Síða 5 af 8

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 10:19
af GuðjónR
Hvað gera rottur ef þú króar þær af inn í horni?
Pútin er slæmur á því leikur engin vafi, en hann er Móðir Teresa í samanurði við Yevgeny Prigozhin og þann hrylling sem hann stendur fyrir.

Spurning hvað gerist núna þegar Rússar þurfa að berjast við eigin menn á sama tíma og þeir eru að berjast við Úkraínu/Nato?

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 10:30
af mikkimás
GuðjónR skrifaði:Pútin er slæmur á því leikur engin vafi, en hann er Móðir Teresa í samanurði við Yevgeny Prigozhin og þann hrylling sem hann stendur fyrir.

Sammála, en þótt Prigozhin sé meira brutal en Pútín, þá er kannski möguleiki að sá fyrrnefndi geri sér grein fyrir því hvað þetta stríð sé heimskt og tapað. Þetta er spurning um að vera nógu gáfaður til að velja réttu óvinina. Wagner gerði það ekki í Sýrlandi eins og frægt er orðið. Á einum tímapunkti var þeim stútað af Bandaríkjaher.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 11:07
af mikkimás
Screenshot 2023-06-24 110651.png
Screenshot 2023-06-24 110651.png (312.7 KiB) Skoðað 3868 sinnum

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 12:56
af appel
Pútín gæti verið dauður á morgun. Þessir Wagner liðar eru að nálgast Moskvu, og enginn vill berjast við þá, herinn eða neinir, þeir ætla bara að lúffa fyrir þeim og leyfa þeim að taka yfir.
Það eru engir í rússlandi til að verja Pútín-stjórnina, það er búið að senda alla til Úkraínu, þessi wagner liðar eru basically óáreittir og geta tekið yfir Kreml án vandkvæða.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 12:58
af mikkimás
Pútín er líklega farinn til St. Pétursborgar.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 13:01
af mikkimás
Við höldum í vonina:

Screenshot 2023-06-24 130025.png
Screenshot 2023-06-24 130025.png (70.94 KiB) Skoðað 3801 sinnum

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 13:22
af rapport
mikkimás skrifaði:Við höldum í vonina:

Screenshot 2023-06-24 130025.png

Úrkaína ætti a.m.k. að skoða það af fullri alvöru að bjóða uppá uppgjöf og reyna að endurheimta landsvæði hratt og auðveldlega.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 14:05
af mikkimás
Tjéténskar herveitir Kadyrovs á bandi Pútíns (í orði hið minnsta) eru komnar til Rostov.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 14:25
af sundhundur
mikkimás skrifaði:Pútín er líklega farinn til St. Pétursborgar.

Og Lukasjenkó eða allavega fjölskyldumeðlimir hans til Tyrklands.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 14:45
af mikkimás
:lol:

Screenshot 2023-06-24 144505.png
Screenshot 2023-06-24 144505.png (860.17 KiB) Skoðað 3727 sinnum

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 15:41
af jonfr1900
Líklega mun öll sókn rússlands inn í Úkraínu falla saman á næstu dögum, gæti tekið tvær vikur eða þrjár í það lengsta að klárast þar á öllu svæðinu (þetta er mjög stórt svæði sem er rússland er búið að innlima og hernema). Það er spurning hvort að rússland sem ríki sé einfaldlega ekki bara búið að vera, þetta mun falla í sundur í fullt af smáríkjum eftir mjög blóðuga borgarastyrjöld.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 16:30
af Tbot
rapport skrifaði:
mikkimás skrifaði:Við höldum í vonina:

Screenshot 2023-06-24 130025.png

Úrkaína ætti a.m.k. að skoða það af fullri alvöru að bjóða uppá uppgjöf og reyna að endurheimta landsvæði hratt og auðveldlega.

Það er ekkert til í þessu dæmi sem heitir hratt og auðveldlega.
Núna væri að sækja á rússana og sprengja þá til baka þannig að úkranínumenn nái að eyða sem flestum herdeildum rússa á þessum svæðum.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 16:43
af rapport
Tbot skrifaði:

Mér þætti eðlilegra að gefa þeim tækifæri til að gefast upp, þetta er ekki tölvuleikur og stríðið er í raun ekki milli hermannana og það á ekki að vera drepa að óþörfu, það er nægur hryllingurinn nú þegar.

