Síða 2 af 3

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 09:08
af appel
Daz skrifaði:
appel skrifaði:
Hættuminnst að kaupa bara tilbúið. Og sagt best að kaupa eitthvað sem er orðið svona 10 ára gamalt, þá eru allir gallar komnir fram sem það gerir kannski ekki strax á nýbyggðu húsnæði.

Nema þú lendir í svona https://www.visir.is/g/20212132541d (fyrri eigandi búinn að klára gallamál og fá greitt fyrir gallann en lagar hann ekki) :crazy

Þessvegna sagði ég að ætti að kaupa aðeins "seasoned" hús sem hefur verið prófað yfir nokkra vetur, þannig að gallar einsog lekar séu komnir fram. Svo jú að láta skoða hús sem þú kaupir.

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 09:46
af Dropi
BudIcer skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Svo eignastu íbúðina eftir 40 ár og hún hækkar í verði á meðan.

Ég vona að ég sé ekki sá eini sem borgar aukalega inn á lánið, sé fram á að borga 40 ára lánið á 10 árum.

Einmitt, ég sé fram á að borga mitt lán sem ég tók í Des fyrir 144fm (með bílskúr) íbúð í 105 á innan við 10 árum. Lánið er til 20 ára en þegar auka peningur liggur fyrir setjum við hann í lánið. Við erum bæði að nýta okkur séreignarsparnaðinn inn á lánið vegna fyrstu kaupa og það skotgengur að greiða það niður sem er af þessu ári - langt fram úr fyrstu væntingum. Eini vandinn hefur verið að allir ofnar og sumar lagnir þurftu að fjúka fyrir 800 kall, nýtt parket 500 kall, svo nýtt eldhús bráðlega líka.

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 10:10
af Daz
stefandada skrifaði:
BudIcer skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Svo eignastu íbúðina eftir 40 ár og hún hækkar í verði á meðan.

Ég vona að ég sé ekki sá eini sem borgar aukalega inn á lánið, sé fram á að borga 40 ára lánið á 10 árum.

Afhverju ekki að endurfjármagna og stytta lánstímann ? Fyrst þú getur borgað meira , borgar minna þegar upp er staðið, endurfjármögnun er svo einföld í dag virðist vera.

Fyrst síðustu fjármálapóstar hjá mér hafa gengið svona vel...

Það er engin munur á því að endurfjármagna til að stytta lán og að borga meira inn á lán til að "stytta" það. Ef ég borga X krónur á mánuði inn á lán skiptir ekki máli hvort það eru tvær greiðslur (samkvæmt áætlun og svo aukaleg innborgun) eða ein*.
Það að fá betri vexti við endurfjármögnun er svo annar handleggur.

*að því gefnu að innborganirnar fari inn á lánið á sambærilegum tíma, vextir reiknaður út daglega og eitthvað svoleiðis fjör.

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 10:43
af Klemmi
Akkúrat, betra að hafa langan lánstíma og vera því skuldbundinn til að greiða minna um hver mánaðarmót, en leggja alltaf eins og þú getur aukalega inn.

Eykur sveigjanleikann fyrir óvæntum útgjöldum og þess háttar.

*** Bætt við ***
Ef þú ert með fasta vexti, þá er auðvitað vert að nefna að það getur verið uppgreiðslugjald sem þarf að hafa í huga. Fer eftir því hvað þú ert að leggja mikið aukalega inn á lánið, hversu miklu máli það skiptir.

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 11:20
af sverrirgu
Ef við gefum okkur að þetta sé sæmilega nýlegt lán með hæsta mögulega uppgreiðslugjald sem er 1%* og hjá bönkunum máttu borga milljón á ári áður en það dettur inn. Þá ertu að borga 10.000 kr af hverri milljón sem þú borgar umfram milljón krónur á ári eða 1.000 kr af hverjum 100.000 krónum.

