgreiðslu með því að eiga hlutinn í 3 ár eða lengur, svarið sem ég fékk er svohljóðandi/

Staðgreiðsluhlutfall er 36,94% á tekjur í fyrsta þrepi og 46,24% í öðru þrepi. Það þýðir að viðkomandi fjárfestir getur fengið ef hann greiðir tekjuskatt á Íslandi um 27,7% (36,94% * 75%) til  34,67% (46,23%*75%) endurgreiðslu hjá RSK. Ef viðkomandi fjárfestir greiðir eingöngu fjármagnstekjuskatt að þá getur hann fengið 16,5% (22% *75%)

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 08:39
af Daz
russi skrifaði:Ég fór á stúfana til að fá þetta á hreint hversu mikið fólk fær endurgreidd ef það tekur þátt i þessu og ætlar að sækja endurgreiðslu með því að eiga hlutinn í 3 ár eða lengur, svarið sem ég fékk er svohljóðandi/

OK ég ætla að reyna að vera gáfulegur aftur!

Þetta virðast mér undarlegar útskýringar, það kemur hvergi fram að skattendurgreiðslan sé hlutfall af greiddum (fjármagns)tekjuskatti. Ekki annað en að endurgreiðslan getur líklega ekki orðið hærri en heildargreiðsla þess árs. :money
Þetta eiga að vera 75% af hlutafjárkaupunum sem eru til endurgreiðslu. Svo ef ég fjárfesti fyrir 10 milljónir á ég möguleika á að fá 7,5 milljónir endurgreiddar. Ef ég borga 2 milljónir í tekjuskatt á árinu, þá fæ ég bara 2 milljónir endurgreiddar. (Og þarf að endurgreiða 2,3 milljónir ef ég sel innan 3 ára vegna 15% álagsins).

Breytt, yfirstrika bull.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 09:38
af russi
Daz skrifaði:OK ég ætla að reyna að vera gáfulegur aftur!

Held það hafi ekki alveg tekist hjá þér :guy

Þetta er þannig, þú ert með X tekjur í ár, borgar Y tekjuskatt af því og jafnvel áttu smá í banka eða annarsstaðar sem lætur þig borga Z fjarmagnstekjuskatt. Segjum að það gefi þér 1.5mill í skattgreiðslur fyrir árið

Y+Z = Heildarskattgreiðsla þessa árs.
Þú hefur keypt bréf fyrir milljón kall í þessu, 75% af því er frádráttarbært, því verður stofninn fyrir endurgreiðslu 750þús, miðað við þú sért í efraskatt þrepi þá færðu 34.67% af því til baka. Sum sé 34.67% af 750þús = 260þús sirka.

Auðvitað ef skatturinn sem þú borgar í ár nær ekki uppí þetta þá fer það væntanlega eins langt og hann kemst með það að endurgreiða þér.

Sumir eru að horfa hvort þetta sé tekjuskattur eða fjarmagnstekjuskattur, það kemur útá það sama. Bara minni endurgreiðsla ef þú ert t.d. að borga bara fjarmagnstekjuskatt

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 10:15
af thrkll
Daz skrifaði:

Ég skil þetta líka svona. Það virðist koma skýrt fram á upplýsingasíðu skattsins að frádrátturinn (75% af upphæð fjárfest í Solid Clouds) reiknast frá tekjuskattsstofni og/eða fjármagnstekjuskattsstofni. Þetta hljómar eitthvað frekar spes hjá Daz russi.

Breyting: Úbbs, átti við að þetta meikaði ekki sens hjá russa, en ekki Daz.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 10:32
af Dr3dinn
Sko þetta er pínu varhugavert, þetta fer náttúrulega á first north, sem er miklu erfiðari sölumarkaður en aðalmarkaðurinn.

Bókhaldið er aðgengilegt í útboðinu og eðlilega er ekkert fjárstreymi (þ.e. income) í þessu félagi sem er að búa til tölvuleiki.
(bara kostnaður og eignfærð fjárfesting að búa til leikinn)

Þannig fólk er að fjárfesta í félagi sem gæti gengið mjög vel eða bara farið lóðrétt á hausinn.

