Síða 1 af 5

Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 19:07
af Tbot
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... ldabrefau/

Borgin þarf 21 milljarð að láni 2023 til að reka sig.

Bullið fer sífellt versnandi.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 19:30
af appel
Nóg búið að vara við þróuninni í gegnum árin. En aldrei hlustað á varnaðarorð, alltaf bara reynt að útskýra hvað borgin stendur vel, hvað hún ætti mikið af eignum oþh. En fjárfestar sjá að hún stendur illa og vilja ekki lána. Kannski hafa þeir ekki lesið allar útskýringarnar á spjallvefum internetsins, og skilja ekki hvað hún stendur frábærlega!

En það eru fleiri sveitafélög sem eru á brúninni, einsog Árborg. Afhverju er enginn lærdómur dreginn af reynslu annarra? Sýnist að Árborg sé í svipaðri stöðu bara og Reykjanesbær var í c.a. 2008. Svo las ég að aðeins sjálfstæðismenn eru í sveitastjórninni (hreinn meirihluti, 6/11) þar einsog í Reykjanesbæ þá! Mannskepnan er nokkuð vitlaus.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 20:51
af worghal
borgin er búin að vera hálf gjaldþrota í meira en áratug

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 21:04
af elv
Er með poppið tilbúið. Núna vantar bara rapport á þennan þráð :guy

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 21:35
af Njall_L
appel skrifaði:Sýnist að Árborg sé í svipaðri stöðu bara og Reykjanesbær var í c.a. 2008. Svo las ég að aðeins sjálfstæðismenn eru í sveitastjórninni (hreinn meirihluti, 6/11) þar einsog í Reykjanesbæ þá!

Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks í Árborg tóku reyndar við eftir síðustu kosningar af fyrrverandi meirihluta Miðflokks, Framsóknar og Samfylkingar þar sem Sjálfstæðismenn höfðu mestalt kjörtímabil talað gegn glórulausri skuldsetningu sveitafélagsins síðastliðin kjörtímabil.

Þurfum ekki að leita lengra en í svæðismiðlana til að sjá skrif oddvita Sjálfstæðisflokksins á þessu tímabili:
https://www.dfs.is/2018/08/02/hvad-er-ad-fretta/
https://www.dfs.is/2019/11/13/a-hvada-v ... -i-arborg/
https://www.dfs.is/2019/11/28/hafa-skal ... reynist-2/
https://www.dfs.is/2021/05/19/thetta-er ... -i-arborg/
https://www.dfs.is/2022/05/10/gosi/
https://www.dfs.is/2022/03/16/svona-er-stadan/

Ætla svosem ekki sjálfur að taka neina rétt vs. rangt afstöðu í þessum atriðum en finnst sjálfum rangt að benda á Sjallana af því þeir sitja núna í meirihluta.

Stóri munurinn á stöðu Árborgar og Reykjavíkurborgar er að Árborg viðurkenna sinn vanda og (virðast) vilja leita leiða til að rétta úr kútnum. Það er ekki að sjá að neitt slíkt sé á planinu hjá Reykjavíkurborg.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 21:47
af rapport
elv skrifaði:Er með poppið tilbúið. Núna vantar bara rapport á þennan þráð :guy

Ég fylgist bara spenntur með :-)

Framtíðin er björt...

p.s. störf í boði:

https://alfred.is/starf/throunarstjori- ... nna-lausna

https://alfred.is/starf/skrifstofustjor ... ithjonustu

https://alfred.is/starf/taeknistjori-stafraenna-lausna

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 11. Apr 2023 21:58
af rapport
Njall_L skrifaði:
appel skrifaði:Sýnist að Árborg sé í svipaðri stöðu bara og Reykjanesbær var í c.a. 2008. Svo las ég að aðeins sjálfstæðismenn eru í sveitastjórninni (hreinn meirihluti, 6/11) þar einsog í Reykjanesbæ þá!

Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks í Árborg tóku reyndar við eftir síðustu kosningar af fyrrverandi meirihluta Miðflokks, Framsóknar og Samfylkingar þar sem Sjálfstæðismenn höfðu mestalt kjörtímabil talað gegn glórulausri skuldsetningu sveitafélagsins síðastliðin kjörtímabil.

