Síða 2 af 2

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Lau 11. Jún 2022 00:36
af Nariur
Minuz1 skrifaði:Fullkomlega eðlilegt að Íslendingur flytji til annara landa í leit að betra lífi fyrir sig og sína en að AÐRIR geri það líka er auðvitað algjörlega fáránlegt, það fólk getur bara gist í tjaldi með sína klamedíu. /s

Ókei, hvað hefur það með þennan þráð að gera?

Það er á svo marga vegu ekki sambærilegt. Til dæmis er ekkert land hreint út betra en Ísland, mögulega að einhverju leiti, en ekki algerlega.
Það er líka enginn Íslendingur að fara að flýja land og eiga erfitt með að finna þak yfir höfuðið. Þegar við viljum flytja eitthvert getum við auðveldlega sett það upp fyrirfram og farið í gegnum eðlilegt ferli á okkar eigin pening.
Þeir sem eiga ekki efni á þaki yfir höfuðið væru fífl fyrir að fara úr landi.

Það gerir ástandið í flóttamannamálum hér ekkert betra, en það er enginn samanburður við Íslendinga að flytja út.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Lau 11. Jún 2022 02:58
af daremo
jonfr1900 skrifaði:Ég er bara öryrki og rithöfundur.


Er hægt að kaupa eitthvað eftir þig einhvers staðar?
Hef ekki áhuga á rifrildunum í þessum þræði. Langar bara að styrkja skapandi vaktara.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Lau 11. Jún 2022 08:44
af jonfr1900
daremo skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Ég er bara öryrki og rithöfundur.


Er hægt að kaupa eitthvað eftir þig einhvers staðar?
Hef ekki áhuga á rifrildunum í þessum þræði. Langar bara að styrkja skapandi vaktara.


Ég skrifa aðalega um eldgos og jarðskjálfta á Íslandi. Sögunar hjá mér hafa verið í dvala síðustu tvö ár. Ég hef ekki gefið út neina bók, vegna þess það er erfitt og ég er ekki viss um að ég sé rithöfundur sem skrifar langar bækur um eina sögu.

Ég skrifa á þessar vefsíður sem ég á og rek. Vefir eru misjafnlega virkir hjá mér.

https://eldstod.com/
https://icelandgeology.net/
https://storiesofinfinity.com/
https://spacewatch2.com/
https://jonfr.com/

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Lau 11. Jún 2022 22:08
af jonfr1900
Ég verð eitthvað lítið á internetinu það sem eftir er mánaðar og fram til 5. Júlí þegar ljósleiðarinn er tengdur hjá mér. Ég er búinn með gagnamagnið (eða það er smá eftir) samkvæmt Nova gagnamælingu fyrir Danmörku (EES). Ég nenni ekki miklum auka reikningum.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Lau 11. Jún 2022 23:10
af dadik
Færðu þér ekki bara danskt númer?

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Sun 12. Jún 2022 11:07
af jonfr1900
dadik skrifaði:Færðu þér ekki bara danskt númer?


Ég er að bíða eftir að lögheimilið færist frá Íslandi til Danmerkur svo að ég geti gert það. Vonandi kemur það í næstu viku. Annars þarf ég að senda fyrirspurn til sveitarfélagsins um hvað er að tefja breytinguna á lögheimilinu hjá mér.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Mán 13. Jún 2022 10:15
af dadik
Færð þér bara frelsisnúmer eins og túristarnir nota. Ómögulegt að vera internetlaus.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Fim 16. Jún 2022 09:00
af jonfr1900
Sveitarfélagið sem ég flutti til (Aabenraa kommune) er mjög lengi að skrá mig inn í Danmörku. Þetta virðist vera miklu lengur en venjulega. Þar sem venjulega tekur þetta um viku og hámarki tvær vikur en sá tími er liðinn og ég er ekki ennþá skráður með lögheimili í Danmörku.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Fim 16. Jún 2022 09:41
af Hizzman
Gangi þér vel í Danmörku, Jón Frímann. Þetta er áhugaverður þráður ef þú leyfir okkur að fylgjast með. Er sjálfur að íhuga líf í DK.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Fim 16. Jún 2022 23:06
af jonfr1900
Hizzman skrifaði:Gangi þér vel í Danmörku, Jón Frímann. Þetta er áhugaverður þráður ef þú leyfir okkur að fylgjast með. Er sjálfur að íhuga líf í DK.


Takk fyrir. :)

Ég keypti í dag 1kg af kjúkling sem er frosin og þarf bara að setja í ofn til að elda. Ég hef sem dæmi ekki séð slíkt í búðum á Íslandi (ekki þar sem ég hef athugað en kannski er þetta til á Íslandi þó að ég hafi ekki séð það). Ég borgaði 39,75 DKK (738 ISK) fyrir þetta 1kg af kjúklingi. Þetta er ekki tilboðsverð.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Mán 27. Jún 2022 21:01
af jonfr1900
Þetta er allt að koma hjá mér. Kominn með danskt farsímanúmer og aðgang að 100GB með því (reyndar ótakmarkað fram í Ágúst samkvæmt tilboði en ég nota slíkt magn af gögnum ekki yfir 4G/5G hérna í Danmörku). Ljósleiðarinn og sjónvarpið (notar DVB-C og síðan Android TV fyrir appið, Stofa er hætt að leigja út box samkvæmt tilkynningu frá þeim) verða tengd í næstu viku og þá verður allt komið hjá mér.