Þannig að í stóra samhenginu þá tekur því varla að tala um þetta þó vissulega sé það sárt að sjá eftir hverri auka krónu í bankakerfið.

*
https://www.neytendastofa.is/neytendur/neytendalan/-rettindi-lantaka/

Neytendur eiga alltaf rétt á að endurgreiða lán eða greiða aukalega inn á það hvenær sem er á lánstímanum. Þessi heimild hefur verið til staðar í mörg ár en heimild lánveitenda til að taka uppgreiðslugjald hefur breyst nokkuð í gegnum tíðina. Ef neytandi ætlar að endurgreiða lánið sitt fyrir áætlaðan tíma þarf hann því fyrst að skoða hvenær lánið var tekið og hvaða reglur voru í gildi þá. Í öllum tilvikum þarf að koma skýrt fram í lánssamningi að neytandinn þurfi að greiða uppgreiðslugjald og hversu hátt það gjald er. Þrátt fyrir að greiða þurfi uppgreiðslugjald getur borgað sig fyrir neytendur að greiða lánið upp fyrr en áætlað var því þá þarf ekki að greiða vexti eða annan kostnað sem hefur ekki þegar fallið á lánið. Áfallnar verðbætur þarf alltaf að greiða.

Til ársins 2008 voru engin takmörk á því hvenær mætti innheimta uppgreiðslugjald eða hversu hátt gjald mætti taka og reyndar var löng hefð fyrir því að lánveitendur gerðu enga kröfur um uppgreiðslugjald.

Hafi lán verið tekið á tímabilinu frá 28. maí 2008 til 1. nóvember 2013 má ekki krefjast uppgreiðslugjalds ef lánið er með breytilegum vöxtum og upphaflegur höfuðstóll er lægri en 50 millj.

Fyrir lán sem tekin eru eftir 1. nóvember 2013 gildir að uppgreiðslugjald má ekki vera meira en 1% af þeirri fjárhæð sem greidd er, ef lengra en eitt ár er eftir af samningnum.
Uppgreiðslugjald má þó ekki vera meira en 0,5% ef styttra en eitt ár er eftir af lánstíma. Í eftirfarandi tilvikum má ekki krefjast uppgreiðslugjalds:

• ef um er að ræða yfirdráttarheimild,
• ef lán ber breytilega vexti,
• ef ástæða endurgreiðslunnar er gjaldfelling lánsins af hálfu lánveitanda,
• ef uppgreiðslan er lægri en 1.000.000 kr. á ársgrundvelli,
• ef greiðslan er gerð skv. vátryggingasamningi sem er ætlað að tryggja greiðslu lánsins.

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 11:27
af Klemmi
sverrirgu skrifaði:Ef við gefum okkur að þetta sé sæmilega nýlegt lán með hæsta mögulega uppgreiðslugjald sem er 1%* og hjá bönkunum máttu borga milljón á ári áður en það dettur inn. Þá ertu að borga 10.000 kr af hverri milljón sem þú borgar umfram milljón krónur á ári eða 1.000 kr af hverjum 100.000 krónum.

Þannig að í stóra samhenginu þá tekur því varla að tala um þetta þó vissulega sé það sárt að sjá eftir hverri auka krónu í bankakerfið.

Já, það sem ég átti við er ef þú ert að reyna að ákveða hvort þú eigir að stytta lánið og borga þannig meira um hver mánaðarmót, ekkert uppgreiðslugjald, þar sem þetta er partur af venjulegu greiðslunum, eða hafa lengra lán og borga mögulega uppgreiðslugjald.

En eins og þú segir, þetta eru smápeningar í stóra samhenginu.

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 11:28
af Daz
sverrirgu skrifaði:Ef við gefum okkur að þetta sé sæmilega nýlegt lán með hæsta mögulega uppgreiðslugjald sem er 1%* og hjá bönkunum máttu borga milljón á ári áður en það dettur inn. Þá ertu að borga 10.000 kr af hverri milljón sem þú borgar umfram milljón krónur á ári eða 1.000 kr af hverjum 100.000 krónum.