Þurfum ekki að leita lengra en í svæðismiðlana til að sjá skrif oddvita Sjálfstæðisflokksins á þessu tímabili:
https://www.dfs.is/2018/08/02/hvad-er-ad-fretta/
https://www.dfs.is/2019/11/13/a-hvada-v ... -i-arborg/
https://www.dfs.is/2019/11/28/hafa-skal ... reynist-2/
https://www.dfs.is/2021/05/19/thetta-er ... -i-arborg/
https://www.dfs.is/2022/05/10/gosi/
https://www.dfs.is/2022/03/16/svona-er-stadan/

Ætla svosem ekki sjálfur að taka neina rétt vs. rangt afstöðu í þessum atriðum en finnst sjálfum rangt að benda á Sjallana af því þeir sitja núna í meirihluta.

Stóri munurinn á stöðu Árborgar og Reykjavíkurborgar er að Árborg viðurkenna sinn vanda og (virðast) vilja leita leiða til að rétta úr kútnum. Það er ekki að sjá að neitt slíkt sé á planinu hjá Reykjavíkurborg.

Borgin er frekar opinskátt búin að vera leita leiða til að gera allt sitt sýnilegt og eiga samráð við borgara og fyrirtæki:

https://reykjavik.is/frettir/92-hagraed ... tatillogur

https://reykjavik.is/opin-fjarmal

https://reykjavik.is/frettir/tillaga-ad ... l-umsagnar

Um þróun mála hjá Árborg til 2020 - https://www.sunnlenska.is/adsent/skuldi ... -arborgar/

En Árborg er líklega það sveitafélag á landinu sem hefu vaxið einna hraðast um 12% frá 2020 og þvílík uppbygging orðið á Selfossi.

Þannig að ég get rétt ímyndað mér að það hafi kallað á að taka lán og fjárfesta í innviðum.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 12. Apr 2023 00:48
af jonfr1900
Það má ekki hækka skatta á Íslandi. Því eru holur í vegum og sveitarfélög á hausnum. Þetta er ekkert eingöngu svona í Reykjavík. Síðan er þetta almennt slæm fjármálastjórnun, verðtryggð lán og fleira.

Skuldir Árborgar vaxa hratt og bærinn nálgast greiðslufall (Vísir.is)

Í tilfelli Selfoss er ástæðan (og örugglega svona í Reykjavík og víðar) verðtryggð lán sem sveitarfélagið tók og þau lán hækka bara eins og verðtryggð lán gera alltaf.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 12. Apr 2023 07:23
af Hlynzi
Nú hafa skuldir sveitafélaga ALDREI verið borgaðar niður - einstaka sinnum batnar skuldahlutfallið. Er ekki bara kominn tími til að afskrifa skuldir sveitarfélaga þar sem þessi lán eru farin að sliga kerfið svo mikið að á endanum fer ÖLL innkoma í að greiða þær, það mun auðvitað aldrei ganga upp.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 12. Apr 2023 08:54
af Dr3dinn
Bíð eftir auka 5% útsvars spilinu sem var spilað með Álftanes og Reykjanesbæ, þá fer fólk fyrst að fatta alvöruna í þessu.

Það er samt valkvæmt að búa í sumum sveitarfélögum ekki skylda. Auðveldara að flytja milli sveitafélaga en landa.

Það þarf ekki að drekka coolaidið hans DagsB.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 12. Apr 2023 09:06
af rapport
https://www.vb.is/skodun/dagur-og-einar ... ljordunum/

Ég vona innilega að ársreikningurinn verði betri en búist hefur verið við, ætla að binda vonir við það.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 12. Apr 2023 09:52
af dadik
rapport skrifaði:Um þróun mála hjá Árborg til 2020 - https://www.sunnlenska.is/adsent/skuldi ... -arborgar/

En Árborg er líklega það sveitafélag á landinu sem hefu vaxið einna hraðast um 12% frá 2020 og þvílík uppbygging orðið á Selfossi.

Þannig að ég get rétt ímyndað mér að það hafi kallað á að taka lán og fjárfesta í innviðum.

