Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Allt utan efnis

Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 548
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 54
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf falcon1 » Fös 29. Okt 2021 13:43

Mig langar til þess að vita hvort það sé einhver leið (án þess að hætta alveg á þeim) til að komast framhjá þessum persónunjósnum sem stóru miðlarnir facebook, google, youtube o.s.frv. stunda. Maður kannski leitar að golfkylfu á Google og þá birtast endalausar auglýsingar um golf og kylfur á Facebook. Finnst þetta dáldið óhugnanlegt hvað þetta virðist allt vera orðið samtengt og vita mikið um mann.
Síðast breytt af falcon1 á Fös 29. Okt 2021 13:43, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Onyth
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Lau 10. Okt 2015 20:33
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf Onyth » Fös 29. Okt 2021 14:38

Nota Privacy Badger, HTTPS Everywhere, "Do not track me" featurinn í Firefox, Ad blocker eins og PI hole eða bara Ublock Origin, nota DuckDuckGo sem leitarvél í stað Google(þeir selja ekki leitarhistoryið þitt til t.d FB eins og google gerir)

Þetta er bara svona from the top of my mind. Vonandi hjálpar eitthvað af þessu.




BudIcer
Fiktari
Póstar: 78
Skráði sig: Fim 25. Sep 2008 13:03
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf BudIcer » Fös 29. Okt 2021 17:20

Onyth skrifaði:Nota Privacy Badger, HTTPS Everywhere, "Do not track me" featurinn í Firefox, Ad blocker eins og PI hole eða bara Ublock Origin, nota DuckDuckGo sem leitarvél í stað Google(þeir selja ekki leitarhistoryið þitt til t.d FB eins og google gerir)

Þetta er bara svona from the top of my mind. Vonandi hjálpar eitthvað af þessu.


Mæli líka með Facebook Container


Cpu Ryzen 3900 - Gpu Gigabyte RTX 2080 - MB Gigabyte X570 Aorus Ultra - Ram Kingston HyperX Predator RGB 32GB (4x8GB) DDR4 3600MHz - Psu Corsair AX1000 Titanium - Kæling Noctua NH-U12A

Skjámynd

Hvati
Geek
Póstar: 803
Skráði sig: Mán 19. Jan 2009 12:36
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf Hvati » Fös 29. Okt 2021 18:00

Nota sér vafra fyrir t.d. Google þjónustur og Facebook því þeir geta notað „fingrafar‟ vafrans/tækisins til þess að einkenna þig.
Þessi gæji talar mikið um þetta:
https://www.youtube.com/watch?v=673nJQEkhe0
Síðast breytt af Hvati á Fös 29. Okt 2021 18:00, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

daremo
spjallið.is
Póstar: 458
Skráði sig: Mið 27. Okt 2004 00:39
Reputation: 71
Staða: Ótengdur

Re: Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf daremo » Fös 29. Okt 2021 23:18

Ekki gleyma Windows 10. Það er eitt risastórt spyware forrit.




KristinnK
Gúrú
Póstar: 549
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 74
Staða: Ótengdur

Re: Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf KristinnK » Lau 30. Okt 2021 01:19

Annað sem ekki hefur komið fram er að nota Noscript. Þegar þú byrjar að nota það blokkar það öll script á öllum vefsíðum sem þú ferð á, og þú verður að gefa hverju scripti sérstaklega leyfi til þess að virka.

Maður tekur fljótlega eftir að langflestar síður keyra script frá aðilum eins og Google, Facebook, Amazon, Scorecard Research og öðrum sem hafa ekkert hlutverk við virkni vefsíðunnar sjálfrar, heldur eru einungis til þess að safna gögnum um þig. Til dæmis hér á Vaktinni er script sem einkennir sig sem ,,google-analytics.com" sem ég augljóslega leyfi ekki að keyra.


Intel Core i7-4770 | 2x8GB DDR3 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3091
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Komast hjá njósnum stóru miðlanna - hvernig?

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 30. Okt 2021 09:33

Getur t.d sett upp nýjan user á snjallsímann þinn.

Sjálfur aðgreini ég einkalíf frá vinnu með að setja upp Minn persónulega notanda (Admin user á síma) og annan Vinnu notanda sem ég nota þegar ég er í vinnuni og þarf að vera loggaður inní alls konar öpp. Gætir gert eitthvað svipað með þetta Social media stöff.

Frekar einfalt að skipta á milli notanda (allavegana á android).
Síðast breytt af Hjaltiatla á Lau 30. Okt 2021 09:34, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √