Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Allt utan efnis

Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Sjálfstæðisflokkurinn
48
21%
Framsóknarflokkurinn
12
5%
Samfylkingin
23
10%
Vinstri Grænir
3
1%
Viðreisn
23
10%
Píratar
69
30%
Flokkur Fólksins
2
1%
Sósíalistaflokkur Íslands
10
4%
Miðflokkurinn
8
3%
Frjálslyndi Lýðræðisflokkurinn
2
1%
Skila auðu
18
8%
Mun ekki kjósa
15
6%
 
Samtals atkvæði: 233

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1447
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf Lexxinn » Sun 26. Sep 2021 13:09

urban skrifaði:
Lexxinn skrifaði:
urban skrifaði:Síðan náttúrulega höfðu þau heilbrigðisráðuneytið á erfiðasta tíma allra tíma fyrir það.

Alvöru rant með alvöru upplýsingum.

Já þetta er mér mikið hitamál

Já ég sagði þetta eiginlega vitlaust :)
Átti að fylgja vanhæfan heilbrigðisráðherra á erfiðasta tíma, ég reyndar hefði aldrei tekið þetta allt fram.
Semsagt á erfiðasta tíma, þá er ég ekki endilega að tala um Covid, heldur bara hreinlega hvað hún stóð sig illa í starfi.

Treystu mér, þetta er bara rjóminn á kökunni, það er til miklu meira innihald í hversu skertan skilning þessi kona hefur á heilbrigðismálum landsins.
Missti andlitið þegar ég sá hana koma með glósur og geta ekki einu sinni lesið eitthvað af viti upp úr þeim á þessum Heilbrigði 2025 fundi.
Síðast breytt af Lexxinn á Sun 26. Sep 2021 13:09, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Sun 26. Sep 2021 13:13

Einu virkilega góðu fréttirnar tengdar heilbrigðiskerfinu voru:

Loksins að klárast DRG verkefnið sem hófst held ég 2008 eða 2009 (að safna gögnum og byggja umkostnaðargreiningakerfið) - https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... andspitala

Hélt að einhver flokkanna mundi hreykja sér af þessu fyrir kosningar en þetta virðist ekki hafa verið pólitísk ákvörðun.
https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... u-aramotum

p.s. ÞETTA er svo rétta leiðin til að byggja upp heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, að allir fái greitt fyrir þau verk sem unnin eru en starfi ekki á föstum fjárlögum.

EDIT: @Lexxinn - Þessi fundur? - https://www.youtube.com/watch?v=5QD1ch9gVck
Síðast breytt af rapport á Sun 26. Sep 2021 13:19, breytt samtals 1 sinni.

blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1750
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 139
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf blitz » Sun 26. Sep 2021 13:20

rapport skrifaði:Einu virkilega góðu fréttirnar tengdar heilbrigðiskerfinu voru:

Loksins að klárast DRG verkefnið sem hófst held ég 2008 eða 2009 (að safna gögnum og byggja umkostnaðargreiningakerfið) - https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... andspitala

Hélt að einhver flokkanna mundi hreykja sér af þessu fyrir kosningar en þetta virðist ekki hafa verið pólitísk ákvörðun.
https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... u-aramotum

p.s. ÞETTA er svo rétta leiðin til að byggja upp heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, að allir fái greitt fyrir þau verk sem unnin eru en starfi ekki á föstum fjárlögum.

Fyrir mig sem leikmann virkar þetta mál sem algjör skandall - sérstaklega þar sem þetta DRG ferli hófst fyrir hrun, tafðist í hruninu og var svo sett á ís af Samfylkingu og VG. Ryk dustað af þessu málið 2016 af Sjálfstæðisflokki, sett aftur á ís þegar VG tekur við ráðuneytinu og loksins korter í kosningar er þetta undirritað? Þetta er svo sorglegt - sérstaklega þar sem þetta mál ætti ekki að vera pólitískt en virðist hafa verið það.

https://www.vb.is/frettir/innleidingin- ... ug/170292/
Síðast breytt af blitz á Sun 26. Sep 2021 13:20, breytt samtals 1 sinni.

