Síða 1 af 2

Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 12:18
af GuðjónR
Er að skoða þessi öpp sem hægt er að nota til að borga fyrir bílastæði.
Get ekki séð að Bílastæðasjóður sé með neitt svona app.
Og flest virðast kosta, nema kannski Síminn Pay.

https://www.siminn.is/verdskrar/pay > þjónustugjald 0.kr.-
https://easypark.is/help/is/3073. > 95.kr. fyrir hverja notkun
https://pages.parka.is/verdskra/ 86.kr. fyrir hverja notkun

Hvað af þessu er best / ódýrast að nota?

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 12:48
af dori
Veit ekkert hvað er best. Ég hef notað Síminn Pay og það virkar vel (og virðist ekki kosta eitthvað meira en það sem þú myndir borga fyrir að nota stöðumæli).

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 13:41
af GuðjónR
dori skrifaði:Veit ekkert hvað er best. Ég hef notað Síminn Pay og það virkar vel (og virðist ekki kosta eitthvað meira en það sem þú myndir borga fyrir að nota stöðumæli).

Búinn að skoða þetta aðeins, easypark er erlent félag.
Parka er íslenskt í eigu nokkurra einstaklinga og hlutafélaga, m.a. á Sýn hf 15%

Á vef bílastæðasjóðs segir að Parka sé gjaldfrjálst, en á vef Parka segir annað.
Hafði samband við borgina sem stóð í þeirri trú að Parka væri gjaldfrjálst, lítur út fyrir að þeir hafi laumað inn gjaldskrá.
Spes ef einkafyrirtæki geta makað krókinn á bílastæðum borgarinnar og ennþá skrítnara að bílastæðasjóður veit ekki af því!
Eigum við að gera vaktin.is app og rukka fyrir bílastæði? Hljótum að mega það eins og allir hinir.
https://www.bilastaedasjodur.is/greidsl ... /raf-greid

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 13:51
af Moldvarpan
Siminn pay er da shit.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 18:38
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:
dori skrifaði:Veit ekkert hvað er best. Ég hef notað Síminn Pay og það virkar vel (og virðist ekki kosta eitthvað meira en það sem þú myndir borga fyrir að nota stöðumæli).

Búinn að skoða þetta aðeins, easypark er erlent félag.
Parka er íslenskt í eigu nokkurra einstaklinga og hlutafélaga, m.a. á Sýn hf 15%

Á vef bílastæðasjóðs segir að Parka sé gjaldfrjálst, en á vef Parka segir annað.
Hafði samband við borgina sem stóð í þeirri trú að Parka væri gjaldfrjálst, lítur út fyrir að þeir hafi laumað inn gjaldskrá.
Spes ef einkafyrirtæki geta makað krókinn á bílastæðum borgarinnar og ennþá skrítnara að bílastæðasjóður veit ekki af því!
Eigum við að gera vaktin.is app og rukka fyrir bílastæði? Hljótum að mega það eins og allir hinir.
https://www.bilastaedasjodur.is/greidsl ... /raf-greid

Nkl, sá þetta í dag, hefur nefnilega verið frítt hingað til, sýnist að þau hafi byrjað að rukka í byrjun mánaðar.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 18:52
af russi
Parka hefur virkað best og það var frítt. Líklega hefur það breyst í síðustu viku þegar útlitsbreyting varð á appinu þeirra.
Held ég færi mig í annað app sé þetta satt.

— bætt við—

Þetta er greinilega satt, opnaði appið þá blasti þetta við.
Notaði appið síðast á föstudag og þar var ekkert í gangi
Mynd

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 19:52
af elv
Lagði í Hörpu með Parka og gleymdi að skrá mig út. Fattaði það viku seinna ](*,)

Gersamlega ómögulegt að reyna að ná í einhvern til að grenja í

Vissi ekki að Easypark væri erlent. Eða að þa væri hægt að nota Síminn Pay. Prófa Síminn Pay

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 21:31
af ZiRiuS
Getur örugglega fengið einhvern lækni til að skrá þig sem öryrkja og svo færðu bara P-merki og búmm, þarft aldrei að greiða stöðumæli aftur

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 21:35
af Moldvarpan
Þú ert að tala um spassapassa.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 21:37
af ZiRiuS
Ableisti...

Ég fíla þig

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 22:19
af einarhr
ZiRiuS skrifaði:Getur örugglega fengið einhvern lækni til að skrá þig sem öryrkja og svo færðu bara P-merki og búmm, þarft aldrei að greiða stöðumæli aftur

Það þarf töluvert meira en að vera öryrki til að fá P merki, þú þarft að vera hreyfihamlaður eða hjarta og lungasjúklingur. Margir eru öryrkjar af örðum orsökum.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Þri 15. Mar 2022 22:34
af ZiRiuS
einarhr skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Getur örugglega fengið einhvern lækni til að skrá þig sem öryrkja og svo færðu bara P-merki og búmm, þarft aldrei að greiða stöðumæli aftur

Það þarf töluvert meira en að vera öryrki til að fá P merki, þú þarft að vera hreyfihamlaður eða hjarta og lungasjúklingur. Margir eru öryrkjar af örðum orsökum.