Fá skattaafsláttinn er náttúrulega alveg geggjað og í rauninni eina ástæðað fyrir að kaupa í þessu, því þetta er mun áhættusamari fjárfesting en Íslandsbanki (en mögulega betri en Play út frá skattaafslættinum)

Mínu 5cent er að láta þetta vera, en ef menn ætla fjárfesta þá er þetta long term verkefni sem þú færð skattaafslátt á, sem er mun meira spennandi en Play ævintýrið.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 11:04
af Daz
russi skrifaði:
Daz skrifaði:OK ég ætla að reyna að vera gáfulegur aftur!

Þetta virðast mér undarlegar útskýringar, það kemur hvergi fram að skattendurgreiðslan sé hlutfall af greiddum (fjármagns)tekjuskatti. Ekki annað en að endurgreiðslan getur líklega ekki orðið hærri en heildargreiðsla þess árs. :money
Þetta eiga að vera 75% af hlutafjárkaupunum sem eru til endurgreiðslu. Svo ef ég fjárfesti fyrir 10 milljónir á ég möguleika á að fá 7,5 milljónir endurgreiddar. Ef ég borga 2 milljónir í tekjuskatt á árinu, þá fæ ég bara 2 milljónir endurgreiddar. (Og þarf að endurgreiða 2,3 milljónir ef ég sel innan 3 ára vegna 15% álagsins).

Held það hafi ekki alveg tekist hjá þér :guy

Þetta er þannig, þú ert með X tekjur í ár, borgar Y tekjuskatt af því og jafnvel áttu smá í banka eða annarsstaðar sem lætur þig borga Z fjarmagnstekjuskatt. Segjum að það gefi þér 1.5mill í skattgreiðslur fyrir árið

Y+Z = Heildarskattgreiðsla þessa árs.
Þú hefur keypt bréf fyrir milljón kall í þessu, 75% af því er frádráttarbært, því verður stofninn fyrir endurgreiðslu 750þús, miðað við þú sért í efraskatt þrepi þá færðu 34.67% af því til baka. Sum sé 34.67% af 750þús = 260þús sirka.

Auðvitað ef skatturinn sem þú borgar í ár nær ekki uppí þetta þá fer það væntanlega eins langt og hann kemst með það að endurgreiða þér.

Sumir eru að horfa hvort þetta sé tekjuskattur eða fjarmagnstekjuskattur, það kemur útá það sama. Bara minni endurgreiðsla ef þú ert t.d. að borga bara fjarmagnstekjuskatt

Jebb ég er í ruglinu :sleezyjoe . Skautaði yfir orðið stofn í tekjuskattstofn þegar ég var að lesa reglurnar hjá skattinum. Aðferðin sem Russi fékk í svarinu virkaði líka bara furðulega á mig þar sem hún reiknar endurgreiðsluna útfrá prósentunni, en ekki útfrá upphæðinni. Auðvitað stemmir þetta alltsaman og eins og þú segir og í því hærra skattþrepi sem maður er, því betri er endurgreiðslan.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 11:16
af russi
Dr3dinn skrifaði:Sko þetta er pínu varhugavert, þetta fer náttúrulega á first north, sem er miklu erfiðari sölumarkaður en aðalmarkaðurinn.

Bókhaldið er aðgengilegt í útboðinu og eðlilega er ekkert fjárstreymi (þ.e. income) í þessu félagi sem er að búa til tölvuleiki.
(bara kostnaður og eignfærð fjárfesting að búa til leikinn)

Þannig fólk er að fjárfesta í félagi sem gæti gengið mjög vel eða bara farið lóðrétt á hausinn.

Fá skattaafsláttinn er náttúrulega alveg geggjað og í rauninni eina ástæðað fyrir að kaupa í þessu, því þetta er mun áhættusamari fjárfesting en Íslandsbanki (en mögulega betri en Play út frá skattaafslættinum)

Mínu 5cent er að láta þetta vera, en ef menn ætla fjárfesta þá er þetta long term verkefni sem þú færð skattaafslátt á, sem er mun meira spennandi en Play ævintýrið.

Það er blautur draumur Kauphallarinnar að virkja First North, nú er 2 fyrirtæki að detta þar inn sem er gott. Þessi markaður er til dæmis mjög virkir Svíþjóð og er á fínu runni í DK og NO. Svíarnir eru t.d að gera þetta rétt, leyfa til dæmis hluta af séreignarsparnaði að fara þar í gegn.
Ég er ekki endilega sammála því að þetta sé varhugaverðra en annað fyrir utan að þessi markaður hreyfist mun hægar.

En já þetta er mjög ruglandi til reiknings, en ég hef nýtt mér svona áður fyrir mörgum árum og var alveg í ruglinu þar. En þetta sem kom hér fram á undan er nokkurn vegin á pari.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 28. Jún 2021 20:04
af Dúlli
Hvernig líst mönnum á þetta ?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Þri 29. Jún 2021 17:41
af russi
Og það er búið að gefa út reiknivél til að reikna út sinn skattafslátt

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fim 01. Júl 2021 22:29
af dadik
Sýnist þetta hafa verið cappað við 24.000 hluti

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 02. Júl 2021 07:49
af Bengal
russi skrifaði:Og það er búið að gefa út reiknivél til að reikna út sinn skattafslátt

Skil ég rétt að maður fær meiri afslátt eftir því sem maður hefur hærri laun (borgar meiri tekjuskatt) ?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 02. Júl 2021 08:40
af dadik
Já að vissu leyti. Eftir því sem tekjurnar hjá þér eru hærri því hærri er tekjuskattsstofninn. Ef þú hefðir keypt fyrir 4.000.000 þá hefði lækkunin á tekjuskattsstofinum verið 75% af því sem eru 3.000.000. Þú yrðir þá að vera með tekjuskattsstofn sem nemur amk 3.000.000 til að fá einhverja lækkun.

En þetta skipti engu máli á endanum þar sem mér sýnist að allir hafi verið takmarkaðir við 24.000 hluti eða 300.000

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 02. Júl 2021 19:35
af Dúlli
Hverjir náðu að tryggja sér ?

alveg sáttur að hafa fengið mitt. Verður fínt að komast í þennan afsl.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Lau 03. Júl 2021 19:16
af Bengal
Dúlli skrifaði:Hverjir náðu að tryggja sér ?

alveg sáttur að hafa fengið mitt. Verður fínt að komast í þennan afsl.

Fékkstu meira en 300 ?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Lau 03. Júl 2021 19:55
af Dúlli
Bengal skrifaði:
Dúlli skrifaði:Hverjir náðu að tryggja sér ?

alveg sáttur að hafa fengið mitt. Verður fínt að komast í þennan afsl.

Fékkstu meira en 300 ?

Held að það fékk engin yfir 300þ.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 12. Júl 2021 16:58
af GuðjónR

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 12. Júl 2021 18:32
af russi
GuðjónR skrifaði:https://www.vb.is/frettir/litil-velta-med-bref-solid-clouds/169478/

Spurning hvort fólk sé yfir höfuð að setja þessi bréf í sölu út frá skattaafslætti, samt var einhver fýr sem seldi bréf fyrir 10þús kr :face

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mán 12. Júl 2021 18:59
af Dúlli
Áhugaverð keyrsla á þessu.

Væri líka til að sjá hvar fréttablaðið fær þessar upplýsingar að þetta fór upp í 14 og aftur niður.

https://www.frettabladid.is/markadurinn ... ra-utbodi/

russi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:https://www.vb.is/frettir/litil-velta-med-bref-solid-clouds/169478/

Spurning hvort fólk sé yfir höfuð að setja þessi bréf í sölu út frá skattaafslætti, samt var einhver fýr sem seldi bréf fyrir 10þús kr :face

Ef fólk selur þá tapar það þessum afslætti. Skil ekki alveg seinni part á setningunni hjá þér :O