Hjaltiatla skrifaði:Ekkert að því að gera það, t.d 1 miljón á ári án þess að greiða einhverja tölu í uppgreiðslugjald (allavegana hjá mér).
Það getur líka hentað að eiga möguleikann á að komast í lausafjármagn (án þess að þurfa að taka bankalán) sem er ekki bundið í fasteign ef þú sérð mögulega einhver tækifæri á markaðnum (ekkert endilega hlutabréfamarkaðnum) þess vegna er ég að skoða það að greiða ekki alla upphæð sem maður vill spara inná fasteignarlán.
Uppgreiðslugjaldið er að hámarki 1% á nýjum lánum, og það er líklega minni kostnaður heldur en umsýslugjöld og þess háttar á mörgum öðrum fjárfestingakostum. Við erum að tala um 10þús kall á hverja milljón.
Hins vegar er það rétt hjá þér að þá ertu með peninginn bundinn í fasteigninni / láninu, en á móti kemur að þetta er fjárfestingarleið sem er auðvelt að fá lán fyrir, og einnig nokkuð örugg ávöxtun.
Fyrir þá sem hafa möguleikann á því, eru tilbúnir til að taka smá áhættu og nenna að standa í, þá getur það verið góð fjárfesting að skuldsetja sig meira til að fá dýrari fasteign með útleigumöguleikum. M.v. hvað fasteignaverð hefur hækkað síðustu ár, þá getur útleigueiningin jafn vel staðið undir kostnaði við aukna skuldsetningu, og þessi aukna skuldsetning ávaxtað sig um ~10% á ári (s.s. með hækkun fasteignaverðs).
Þetta er leiðin sem við eiginkonan fórum, stækkuðum við okkur húsnæði með aukinni skuldsetningu upp á 40m, útbjuggum útleigueiningu sem við leigjum út á 150þús á mánuði, sem skilar um 125þús eftir skatta og aukinn kostnað, s.s. hita og rafmagn, sem er nálægt því að standa undir afborgunum af þessum auka 40m. Á tveimur árum er fasteignin búin að hækka um ~15m umfram það sem fyrri fasteign hefur hækkað.
Auðvitað er nýrri eignin dýrari í rekstri, þ.e. fasteignagjöld, tryggingar, viðhald o.s.frv, en þegar öllu er á botninn hvolft, þá er hækkun fasteignaverðs langt umfram þann mun. Það eru auðvitað möguleikar þarna úti með hærri ávöxtun, en það er hins vegar erfitt og hættulegt að fá lánsfé fyrir slíku braski, held að það sé erfitt að finna öruggari fjárfestingu heldur en í húsnæði.