Rétt, enda hefur íbúum í Árborg fjölgað um næstum 500 á ári síðan 2017 sem gerir ca. 50% aukningu

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 07:33
af Tbot
jonfr1900 skrifaði:Það má ekki hækka skatta á Íslandi. Því eru holur í vegum og sveitarfélög á hausnum. Þetta er ekkert eingöngu svona í Reykjavík. Síðan er þetta almennt slæm fjármálastjórnun, verðtryggð lán og fleira.

Skuldir Árborgar vaxa hratt og bærinn nálgast greiðslufall (Vísir.is)

Í tilfelli Selfoss er ástæðan (og örugglega svona í Reykjavík og víðar) verðtryggð lán sem sveitarfélagið tók og þau lán hækka bara eins og verðtryggð lán gera alltaf.

Að sjálfsögðu hefur fólk ekki áhuga á að borga meiri skatta nægir eru þeir núna.
Það sem er vandamálið er meðferð ríkis og sveitafélaga á skattpeningum landsmanna.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 07:50
af Tbot
Úff ekki batnar það.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... dsbankans/

Svo er þetta lið tilbúið að eyða hundruðum milljarða af framtíðarskattfé í borgarlínubull sem mun aldrei bera sig og trúlega þarf ekki hundruði milljóna í meðgjöf á hverju ári heldur milljarða.
Rekstur strætó er ekki burðugur.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 08:26
af littli-Jake
Nú spyr ég alveg grænn. Hefur það einhvertiman á síðustu 50 árum að eitthvað sveitarfélaga hafi fjármálin í lagi. Þetta virðast vera sömu fréttir allstaðar. Munurinn helst sá að auðvitað er bara fjallað um þau stærri í fjölmiðlum.

Þetta litla sem ég hef fylgst með rekstri borgarinnar hefur nú ekki vakið hrifningu en ef að meira og minna öll sveitarfélög eru í basli hlítur það að segja eitthvað um umhverfið. Það geta ekki bara verið aular í sveitarstjórnarmálum.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 08:40
af GuðjónR
Það er stundum eins og ráðamenn séu í maníu, um daginn vann handboltalið leik og þá átti að byggja þjóðarleikvang fyrir milljarða og þegar ráðamaður var spurður hvar leikvangurinn ætti að rísa sagði hann, nú auðvitað við hliðina á borgarlínunni. Viku seinna tapaði liðið leik og þá var ekki minnst meira á þjóðarleikvanginn, maníukastið var búið og ráðamenn timbraðir.

Spurning hvar menn ætla að fá 200-300 milljarða fyrir borgarlínu, 25-60 milljarða fyrir þjóðarleikvang og 80-150 milljarða fyrir Sundabraut meðan ekki er hægt að reka Borgina á núlli miðað við lágmarksframkvæmdir og viðhald með útsvarsprósentu í hæstu hæðum og tekjur af fasteignagjöldum sem aldrei hafa sést áður. Þurfum við ekki fleiri lækna og dýralækna í stjórnir hins opinbera?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 09:38
af brain
GuðjónR skrifaði:Það er stundum eins og ráðamenn séu í maníu, um daginn vann handboltalið leik og þá átti að byggja þjóðarleikvang fyrir milljarða og þegar ráðamaður var spurður hvar leikvangurinn ætti að rísa sagði hann, nú auðvitað við hliðina á borgarlínunni. Viku seinna tapaði liðið leik og þá var ekki minnst meira á þjóðarleikvanginn, maníukastið var búið og ráðamenn timbraðir.

Guðjón, Dagur B vill að Ríkið borgi þetta......

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 09:59
af dadik
GuðjónR skrifaði:Það er stundum eins og ráðamenn séu í maníu, um daginn vann handboltalið leik og þá átti að byggja þjóðarleikvang fyrir milljarða og þegar ráðamaður var spurður hvar leikvangurinn ætti að rísa sagði hann, nú auðvitað við hliðina á borgarlínunni. Viku seinna tapaði liðið leik og þá var ekki minnst meira á þjóðarleikvanginn, maníukastið var búið og ráðamenn timbraðir.