Þannig að í stóra samhenginu þá tekur því varla að tala um þetta þó vissulega sé það sárt að sjá eftir hverri auka krónu í bankakerfið.

Ekki tala um uppgreiðslugjald nálægt Guðjóni... (sjá Íbúðalánasjóð og 10%+ uppgreiðslugjöldin hjá þeim).

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 11:42
af Dropi
Það er ekkert uppgreiðslugjald á mínu láni :-k

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 12:34
af sverrirgu
Daz skrifaði:Ekki tala um uppgreiðslugjald nálægt Guðjóni... (sjá Íbúðalánasjóð og 10%+ uppgreiðslugjöldin hjá þeim).

Haha, segðu, ég þurfti að borga þeim ~450.000 til að losna úr mínu láni en ég náði þeim pening svo "til baka" á skikkanlegum tíma með lægri afborgun og auka niðurgreiðslu á höfuðstólinn. Svo er bara að vona að dómsmálið fari á réttan veg að lokum og það verði hægt að sækja aurinn til baka.

Dropi skrifaði:Það er ekkert uppgreiðslugjald á mínu láni :-k

Það eru bestu lánin ef þú átt rétt á þeim og þau henta miðað við þínar forsendur. :happy

Re: Byggja hús

Sent: Mán 19. Júl 2021 13:01
af GuðjónR
Daz skrifaði:Ekki tala um uppgreiðslugjald nálægt Guðjóni... (sjá Íbúðalánasjóð og 10%+ uppgreiðslugjöldin hjá þeim).

hehehe ... já það var doldið súrt epli að bíta í að borga hátt í tvær millur í uppgreiðslugjald.

Ég óttast ekki þetta 1% uppgreiðslugjald sem er á föstum vöxtum sem ég breytti í um mánaðarmótin, í fyrsta lagi þá máttu borgað milljón á ári eða 83k á mánuði án þess að ákvæðið eigi við og í öðru lagi þá er ekki uppgreiðslugjald á umframgreiðslur ef vextir á nýjum lánum eru þeir sömu eða hærri en þegar þú tókst lánið eða festir vextina, þú greiðir bara uppgreiðslugjald ef vextir hafa lækkað frá því að þú tókst lánið eða festir vextina þannig að uppgreiðslugjald er eitthvað sem ég þarf ekki að hugsa um. Og svo í þriðja lagi þá breytist lánið eftir 36 mánuði í lán með breytilega vexti og þeir eru án uppgreiðslugjalds.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 04. Ágú 2021 00:09
af DabbiGj
Ég er sjálfur að byrja á húsi en ég er að byggja í Vík í Mýrdal og þar eru lóðir nánast gefins en það er endalaust vesen sem fylgir þessu, mikil rannsóknarvinna og útsjónarsemi.

Á sama tíma er hægt að fá ótrúlega einfaldar lausnir í magasínhúsum ( forsniðnum einingahúsum) sem að henta mörgum sem vilja koma þaki yfir sig.

fyrst að umræðan er komin útí fjármögnun á húsnæði að þá þurfa menn að vita að brúarlán þegar að hús eru á fyrstu byggingarstigum eru bara yfirdráttarlán og eru baneitruð.

Sjálfur er ég að byggja hús afþví að mig og eiginkonunni langar að sníða hús í kringum okkur og þarfir okkar og gerum ráð fyrir að vera ekki að fara neitt eftir að þetta hús er fullklárað.

https://www.instagram.com/vikdreamhouse/

Re: Byggja hús

Sent: Mið 04. Ágú 2021 00:32
af Hrotti
DabbiGj skrifaði:Ég er sjálfur að byrja á húsi en ég er að byggja í Vík í Mýrdal og þar eru lóðir nánast gefins en það er endalaust vesen sem fylgir þessu, mikil rannsóknarvinna og útsjónarsemi.

Þetta verður flott hús hjá þér. Hvernig klæðning er þetta og hvar færðu gluggana?