PS4

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1447
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf Lexxinn » Sun 26. Sep 2021 13:41

rapport skrifaði:Einu virkilega góðu fréttirnar tengdar heilbrigðiskerfinu voru:
Loksins að klárast DRG verkefnið sem hófst held ég 2008 eða 2009 (að safna gögnum og byggja umkostnaðargreiningakerfið) - https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... andspitala
Hélt að einhver flokkanna mundi hreykja sér af þessu fyrir kosningar en þetta virðist ekki hafa verið pólitísk ákvörðun.
https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... u-aramotum
p.s. ÞETTA er svo rétta leiðin til að byggja upp heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, að allir fái greitt fyrir þau verk sem unnin eru en starfi ekki á föstum fjárlögum.
EDIT: @Lexxinn - Þessi fundur? - https://www.youtube.com/watch?v=5QD1ch9gVck

Jebbs þessi fundur. Sjáðu hvað Svandís svara aldrei beinum spurningum, snýr nánast undantekningalaust út úr og fer að ræða um eitthverjar nefndir eða hópa sem hún hefur komið málunum í. Þessi kona hefur engu áorkað.

Það er ekki einu sinni almenn samstaða um að DRG kerfið muni henta Landspítalanum. Heilbrigðisþjónusta á almenningssjúkrahúsi er ekki eins og að leggja pípulagnir eða smíða timburhús. Það er ekki grafið í stein hversu þungur einstaklingur mun vera fyrir sjúkrahúsið í meðferð, þó 2 einstaklingar fari báðir í gerviliðsaðgerð mun 65ára aktívur einstaklingur komast fyrr heim en 75ára offitusjúklingur sem krefst lengri legu, samt fær sjúkrahúsið jafn margar krónur þar sem aðgerðin telur X margar einingar.
Nú vil ég ekki vera slúðra of mikið en það eru ekki margir sannfærðir um að þetta sé rétt skref. Frá mínu sjónarhorni væri réttast að hafa X grunnfjárframlög til sjúkrahússins og svo eitthvert kerfi sem svipar til DRG ofan á það.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Sun 26. Sep 2021 15:33

blitz skrifaði:
rapport skrifaði:Einu virkilega góðu fréttirnar tengdar heilbrigðiskerfinu voru:

Loksins að klárast DRG verkefnið sem hófst held ég 2008 eða 2009 (að safna gögnum og byggja umkostnaðargreiningakerfið) - https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... andspitala

Hélt að einhver flokkanna mundi hreykja sér af þessu fyrir kosningar en þetta virðist ekki hafa verið pólitísk ákvörðun.
https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... u-aramotum

p.s. ÞETTA er svo rétta leiðin til að byggja upp heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, að allir fái greitt fyrir þau verk sem unnin eru en starfi ekki á föstum fjárlögum.

Fyrir mig sem leikmann virkar þetta mál sem algjör skandall - sérstaklega þar sem þetta DRG ferli hófst fyrir hrun, tafðist í hruninu og var svo sett á ís af Samfylkingu og VG. Ryk dustað af þessu málið 2016 af Sjálfstæðisflokki, sett aftur á ís þegar VG tekur við ráðuneytinu og loksins korter í kosningar er þetta undirritað? Þetta er svo sorglegt - sérstaklega þar sem þetta mál ætti ekki að vera pólitískt en virðist hafa verið það.

https://www.vb.is/frettir/innleidingin- ... ug/170292/

Þetta er mikil einföldun. María Heimis sem er yfir sjúkratryggingum innleiddi þetta á LSH þegar hún var yfir fjármálunum þar og ég er nokkuð viss um að hún keyrði þetta í gegn en engin pólitík.

Sá sem var yfir sjúkratryggingum á undan henni var blákaldur sjálfstæðismaður sem litaði allar sínar embættisfærslur pólitík en ekki málefnum sbr. að úthýsa sjúkrahótelinu til einkareksturs í stað þess að byggja nýtt á lóð LSH og tafði þannig nýja LSH.

Það átti svo að reyna ákveða fyrirfram hvaða aðgerðir LSH ætti að framkvæma og greiða út frá því. Hvaða illi sem er áttar sig á að þú ákveður ekki fyrirfram og með fjármagni hver forgangsröðunin er hjá LSH. Það væri í raun verra en að fá að forgangsraða budgetinu sínu sjálfur og LSH þá komið í enn verri spennitreyju.

