Síða 1 af 1

Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 08:40
af Moldvarpan
Nú hef ég verið í soldinn tíma að leita mér af plakötum og flottum myndum til að setja á veggi.
En ég vill hafa þetta stórt, helst ekkert minna en 70-80cm.

Ég er ekkert fyrir málverk, finnst þau ekkert spennandi.


Allar hugmyndir vel þegnar.

Rakst á þessa síðu https://hemmi90.darkroom.tech/

Gríðarlega flottar myndir hjá Hermanni, en finnst stærðirnar heldur smáar sem eru í boði.

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 09:08
af dadik
Heyrðu í honum, kannski er hægt að fá stærri útgáfur í sérpöntun

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 09:20
af Moldvarpan
Búinn að spyrjast fyrir um stærri stærðir, hann er hinsvegar á Suðurskautinu núna. Hann svarar því þegar hann getur.

En ef þið vitið um flott plaköt, stækkaðar ljósmyndir eða bara flottar myndir, þá væri ég til í að heyra af því :)

Er enn óákveðinn að skoða hvað er í boði.

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 09:25
af blitz
Ég hef verslað svona af Etsy - fékk mynd í góðri upplausn sem ég sendi á Pixla og þeir prentuðu út fyrir mig.

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 09:51
af Frussi
Nexus er með úrval af plakötum, náttúrulega nörda centric, og fína ramma

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 10:05
af codemasterbleep
Þú veist mögulega af því en það er hægt að kaupa stórar strigamyndir í Rúmfó/Ikea/Byko/Bauhaus.

Þetta eru oft "vanilla" myndir en mögulega leynist eitthvað undurfagurt þarna inn á milli.

Stærðirnar eru kannski 80x120 eða um það bil.

Annars held ég að prentstærðirnar sem Hermann er með á sinni síðu séu í tommustærðum. Sýnist samt sú stærsta vera þá 50x75 cm.

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 10:16
af axyne

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 11:08
af TheAdder
https://shop-eu.kurzgesagt.org/collections/posters
Gæti verið eitthvað sem heillar þig þarna.

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Mið 23. Feb 2022 17:15
af SolviKarlsson
2 magnaðir ljósmyndarar búsettir á íslandi sem selja mögnuð prent,
Donal Boyd: https://prints.donalboyd.com/
Benjamin Hardman: https://store.benjaminhardman.com/

Re: Plaköt og veggmyndir

Sent: Fim 24. Feb 2022 16:26
af elv
Mjög flott poster hér https://candykiller.artstation.com
Hef pantað hjá honum og þau komu mjög fljót til landsins