Takk fyrir að ablesplaina þetta fyrir mér :D

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Mið 16. Mar 2022 12:47
af selur2
Núna fyrst að Parka er farinn að rukka aukalega fyrir þessa þjónustu, er mál að skipta yfir í Síminn Pay...

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Mið 16. Mar 2022 12:48
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Siminn pay er da shit.

Takk fyrir ábendinguna.
Sótti Síminn Pay og prófaði í morgun, virkaði vel!

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 13:47
af GuðjónR
Smá updeit á þennan ágæta þráð.
Tók eftir því við Landspítala Hringbraut að það er ekki lengur merkt með P4 gjaldsvæði heldur PA gjaldsvæði.
Scannaði QR kóðann og sé þá að Öryggismiðstöðin sér um innheimtu en ekki Bílastæðasjóður.
Og þeir bjóða upp á Parka og EasyPark en bæði þessi öpp rukka notendagjöld (86-95 kr) fyrir hvert skipti.
Notaði stæði þarna síðast 13 okt. og borgaði með Síminn Pay, vona að ég eigi ekki eftir að fá sekt fyrir að borga með vitlausu appi. :face

https://greenparking.is/#/lsh

p.s. hvað segir @rapport sérfræðingur í málefnum LSH um þetta?

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 16:42
af playman
Nú veit ég ekki hvað þið eruð að tala um að Parka hafi verið frítt...
Ég hef alltaf þurft að borga færslugjald hjá Parka, 86kr. Alveg síðan í Maí.
parka.png
parka.png (9.52 KiB) Skoðað 3203 sinnum

elv skrifaði:Lagði í Hörpu með Parka og gleymdi að skrá mig út. Fattaði það viku seinna ](*,)

Ertu viss um að þú sért að tala um Parka?
Þegar að ég legg með appinu þá pingar það mig á klukkutíma fresti, og ef gjaldskrá líkur klukkan 16 t.d.
þá sér appið um að skrá mig úr stæðinu klukkan 16.

Svo er spurning hvort að það skiptir máli hvort að maður sé í Reykjavík eða á Akureyri.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 15:05
af HringduEgill
Hef sjálfur notað Leggja sem varð að EasyPark. Virkar vel og er þægilegt, sérstaklega í bílastæðahúsum sem eru með myndavélar. Þá keyrirðu bara inn og út og ert gjaldfærður sjálfkrafa.

Að nota app snýst um þægindi, það er gjaldið sem maður greiðir fyrir. Það er alltaf hægt að greiða í stöðumæli eða vél en það er meira vesen. Í stöðumæli er maður líka að borga í klukkustundum í stað mínútna, þannig maður greiðir yfirleitt of mikið.

Síminn Pay er væntanlega að reyna lokka til sín viðskiptavini í fjarskiptaþjónustu -- það er aðalvaran þeirra. Það er svo spurning hvort Bílastæðasjóður ætti ekki bara að gefa út app.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 15:08
af worghal
HringduEgill skrifaði:...Það er svo spurning hvort Bílastæðasjóður ætti ekki bara að gefa út app.

það var reynt og þeir voru sviknir af einhverju fyrirtæki sem ætlaði að gera appið en gerðu aldrei neitt, svo kom leggja.is og fengu að sinna þessu í staðinn. minni hausverkur fyrir bílastæðasjóð.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 15:12
af HringduEgill
worghal skrifaði:
HringduEgill skrifaði:...Það er svo spurning hvort Bílastæðasjóður ætti ekki bara að gefa út app.

það var reynt og þeir voru sviknir af einhverju fyrirtæki sem ætlaði að gera appið en gerðu aldrei neitt, svo kom leggja.is og fengu að sinna þessu í staðinn. minni hausverkur fyrir bílastæðasjóð.

Svo kostar líka að gera gott app og viðhalda því.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 17:02
af rapport
Fannst geggjað í sumar á bílaleigubíl í Portugal að geta notað EasyPark, bara setja inn númerið á bílaleigubílnum og voila, allt eins og venjulega.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 17:02
af oliuntitled
ég nota síminn pay, var alltaf með parka og uninstallaði því um leið og ég fékk notification um þetta þjónustugjald.
Hef hingað til ekki lent í neinu ves með síminn pay allavega.