Held að það verði seint ef nokkurntíman hægt að eigna xB og xD einhvern framgang í heilbrigðiskerfinu.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Sun 26. Sep 2021 15:35

Lexxinn skrifaði:
rapport skrifaði:Einu virkilega góðu fréttirnar tengdar heilbrigðiskerfinu voru:
Loksins að klárast DRG verkefnið sem hófst held ég 2008 eða 2009 (að safna gögnum og byggja umkostnaðargreiningakerfið) - https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... andspitala
Hélt að einhver flokkanna mundi hreykja sér af þessu fyrir kosningar en þetta virðist ekki hafa verið pólitísk ákvörðun.
https://www.sjukra.is/um-okkur/frettir/ ... u-aramotum
p.s. ÞETTA er svo rétta leiðin til að byggja upp heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, að allir fái greitt fyrir þau verk sem unnin eru en starfi ekki á föstum fjárlögum.
EDIT: @Lexxinn - Þessi fundur? - https://www.youtube.com/watch?v=5QD1ch9gVck

Jebbs þessi fundur. Sjáðu hvað Svandís svara aldrei beinum spurningum, snýr nánast undantekningalaust út úr og fer að ræða um eitthverjar nefndir eða hópa sem hún hefur komið málunum í. Þessi kona hefur engu áorkað.

Það er ekki einu sinni almenn samstaða um að DRG kerfið muni henta Landspítalanum. Heilbrigðisþjónusta á almenningssjúkrahúsi er ekki eins og að leggja pípulagnir eða smíða timburhús. Það er ekki grafið í stein hversu þungur einstaklingur mun vera fyrir sjúkrahúsið í meðferð, þó 2 einstaklingar fari báðir í gerviliðsaðgerð mun 65ára aktívur einstaklingur komast fyrr heim en 75ára offitusjúklingur sem krefst lengri legu, samt fær sjúkrahúsið jafn margar krónur þar sem aðgerðin telur X margar einingar.
Nú vil ég ekki vera slúðra of mikið en það eru ekki margir sannfærðir um að þetta sé rétt skref. Frá mínu sjónarhorni væri réttast að hafa X grunnfjárframlög til sjúkrahússins og svo eitthvert kerfi sem svipar til DRG ofan á það.

Ef þú lest DRG verðskránna fyrir ósjúkratryggða þá sérðu að það er verðmunur á aðgerður út frá þvi hvort "allt gengur vel" eða "með aukakvillum".

https://www.landspitali.is/sjuklingar-a ... atryggdir/

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 26. Sep 2021 18:21

Vandræðalegt
Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi

https://www.visir.is/g/20212161867d/mik ... rkjordaemi

Just do IT
  √

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf urban » Sun 26. Sep 2021 19:14

Hjaltiatla skrifaði:Vandræðalegt
Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi

https://www.visir.is/g/20212161867d/mik ... rkjordaemi

Hrikalegt að það sé ekki hægt að treysta talningu.
Hver segir að það sé hægt að treysta þessari talningu ?

Það verður að fá nýtt fólk inn til að telja í þriðja skiptið til þess að staðfesta aðra hvora niðurstöðuna.
Þegar að ég segi nýtt fólk, þá er þar með talin yfirmaður kjörstjórnar og allir talningsmenn.

En spáið í hræðinlegum skiptum.
Ung kona fer út og Bergþór "aumingja ég útaf því að Lilja Alfreðs vill ekki ríða mér" Ólafsson kemur inn í staðin, það er alveg með því verra að mínu mati.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Sun 26. Sep 2021 19:16

Hvernig gat vantað 14 atkvæði í gær án þess að einhverja bjöllur hringdu?

Makes no sense to me

Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 969
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf brain » Sun 26. Sep 2021 19:49

rapport skrifaði:Hvernig gat vantað 14 atkvæði í gær án þess að einhverja bjöllur hringdu?

Makes no sense to me

Það hringdu bjöllur, og því var endurtalið.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf urban » Sun 26. Sep 2021 19:53

brain skrifaði:
rapport skrifaði:Hvernig gat vantað 14 atkvæði í gær án þess að einhverja bjöllur hringdu?

Makes no sense to me

Það hringdu bjöllur, og því var endurtalið.

Samt ekki, miðað við fréttir þá var talið útaf því að það var svo rosalega tæpt (2 atkvæða munur hefði getað breytt úrslitunum)
Semsagt ekki útaf því að það vantaði atkvæði eða voru of mörg, heldur bara hreinlega það var svo tæpt.

https://www.visir.is/g/20212161812d/tel ... rkjordaemi

„Við ákváðum þegar við sáum að það væri lítill munur að við myndum endurtelja. Við viljum bara útiloka það að þetta sé ekki í lagi,“ segir hann við Vísi.

