Síða 1 af 1

Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 14:40
af mjolkurdreytill
Nú langar mig að forvitnast meðal þeirra ykkar sem eru inni í netöryggismálum.

Inatagram liðið sem er að tapa reikningunum sínum segjast flest hafa breytt lykilorðinu sínu eftir öryggistilkynningar .Engu að síður virðast þau tapa reikningnum.

Hvernig virkar þetta? Af hverju er ekki nóg að breyta lykilorðinu?

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 14:53
af Viktor
Myndi giska á að þau væru ekki með 2FA og að endurnýta lykilorð á mörgum stöðum. Kannski er lykilorðið í einhverjum gagnaleka, og mögulega er þessi sem stelur aðganginum með aðgang að netfanginu líka.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 15:08
af rapport
mjolkurdreytill skrifaði:Nú langar mig að forvitnast meðal þeirra ykkar sem eru inni í netöryggismálum.

Inatagram liðið sem er að tapa reikningunum sínum segjast flest hafa breytt lykilorðinu sínu eftir öryggistilkynningar .Engu að síður virðast þau tapa reikningnum.

Hvernig virkar þetta? Af hverju er ekki nóg að breyta lykilorðinu?

Voru þetta örugglega legit öryggistilkynningar?

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 15:39
af thrkll
Ég er eiginlega handviss um að það sé ekki verið að brjótast inn á þessa aðganga heldur sé Instagram bara að eyða þeim/óvirkja sjálfkrafa eftir að "hakkarinn" setur eitthvað report ferli í gang. Þetta er sem sagt bara svona take-down, eins og skúrkurinn segir reyndar sjálfur, og hann kemst ekki yfir neinar upplýsingar þannig séð.

Ef þetta er eins og mig grunar þá er ferlið líklega einhvern vegin svona:
  • Maður hefur aðgang að nokkrum gömlum aðgöngum (hugsanlega fyrir 2012) - þ.e. nokkra gamla aðganga fyrir hvern aðgang sem á að banna. Það er hægt að kaupa þá fyrir lítið.
  • Gömlu aðgangarnir verða að hafa mjög svipað nafn og þeir sem á að banna (kristinpeturs-> kristinpeturss) og verða að hafa sömu prófílmyndir.
  • Gömlu aðgangarnir eru notaðir til að reporta áhrifavaldana fyrir "Impersonating me" og eitthvað fleira eftir ákveðinni forskrift sem leikur á algrímið.
  • Instagram bannar aðgangana sjálfkrafa. Svo er facebook/instagram með svo lélega þjónustu að það tekur heillangan tíma að fá bannið til að ganga til baka.

Mín spá er að allir þessi áhrifavaldar muni allir fá aðgangana sína til baka, með öllum gögnum, eftir nokkra daga og Instagram patchi þetta.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 15:43
af gnarr
Þau fá email frá "instagram" þar sem að stendur eitthvað á þessa leið:

Það er hakkari að reyna að komast inná aðganginn þinn! Farðu á https://instagram.com.changepassword.ru og breyttu lykilorðinu þínu.

Þau fara síðan inná þessa síðu og "breyta" lykilorðinu með því að skrifa inn email'ið sitt og "gamla" lykilorðið, og eru þá búin að gefa hakkaranum login aðgang.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 15:59
af jonfr1900
Það er möguleiki að þessi sé með lykilorðalista sem hann hefur keypt af svarta markaðinum. Auk þess að nota annað eins og nefnt hefur verið hérna, það er falsar öryggistilkynningar og biðja fólk um að breyta lykilorðinu. Ég held reyndar að Instagram biðji fólk aldrei um að breyta lykilorðinu sínu með öryggistilkynningu. Þar sem lykilorðabreyting er sérstakt ferli hjá Instagram og Facebook.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 16:02
af thrkll
gnarr skrifaði:Þau fá email frá "instagram" þar sem að stendur eitthvað á þessa leið:

Það er hakkari að reyna að komast inná aðganginn þinn! Farðu á https://instagram.com.changepassword.ru og breyttu lykilorðinu þínu.

Þau fara síðan inná þessa síðu og "breyta" lykilorðinu með því að skrifa inn email'ið sitt og "gamla" lykilorðið, og eru þá búin að gefa hakkaranum login aðgang.

Mig grunar að þetta séu ekki phishing póstar sem fólk er að fá, heldur merki um að botti hafi reynt að skrá sig inn á reikninginn þinn (og mistekist).

Ég fékk svona póst fyrir Instagram aðgang (líkt og margir aðrir held ég), en hann er skráður á tölvupóstfang sem er til í gagnaleka. Pósturinn er legit og Instagram android appið staðfestir að ég hefði átt að fá póst frá þeim á þessum tíma. Aðrir sem ég veit um að hafi fengið sambærilegan póst á svipuðum tíma eiga það líka sameiginlegt að tölvupóstfangið er til í gagnaleka.