ENmhOnBXsAETH7F.jpg
ENmhOnBXsAETH7F.jpg (234.64 KiB) Skoðað 3658 sinnum

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 17:58
af Tbot
rapport skrifaði:
Tbot skrifaði:
rapport skrifaði:
mikkimás skrifaði:Við höldum í vonina:

Screenshot 2023-06-24 130025.png

Úrkaína ætti a.m.k. að skoða það af fullri alvöru að bjóða uppá uppgjöf og reyna að endurheimta landsvæði hratt og auðveldlega.

Það er ekkert til í þessu dæmi sem heitir hratt og auðveldlega.
Núna væri að sækja á rússana og sprengja þá til baka þannig að úkranínumenn nái að eyða sem flestum herdeildum rússa á þessum svæðum.

Mér þætti eðlilegra að gefa þeim tækifæri til að gefast upp, þetta er ekki tölvuleikur og stríðið er í raun ekki milli hermannana og það á ekki að vera drepa að óþörfu, það er nægur hryllingurinn nú þegar.

ENmhOnBXsAETH7F.jpg

LOL

Svafstu í sögutímum í menntaskóla, eða er grænkerafæðið að gera útaf við þig.

Stríð eru næstum alltaf háð á milli landa og aðalþátttakendur í þeim eru hermenn.

Rússland réðst inn í Úkraínu og Úkraína, þ.a. landsmenn sem ákváðu að verja land sitt svo þeir yrðu ekki innlimaðir (á ekki við þá sem flúðu undan merkjum til vesturlanda).
Stríð gengur út á að eyða andstæðingnum þannig að hann geti ekki varist.
Að sjálfsögðu viltu eyða sem flestum hermennum núna þannig að þú þurfir ekki að berjast við þá aftur eftir 5,10 eða 15 ár þegar Rússland væri búið að rétta úr kútnum aftur.

Miðað við þinn hugsanahátt, átti þá Úkraína að bara segja við Rússana, gjörið svo vel og takið yfir landið. Af því einhverjir gætu dáið.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 18:17
af rapport
Tbot skrifaði:LOL

Ég er bara ekki það barnalegur að halda að stríð séu eins og slagsmál þar sem það verður að drepa andstæðinginn til að vinna, hann má tappa og gefast upp.

Úkraína græðir ekkert á að sína hermönnum miskun og draga stríðsglæpamenn fyrir dómstóla. Þá er ég ekki að segja að Úkraínumenn séu allir hvítar dúfur sem geri ekkert ljótt og fremji enga glæpi í stíði.

En punkturinn er að hermenn Rússa vita líklega fæstir af hverju þeri eru þarna og fyrir hvað þeir eru að fórna sér en Úkraínumenn eru með málstað og þjóð sem þeir eru tilbúnir að deyja fyrir.

Samanburður Rússa við Orka í LOTR er nefnilega ekkert svo galinn, hugsanahátturinn og málstaður þeirra í þessu stríði er óverjandi og ljótur enda í raun bara duttlungar einræðisherra sem ætlaði að vera bully.

Úkraína hefnir sín best með því að láta ekki draga sig niður á þetta plan og sína svart á hvítu hver munurinn á þeim og rússum er.

Úkraína ætti að sækja fram og bjóða rússneskum hermönnum að gefast upp, það tekur án efa styttri tíma og kostar Úkraínu minna en að standa í orrustum að óþörfu.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 19:04
af mikkimás
mikkimás skrifaði:Raunveruleikinn er flóknari, en á yfirborðinu lítur þetta út eins og gíslataka.

Gíslataka var það.

En Prick er búinn að sýna Pútler, Shogu og Gerassimov hver er með kúlurnar í þessu sambandi.

Rússnesk stjórnvöld standa á brauðfótum eftir daginn í dag.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 19:19
af rattlehead
wagner hópurinn náði árangri. Nú þegar hann er farinn er lítið eftir enn höfuðlaus her með enga áætlun eða getu.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 20:34
af rapport
Þetta ætti að gagnast Pútín til að meta og sjá hverjir í hans nánasta hring væru honum óhliðhollir.

