Síða 1 af 1

tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 08:26
af emil40
Ég er nú bara nokkuð sáttur við tölvuna eftir að ég uppfærði í samsung 980 pro diskinn. Var að pæla í hvað ég gæti gert næst til þess að bæta hana og datt svo sem ekkert í hug svona í fljótu bragði eruð þið með einhverjar hugmyndir ? Ég hef haft það fyrir reglu að staðgreiða alla hluti þannig að það er búið að taka slatta af tíma að byggja þessa vél upp.


Gamemax Titan Silent | Ryzen9 5900X @ 4.75 ghz | Corsair Hydro Series H100i RGB Platinum | ASRock X570 Steel Legend | G.Skill 32GB Trident Neo 3600MHz DDR4 | PowerColor Radeon RX 6800 Red Dragon 16GB | Corsair HX1200i | TCL 55" | Samsung 980 Pro NVMe PCIe M.2 1TB | Razer Mamba þráðlaus leikjamús | Jbl quantum duo | 53 tb pláss

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 09:38
af Hausinn
Hún er þegar fáranlega öflug. Sparaðu peninginn í eitthvað annað.

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 09:48
af Haraldur25
Fá alvöru leikjaskjá :megasmile

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 09:52
af dabbihall
myndi fá mér annan skjá og svo bara njóta :D , virkilega flott vél

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 10:44
af gutti

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 11:25
af emil40
gutti skrifaði:færð bara svona gamli https://tl.is/product/65-rog-pg65uq-144hz-4kg-sync


þetta er full mikið fyrir öryrkja...

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 11:28
af emil40
dabbihall skrifaði:myndi fá mér annan skjá og svo bara njóta :D , virkilega flott vél


Ég er með 55" tcl 4k sjónvarp tengt við tölvuna og nota það sem skjá. Gæti ekki hugsað mér að fara i minni skjá, en veit að góður leikjaskjár væri geðveikur. Ætla að njóta þetta er mjög öflug vél enda búið að taka langann tíma að safna fyrir öllum hlutunum :) Þar sem ég staðgreiði bara.

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 11:37
af njordur9000
Ef þetta er leikjavél er skjákortið klárlega veikasti hlekkurinn. Ekkert annað þarna myndi bæta afköst í leikjum neitt að ráði, sérstaklega ekki í 4K. Verst er hvað skjákort eru viðurstyggilega dýr í dag.

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 11:39
af Hausinn
gutti skrifaði:færð bara svona gamli https://tl.is/product/65-rog-pg65uq-144hz-4kg-sync

Man eftir því að sjá þennan skjá þegar ég var að skoða í tölvulistanum. Gat ekki nema hlegið að verðinu. :lol:

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 11:42
af njordur9000
Hausinn skrifaði:
gutti skrifaði:færð bara svona gamli https://tl.is/product/65-rog-pg65uq-144hz-4kg-sync

Man eftir því að sjá þennan skjá þegar ég var að skoða í tölvulistanum. Gat ekki nema hlegið að verðinu. :lol:


Þegar 65" LG GX OLED með 120 hz, freesync og allan pakkann er á 350þ ( https://rafland.is/product/65-oled-sjon ... -oled65gx6 ) er þetta verð einfaldlega galið. Þeir vilja tvöalt meira fyrir mun síðri skjá. Maður spyr sig hver markhópurinn fyrir þetta rugl sé eiginlega.

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 15:55
af SolidFeather
Nú græjarðu sér server fyrir þessi 53 terabæt!!!

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 18:43
af ÓmarSmith
Hvað er fólk eiginlega að geyma þegar það liggur á ekki 15, heldur 50 TB :megasmile ?

Re: tölvan hjá mér

Sent: Þri 05. Okt 2021 20:17
af Moldvarpan
Gefa þeim sem að sjá um þig fallega gjöf.

Re: tölvan hjá mér

Sent: Mið 06. Okt 2021 14:52
af emil40
Moldvarpan skrifaði:Gefa þeim sem að sjá um þig fallega gjöf.



Fjárhaldskonan mín fékk fallega gjöf frá mér um daginn. Með hennar hjálp og því að vera edrú hefur þetta tekist O:) Ég er að detta í 6 ár edrú 19 október. Mér finnst þetta innlegg það besta sem hefur komið inn á þennan þráð. Takk kærlega fyrir það. Ég er þeim sem aðstoða mig mjög þakklátur.