Nákvæmlega. Þetta þjóðarleikvangsmál var algjört rugl. Samfélagið nýkomið út úr covid með allri þeirri skuldsetningu sem því fylgdi - og þá nær einhver hagsmunahópur að koma þessu á dagskrá. Allir kóa með - ríki & borg - þrátt fyrir að það séu ekki til neinir peningar. Þetta er skólabókardæmi um nice-to-have verkefni.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 12:01
af rapport
Þetta er eins og að reka húsfélag.

Húsfélagið getur verið rekið á lágmarks útgjöldum og markmiðið að halda bara húsinu við.

En svo eru til húsfélög sem safna fé kaupa 1-2 íbúðir í húsinu til að leigja út og skapa sér tekjur, setja GSM sendi á þakið, skipta um teppi í takt við tísku en ekki slit, mála stigaganginn reglulega og þróa garðinn...

Borgin er alveg að reyna gera borgina betri en ekki bara 100% íhald.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 13:03
af KristinnK
rapport skrifaði:En svo eru til húsfélög sem safna fé kaupa 1-2 íbúðir í húsinu til að leigja út og skapa sér tekjur, setja GSM sendi á þakið, skipta um teppi í takt við tísku en ekki slit, mála stigaganginn reglulega og þróa garðinn...

Borgin er alveg að reyna gera borgina betri en ekki bara 100% íhald.

Vandamálið er að Reykjavíkurborg gleymdi þessu fyrsta skrefi sem ég feitletraði hjá þér.

Ég er hjartanlega sammála þeim segja að Reykjavíkurborg þyrfti að setja öll umframverkefni svo sem Borgarlínu og stokkarlagningu hið snarasta á ís (og fleira svo sem að fækka skrifstofufólki) og leggja áherslu á að greiða niður skuldir næstu 5-15 árin.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 13. Apr 2023 13:21
af vatr9
Það kom fram í fréttum að stór hluti hallanns skýrist af flutningi verkefna frá ríkinu til sveitarfélaga, m.a. málefni fatlaðra.
Sem sagt málaflokkurinn stórlega undirfjármagnaður þegar hann var fluttur.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 14. Apr 2023 22:05
af DJOli
Ef borgin myndi ríða á vaðið og henda í einhversskonar afslætti eða aðrar ívilnanir fyrir byggingu nægilegs magns íbúða þá væri þetta ekki vandamál, en við erum með lúxus-landssvæðaperra og þetta er bullandi vesen.

40.000 íbúðir hljómar eins og helvítis hellingur, og er í raun alveg helvítis hellingur, en það er helvítis hellingur sem Reykjavík þarf á að halda.
40.000 íbúðir hver með fasteignagjöld upp á 500þkr á ári myndi skapa borginni 20 milljarða á ári.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 14. Apr 2023 22:11
af rapport
DJOli skrifaði:Ef borgin myndi ríða á vaðið og henda í einhversskonar afslætti eða aðrar ívilnanir fyrir byggingu nægilegs magns íbúða þá væri þetta ekki vandamál, en við erum með lúxus-landssvæðaperra og þetta er bullandi vesen.

40.000 íbúðir hljómar eins og helvítis hellingur, og er í raun alveg helvítis hellingur, en það er helvítis hellingur sem Reykjavík þarf á að halda.
40.000 íbúðir hver með fasteignagjöld upp á 500þkr á ári myndi skapa borginni 20 milljarða á ári.

Borgin þyrfti að eyða miklu meira en 500þ. í hverja íbúð ef þær fara ekki inn í gróin hverfi.

Nýtt hverfi, Úlfarsárdalur... 10 milljarða skóli og fokdýr samningur um flutning Fram til að reyna að fá lóðir miðsvæðis í borginni.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 14. Apr 2023 22:16
af DJOli
rapport skrifaði:

Það hljómar án gríns samt rosalega eins og eitthvað sem Reykjavík þarf desperately á að halda.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 14. Apr 2023 22:43
af appel
Spurning um að fara skipta Reykjavíkurborg upp.

T.d. legg ég til að:
Grafarvogur og Úfársdalur sameinist inn í Mosfellsbæ. Að auki Kjalarnesið. Þessi hverfi eiga mun meira sameiginlegt með Mosfellsbæ heldur en Reykjavík.

Svo má skoða önnur hverfi, en held að ekkert sé eins borðleggjandi og ofangreint.