Skrifborðsstóll

Allt utan efnis

Höfundur
Prowler
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Lau 14. Ágú 2004 16:44
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Skrifborðsstóll

Pósturaf Prowler » Mið 27. Apr 2022 10:33

Með hvejru mæla menn í skrifborðsstólum. Er að pæla í fyrir svona max 100k.
Algjör rugl álagning á þessum stólum hjá þessum fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að selja til fyrirtækja sem fá sennilega 40% afslátt af þessu feik verði til einstaklinga.

Hafa menn prufað að flytja sjálfir svona inn?


The Prowler


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 609
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf dadik » Mið 27. Apr 2022 11:03

Keypti notaðan Herman Miller Aeron frá Ebay UK. Fullt af refurbished dóti til sölu þarna. Þú ert kannski að borga eitthvað aðeins yfir 100k hingað komið en þetta er lífstíðareign. Þótt þetta sé notaður stóll sér ekkert á honum - eins og nýr.

Sendandinn gaf sér einhverjar vikur í að koma þessu til Íslands, en svo kom þetta bara á nokkrum dögum.


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf appel » Mið 27. Apr 2022 12:50

Prowler skrifaði:Með hvejru mæla menn í skrifborðsstólum. Er að pæla í fyrir svona max 100k.
Algjör rugl álagning á þessum stólum hjá þessum fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að selja til fyrirtækja sem fá sennilega 40% afslátt af þessu feik verði til einstaklinga.

Hafa menn prufað að flytja sjálfir svona inn?


Þessar verslanir (Penninn, etc) sem selja skrifborðsstóla eru með afslætti til fyrirtækja, og veita einnig afslætti til starfsmanna fyrirtækja vegna persónulegra kaupa.

T.d. veit ég að ég er með eitthvað um 20% afslátt hjá Pennanum. Þú gætir spurt þessar vesrlanir hvort þú sért með afsláttarkjör.

Þú getur líka reynt að finna einhvern sem þú þekkir sem starfar einhversstaðar og spurt hvort hann geti reddað þessu.

Annars held ég að þú gæti sennilega komist upp með að ljúga bara um það og fengið afslátt, þessi fyrirtæki eru lítið held ég að sannreyna hvort þú starfir á X stað.


*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf rapport » Mið 27. Apr 2022 16:01

Reyna betla smá auka afslátt https://hirzlan.is/vara/enjoy-classic/




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 609
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf dadik » Mið 27. Apr 2022 17:30

Annars hefur IKEA Markus stóllinn verið að fá fína dóma

https://www.ikea.is/products/38869


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf appel » Mið 27. Apr 2022 18:04

Myndi alltaf mæla með að máta alla þessa stóla og sjá hvernig þér finnst.

Myndi velja "sturdy" stól, sem er svona með áþreifanlega gott build quality. Það eru hellings af svona "flimsy" stólum sem er augljóst að þeir endast illa, auðvelt að hrista þá... þeir skrölta allir til á meðan stólar með gott build quality haldast vel saman einsog skriðdrekar.

Mér finnst ekki mikið að borga 100-200 þús fyrir stól. Sérstaklega ef hann endist í langan tima og þú notar mikið. Hugsaðu þetta bara einsog rúm. Þú eyðir X klst á dag í 10 ár, hvað ertu að borga mikið fyrir sérhvern dag í 10 ár? 54 kr.!! Eða 1600 kr á mánuði.
Djöfull væri sniðugt að geta bara leigt stóla :)


*-*


dodzy
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 19. Okt 2010 19:22
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf dodzy » Mið 27. Apr 2022 20:09

mundi prófa bæði jarvfjallet og markus hjá ikea, ég er með markus og er sáttur



Skjámynd

rickyhien
Gúrú
Póstar: 559
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Reputation: 28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf rickyhien » Mið 27. Apr 2022 20:14

tek fram að ég vinn í Elko
langar sjálfur í þennan stól https://elko.is/vorur/zen-home-950-skri ... NHOME950GR (til sýnis í Elko Lindum)
en ef þú ert með budgeti þá er https://elko.is/vorur/zen-phase-003-sto ... ENPHASE003 örugglega mjög góður (ekki til sýnis nema á Akureyra en það er hægt að skila og fá endurgreitt í banka)




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 971
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 38
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf Hlynzi » Mið 27. Apr 2022 20:28

Ég er með Herman Miller Mirra 2, þar áður var ég með bílstól úr Fiat Marea Weekend sem ég smíðaði millistykki fyrir á skrifborðsstólslöpp og var ansi þægilegur, núna hefur hinsvegar heimiliskötturinn erft stólinn og er mjög sáttur við hann, setan passar honum svo vel til að liggja á.

Kinnarps stólarnir eru svona meira budget en það detta oft inn notaðir Herman Miller (voru 2 hérna um daginn) eitthvað á facebook og líka hjá Efnisveitunni.


Hlynur

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf Minuz1 » Fim 28. Apr 2022 00:05

rickyhien skrifaði:tek fram að ég vinn í Elko
langar sjálfur í þennan stól https://elko.is/vorur/zen-home-950-skri ... NHOME950GR (til sýnis í Elko Lindum)
en ef þú ert með budgeti þá er https://elko.is/vorur/zen-phase-003-sto ... ENPHASE003 örugglega mjög góður (ekki til sýnis nema á Akureyra en það er hægt að skila og fá endurgreitt í banka)


Hvaða framleiðandi er þessi Zen?


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

rickyhien
Gúrú
Póstar: 559
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Reputation: 28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Skrifborðsstóll

Pósturaf rickyhien » Lau 30. Apr 2022 13:00

Minuz1 skrifaði:
rickyhien skrifaði:tek fram að ég vinn í Elko
langar sjálfur í þennan stól https://elko.is/vorur/zen-home-950-skri ... NHOME950GR (til sýnis í Elko Lindum)
en ef þú ert með budgeti þá er https://elko.is/vorur/zen-phase-003-sto ... ENPHASE003 örugglega mjög góður (ekki til sýnis nema á Akureyra en það er hægt að skila og fá endurgreitt í banka)


Hvaða framleiðandi er þessi Zen?


xD ég hef ekki hugmynd...ætla að giska Kína...vörurnar koma frá elkjop.no
https://www.elkjop.no/product/gaming/ga ... ifications
stundum eru þau með einhvern "special/exclusive deal" með einhverjum framleiðanda ..kannski er þetta þannig
mjög erfitt að finna hver framleiðandi er allavega xD