En þetta er stórskrítið, er einhver sniðugur vinkill á þessari aðgerð?

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Lau 24. Jún 2023 22:12
af appel
mikkimás skrifaði:Rússnesk stjórnvöld standa á brauðfótum eftir daginn í dag.

Mikið rétt.

Wagner er með alls 20-25 þús menn á sínum snærum, en líklega voru það ekki allir sem fóru í áttina að Moskvu. En ég tel að ef þeir hefðu í raun farið inn í Moskvu þá hefðu þeir getað tekið yfir Kreml, framið valdarán.

Það sýnir hve veikburða Pútín-stjórnin er orðin, að "aðeins" um 15 þús menn hefðu getað tekið yfir landið, og einnig sú staðreynd að þeir mættu engri mótspyrnu í raun, var í raun fagnað. Ég er nokkuð viss um að þeir hermenn sem voru í Moskvu hefðu líklega bara haldið sig til hlés að mestu og leyft valdarán, enda allir örugglega komnir með hundleið á Pútín og þessu stríði.

Þannig að staða Pútín-stjórnarinnar hefur veikst umtalsvert, búið að afhjúpa hve veikburða hún er. Þetta gæti opnað augu almennings fyrir að fara í fjöldamótmæli, og það gæti hugsanlega bara orðið svona "color revolution" í Rússlandi þegar menn hætta að vera hræddir við yfirvöld.

Svo sér náttúrulega ekki á svörtu, orðspor Rússlands út á við er í algjöru rusli, svo kemur þetta ofan á það, og eina sem hægt er að álykta er að Rússland er bara búið að devolvast í einhverskonar stríðsherraríki einsog er sumsstaðar í Afríku.
Þetta gæti verið byrjunin á einhverskonar ferli þar sem Rússland brotnar í sundur.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Sun 25. Jún 2023 05:41
af brain
Er er þetta kannski bara leikþáttur ?
Wagner liðar allt í einu á leið til Hvíta-Rússlands í "útlegð"

Hvíla sig, skotfæri , manna upp, fara svo og sækja að Kiev, úr noðri.

Ef þeir hefðu verið sendir beint til Hvíta-Rússlands þá hefðu bjöllur hringt, en svona þá komast þeir þangað.

Bara skot...

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Sun 25. Jún 2023 09:38
af rapport
brain skrifaði:Er er þetta kannski bara leikþáttur ?
Wagner liðar allt í einu á leið til Hvíta-Rússlands í "útlegð"

Hvíla sig, skotfæri , manna upp, fara svo og sækja að Kiev, úr noðri.

Ef þeir hefðu verið sendir beint til Hvíta-Rússlands þá hefðu bjöllur hringt, en svona þá komast þeir þangað.

Bara skot...

Þetta hljómar kjánalega líklegt og afsökunin verður "við vildum vinna traust Pútíns aftur".

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Sun 25. Jún 2023 09:57
af nidur
Það er augljóst að hopium í vestrænum fjölmiðlum er að hafa mikil áhrif á flesta hérna.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Sun 25. Jún 2023 12:35
af GuðjónR
Var þessi gjörningur sviðsett leikrit?

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Sun 25. Jún 2023 13:48
af mikkimás
GuðjónR skrifaði:Var þessi gjörningur sviðsett leikrit?

Nei.

Alltof kostnaðarsamt leikrit fyrir rússnesk stjórnvöld.

Trúverðugleiki þeirra og traust innanlands er í molum á stríðstímum.

Vestrænar leyniþjónustur væru löngu búnar að sjá í gegnum þá áform, eins og þau gerðu í aðdraganda stríðsins.

Re: Stefnir í þriðju heimsstyrjöldina

Sent: Sun 25. Jún 2023 14:43
af appel
GuðjónR skrifaði:Var þessi gjörningur sviðsett leikrit?

Annaðhvort er þetta allt saman vel hannað leikrit eða mannskepnan er alveg fáránlega heimsk, ég veðja á #2.