EDIT: Ég sé að þetta er kopar.
Annaðhvort af þessum ónýttu rýmum í kjallaranum steinliggur sem bíó! Ég byggði líka á 1,5 hæð og útbjó 90fm bíó/hobbý sal í svona gluggalausu rými. Ég hlakka mikið til að geta nördast í því verkefni þegar allt annað er búið.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 04. Ágú 2021 00:52
af jonfr1900

Þú skalt taka eins margar tryggingar og þú getur. Katla á eftir að gjósa og það mun koma af stað vandræðum í Vík í Mýrdal. Flóð og öskufall sem verður einhverjir metrar á þykkt.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 04. Ágú 2021 10:35
af KristinnK
DabbiGj skrifaði:Sjálfur er ég að byggja hús afþví að mig og eiginkonunni langar að sníða hús í kringum okkur og þarfir okkar og gerum ráð fyrir að vera ekki að fara neitt eftir að þetta hús er fullklárað.

https://www.instagram.com/vikdreamhouse/

Ég var skoðaði af forvitni teikningarnar sem þú settir inn þarna, og mér sýnist að það sé bara eitt svefnherbergi í húsinu fyrir utan stúdíóíbúðina. Reyndi enginn að fá ykkur til að koma fleiri herbergjum fyrir einhvers staðar?

Re: Byggja hús

Sent: Mið 11. Ágú 2021 18:32
af DabbiGj
Hrotti skrifaði:
DabbiGj skrifaði:Ég er sjálfur að byrja á húsi en ég er að byggja í Vík í Mýrdal og þar eru lóðir nánast gefins en það er endalaust vesen sem fylgir þessu, mikil rannsóknarvinna og útsjónarsemi.

Á sama tíma er hægt að fá ótrúlega einfaldar lausnir í magasínhúsum ( forsniðnum einingahúsum) sem að henta mörgum sem vilja koma þaki yfir sig.

fyrst að umræðan er komin útí fjármögnun á húsnæði að þá þurfa menn að vita að brúarlán þegar að hús eru á fyrstu byggingarstigum eru bara yfirdráttarlán og eru baneitruð.

Sjálfur er ég að byggja hús afþví að mig og eiginkonunni langar að sníða hús í kringum okkur og þarfir okkar og gerum ráð fyrir að vera ekki að fara neitt eftir að þetta hús er fullklárað.

https://www.instagram.com/vikdreamhouse/

Þetta verður flott hús hjá þér. Hvernig klæðning er þetta og hvar færðu gluggana?

EDIT: Ég sé að þetta er kopar.
Annaðhvort af þessum ónýttu rýmum í kjallaranum steinliggur sem bíó! Ég byggði líka á 1,5 hæð og útbjó 90fm bíó/hobbý sal í svona gluggalausu rými. Ég hlakka mikið til að geta nördast í því verkefni þegar allt annað er búið.

Gluggarnir koma frá Idex og eru Schuco

Ég myndi líklegast ekki fara í neitt þannig, ég verð með sjónvarp í svefnherberginu og svo verður annað í stofunni sem gengur uppúr gólfinu og verður falið þegar að það er ekki í notkun

Re: Byggja hús

Sent: Mið 11. Ágú 2021 18:34
af DabbiGj
KristinnK skrifaði:
DabbiGj skrifaði:Sjálfur er ég að byggja hús afþví að mig og eiginkonunni langar að sníða hús í kringum okkur og þarfir okkar og gerum ráð fyrir að vera ekki að fara neitt eftir að þetta hús er fullklárað.

https://www.instagram.com/vikdreamhouse/

Ég var skoðaði af forvitni teikningarnar sem þú settir inn þarna, og mér sýnist að það sé bara eitt svefnherbergi í húsinu fyrir utan stúdíóíbúðina. Reyndi enginn að fá ykkur til að koma fleiri herbergjum fyrir einhvers staðar?