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 17:25
af GuðjónR
HringduEgill skrifaði:Að nota app snýst um þægindi, það er gjaldið sem maður greiðir fyrir. Það er alltaf hægt að greiða í stöðumæli eða vél en það er meira vesen. Í stöðumæli er maður líka að borga í klukkustundum í stað mínútna, þannig maður greiðir yfirleitt of mikið.
Já ég sé ekkert að því að greiða fyrir þægindi, ég set hinsvegar spurningarmerki við það að hver sem er geti gefið út app og rukkað fyrir aðgang að almenningseign. Bílastæðasjóður rekur þetta og ætti því að vera fær um að búa til App.
Varðandi Landspítala þá fékk Landspítali leyfi til að rukka sjálfur fyrir sína reiti:
https://www.stjornartidindi.is/Advert.a ... a521be3d98
Nr. 1292/2021 27. október 2021
Um heimild Landspítala til innheimtu gjalds fyrir notkun stöðureita.
Með vísan til 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er Landspítala hér með heimil gjaldtaka fyrir notkun stöðureita sem stofnunin hefur umsjón með.
Landspítali nýtir þetta við Hringbraut en ekki í Fossvogi, þar er Bílastæðasjóður ennþá. Það sem mér finnst skrítið er að þeir ráða einkafyrirtæki til að sjá um innheimtu sem síðan notar tvö önnur einkafyrirtæki til þess líka (Parka og EasyPark) annað er erlent fyrirtæki þannig að þegar þú leggur við spítalan þá greiðir þú útlendingum annarsvegar gjald eða innlendum einkaaðilum.
Þetta er álíka galið og að einkafyrirtæki hafi einkarétt á landslélinu +.is (ISNIC).

Voru þið búnir að sjá hverju eru eigendur EasyPark og Parka?

EasyPark:
EasyPark AB
Hangövägen 25
Stockholm
Parka:
parka.PNG
parka.PNG (265.38 KiB) Skoðað 2958 sinnum

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 21:25

Ég skil hvert þú ert að fara en ef þú horfir í kringum þig þá eru fyrirtæki og einkaaðilar að nota almenningseignir útum allt. Hopp, Zolo, leigubílar, flutningarbílar -- þetta eru allt einkaaðilar að nýta sér innviði sem ríki og sveitarfélög byggja. Þekki þetta ekki með spítalann en sýnist standa á báðum skiltunum að hægt sé að borga í greiðsluvél noti maður ekki EasyPark eða Parka. Þú ræður því hvaða leið þú vilt fara. Bílastæðasjóður fær allavega alla sína upphæð og leyfir einkaaðilum að bera kostnað af appi.

Annars finnst mér eignarhald fyrirtækja vera allt önnur umræða. Ég held að flestum finnist það nú jákvætt ef erlendir aðilar vilja bjóða þjónusta sína á Íslandi eða fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum. Myndum við ekki vilja hafa Netflix, Spotify, Amazon Prime Video, Viaplay o.s.frv. því að peningurinn fer úr landi? Myndirðu frekar vilja kaupa þetta alfarið í gegnum íslenskar sjónvarpsstöðvar?

Ekki gleyma að þú ert í viðskiptum við símafyrirtæki sem er að miklu leiti í eigu erlendra aðila :)

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Mán 14. Nóv 2022 11:39
af GuðjónR
HringduEgill skrifaði: Þekki þetta ekki með spítalann en sýnist standa á báðum skiltunum að hægt sé að borga í greiðsluvél noti maður ekki EasyPark eða Parka. Þú ræður því hvaða leið þú vilt fara. Bílastæðasjóður fær allavega alla sína upphæð og leyfir einkaaðilum að bera kostnað af appi.
Bílastæðasjóður fær víst ekki gjöldin af þessum stæðum merktum PA heldur spítalinn sjálfur, sem er í sjálfu sér jákvætt.

Ég hringdi og kannaði málið, Síminn Pay virkar ekki lengur á Hringbraut en virkar ennþá við Landspítala Fossvogi, amk. þangað til Öryggismistöðin tekur það yfir en þeir útiloka ekki samstarf við Símann varðandi appið í framtíðinni.

Varðandi þessar greiðsluvélar sem notaðar eru þá skil ég ekki af hverju maður þaf að ákveða tímann fyrirfram, af hverju ekki að stimpla sig inn og út og borga fyrir þann tíma sem maður notar eins og maður gerði í bílastæðahúsum.

HringduEgill skrifaði: Ekki gleyma að þú ert í viðskiptum við símafyrirtæki sem er að miklu leiti í eigu erlendra aðila :)
Hahhaha logic, af því að ég nota fjarskiptaþjónustu þar sem ég fæ mest fyrir peninginn þá á ég að vera sáttur við að borga sænsku einkafyrirtæki gjald fyrir það að leggja bílnum fyrir utan íslenska ríkisstofnun. :evillaugh

Re: Stöðumæla öpp kostir/gallar ?

Sent: Mán 14. Nóv 2022 12:14
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Varðandi þessar greiðsluvélar sem notaðar eru þá skil ég ekki af hverju maður þaf að ákveða tímann fyrirfram, af hverju ekki að stimpla sig inn og út og borga fyrir þann tíma sem maður notar eins og maður gerði í bílastæðahúsum.

Þegar maður hefur prófað þær, þá fær maður það á tilfinninguna það hafi ekki verið gáfaðasta fólk landsins sem innleiddi þessar greiðsluvélar.