Síða 1 af 1

Fartölva fyrir heimilið

Sent: Fös 10. Sep 2021 07:25
af ColdIce
Daginn
Er einhver fartölva sem er betri en þessi fyrir þennan pening?
https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Fa ... 233.action

Verður notuð í vefráp aðallega, enga leiki.

Fyrirfram þakkir

Re: Fartölva fyrir heimilið

Sent: Fös 10. Sep 2021 10:08
af rapport
Sá ekkert betra á laptop.is í fljótu bragði.

Girnileg tölva í akkúrat að vera ígripsvél á heimilinu, fara í heimabankann, fletta í gegnum fréttir o.þ.h.

En þá spyr maður sig líka, þarf lyklaborð? Af hverju ekki iPad fyrir sama pening og geta þá leikið sér meira t.d. í myndvinnslu?

Re: Fartölva fyrir heimilið

Sent: Fös 10. Sep 2021 11:32
af upg8
Það er snilld að teikna á Windows og vera með svona penna, miklu meira productive vel heldur en iPad og engum takmörkunum bundin. Það sem helst er hægt að hallmæla snertiskjám og pennum á Windows í dag verður svo lagað að mestu með Windows 11 í vetur

Re: Fartölva fyrir heimilið

Sent: Fös 10. Sep 2021 15:02
af Roggo
Ef þú ert ekki sérstaklega að leitast eftir snertiskjá myndi ég allan daginn mæla með þessari frekar:

https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Fartolvur/Lenovo-IdeaPad-Slim-5-82LN001DMX-fartolva%2C-Graphite-Grey/2_27775.action

Kostir umfram Flex 5:
- Stærri skjár en aðeins minni ramma, þannig að þær eru samt svipað stórar.
- 15,6" boddý þannig að þú færð einnig talnaborðið.
- 70Wh vs 52.5Wh -> 17 vs 12klst (Miðað við MobileMark 2014).
- Type-C hleðslutengi með dokkumöguleika. Ideal fyrir dokkuskjá ef þú vilt nota vélina sem borðtölvu. Eitt tengi fyrir allt.
- Mun einnig verða mun auðveldara að nálgast slík hleðslutæki í framtíðinni.(Eða þú veist... ætti að vera XD)

Gallar:
- 180° snúningur í stað 360° og enginn snertiskjár/penni

Þetta er bara spurning um hversu mikið þú kannt að meta snerti/snúnings fídusinn ;)