Síða 1 af 1

Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 04:55
af jonfr1900
Samkvæmt fréttum þá voru allir þættir af Star Trek Discovery fjarlægðir af Netflix og settir eingöngu á Paramount+ undir því yfirskyni að þar verður allt Star Trek í framtíðinni. Paramount+ er streymiþjónusta sem er ekki einu sinni byrjuð í meirihlutanum af Evrópu og verður aldrei á Íslandi (sem dæmi). Hvað þá öllum heiminum.

Ég reikna með að þetta verði einnig örlög annara Star Trek þáttasería á næstu mánuðum.

Aðdáendur eru auðvitað brjálaðir yfir þessu. Enda nennir fólk ekki að kaupa Paramount+, sem er nú þegar sögð vera afskaplega léleg streymiþjónusta.

Samningurinn um sýningarréttinn rann ekki út. Heldur keypti ViacomCBS hann allan til baka af Netflix tveim dögum (16-Nóvember) fyrir frumsýningu nýjustu seríunnar á Netflix.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 06:44
af Semboy
hvað á ég að gera með þessar upplýsingar?

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 07:17
af appel
Finndu þér eitthvað annað að horfa á þá :)

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 08:25
af Fletch
MicrosoftTeams-image.png
MicrosoftTeams-image.png (499.86 KiB) Skoðað 2104 sinnum

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 09:04
af Mossi__
Skil þetta bara eftir her.

https://youtu.be/y9bXjttMxKY

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 09:40
af audiophile
Ég var einmitt orðinn mjög spenntur fyrir nýju seríunni af Startrek Discovery en sá hana hvergi auglýsta á Netflix. Leiðinda dæmi þessi streymisveitu stríð.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 09:44
af oliuntitled
Ég bara skil ekki svona hugsun, halda þeir hjá Paramount virkilega að international crowdið sé að fara að bíða eftir því að þetta verði opið hjá þeim ?
Það er einsog þeir séu begging um að vera pirated.

Gabe Newell hjá Valve sagði einmitt að piracy væri þjónustuvandamál ekki verðvandamál, það er og verður alltaf sannara.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 14:38
af Dropi
Ég horfði á þessa þætti og finnst þeir alls ekkert nógu góðir til að laða mig að Paramount+. Horfði á þá af því þeir voru á Netflix og drápu tíma, en ég ætla sko ekki að eltast við þá.

Besta nýja Star Trek undanfarin ár er The Orville. Þó það sé ekki Star Trek beint þá er það miklu betra Star Trek heldur en Discovery.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 14:40
af jonfr1900
Semboy skrifaði:hvað á ég að gera með þessar upplýsingar?


Lærdómurinn er að það er ekki hægt að treysta á streymiþjónustur vegna svona leyfismála. Ég þarf núna að bíða eftir blu-ray útgáfunni til þess að sjá seríu 4 (kaupi séríu 1 til 3 á sama tíma) af Star Trek Discovery. Ég þarf því að bíða fram til ársins 2023 eða mjög seint á árinu 2022 í fyrsta lagi.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 15:28
af oliuntitled
Dropi skrifaði:Ég horfði á þessa þætti og finnst þeir alls ekkert nógu góðir til að laða mig að Paramount+. Horfði á þá af því þeir voru á Netflix og drápu tíma, en ég ætla sko ekki að eltast við þá.

Besta nýja Star Trek undanfarin ár er The Orville. Þó það sé ekki Star Trek beint þá er það miklu betra Star Trek heldur en Discovery.



Mæli hiklaust með að þú tékkir á Star Trek: Lower Decks.
Það er animated og taka sig töluvert minna alvarlega en hefðbundið trek, þeir fá toppeinkunn hjá mér í það minnsta :)

En svo kemur þetta alltaf niður á það sama þegar ný Trek sería kemur, þetta er aldrei Trek fyrir þeim hörðustu ... var sagt þegar Next Gen kom (fékk hræðilega útreið í blöðum sem dæmi) sama þegar Voyager og DS9 komu líka ... alltaf sagt að þetta væri sko ekki trek :)

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 22:22
af dadik
jonfr1900 skrifaði:
Semboy skrifaði:hvað á ég að gera með þessar upplýsingar?


Lærdómurinn er að það er ekki hægt að treysta á streymiþjónustur vegna svona leyfismála. Ég þarf núna að bíða eftir blu-ray útgáfunni til þess að sjá seríu 4 (kaupi séríu 1 til 3 á sama tíma) af Star Trek Discovery. Ég þarf því að bíða fram til ársins 2023 eða mjög seint á árinu 2022 í fyrsta lagi.


Getur líka bara reddað þér vpn og paramount áskrift í mánuð. Annars hlýtur þetta að detta inn á torrent fljótlega.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 18. Nóv 2021 22:37
af falcon1
Og ég sem er að horfa á Star-Trek Next Gen á Netflix.

DS9 er mjög gott stöff, fannst Enterprise líka fínt.

Aftur á móti er ég ekki hrifin af þessum nýju Star-Trek þáttum.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fös 19. Nóv 2021 07:51
af Dropi
oliuntitled skrifaði:
Dropi skrifaði:Ég horfði á þessa þætti og finnst þeir alls ekkert nógu góðir til að laða mig að Paramount+. Horfði á þá af því þeir voru á Netflix og drápu tíma, en ég ætla sko ekki að eltast við þá.

Besta nýja Star Trek undanfarin ár er The Orville. Þó það sé ekki Star Trek beint þá er það miklu betra Star Trek heldur en Discovery.



Mæli hiklaust með að þú tékkir á Star Trek: Lower Decks.
Það er animated og taka sig töluvert minna alvarlega en hefðbundið trek, þeir fá toppeinkunn hjá mér í það minnsta :)

En svo kemur þetta alltaf niður á það sama þegar ný Trek sería kemur, þetta er aldrei Trek fyrir þeim hörðustu ... var sagt þegar Next Gen kom (fékk hræðilega útreið í blöðum sem dæmi) sama þegar Voyager og DS9 komu líka ... alltaf sagt að þetta væri sko ekki trek :)

Ég er sko ekki harður í trek, bara séð TOS 1 sinni en margoft horft á next generation, og tvisvar voyager + ds9 sem mér finnst hanga svo vel saman. TNG eru samt alltaf mesta uppáhaldið á mínu heimili ;)

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fös 19. Nóv 2021 14:08
af CendenZ
Þetta er orðið ógeðslega fúlt, ég er með dagskrá af þessu helsta. Netflix, Prime, Disney, Hulu, Síminn Premium osfr en ég er samt farinn að downloada aftur :?

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fös 19. Nóv 2021 15:05
af MrIce
'tis a pirate's life for us....

Frekar lélegt af þeim að gera þetta daginn fyrir release.... en þetta ýtir bara undir piracy myndi ég telja. Þeir skutu sig í fótinn á þessu.

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fös 19. Nóv 2021 15:06
af jonfr1900
Ég sá í umræðum á internetinu að væntanlega er allt efni frá WB að fara yfir á Paramount+ og aðrar streymisveitur í þeirra eigu á næstu mánuðum og árum. Eitthvað er nú þegar farið yfir á HBO Max, nýjasta serían af Rick and Morty er dæmi um þetta, þar sem hún kom ekki á Netflix er bara á HBO Max þar sem það er í boði (ekki á Íslandi sem dæmi).

Re: Paramount+ (ViacomCBS) fjarlægir Star Trek Discovery af Netflix

Sent: Fim 25. Nóv 2021 20:12
af GuðjónR
Fuck them!
Komnir tveir þættir af Star Trek Discovery á torrent ...