Ég hef gert nokkrar breytingar á mínum tölvumálum núna. Ég er hættur að vera með margar tölvur í gangi heima hjá mér og síðan ákvað ég að hætta að mæla jarðskjálfta með þeim búnaði sem ég hef notað síðustu úr. Þar sem sá búnaður er ekki lengur studdur og virkar mjög illa í internet og net umhverfi almennt. Ég ætla að vera með fullt af tölvum, þær verða bara hýstar í VPS þjónustum fyrir lítinn pening eftir þörfum.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Þri 28. Jún 2022 05:21
af straumar
talkabout skrifaði:Við vorum einmitt að selja íbúðina og erum núna að undirbúa flutning til DK í sumar. Maður er uggandi yfir ástandinu í heiminum en verð að viðurkenna að maður er skíthræddur við efnahagsástandið hér, sveiflurnar eru alltaf svo ýktar og ofbeldisfullar. Húsnæðismarkaðurinn hræðir mig og ég er feginn að vera búinn að skrifa undir.

Það svosem fylgir sögunni að við eigum barn með töluverðar sérþarfir og það er útséð með að hún fái þá aðstoð sem hún þarf eða hreinlega á lagalegan rétt á á Íslandi. Við bjuggum 10 ár úti, rúmlega 4 hér, þannig að við erum með allan samanburð á kerfum. Þau eru einfaldlega að þrotum komin á Íslandi, hvort sem það er heilbrigðiskerfi eða félagslega kerfið. Undirfjármagnað, stýrt af hugmyndum og hugsjónum sem oft eiga litla samleið með raunveruleikanum (skóli án aðgreiningar *hóst hóst*).

Nú er það ekki þannig að allt sé fullkomið hinum megin við lækinn, langt langt í frá, en ég get sagt fyrir okkar leyti að hlutir sem við vorum að pirra okkur á og berjast fyrir úti í DK fyrir hönd dóttur okkar, voru lúxusvandamál miðað við baráttu okkar hér. Síðustu árin höfum við verið að berjast fyrir grundvallartilverurétti hennar og mannréttindum sem fatlaðs einstaklings. Það setti árin í DK í allt annað ljós.

Farinn að skoða tilboðsbæklinga hjá búðunum úti til að fá tilfinningu fyrir verðum aftur, sýnist að margt hafi hreinlega ekkert hækkað síðan 2017. Það er enn hægt að fá tvö kassa (60 flöskubjórar) af Tuborg Classic á 185 DKK og kíló af kjúklingabringum á 60 DKK. Þær eru ódýrastar í Bónus á 140 DKK hér á landi... Á móti eru launin ekki jafn há úti, þó það breytist hratt þegar gengið rokkar, en það eru ekki þessar endalausu gegndarlausu sveiflur í öllu. Það er almennt meira jafnvægi og minni hraði.


Jú jú það er allt ódýrara hér en samt rétt eins og heima þá hafa orðið miklar hækkanir og ljóst að margir kaupmenn og framleiðendur eru að nýta sér ástandið til að hækka verð vara. En svona er þetta. Samt er enn miklu ódýrara að lifa hér en heima.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Þri 28. Jún 2022 05:23
af straumar
talkabout skrifaði:Við förum til Vejle. Þetta snerist um að finna réttan skóla fyrir dóttur okkar og hann fannst þar. Það er ofgnótt af leiguhúsnæði í boði á 9-10k + notkun, megnið af því nýbyggingar.

Langaði annars að spyrja þig út í skriffinskuna við innskráningu. Eftir því sem ég les mér til þurfum við bara að bóka tíma hjá Borgerservice og mæta með vegabréfið þangað og staðfestingu frá Sjúkratryggingum, eiginlega alveg eins og fyrir 15 árum.


Hæ ertu kominn í FB grúbburnar fyrir íslendinga í kbh eða damnörku? Getur fengið þar margar upplýsingar.
kær kv

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Þri 28. Jún 2022 05:30
af straumar
dadik skrifaði:Færð þér bara frelsisnúmer eins og túristarnir nota. Ómögulegt að vera internetlaus.


þú notar ekki frelsis númer á netið. Er of dýrt hver síða eða það sem þú gerir tekur svo mikið gb. var mér sagt af símafyrirtækjum hér.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Fim 30. Jún 2022 11:15
af jonfr1900
Ég fékk sendan router (sem ég veit ekki hvað ég mun gera við) frá internet fyrirtækinu mínu. Þar sem ég er með minn eiginn. Þessi router fer í ljósleiðaraboxið en það er hugsanlegt að það sé búið að breyta uppsetningunni frá því fyrir fjórum árum síðan. Þegar ég var síðast með ljósleiðara frá Stofa.

Hitt fyrirtækið sem ég get nota (ég get reyndar verslað við fullt af fyrirtækjum, þar sem það er búið að opna öll þessi dreifikerfi samkvæmt lögum í Danmörku) er YouSee en það er yfir Coax kapal og bíður bara upp á 100Mbps niður og 100Mbps upp. Ásamt sjónvarpsáskriftum og svoleiðis.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Mið 06. Júl 2022 17:50
af jonfr1900
Ég fékk internetið í gær og sjónvarpið. Ég kaupi 1Gbps hraða og það eru engar gagnamælingar í Danmörku á þessum tengingum. Sjónvarpið er sent með DVB-C yfir ljósleiðarann og því þarf ég ekki nein aukabox til að ná því.

Re: Þá er ég fluttur til Danmerkur

Sent: Fim 07. Júl 2022 17:31
af jonfr1900
Ég ákvað að kveikja á IPv6 á ljósleiðaranum í Native stillingu og það virkaði fullkomnlega.