Síða 4 af 4

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Fös 27. Maí 2022 12:46
af dori
Án þess að hafa horft á þessi myndbönd þá myndi ég fara rosalega varlega í að taka ráðleggingar frá öðrum markaðssvæðum nema með miklum fyrirvörum.

Það er klárlega vit í því að hugsa um "opportunity cost" sem hlýst af því að nota peningana sína í að greiða upp skuldir. Ef þú ætlar að fara að meta það þá er líka skynsamlegt að reyna að meta hversu mikils virði öryggið af því að skulda ekki mikið í eigin húsnæði getur verið.

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Fös 27. Maí 2022 12:52
af MrIce
tbh, borga niður húsnæðislánið er besta fjárfestingin á íslandi. Fuckin glæpsamlegur andskoti hvernig þessi lán margfaldast hérna :mad :mad :mad

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Fös 27. Maí 2022 12:56
af Hjaltiatla
dori skrifaði:Án þess að hafa horft á þessi myndbönd þá myndi ég fara rosalega varlega í að taka ráðleggingar frá öðrum markaðssvæðum nema með miklum fyrirvörum.

Það er klárlega vit í því að hugsa um "opportunity cost" sem hlýst af því að nota peningana sína í að greiða upp skuldir. Ef þú ætlar að fara að meta það þá er líka skynsamlegt að reyna að meta hversu mikils virði öryggið af því að skulda ekki mikið í eigin húsnæði getur verið.

Þetta var aðallega prósentureikningur sem var settur fram í seinna video-inu (Auðvitað ekkert sem coveraði Verðtryggð lán eða Óverðtryggð lán) og fyrra video-ið kom einmitt inná öryggis þáttinn og að lán væru verkfæri djöfulsins og best væri að greiða niður fasteignalán hratt og örugglega. Fannst ágætt að henda þessu inní þennan þráð þar sem ég les ansi oft að "Besta fjárfestingin er að greiða niður fasteignalánið". Ætla ekki að fara mála mína skoðun hérna strax og ef þið hafið skoðun og getið jafnvel back-að þá skoðun upp með heimildum þá megiði endilega láta það flakka hérna inní þennan þráð :)

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Fös 03. Jún 2022 17:54
af Hjaltiatla
Byrjaði hægt í að leggja inná VUAA sjóðinn og lagði inn 600$ (reikna með að gera það sama í næsta mánuði) og meta stöðuna hversu háa upphæð ég vill leggja inn mánaðarlega.
Lagði inn Buy order í gærkvöldi og hún á að fara í gegn 6.júní.
Legg einnig inn upphæð í hverjum mánuði inná íbúðarlán sem ég skulda.

Þar sem ég var frekar óöruggur að versla í fyrsta skipti í þessum VUAA sjóði í gegnum Interactive brokers (fékk aðstoð) þá leyfi ég skjáiskoti að fylgja hvernig ég stillti "Buy order" í þennan sjóð (hugsanlega er einhver annar að klóra sér í hausnum yfir þessu).
Mynd

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 07. Jún 2023 20:42
af SolidFeather
steinarorri skrifaði:
g0tlife skrifaði:Ég mundi nota Novis - https://tryggir.is/novis/

Þá ertu tryggður fyrir líf, sjúk og örorku með að greiða fast verð per mánuði sem þú ákveður og sparar peninginn. Eftir að hafa borgað 1.000 eða 1.500 evrur þá máttu taka allt út umfram því. Tryggt í þýskalandi og þegar þú ferð á ellilíf þá færðu allt greitt út. Tvær flugur í einu höggi og sleppur við íslensku okurbúlluna með líf og sjúkd.tryggingar.

Er ekki margbuið að vara gegn Novis? Fólk í stökustu vandræðum að fá greitt út?
Mæli með að skoða umræðu á fjármálatips á Facebook.

https://www.sedlabanki.is/utgefid-efni/ ... l-Islands/

https://www.visir.is/g/20232424240d/slo ... arfs-leyfi
https://www.visir.is/g/20232424932d/al- ... agi-lengi-

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 07. Jún 2023 22:07
af falcon1
Alltaf verið að svindla á neytendum.

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 14. Jún 2023 14:41
af Hjaltiatla
Núna er sirka ár liðið síðan ég verslaði fyrst í Vanguard S&P 500 (VUAA) ETF hlutabréfasjóðnum.

