Síða 1 af 2

Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 14:47
af rapport
Hvað segiði?

Á maður að vera fara í fjölskylduferð? Dauðlangar til Serbíu þar sem við yrðum nokkuð exclusive með vinum og á bíl, en á hóteli.

Spurningin í þrem liðum, 1 = hverjir ættu að ferðast, 2 = hvert ætti að ferðast og 3 = hvað má og má ekki í ferðalaginu .

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 14:51
af J1nX
mér finnst það allt í lagi ef landið er "grænt" , þeas allt í control og þú sért fullbólusettur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 14:55
af rapport
J1nX skrifaði:mér finnst það allt í lagi ef landið er "grænt" , þeas allt í control og þú sért fullbólusettur

Ahh... lagaði smá, það átti að vera hægt að velja mörg svör.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 15:02
af Mossi__
Ég tel það ekki skynsamlegt.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 17:23
af GuðjónR
Sammála síðasta, ekki góð hugmynd að ferðast í miðjum heimsfaraldri.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 18:51
af BudIcer
Um leið og allt er orðið normal aftur þá er ég að fara til Japan, en þangað til það gerist mun ég ekki fara út fyrir bæjarmörk.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 18:57
af urban
BudIcer skrifaði:Um leið og allt er orðið normal aftur þá er ég að fara til Japan, en þangað til það gerist mun ég ekki fara út fyrir bæjarmörk.

"orðið normal aftur"

Ég held að við þurfum alveg að undirbúa okkur undir það að hlutir verði ekki aftur einsog við þekkjum þá sem normal.

Normið hugsa ég að sé búið að breytast.

Ég sjálfur myndi ekki nenna að standa í því að ferðast núna, aðalega vegna þess að þegar að ég ferðast, þá er ég í fríi, þætti bara svolítið frí að fara eitthvað núna, endalaust vesen.

Myndi samt alveg gera það ef að ég sæji einhverja rosa ástæðu fyrir því, nenni því bara engan vegin.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mán 19. Júl 2021 18:59
af Moldvarpan
Þetta er bara spurning um hversu mikla löngun þú hefur að ferðast.

Þú þarft að fylgja reglum í hverju landi fyrir sig.
Þú munt þurfa að leggja á þig að fara í pcr prófanir og þess háttar.
Almennt aukinn kostnaður við að ferðast í dag.

Ég veit um einn sem fór með Norrænu og tók sér road trip í Evrópu, hann gat ferðast í sumar án þess að smitast.
Ég þekki eina sem hefur farið með fjölskylduna sína tvisvar til Tenerife án þess að smitast.

En margt búið að breytast í Covid, gríðar mörg fyrirtæki farin á hausin.
Þannig ef þú átt eh uppáhalds veitingastaði og fyrirtæki sem þú ætlaðir að koma við í, þá myndi ég ráðleggja að skoða það áður en farið er af stað.

Ég hef ekki þessa flökku þrá í mér, svo þetta böggar mig ekkert.

Þetta er bara undir þér komið.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Þri 20. Júl 2021 09:35
af Dropi
Ég er að skjótast til Króatíu í Ágúst til Sept, verð á eyju þar í 10 daga að gera ekkert annað en að sleikja sól og borða kolkrabba, skrepp svo upp nálægt landamærum Serbíu í viku að drekka gott vín í makindum. Fjölskylduástæða að hluta til fyrir þessari ferð og ég ætla sko alls ekki að vera í kringum fólk af óþörfu - það er á hreinu og hef enga þörf fyrir djamm.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Þri 20. Júl 2021 14:07
af nidur
Endilega að gera það sem maður vill í lífinu, ef maður er ekki smeikur við að smitast.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Þri 20. Júl 2021 17:26
af Henjo
nidur skrifaði:Endilega að gera það sem maður vill í lífinu, ef maður er ekki smeikur við að smitast.

Endilega að gera það sem maður vill í lífnu, ef maður er ekki smeikur við að smitast. Eða smita aðra.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Þri 20. Júl 2021 21:23
af rapport
Henjo skrifaði:
nidur skrifaði:Endilega að gera það sem maður vill í lífinu, ef maður er ekki smeikur við að smitast.

Endilega að gera það sem maður vill í lífnu, ef maður er ekki smeikur við að smitast. Eða smita aðra.

Nkl. þekki fólk sem var að koma frá Riga sem fer sjálft í sjálfskipaða sóttkví, ef við förum þá mundum við gera það líka, ekki mæta beint til vinnu.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mið 21. Júl 2021 10:37
af Dropi
rapport skrifaði:
Henjo skrifaði:
nidur skrifaði:Endilega að gera það sem maður vill í lífinu, ef maður er ekki smeikur við að smitast.

Endilega að gera það sem maður vill í lífnu, ef maður er ekki smeikur við að smitast. Eða smita aðra.

Nkl. þekki fólk sem var að koma frá Riga sem fer sjálft í sjálfskipaða sóttkví, ef við förum þá mundum við gera það líka, ekki mæta beint til vinnu.

Sammála þessu. Ég kem aftur 12. Sept til landsins og fer beint í sjálfskipaða sóttkví þangað til ég byrja aftur að vinna 1. Okt. í nýrri vinnu. Stefni á sýnatöku stuttu eftir heimkomu og þegar það er komið á hreint tek ég því rólega en algjör óþarfi að loka mig alveg inni ef sýnatakan kemur rétt út. Fer út að hjóla, sund, versla og þannig eftir sýnatöku en ekki fyrr. Konan getur unnið að heiman á meðan.

Ef svo óheppilega fer að maður fær covid þá myndi það alveg eyðileggja mig að smita vini og vandamenn.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Mið 21. Júl 2021 23:30
af Hrotti
Fer út á morgun og verð í viku á ströndinni, fer svo í skimun þegar ég kem heim. Ég er fullbólusettur og algerlega kominn með nóg af landi og þjóð í bili og fínt að hlaða batteríin aðeins.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Fös 23. Júl 2021 19:51
af rapport
Jæja, þá var þetta eitthvað hert. Er þetta að setja strik í plönin hjá einhverjum?

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Fös 23. Júl 2021 20:52
af Klemmi
Mér finnast þetta mjöööög vægar takmarkanir, jújú það verða ekki útihátíðir eða djamm frameftir nóttu, en að öðru leyti er þetta bara nokkuð hefðbundið líf.

Forvitinn hvort það sé eitthvað fleira sem var ekki fylgt af tillögum Þórólfs, var að búast við ca 50 manna takmörkunum. Kæmi mér ekki á óvart ef þetta var bara fyrsta skref, býst passlega við hertum aðgerðum eftir viku eða tvær, ef smittölur hrynja ekki fljótlega.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Fös 23. Júl 2021 22:02
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Mér finnast þetta mjöööög vægar takmarkanir, jújú það verða ekki útihátíðir eða djamm frameftir nóttu, en að öðru leyti er þetta bara nokkuð hefðbundið líf.

Forvitinn hvort það sé eitthvað fleira sem var ekki fylgt af tillögum Þórólfs, var að búast við ca 50 manna takmörkunum. Kæmi mér ekki á óvart ef þetta var bara fyrsta skref, býst passlega við hertum aðgerðum eftir viku eða tvær, ef smittölur hrynja ekki fljótlega.

Ef það væru ekki kosningar eftir tvo mánuði þá hefði verið tekið almenninlega á því.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Fös 23. Júl 2021 22:35
af urban
rapport skrifaði:Jæja, þá var þetta eitthvað hert. Er þetta að setja strik í plönin hjá einhverjum?

Tjahh, ég er eyjamaður, getur rétt Ímyndað þér hverju ég er búin að vera bíða eftir síðan 2019....

En strax á miðvikudaginn þá áttaði maður sig á því að það væri engin þjóðhátíð að fara að verða.

Veit samt ekki hvort fer meira í taugarnar á mér, að það skuli ekki verða þjóðhátíð eða að það helvítis andskotans gríman skuli verða tekin upp aftur.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 09:13
af rapport
Það er smá skrítið attitude sem maður hefur orðið var við núna, að fólk sem á bókaðar ferðir út segir hreinlega "ég er að fara á stað þar sem er grænn".