Mynd

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 16:05
af Hannesinn
gnarr skrifaði:Þau fá email frá "instagram" þar sem að stendur eitthvað á þessa leið:

Það er hakkari að reyna að komast inná aðganginn þinn! Farðu á https://instagram.com.changepassword.ru og breyttu lykilorðinu þínu.

Þau fara síðan inná þessa síðu og "breyta" lykilorðinu með því að skrifa inn email'ið sitt og "gamla" lykilorðið, og eru þá búin að gefa hakkaranum login aðgang.

Ef ég þyrfti að setja pening undir, þá væri það þetta. Sérstaklega þar sem að þetta fólk á líklega lítið sameiginlegt annað en að vera íslenskt.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 16:36
af GuðjónR
Þetta er ömurlegt! Verða þá engar „vikan á instagram“ rassamyndir í næstu viku?
:crying :crying :crying

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 16:53
af Mossi__
GuðjónR skrifaði:Þetta er ömurlegt! Verða þá engar „vikan á instagram“ rassamyndir í næstu viku?
:crying :crying :crying

.
Eg einmitt hugsaði, þurfa þá þessi grey að fara að klæða sig og fá sér vinnu.

#gamlibitri

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 19:03
af Tbot
Mossi__ skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þetta er ömurlegt! Verða þá engar „vikan á instagram“ rassamyndir í næstu viku?
:crying :crying :crying

.
Eg einmitt hugsaði, þurfa þá þessi grey að fara að klæða sig og fá sér vinnu.

#gamlibitri

Hérna sé ég alvarlega fordóma í garð "fallega" fólksins.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 21:07
af jonfr1900
Það er fullyrt í fjölmiðlum að þetta sé report árás. Ég er ekki viss um að svo sé raunin.

Veltir fyrir sér hvort ein­hverjum sé upp­sigað við á­hrifa­valdana og hafi greitt þrjótnum (Vísir.is)

Íslenskir áhrifavaldar liggja vel við höggi (mbl.is)

Gögnin benda til annara þátta en talað er um í frétt Morgunblaðsins. Þetta virðist vera yfirtaka á reikningum frekar en tilkynninga árásir.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 21:27
af daaadi
jonfr1900 skrifaði:Gögnin benda til annara þátta en talað er um í frétt Morgunblaðsins. Þetta virðist vera yfirtaka á reikningum frekar en tilkynninga árásir.

Hvaða gögn? Eru ekki allir reikningarnir"disabled", eða er einhver að posta frá hökkuðum reikningum eða búin að sanna að hann hafi aðgang?

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 21:32
af machinefart
jonfr1900 skrifaði:Það er fullyrt í fjölmiðlum að þetta sé report árás. Ég er ekki viss um að svo sé raunin.

Það er vitnað í sinnhvorn sérfræðinginn hjá syndis og þeir telja að þetta sé report árás. Annar þeirra segist vita til einhverra dæma um report fyrir víst. Það er ekki verið að fullyrða að þetta sé report árás, getur alveg verið slakur á fullyrðingum sjálfur.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 23:14
af jonfr1900
daaadi skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Gögnin benda til annara þátta en talað er um í frétt Morgunblaðsins. Þetta virðist vera yfirtaka á reikningum frekar en tilkynninga árásir.

Hvaða gögn? Eru ekki allir reikningarnir"disabled", eða er einhver að posta frá hökkuðum reikningum eða búin að sanna að hann hafi aðgang?

Snemma í umfjöllun um þetta þá kom þetta hérna fram.

[...] Þennan dag fékk hún tölvupóst með tilkynningu um innskráningu frá tæki sem var ekki í hennar eigu og var tækið skráð í Kópavogi.

Mér brá auðvitað og breytti alveg tvisvar sinnum um lykilorð. Svo þegar ég var á Instagram daginn eftir þá skráist ég allt í einu út og kemst ekki inn aftur. [...]

Hakkarar í herferð: Birgitta Líf og Kristín Péturs á meðal fórnarlamba (Vísir.is)

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 13. Júl 2021 23:54
af thrkll
jonfr1900 skrifaði:

Þarna í fréttinni kemur fram að hakkarinn hafi búið til "nýja gervi Instagram síðu með nafni Sigurbjargar og sömu prófíl mynd" og að gervi síðan hafi verið undir nafninu sbirtaaaa (notendanafnið hennar var sbirtaa). Kristín Péturs sagði svo í útvarpinu í gær (RÚV.is - mín 36:00) að hakkarinn hafi búið til nýjar síðu með sömu prófíl mynd og með sama nafni, nema með þremur og fjórum s-um (kritstinpeturs -> kristinpetursss, kristinpeturssss). Þetta stemmir allt við svona "Impersonating me"-report árás eins og ég lýsti fyrir ofan.

