Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Allt utan efnis

Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Þri 14. Des 2021 13:34

Núna er komin stefna sem fer af stað með nýjum fjarskiptalögum um lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi. Ég veit ekki afhverju það er farið í lokun á GSM, þar sem það er ekki stefnan á hinum norðurlöndunum ennþá. Þá er það eingöngu vegna reikimála, þar sem VoLTE í reiki er ekki ennþá komið til og farið að virka en hugsanlegt er að þetta tæknivandamál verði leyst þegar það kemur að árinu 2025 þegar stefnt er að lokun GSM kerfisins. Ég reikna með að lokun 3G kerfisins hefjist fljótlega. Það er ekki ennþá byrjað að framleiða farsíma sem styðja 5GVoice og ég held að 5G farsímanetkerfin styðji það ekki ennþá. Ég veit ekki hvenær sá staðall verður virkur en það byggir á svipuðu kerfi og VoLTE / VoWiFi (sem íslensku farsímafyrirtækin neita að taka í notkun).


Krafist 100% háhraðanets á vegum (mbl.is)



Skjámynd

pattzi
Bara að hanga
Póstar: 1503
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Reputation: 38
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf pattzi » Þri 14. Des 2021 13:38

Andskotinn þá get ég ekki notað lengur nokia 5110 sem "heimasíma" einmitt var með nova í honum svo fékk ég nýtt kort frá þeim þa´hætti að virka prófaði að færa numerið yfir í voda og það virkar haha
Síðast breytt af pattzi á Þri 14. Des 2021 13:38, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Mið 15. Des 2021 00:15

Þetta mun gera marga farsíma úrelta þegar að þessu kemur.



Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2388
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 124
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf Black » Mið 15. Des 2021 02:15

Jæa þá er kominn tími til að uppfæra landmælingabúnaðinn í vinnuni :woozy


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Mið 15. Des 2021 02:29

Black skrifaði:Jæa þá er kominn tími til að uppfæra landmælingabúnaðinn í vinnuni :woozy


Þá er farið úr GSM/3G yfir í 4G/5G búnað?



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonsig » Mið 15. Des 2021 18:09

Þetta er slæmt fyrir þá sem nota 2G/3G símkort fyrir ýmisskonar vöktunnarbúnað sem er yfirleitt iðnaðarbúnaður með úreltum en áreiðanlegum módemum sem þurfa ekki háan gagnahraða. Einnig flestar þessar gröfur/heflar/jarðýtur og valtarar sem þið sjáið útum allar trissur með GPS möstur á sér, þau tæki taka GPS leiðréttinguna oft gegnum GSM/VRS kerfi til að fá GPS skekkjuna niður fyrir 1-2cm í stað >4mtr og því þurfa eigendurnir að endurnýja módembúnaðinn í þeim sem er ca 400þ per vél.
Einnig eru þessi stærstu gámaskip hérna á landinu með PAYS kerfi, sem sér um að uppfæra siglingakort og siglingaleiðir gegnum 3G kerfið ef ég man rétt, dálítið langt síðan ég setti apparötin í þau. Það uppgvötast væntanlega þegar eitthvað skipanna leggur í brottför.
Síðast breytt af jonsig á Mið 15. Des 2021 18:13, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Mið 15. Des 2021 19:17

Danmörk er nú þegar byrjað að slökkva á 3G kerfinu hjá sér (allir aðilar með tíðnileyfi). Þar á reyndar ekki að slökkva á GSM alveg strax vegna mikillar notkunar á því kerfi fyrir ýmsan búnað.



Skjámynd

Skippo
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Þri 28. Okt 2003 21:09
Reputation: 6
Staðsetning: Úti á landi!
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf Skippo » Fim 16. Des 2021 13:57

5G kerfi sem nær að dekka alla þjóðvegi, miðin og hálendið mun aldrei komast upp á nothæfan hátt. Ef það má ekki reisa rafmagnsstaur í dag án 5 ára þvargs við kerfið þá má gleyma þessum draumi. En þeir sem taka ákvarðanir um þessi mál virðast lítið gera sér grein fyrir því að þetta fjarskiptanet er ekki bara til að góna á myndbönd í símanum.


Ég er erfiður í umgengni


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Fim 16. Des 2021 14:51

Eins og með 4G þá verður 5G einnig á 700Mhz og 800Mhz bandinu. Þar verður minni hraði en meiri drægni. Auk þess sem að 5G verður á 900Mhz, 1800Mhz og 2100Mhz. Það mætti samt fara að taka 4G á 450Mhz í notkun á Íslandi fyrir þá sem eru mjög langt í burtu frá sendi. Þar sem það er hægt að flytja tal yfir 4G með VoLTE.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Fim 17. Feb 2022 17:21

Núna er komið fram samráð um lokun á 2G (GSM) og 3G kerfum á Íslandi.

Lokun GSM (2G) mun verða á Íslandi í lok árs 2024.
Lokun 3G mun verða á Íslandi í lok árs 2025.