Ég vona bara innilega að allir ferðalangar muni passa sig og asnast til að einangra sig í sóttkví þegar þeir koma heim en ekki bruna í vinnuna að deila ferðasögum.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 09:41
af GuðjónR
rapport skrifaði:Það er smá skrítið attitude sem maður hefur orðið var við núna, að fólk sem á bókaðar ferðir út segir hreinlega "ég er að fara á stað þar sem er grænn".

Narsasistic eiginhagsmuna hugsunarháttur, þegar landið opnaðist þá sá sögðu margir túristar að þeir heðfu komið hingað að því að það væri svo öruggt, (öruggt fyrir þá) af því að landið væri grænt ... svo fara þeir heim og skilja landið eftir eldrautt.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 10:01
af blitz
GuðjónR skrifaði:

Voru þetta ekki íslendingar sem gerðu landið eldrautt eftir ferðalög erlendis?

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 10:11
af GuðjónR
blitz skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Það er smá skrítið attitude sem maður hefur orðið var við núna, að fólk sem á bókaðar ferðir út segir hreinlega "ég er að fara á stað þar sem er grænn".

Narsasistic eiginhagsmuna hugsunarháttur, þegar landið opnaðist þá sá sögðu margir túristar að þeir heðfu komið hingað að því að það væri svo öruggt, (öruggt fyrir þá) af því að landið væri grænt ... svo fara þeir heim og skilja landið eftir eldrautt.

Voru þetta ekki íslendingar sem gerðu landið eldrautt eftir ferðalög erlendis?

Þetta á við um alla, þeir sem ferðast í heimsfaraldri, af því að þeir eru svo eyrðarlausir og þreyttir á þessu ástandi buhu buhu buhu, og taka þá áhættu að koma af stað nýjum bylgjum og smita saklaust fólk eru sjálfhverfir narsasistar. Sama hvaðan þeir koma. Þetta er ekki búið, hverstu erfitt er að skilja það?

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 10:40
af Hjaltiatla
Eins og ég man hlutina þegar smitbylgjur tóku sig upp hérnlendis þá var fólk aðallega smitast á skemmtanalífinu og íþróttaviðburðum.
Spurning hvernig þetta er núna en mig grunar "Djammið" í ljósi aðgerða sem voru settar núna.

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 14:04
af rapport
Ég stefni enn á að ferðast. Markmiðið verður að fara eftir öllum lögum og reglum og vel það. Sýnatökur á leið út og sjálfskipuð sóttkví við heimkomu o.þ.h.

Ég er að átta mig á að sýnatökukrafan hefur þau áhrif að við fjölskyldan höfum planað að fara í óformlega sóttkví dagana fyrir sýnatökuna því við vijum alls ekki greinast jákvæð og komast ekki í ferðina.

Planið er svo að láta fara lítið fyrir okkur fyrstu dagana þegar við komum út og ekki vera innanum fólk, rúntum um sveitina og skipuleggjum hevrnig við ætlum aðnýta frídagana og skoðum okkur um. Fylgjumst með heilsunni o.þ.h.

Á meðan við erum úti þá munum við gæta að persónulegum sóttvörnum í hvívetna, handþvottur, spritt, grímur o.þ.h. en á svæðinu sem við verðum á þá er fjöldi smita að fara fækkandi - http://izjzv.org.rs/?lng=&cir=&link=3-15-2550

Þegar við komum heim er farið beint heim og í sóttkví í 5 daga, unnið að heiman og hangið á Netflix, Disney+ og Viki + Heimkaup/Krónan heimsent.

Er eitthvað meira sem við gætum gert (fyrir utanað sleppa ferðinni?), er eitthvað sem ég er ekki að fatta sem við ættum að hafa í huga?

Re: Ferðalög - ferðasögur

Sent: Sun 25. Júl 2021 14:23
af Graven
rapport skrifaði:...

Er eitthvað meira sem við gætum gert (fyrir utanað sleppa ferðinni?), er eitthvað sem ég er ekki að fatta sem við ættum að hafa í huga?

Ekki láta óttann ná tökum á þér?

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/07/25/97_prosent_enntha_med_vaeg_eda_engin_einkenni/

Finnst engum skrýtið hvað er verið að gera?
Til hvers að opna landamærin uppá gátt þegar þetta var augljóslega niðurstaðan?
Til hvers að byrja á þessum aðgerðum þegar þetta er bara mjög væg flensa?