Þarna kemur hvergi fram að það hafi verið misræmi heldur bara tæpt.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Sun 26. Sep 2021 20:58

Það er sagt annarstaðar að auðum atkvæðum hafi fækkað en ógildum fjölgað við þessa endurtalningu.

„Við erum að fara yfir þetta“ segir Guðmundur. „Þessar skýringar sem eru gefnar vekja upp spurningar, það er að einhver fjöldi atkvæða hafi farið með Viðreisnar atkvæðum sem hafi átt að fara með Sjálfstæðisflokks atkvæðum. Sú skýring heldur í rauninni ekki vatni þegar við lítum til þess að heildarfjöldi atkvæða hefur líka breyst“.

https://www.ruv.is/frett/2021/09/26/fin ... alda-vatni

Hvar birtir hið opinbera niðurstöður talninga og kosninga ?
Síðast breytt af rapport á Sun 26. Sep 2021 21:12, breytt samtals 2 sinnum.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf urban » Sun 26. Sep 2021 22:10

https://www.visir.is/g/20212161931d/vid ... r-sig-hefd

Þetta er hrikalegt mál í alla staði.

Skelfilegt að það sé ekki hægt að treysta kosningakerfinu.
Þarna verður kjörstjórn að ganga í burtu og ég sé ekki að það sé hægt að komast hjá því að kjósa aftur í kjördæminu, það verður aldrei hægt að treysta þessum niðurstöðum, alveg sama hvernig þær enda.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Sun 26. Sep 2021 22:45

urban skrifaði:https://www.visir.is/g/20212161931d/vidur-kennir-ad-hafa-ekki-inn-siglad-kjor-sedla-og-ber-fyrir-sig-hefd

Þetta er hrikalegt mál í alla staði.

Skelfilegt að það sé ekki hægt að treysta kosningakerfinu.
Þarna verður kjörstjórn að ganga í burtu og ég sé ekki að það sé hægt að komast hjá því að kjósa aftur í kjördæminu, það verður aldrei hægt að treysta þessum niðurstöðum, alveg sama hvernig þær enda.

Kerfið virkar ekki kjördæmi fyrir kjördæmi, það þarf að kjósa aftur allstaðar eða finn út hvaða talningu er hægt að treysta.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf urban » Sun 26. Sep 2021 23:07

rapport skrifaði:
urban skrifaði:https://www.visir.is/g/20212161931d/vidur-kennir-ad-hafa-ekki-inn-siglad-kjor-sedla-og-ber-fyrir-sig-hefd

Þetta er hrikalegt mál í alla staði.

Skelfilegt að það sé ekki hægt að treysta kosningakerfinu.
Þarna verður kjörstjórn að ganga í burtu og ég sé ekki að það sé hægt að komast hjá því að kjósa aftur í kjördæminu, það verður aldrei hægt að treysta þessum niðurstöðum, alveg sama hvernig þær enda.

Kerfið virkar ekki kjördæmi fyrir kjördæmi, það þarf að kjósa aftur allstaðar eða finn út hvaða talningu er hægt að treysta.

Já ég var einmitt að spá í því hvort að það væri nokkuð hægt að kjósa aftur í einu kjördæmi. svona eftir á að hyggja er það auðvitða ekki hægt, ekki hægt að kjósa eftir á í þessu kjördæmi.
Það yrði að gera það allt í einu.

Því miður verður aldrei traust á talningu úr því að gögnin voru ekki innsigluð í þessa klukkutíma og það kom ekki sama niðurstaða á milli talninga.
Versta er að þetta hafi bara breytt niðurstöðu á þingsætum, ef að það hefði ekki gert það, þá hefði hugsanlega verið hægt að fá einhverja niðurstöðu sem að fólk hefði getað sæst á.

En því miður, þá held ég að svo sé ekki.
Ég myndi ekki vilja vera einn af þessum þingmönnum sem að þetta hrærði í.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf GuðjónR » Mán 27. Sep 2021 17:11

urban skrifaði:https://www.visir.is/g/20212161931d/vidur-kennir-ad-hafa-ekki-inn-siglad-kjor-sedla-og-ber-fyrir-sig-hefd

Þetta er hrikalegt mál í alla staði.