Nei, það var enginn sem reyndi að sannfæra okkur um að gera það.

Húsið er hannað í kringum okkur og okkar lífstíl og er ekki hugsað sem einhver söluvara og að sama skapi er ekki markaður fyrir svona húsum á þessu svæði.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 11. Ágú 2021 18:36
af DabbiGj
jonfr1900 skrifaði:
DabbiGj skrifaði:Ég er sjálfur að byrja á húsi en ég er að byggja í Vík í Mýrdal og þar eru lóðir nánast gefins en það er endalaust vesen sem fylgir þessu, mikil rannsóknarvinna og útsjónarsemi.

Á sama tíma er hægt að fá ótrúlega einfaldar lausnir í magasínhúsum ( forsniðnum einingahúsum) sem að henta mörgum sem vilja koma þaki yfir sig.

fyrst að umræðan er komin útí fjármögnun á húsnæði að þá þurfa menn að vita að brúarlán þegar að hús eru á fyrstu byggingarstigum eru bara yfirdráttarlán og eru baneitruð.

Sjálfur er ég að byggja hús afþví að mig og eiginkonunni langar að sníða hús í kringum okkur og þarfir okkar og gerum ráð fyrir að vera ekki að fara neitt eftir að þetta hús er fullklárað.

https://www.instagram.com/vikdreamhouse/

Þú skalt taka eins margar tryggingar og þú getur. Katla á eftir að gjósa og það mun koma af stað vandræðum í Vík í Mýrdal. Flóð og öskufall sem verður einhverjir metrar á þykkt.

Sæll, þetta er eitthvað sem ég hef hugsað útí, húsið tekur mið af þessu í hönnun varðandi loftræstingu, það er ekki nein hætta á flóðum þar sem að húsið stendur vel frá flæðarmálinu.

Að sama skapi virðist Katla hafa breytt um hegðun og ég hef ekki miklar áhyggjur af hamfaraflóði á minni ævi.

Takk fyrir umhyggjuna og ráðleggingarnar samt sem áður

Re: Byggja hús

Sent: Mið 11. Ágú 2021 19:44
af g0tlife
Ég mundi frekar kaupa hús sem hentar og rífa út úr því eitt og eitt herbergi í einu og gera upp alveg eins og þú villt yfir árin.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 11. Ágú 2021 20:11
af jonfr1900
DabbiGj skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
DabbiGj skrifaði:Ég er sjálfur að byrja á húsi en ég er að byggja í Vík í Mýrdal og þar eru lóðir nánast gefins en það er endalaust vesen sem fylgir þessu, mikil rannsóknarvinna og útsjónarsemi.

Á sama tíma er hægt að fá ótrúlega einfaldar lausnir í magasínhúsum ( forsniðnum einingahúsum) sem að henta mörgum sem vilja koma þaki yfir sig.

fyrst að umræðan er komin útí fjármögnun á húsnæði að þá þurfa menn að vita að brúarlán þegar að hús eru á fyrstu byggingarstigum eru bara yfirdráttarlán og eru baneitruð.

Sjálfur er ég að byggja hús afþví að mig og eiginkonunni langar að sníða hús í kringum okkur og þarfir okkar og gerum ráð fyrir að vera ekki að fara neitt eftir að þetta hús er fullklárað.

https://www.instagram.com/vikdreamhouse/

Þú skalt taka eins margar tryggingar og þú getur. Katla á eftir að gjósa og það mun koma af stað vandræðum í Vík í Mýrdal. Flóð og öskufall sem verður einhverjir metrar á þykkt.

Sæll, þetta er eitthvað sem ég hef hugsað útí, húsið tekur mið af þessu í hönnun varðandi loftræstingu, það er ekki nein hætta á flóðum þar sem að húsið stendur vel frá flæðarmálinu.

Að sama skapi virðist Katla hafa breytt um hegðun og ég hef ekki miklar áhyggjur af hamfaraflóði á minni ævi.