Samráð um áætlun um lokun GSM (2G) og 3G þjónustu (Fjarskiptastofa)
Síðast breytt af jonfr1900 á Fim 17. Feb 2022 17:25, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Fim 17. Feb 2022 17:44

Ég tók eftir því í Samsung Galaxy S20 Ultra 5G hjá mér. Þá er ekki lengur boðið upp á að tengjast bara með 3G kerfinu eins og var. Núna er bara í boði að tengjast með 3G/2G og 2G. Síðan er auðvitað 2G/3G/4G og síðast 5G/4G/3G/2G.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf Moldvarpan » Fim 17. Feb 2022 17:56

Ég skil ekki hvernig þeir ætla að tryggja öryggi landsmanna með lokun 2G/3G á næstu 2-3 árum.

Einu rökin fyrir því að loka þessu að þetta er óhagkvæmt,, bú fokking hú.

Eina leiðin til að gera kerfin úrelt er að vera með annað sem sinnir sama hlutverki BETUR.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Fim 17. Feb 2022 18:09

Moldvarpan skrifaði:Ég skil ekki hvernig þeir ætla að tryggja öryggi landsmanna með lokun 2G/3G á næstu 2-3 árum.

Einu rökin fyrir því að loka þessu að þetta er óhagkvæmt,, bú fokking hú.

Eina leiðin til að gera kerfin úrelt er að vera með annað sem sinnir sama hlutverki BETUR.


Það er 5G IoT og annað tengt því. Það kerfi er reyndar búið að vera í keyrslu á höfuðborgarsvæðinu talsvert lengi. Hversu góð útbreiðslan er úti á landi veit ég ekki.

Síðan býður 5G upp á þetta hérna sem er ekki möguleiki í 4G.

5G network slicing (Wikipedia)




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Sun 02. Apr 2023 23:13

Samkvæmt samráði. Þá er lokun á 2G (GSM) og 3G frestað fram til loka árs 2025. Þetta er breyting á fyrri áætlun um að framkvæma þessa lokun í tveimur skrefum.

Niðurstaða samráðs um lokun GSM og 3G þjónustu (Fjarskiptastofa)

Það er búið að gefa út sérstaka tíðniheimildir fyrir lokun 2G og 3G sem gildir til loka ársins 2025. Útþynning á GSM dreifikerfinu er hafin, ásamt þynningu á 3G dreifikerfinu.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonsig » Mán 03. Apr 2023 20:39

Black skrifaði:Jæa þá er kominn tími til að uppfæra landmælingabúnaðinn í vinnuni :woozy



Ég held að fæstir hérna fatti hvað sú aðgerð er fáránlega dýr. Oft miða ég verðin á stykkinu af þessum landmælingargræjum við nýjan eða nýlegan BMW.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Mið 05. Apr 2023 19:53

Nýrri farsímar (frá Samsung Galaxy S21 og nýrri virðist vera, ég veit ekki með aðra framleiðendur) eru komnir með stuðning við 5GVoice (Vo5G). Ég veit ekki hvort að það er byrjað að styðja þetta á Íslandi. Ég held ekki. Þegar þetta kemst í notkun, þá mun þetta auka það svæði þar sem hægt er að hringja, þar sem 5G virkar einnig yfir 700Mhz/800Mhz sem er með talsvert betri drægni en 900Mhz GSM/3G kerfi. Það er spurning hversu langan tíma það mun taka þangað til að Vo5G kemur á Íslandi, miðað við það hversu langan tíma það tók að fá VoLTE (Vo4G og VoWiFi) á Íslandi (það er varla komið í notkun ennþá á Íslandi).




bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf bigggan » Mið 05. Apr 2023 20:23

Á minum S22 er hægt að kveikja á VoLTE á 4g allavegana hjá Síminn synist mér. Vonandi er það að virka, og mér finst talið miklu skyrara núna, en veit ekki hvort það er vegna nýr sími eða hvort það er vegna þessu, vantar bara tal yfir WiFi núna.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Lokun GSM(2G) og 3G kerfanna á Íslandi hefst fljótlega

Pósturaf jonfr1900 » Mið 05. Apr 2023 22:20

bigggan skrifaði:Á minum S22 er hægt að kveikja á VoLTE á 4g allavegana hjá Síminn synist mér. Vonandi er það að virka, og mér finst talið miklu skyrara núna, en veit ekki hvort það er vegna nýr sími eða hvort það er vegna þessu, vantar bara tal yfir WiFi núna.


Samkvæmt Samsung tæknimanni. Þá er VoLTE merkið horfið eftir uppfærslu á 4G staðlinum fyrir einhverju síðan. Þessu var breytt í Febrúar uppfærslu hjá Samsung. Hversu lengi þetta er að ná til allra símana veit ég ekki. Þannig að síminn sýnir ekki lengur þegar VoLTE er í notkun eins og var hérna áður. Það kemur samt merki ef að VoWiFi er í notkun en Síminn (fyrirtækið) styður það ekki ennþá.

Þetta er allt að fara yfir í IP kerfi, frá því sem var áður með farsímana.