Skelfilegt að það sé ekki hægt að treysta kosningakerfinu.
Þarna verður kjörstjórn að ganga í burtu og ég sé ekki að það sé hægt að komast hjá því að kjósa aftur í kjördæminu, það verður aldrei hægt að treysta þessum niðurstöðum, alveg sama hvernig þær enda.

FÚSK FÚSK FÚSK ... sagði ég ekki örugglega FÚSK?

Íslenska fúskið í hnotskurn, mátt ekki kjósa með ómálga barn þér við hlið, hvorki í covid sóttkví né í kjörklefa, mátt ekki kjósa rafrænt og mátt ekki nota penna, þarna er kannski skýringin komin af hverju þú mátt ekki nota penna því þá er ekki hægt að breyta atkvæðinu þínu eftir á.
Á sama tíma og þetta er svona þá skilja menn kjörkassana eftir opna á einhverju hóteli og fara heim og leggja sig og bera fyrir sig hefð?
Eru menn alveg snar?

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf Klemmi » Mán 27. Sep 2021 17:31

GuðjónR skrifaði:FÚSK FÚSK FÚSK ... sagði ég ekki örugglega FÚSK?

Íslenska fúskið í hnotskurn, mátt ekki kjósa með ómálga barn þér við hlið, hvorki í covid sóttkví né í kjörklefa, mátt ekki kjósa rafrænt og mátt ekki nota penna, þarna er kannski skýringin komin af hverju þú mátt ekki nota penna því þá er ekki hægt að breyta atkvæðinu þínu eftir á.
Á sama tíma og þetta er svona þá skilja menn kjörkassana eftir opna á einhverju hóteli og fara heim og leggja sig og bera fyrir sig hefð?
Eru menn alveg snar?

Þetta lyktar svo illa, þegar auðum seðlum fækkar, og ógildum seðlum fjölgar...

Rosa einfalt að merkja við auða seðla, og gera áður gilda seðla ógilda með því að breyta þeim smá.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Mán 27. Sep 2021 20:21

Klemmi skrifaði:

Og þegar það eru allt í einu fleiri atkvæði í heildina eftir endurtalningu.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf rapport » Þri 10. Okt 2023 11:27

Hugsanlega var BB bara að reyna að teygja lopann í þessu stjórnarsamstarfi með þessari afsögn svo að það yrðu ekki kosningar á meðan xD er í lægstu lægðum.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf GuðjónR » Þri 10. Okt 2023 12:02

rapport skrifaði:Hugsanlega var BB bara að reyna að teygja lopann í þessu stjórnarsamstarfi með þessari afsögn svo að það yrðu ekki kosningar á meðan xD er í lægstu lægðum.

Auðvitað er þetta bara einhver skítaflétta.
BB gerir ekkert nema það gagnist honum eða fjölskyldu hans.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf appel » Þri 10. Okt 2023 13:04

Það er ekki hlaupið að því að finna fjármálaráðherra með svona mikla reynslu og þekkingu.

Geri ráð fyrir að lánshæfiseinkunn Íslands gæti lækkað útaf þessari afsögn, og vaxtabyrði ríkisins hækkað nokkuð. Ísland hefur alltaf verið í áhættuflokki vegna stjórnmálalegs óstöðugleika.

Það hefur svo cascading áhrif á banka, fyrirtæki og allt hagkerfið ef ríkið lækkar í lánshæfismati. Kannski að verðbólgan fari í 15%? Held að enginn ætti að fagna svona í árferði einsog núna.

Það er eitt að það sé endurraðað í ráðuneyti eftir þingkosningar og í góðæri, en þegar verðbólga er 10% og ýmsar efnahagskrísur á stjá þá er stjórnmálalega óvissa ekki sniðug.
Síðast breytt af appel á Þri 10. Okt 2023 13:05, breytt samtals 1 sinni.

*-*

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 371
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 10. Okt 2023 13:28

Ég á bágt með að trúa að einstakir menn í ríkistjórn hafi mikið með lánshæfi lands að gera.

En gjaldeyrinn okkar er undirliggjandi vandamálið, ég ætla að kjósa þá í stjórn sem ætla að gera einhvað í þeim málum.