Án þess að sjá einhverja virkni frá þessum aðgöngum held ég að það sé mjög ólíklegt að tyrkirnir hafi komist yfir aðgangana. Hverjar eru líkurnar á að þeir hafi komist inn, bara til að eyða aðgangnum og búa svo til nýja "gervi" aðganga með sömu prófílmyndum? Meikar ekki sens. :hugenose

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Fim 15. Júl 2021 12:45
af thrkll
Nú gefur Fréttablaðið í skyn að sömu aðilar séu á bak við þessa árás og Vodafone-lekann 2014 - út af því að "hakkarinn" sagði það. :hmm

Það verður að teljast mjööög hæpið, en allt fyrir klikkin.

Sömu hakk­ar­ar og að baki Vod­a­fon­e-leka (visir.is)

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Fim 15. Júl 2021 20:29
af danniornsmarason
Er þetta ekki bara annað publicity stunt eins og "áttan" var með fyrir nokkrum árum, nema núna fengu fleirri að vera með :guy

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Lau 17. Júl 2021 11:21
af GuðjónR
Instagram leysið kom ekki í veg fyrir að Birgitta Líf fyndi ástina.
Myndarlegt par :megasmile

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Mán 19. Júl 2021 11:11
af GuðjónR
Það væri ekkert samfélag án samfélagsmiðla og vikunnar á instagram.
:guy

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 20. Júl 2021 19:36
af jonfr1900
Mig grunar að ég hafi orðið fyrir árás á Instagram. Mig grunar það þar sem það er ekkert á Instagram hjá mér sem flokkast sem spam eða gegn reglum Instagram. Þetta eru bara myndir af fuglum, blómum og fjöllum og svoleiðis hlutum.

Ég er ennþá læstur úti síðast þegar ég gáði. Ég er mjög duglegur að kvarta yfir þessu en ég veit ekki hvort að ég losna nokkurntímann við þetta. Ég vona það, þar sem þetta er óþolandi.

Instagram - restricted account 19-07-2021.png
Instagram - restricted account 19-07-2021.png (24.24 KiB) Skoðað 2688 sinnum

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Þri 20. Júl 2021 22:23
af Mossi__
jonfr1900 skrifaði:Mig grunar að ég hafi orðið fyrir árás á Instagram. Mig grunar það þar sem það er ekkert á Instagram hjá mér sem flokkast sem spam eða gegn reglum Instagram. Þetta eru bara myndir af fuglum, blómum og fjöllum og svoleiðis hlutum.

Ég er ennþá læstur úti síðast þegar ég gáði. Ég er mjög duglegur að kvarta yfir þessu en ég veit ekki hvort að ég losna nokkurntímann við þetta. Ég vona það, þar sem þetta er óþolandi.

Instagram - restricted account 19-07-2021.png

Of mikið eða ekki nóg af rassamyndum frá þér á DV?

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Mið 21. Júl 2021 00:22

DV myndi aldrei birta frétt af mér í dag. Enda fáar myndir af mér á Instagram sem ég tek sjálfur og ég flokkast seint sem áhrifavaldur yfir nokkrum sköpuðum hlut.

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Mið 21. Júl 2021 18:54
af Jón Ragnar
thrkll skrifaði:
gnarr skrifaði:Þau fá email frá "instagram" þar sem að stendur eitthvað á þessa leið:

Það er hakkari að reyna að komast inná aðganginn þinn! Farðu á https://instagram.com.changepassword.ru og breyttu lykilorðinu þínu.

Þau fara síðan inná þessa síðu og "breyta" lykilorðinu með því að skrifa inn email'ið sitt og "gamla" lykilorðið, og eru þá búin að gefa hakkaranum login aðgang.

Mig grunar að þetta séu ekki phishing póstar sem fólk er að fá, heldur merki um að botti hafi reynt að skrá sig inn á reikninginn þinn (og mistekist).

Ég fékk svona póst fyrir Instagram aðgang (líkt og margir aðrir held ég), en hann er skráður á tölvupóstfang sem er til í gagnaleka. Pósturinn er legit og Instagram android appið staðfestir að ég hefði átt að fá póst frá þeim á þessum tíma. Aðrir sem ég veit um að hafi fengið sambærilegan póst á svipuðum tíma eiga það líka sameiginlegt að tölvupóstfangið er til í gagnaleka.

Mynd

Þennan póst er ég að fá mjög reglulega.

Oft 1-2 á dag og svo ekkert á milli.

Er einmitt með mitt í gagnaleka :(

Re: Instagram hakk - Hvað veldur?

Sent: Fim 22. Júl 2021 10:25
af thrkll
Jón Ragnar skrifaði:Þennan póst er ég að fá mjög reglulega.

Oft 1-2 á dag og svo ekkert á milli.

Er einmitt með mitt í gagnaleka :(

Hef einmitt heyrt svipaðar tölur. Instagram er víst með alveg ferlegar varnir til að koma í veg fyrir svona login-spam.