Síða 1 af 1

Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 12:59
af emil40
Sælir félagar.


Það er búið að komast að því hvað var að hrjá tölvuna mína. Þeir hjá Kísildal settu hana í allskonar próf og upphaflega var talið að minnisstýring í örgjörvanum væri farin svo þegar þeir prófuðu nýjann örgjörva en þetta hélt áfram þannig að það kom í ljós að móðurborðið hafði bilað og ég fæ nýtt út úr ábyrgð og þarf ekki að borga krónu fyrir viðgerðiná. Ég vil gefa þeim hjá Kísildal mikið hrós fyrir góða þjónustu. Ég sæki svo tölvuna þegar ég losna af spítalanum þar sem ég er núna.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 14:33
af brain
kemur ekki á óvart.

Top lið þarna á ferð.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 16:06
af Onyth
Þeir eru snillingar. Verslað við þá í mörg ár og alltaf fengið topp þjónustu.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 16:08
af GuðjónR
emil40 skrifaði:Ég sæki svo tölvuna þegar ég losna af spítalanum þar sem ég er núna.
Gaman að heyra jákvæðar sögur. En hvað ertu að gera á spítala?

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 17:02
af emil40
GuðjónR skrifaði:
emil40 skrifaði:Ég sæki svo tölvuna þegar ég losna af spítalanum þar sem ég er núna.
Gaman að heyra jákvæðar sögur. En hvað ertu að gera á spítala?



Ég er með flogaveiki og það er ekkert jafnvægi þarf göngugrind og hjólastól núna. Þetta kemur allt saman fór í segulómun á heila, hrygg og mænu í dag.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 17:46
af GuðjónR
emil40 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
emil40 skrifaði:Ég sæki svo tölvuna þegar ég losna af spítalanum þar sem ég er núna.
Gaman að heyra jákvæðar sögur. En hvað ertu að gera á spítala?



Ég er með flogaveiki og það er ekkert jafnvægi þarf göngugrind og hjólastól núna. Þetta kemur allt saman fór í segulómun á heila, hrygg og mænu í dag.


ahh... ekki gott að heyra, óska þér góðs bata og vonandi verðuru nógu hress til að sækja tölvuna þína fljótlega!

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 18:50
af kunglao
toppnáungar og fyrirmyndar þjónusta hjá þeim í Kísildal

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 19:15
af toaster
Ég versla alltaf þegar ég get við Kísildal einmitt útaf þessu.

Þjónustan hjá þeim er alltaf 100% til fyrirmyndar.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fös 20. Ágú 2021 19:34
af Hjaltim9
Toppgæjar þar á ferð.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fim 02. Sep 2021 14:32
af Gerbill
Langaði að bæta við hrósi og þá sérstaklega til ofur hressa afgreiðslumannsins.
Fékk þá til að setja saman kassa fyrir mig og félaginn var ofur jákvæður og gaf mér góðar ráðleggingar og var snöggur að koma pöntuninni af stað :happy

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fim 02. Sep 2021 17:38
af emil40
það kom í ljós að móðurborðið klikkaði og því var skipt út. Ég útskrifast svo á morgun af spítalanum.

Re: Þjónustan hjá Kísildal

Sent: Fim 02. Sep 2021 18:10
af rapport
Kíkti við í dag. Virtist brjálað að gera og mikil gleði :-)