Takk fyrir umhyggjuna og ráðleggingarnar samt sem áður

Eldgosið 1918 í Kötlu. Þær örfáu myndir sem til eru. Það eru tvær manneskjur efst upp á ísjakanum til hægri.

nkatla2.jpg
nkatla2.jpg (28.9 KiB) Skoðað 3149 sinnum

Re: Byggja hús

Sent: Sun 15. Ágú 2021 14:22
af DabbiGj
g0tlife skrifaði:Ég mundi frekar kaupa hús sem hentar og rífa út úr því eitt og eitt herbergi í einu og gera upp alveg eins og þú villt yfir árin.

Þetta er mun dýrari lausn, tekur lengri tíma og ég fæ aldrei það sem mig langar í.

Ég ætla ekki að eyða mörgum árum í að gera upp hús sem að yrði alltaf hálfkák miðað við það sem að mig langar að gera.

Þetta ferli er búið að taka yfir ár og það er margt sem hefur verið pælt skoðað og athugað.

Ef þú skoðar teikningar sérðu að þetta er að mörgu leyti mjög óhefðbundið hús með yfirhangandi pörtum, mikilli lofthæð, eldstæðum sem ganga á milli hæða o.s.f.

En gangi þér vel með að gera upp húsið þitt.

Re: Byggja hús

Sent: Sun 15. Ágú 2021 14:39

Takk fyrir umhyggjuna, ég þekki söguna frekar vel og hef unnið á þessu svæði í næstum því tvo áratugi nú seinast fyrir viku.

Ef það kemur flóðbylgja sem ógnar húsinu mínu að þá mun hún lenda á Vestmannaeyjum, Eyrabaka, Stokkseyri, Þorlákshöfn og fleirri bæjarfélögum.

Vonum að það gerist ekki.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 18. Ágú 2021 07:19
af g0tlife
DabbiGj skrifaði:
g0tlife skrifaði:Ég mundi frekar kaupa hús sem hentar og rífa út úr því eitt og eitt herbergi í einu og gera upp alveg eins og þú villt yfir árin.

Þetta er mun dýrari lausn, tekur lengri tíma og ég fæ aldrei það sem mig langar í.

Ég ætla ekki að eyða mörgum árum í að gera upp hús sem að yrði alltaf hálfkák miðað við það sem að mig langar að gera.

Þetta ferli er búið að taka yfir ár og það er margt sem hefur verið pælt skoðað og athugað.

Ef þú skoðar teikningar sérðu að þetta er að mörgu leyti mjög óhefðbundið hús með yfirhangandi pörtum, mikilli lofthæð, eldstæðum sem ganga á milli hæða o.s.f.

En gangi þér vel með að gera upp húsið þitt.

Okey númer eitt þá var ég ekki að svara þér heldur OP, ætla ekkert að skoða einhverjar teikningar hjá þér. Ég sagði að þú kaupir hús sem hentar í þetta. Eins og í mínu tilviki þá náði ég að kaupa stærra hús og það er léttilega hægt að laga það í pörtum yfir árin eða strax ef þú átt peninginn.

Re: Byggja hús

Sent: Mið 01. Sep 2021 09:59
af utilman
Saell allir saman og takk fyrir öll svarid ykkur. Thad eru nokkrar godu punktur sem vorud ad koma fram og nuna gert ég svona circa yminda mér hvernig thad er ad byggja á íslandi.

Re: Byggja hús

Sent: Þri 26. Mar 2024 10:35
af Emilvg
Ég er að endurnýja húsið og hef verið að skoða glugga frá https://skanva.is/ - er einhver sem hefur reynslu af gluggum þeirra?

Re: Byggja hús

Sent: Þri 26. Mar 2024 10:41
af benony13
Emilvg skrifaði:Ég er að endurnýja húsið og hef verið að skoða glugga frá https://skanva.is/ - er einhver sem hefur reynslu af gluggum þeirra?

Hvernig glugga ertu að spá í?