Síða 2 af 2

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Lau 21. Ágú 2021 21:06
af beggi702
Hef alltaf átt frekar erfitt með að fókusa á lesturinn þar sem ég fer alltaf að hugsa um eitthvað allt annað á meðan ég er að lesa.
En eftir að ég fór að nota Audible þá næ ég að einbeita mér mun betur.
er ný búinn að klára þessar.

A Promised Land - Barack Obama
Think Again - Adam Grant
The Subtle Art of Not Giving a F*ck - Mark Manson
Born a Crime - Trevor Noah

og þessar eru að bíða eftir athyglinni minni.

The midnight Library - Matt Haig
Project Hail Mary - Andy Weir
Atomic Habits - James Clear

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Sun 22. Ágú 2021 15:39
af Brimklo
Jón Ragnar skrifaði:
Brimklo skrifaði:Er að fara í gegnum Horus Heresy bækurnar á audible, fínar bækur en erfitt að halda athygli við hlustun haha.



Warhammer 40k er með svo geggjað lore og HH er alveg klikkað stórt dæmi!


Já er alveg að missa mig í þessu lore-i!

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Sun 29. Ágú 2021 01:20
af Semboy
Ok búinn að lesa þessar bækur. Ætla að fara lesa Steven hawking´s theory of everything og a brief history of time.

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Mán 06. Sep 2021 13:14
af Semboy
Think fast and slow - Daniel Kahneman
the prophet - Kahlil Gibran

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Mið 15. Sep 2021 00:23
af Semboy
Ein á forsetavakt - Steinunn Sigurðardóttir
The art of ínvisibility - Kevin mitnick

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Mið 15. Sep 2021 12:30
af kizi86
netkaffi skrifaði:byrja á Speaker for the Dead, framhald af Ender's Game sem var gerð að hollywood mynd með Harrison Ford hérna um árið. las bókina áður en myndin kom út og var mjög sáttur, meiri smooth lestur en flest annað sem ég hef lesið, en samt heillandi og spennandi. langar líka að lesa bók nr 2 (Count Zero) frá William Gibson, en fannst ég einhvernvegin fá nóg af ritstílnum í Neuromancer í þeirri bók.

Orson scott card er geggjaður penni.. mæli sérstaklega með bókinni Ender's shadow , fjallar svona næstum alveg það sama og Ender's game, en séð frá sjónarhorni Bean, nær að fletta sögunni saman mjög vel.

Svo Alvin Maker series eru líka góður lestur eftir hann

En talandi um þessa mynd....hef sjaldan verið eins reiður eftir að sjá mynd.. söguþráður myndarinnar er núll, eyðilögðu söguna.. ef lest eftirmála Ender's shadow, þar kemur fram OSC's helstu óttar við hvað gæti skeð ef það yrði gert mynd úr sögunni... Og allir hans verstu óttar rættust.. skelfileg ræma sem ætti að afmá af yfirborði jarðar

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Mið 15. Sep 2021 13:44
af netkaffi
Ja, þessi mynd skildi svo sem ekki mikið eftir sig.

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Fim 16. Sep 2021 10:59
af kizi86
Er annars núna að rúlla í gegnum Dragonriders of Pern seríuna eftir Anne McCaffrey, skemmtileg sería. Nýbúinn að rúlla í gegnum allar bækurnar eftir Dennis E. Taylor, byrjaði á standalone bókunum Outland, sem er áhugaverður vinkill á multiverse theory, og Singularity Trap, sem fjallar um emergence of artificial intelligence, og endaði á Bobiverse seríunni, snilldar sería, um Bob... Sem byrjar sem hugbúnaðarséní, sem endar eftir óhapp, sem stjórnandi risastórs geimskips, og þarf að finna leið til að bjarga mannkyninu frá sjálfu sér.

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Lau 18. Sep 2021 11:44
af Hjaltiatla
beggi702 skrifaði:Hef alltaf átt frekar erfitt með að fókusa á lesturinn þar sem ég fer alltaf að hugsa um eitthvað allt annað á meðan ég er að lesa.
En eftir að ég fór að nota Audible þá næ ég að einbeita mér mun betur.


Calibre er líka með fínan "Read aloud" fídus sem les texta upphátt fyrir mann ef þú átt rafbækur. Þetta er Róbot rödd sem getur verið smá pirrandi en hjálpar mér stundum að fókusa því texti er einnig highlightaður þegar "Read Aloud" les textann upphátt fyrir mann.

Er að lesa UNIX and Linux System Administration Handbook

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Lau 18. Sep 2021 17:47
af Semboy
Hjaltiatla skrifaði:
beggi702 skrifaði:Er að lesa UNIX and Linux System Administration Handbook


hvað heita þeir? Ég sjálfur er að kikja á
https://www.linuxfromscratch.org/ allveg á fullu, eftir vinnu.

Re: hvað bækur eru menn að lesa?

Sent: Lau 18. Sep 2021 18:37
af Hjaltiatla
Semboy skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
beggi702 skrifaði:Er að lesa UNIX and Linux System Administration Handbook


hvað heita þeir? Ég sjálfur er að kikja á
https://www.linuxfromscratch.org/ allveg á fullu, eftir vinnu.

Þetta er bókin
https://www.amazon.com/UNIX-Linux-Syste ... 0134277554
Hef sjálfur ekki ennþá nennt/haft tíma að fara yfir Linux from scratch.