Ef halda á krónunni, að þá verði að festa hana við stærri gjaldeyri, það hefur verið gert í öðrum smáríkjum.

Höfundur
vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf vesley » Þri 10. Okt 2023 15:57

Moldvarpan skrifaði:Ég á bágt með að trúa að einstakir menn í ríkistjórn hafi mikið með lánshæfi lands að gera.

En gjaldeyrinn okkar er undirliggjandi vandamálið, ég ætla að kjósa þá í stjórn sem ætla að gera einhvað í þeim málum.

Ef halda á krónunni, að þá verði að festa hana við stærri gjaldeyri, það hefur verið gert í öðrum smáríkjum.

Nú er ég enginn sérfræðingur og eins fjarri því og að ég held flestir sem tjá sig á samfélagsmiðlun um krónuna.

135% hækkun launa á Íslandi vs 35% á sama tímabili í evrulöndum
Mesta kaupmáttaraukningin miðað við þau lönd sem hægt er að bera saman við.

Krónan hefur verið mjög stöðug allt frá því áður en covid byrjaði og oft styrkt sig jafnvel helst til hratt sem þó var hægt að bregðast við.

Íslendingar treysta alveg gríðarlega á erlent vinnuafl sem kemur hingað því þeir fá svo há laun í krónum vs þeirra gjaldmiðill í heimalandinu. Myndi framboð erlends vinnuafls falla um sjálft sig ef evra myndi koma og launaþróun vera í takt við önnur evru lönd ?

Samhliða því vill ég taka fram að ég er enginn sérstakur stuðningsmaður krónunnar eða þess að fá nýjan gjaldmiðil.
Ég held hinsvegar að málið er bara ekki svo einfalt að nýr gjaldmiðill lagi mörg eða einhver vandamál hér á landi.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 371
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 10. Okt 2023 16:29

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=61027#

Það er sífellt (á 10-15ára fresti) verið að gjaldfella krónuna til að hjálpa fyrirtækjum landsins.

Þetta skapar óstöðugleika sem okkur vantar nauðsynlega. Við erum alltaf að horfa í skammtíma gróðann.

Það kostar einhvað að skapa stöðugleikann og það er hægt að byggja margt upp á honum.

Það er hrikalega dýrt líka að lifa á íslandi. Ég hef alltaf verið á leigumarkaði en er að íhuga að kaupa mína fyrstu fasteign.
En þessi markaður er HORROR. Sama hvaða ákvörðun maður reynir að taka, verðbólgan og vextir éta alla eignina upp.

Ef að stöðugleikinn væri meiri, þá væri ekki þörf á þessum ýkta hagvexti, er það sem ég er að reyna segja.

En ég er enginn sérfræðingur heldur, en hef búið hérna og horft á þetta mynstur endurtaka sig aftur og aftur.

Allavegana mín skoðun.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa 25. september ?

Pósturaf appel » Þri 10. Okt 2023 23:37

Moldvarpan skrifaði:Ég á bágt með að trúa að einstakir menn í ríkistjórn hafi mikið með lánshæfi lands að gera.

En gjaldeyrinn okkar er undirliggjandi vandamálið, ég ætla að kjósa þá í stjórn sem ætla að gera einhvað í þeim málum.

Ef halda á krónunni, að þá verði að festa hana við stærri gjaldeyri, það hefur verið gert í öðrum smáríkjum.

Reyndar er ekki til sá maður á Íslandi sem hefur meiri þekkingu og reynslu á þessum málaflokki en Bjarni Ben. Það er bara þannig, við búum í svo fámennu samfélagi. Næsti hæfasti maður er líklega dýralæknir sem hefur aðallega sinnt hænum, og kemur úr vígi Framsóknarmanna. Verði ykkur svo að góðu með þann kjúlla.

Krónan er bara mælikvarði. Gerir okkur kleift að gengisfella krónuna til að verja atvinnustig. Þetta er bara svo einfalt. Án þess væri mjög hátt atvinnuleysisstig á Íslandi. Ég man eftir þeirri tíð í æsku, mjög háu atvinnuleysisstigi, og það var algjör hörmung, einsog stríðsástand væri.

Afhverju er ekki Danmörk eða Svíþjóð komið með evruna? Hvað útskýrir það bull?
Síðast breytt af appel á Þri 10. Okt 2023 23:39, breytt samtals 2 sinnum.

*-*