Get ekki kvartað (er að kaupa á 2 mánaða fresti).
https://finance.yahoo.com/quote/VUAA.L/performance?p=VUAA.L

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 14. Jún 2023 18:03
af bigggan
Byrjaði að leggja inn líka á sjóðir í siðasta mánuði fyrst aðeins með lítið, en held ég ættlar að auka magnið fljótlega.

byrjaði reyndar á VUSA, en er líka búinn að skoða, VUAA, VWCE, CSPX, og sambærilegar evrópskir sjóðir tengdir bandaríkinn.

þegar maður fær Arð frá þessu, gildir frítekjumarkið á 300 000 á erlendar hlutabrefum?

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 14. Jún 2023 18:28
af Hjaltiatla
bigggan skrifaði:Byrjaði að leggja inn líka á sjóðir í siðasta mánuði fyrst aðeins með lítið, en held ég ættlar að auka magnið fljótlega.

byrjaði reyndar á VUSA, en er líka búinn að skoða, VUAA, VWCE, CSPX, og sambærilegar evrópskir sjóðir tengdir bandaríkinn.

þegar maður fær Arð frá þessu, gildir frítekjumarkið á 300 000 á erlendar hlutabrefum?

Til einföldunar er gengið út frá því að öll erlend hlutabréf á hlutabréfablaðinu RSK 3.19 séu skráð á skipulegum verðbréfamarkaði, og því er allur arður og söluhagnaður slíkra bréfa tekinn með í frítekjumark fjármagnstekna. Arðinn má sjá í reit 324 í kafla 3.6 á framtalinu, en söluhagnaðurinn kemur með söluhagnaði íslenskra bréfa á markaði og birtist í sérstökum upplýsingareit neðst á fjármagnstekjusíðu framtalsins. Reiturinn birtist aðeins ef um er að ræða slíkan söluhagnað á RSK 3.19 blaðinu.

Heimild:https://leidbeiningar.rsk.is/frodi/?cat=1762&id=24915&k=3

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 21. Feb 2024 10:59
af Opes
Hjaltiatla skrifaði:Núna er sirka ár liðið síðan ég verslaði fyrst í Vanguard S&P 500 (VUAA) ETF hlutabréfasjóðnum.

Get ekki kvartað (er að kaupa á 2 mánaða fresti).
https://finance.yahoo.com/quote/VUAA.L/performance?p=VUAA.L

Ég stofnaði aðgang á Interactive Brokers fyrir ca. 2 árum og henti inn 10 EUR til að prófa.
Langar að fara DCA í VUAA, en átta mig ekki alveg á nokkrum atriðum og væri mjög þakklátur ef þú getur veitt einhverjar hjálplegar upplýsingar varðandi þau:

- Hvernig kaupi ég? Ég sá myndina sem þú settir inn, hún er væntanlega af mobile viðmótinu en þetta er eitthvað öðruvísi í desktop.
- Þegar ég leita að "VUAA" kemur upp VUAA BVME.ETF, LSEETF og MEXI. Eru þetta mismunandi kauphallir? Hvað er best?
- Er mega flókið að færa þetta inn í skattaframtalið?

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 21. Feb 2024 12:35
af bigggan
Opes skrifaði:

Fyrst að byrja með þá fyllir þú þetta inn í framtalið hversu mikið og hver sjóðurinn er. Td VUAA 200 verur
Þarft ekki að hafs áhuæyggjur fyrr en þú tekur þetta út þá gildir skatt af hagnaðinn

Þessi mismunandi nöfnum eru eins og ég skil þetta fyrir mismunandi löndum, td þú getur ekki keypt í Bretlandi (?) eða Bandaríkin nema opnað fyrir það og ert með þeirra gjaldmiðill inná notandann þinum

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Fim 22. Feb 2024 07:41
af Hjaltiatla
Opes skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Núna er sirka ár liðið síðan ég verslaði fyrst í Vanguard S&P 500 (VUAA) ETF hlutabréfasjóðnum.

- Hvernig kaupi ég? Ég sá myndina sem þú settir inn, hún er væntanlega af mobile viðmótinu en þetta er eitthvað öðruvísi í desktop.
- Þegar ég leita að "VUAA" kemur upp VUAA BVME.ETF, LSEETF og MEXI. Eru þetta mismunandi kauphallir? Hvað er best?
- Er mega flókið að færa þetta inn í skattaframtalið?

- Myndin sem ég setti inn er úr Interactive brokers Web browser viðmóti á fartölvueftir að ég valdi "Buy" undir VUAA VANG S&P500 USDA LSEETF
skjámyndin er af því sem ég vel þegar ég legg inn "Order ticket"

- Ég valdi LSETF en þetta eru mismunandi kauphallir í mismuandi gjaldmiðlum (ég kaupi í sjóð með USD).

- Skv því sem ég hef kynnt mér er best að sjóðurinn sé UCITS sjóður og með heimilisfesti á Írlandi . Skattalega kemur það hagstæðast að fjárfesta í slíkum sjóðum.Ef þú myndir fjárfesta í hlutabréfasjóði í Bandaríkjunum þá lendir þú í tvísköttun. Ég skrái öll kaup á hlutabréfum í Excel upphæð og á hvaða gengi gagnvart krónu ég keypti hlut en Interactive brokers bíður þér að taka út Annual Tax Report skýrslu ef það hentar. Ég hef hingað til eingöngu verið að skrá inn inneign í hlutabréfasjóð en ekki tekið út svo ég get lítið tjáð mig um það.

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Lau 11. Maí 2024 15:26
af Hjaltiatla
Update: Ég var að innleysa það sem ég hef lagt inní VUAA sjóðinn seinustu 2 ár. Niðurstaðan er sirka 22% ávöxtun af því sem ég lagði inn. Seldi á genginu 97.91.
Það tók sirka háfltíma að selja hlutabréf á því verði sem ég ákvað að selja á.Geng sáttur frá borði og er reynslunni ríkari og mun klárlega nota Interactive brokers aftur í framtíðinni.
Núna er kostnaður á fasteignarláni það hár að mér fannst kominn tími að tilfæra þennan aur inná fasteignarlán þegar ég endurfjármagna.

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Sun 12. Maí 2024 00:33
af g0tlife
SolidFeather skrifaði:
steinarorri skrifaði:
g0tlife skrifaði:Ég mundi nota Novis - https://tryggir.is/novis/

Þá ertu tryggður fyrir líf, sjúk og örorku með að greiða fast verð per mánuði sem þú ákveður og sparar peninginn. Eftir að hafa borgað 1.000 eða 1.500 evrur þá máttu taka allt út umfram því. Tryggt í þýskalandi og þegar þú ferð á ellilíf þá færðu allt greitt út. Tvær flugur í einu höggi og sleppur við íslensku okurbúlluna með líf og sjúkd.tryggingar.

Er ekki margbuið að vara gegn Novis? Fólk í stökustu vandræðum að fá greitt út?
Mæli með að skoða umræðu á fjármálatips á Facebook.

https://www.sedlabanki.is/utgefid-efni/ ... l-Islands/

https://www.visir.is/g/20232424240d/slo ... arfs-leyfi
https://www.visir.is/g/20232424932d/al- ... agi-lengi-

Gleymdi alltaf að svara þessu. Ég ákvað að segja upp samningi mínum við Novis og fékk allt greitt sem ég hafði safnað upp.

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Sun 12. Maí 2024 08:50
af Hjaltiatla
Fannst þetta ágætis grein frá Landsbankanum til að átta sig á því hvort það henti manni að festa vexti á óverðtryggðu íbúðarláni eða fara breytilegu vaxta leiðina. Ágætis lesning fyrir þá sem eru að skoða að endurfjármagna óverðtryggt fasteignarlán á næstunni og vilja greina stöðuna sjálfir.

https://www.landsbankinn.is/umraedan/fraedsla/getur-borgad-sig-ad-festa-vexti-thegar-their-eru-svona-hair?mibextid=WC7FNe

Landsbankinn spáir 7 % hækkun á fasteignarverði á þessu ári og 8-9% hækkun árið á eftir:
https://www.landsbankinn.is/umraedan/efnahagsmal/spaum-haekkandi-ibudaverdi

Ég ákvað að halda öllum möguleikum opnum ef ég myndi vilja reyna að verða skuldlaus með að minnka við mig og fara í minni íbúð . Miðað við að fasteignarverð eigi líklega eftir að hækka á næstu árum þá tekur maður það á kassann að borga þessa rugl vexti af fasteignarláninu þegar maður endurfjármagnar í september.

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Sun 12. Maí 2024 15:20
af netkaffi
Danni V8 skrifaði:Það sem ég sé er að allir sem eru að lenda í vandræðum með Novis eru að leggja peninga í langtímasparnað en ætla svo að taka hann út eftir 2-3 ár eða jafnvel styttra.
Það er user problem, eða eins og við sögðum á IRC í gamladaga: RTFM. Fólk kynnir sér ekki nógu vel hvað það er að skrá sig í, kannski undir áhrifum sölumanna. Reyndar hlýtur að vera eitthvað meira í þessu ef Seðlabankinn var að taka starfsleyfið af þeim?

Re: Reglulegur sparnaður - pælingar

Sent: Mið 15. Maí 2024 11:04
af Mossi__
Gott knús er gulls ígildi!

Þurfum engan hagnað, bara knús!