Síða 3 af 5

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Lau 29. Apr 2023 15:30
af rapport
vesley skrifaði:Vert er að taka fram að þessi mynd er fyrir núverandi uppgjör og staðan því enn verri hjá borginni.

“ Íbúum hef­ur fjölgað hlut­falls­lega mest í Kópa­vogi á tíma­bil­inu, eða um rúm­lega 20%. Ef horft er á skuld­ir í sam­hengi við íbúaþróun hafa skuld­ir á hvern íbúa í Reykja­vík vaxið um 69% frá ár­inu 2014, en skuld­irn­ar á hvern íbúa í Kópa­vogi hafa lækkað um 11% og 20% í Hafnar­f­irði. Fjölg­un íbúa í Kópa­vogi og Hafnar­f­irði hef­ur þannig lækkað skuld­ir á hvern íbúa sveit­ar­fé­lag­anna, en þró­un­in er öfug í Reykja­vík, þar sem íbú­um hef­ur fjölgað um 15%.”

rapport skrifaði:https://youtu.be/v27VVN1PfYY?t=3773 - Af hverju rauk skuldahlutfallið svona upp?

Þetta var s.s. útskýrt ofar... þetta er vegna breytinga á lögum um hvernig eigi að reikna þetta, þetta er því ekki samanburður á "epli og epli" milli ára.

Capture.JPG
Capture.JPG (93.92 KiB) Skoðað 3714 sinnum

En eins og hann bendir svo á stuttu seinna þá varð þetta hlutfall 270% í hruninu þegar annar meirihluti var og hélst 270% þar til 2011 þegar nýr meirihluti loksins fór að taka á vandanum.

Capture2.JPG
Capture2.JPG (71.21 KiB) Skoðað 3714 sinnum

Svona er nú öll óreglan í þessum fjármálum borgarinnar...

Annars er kjánalegt að nota A+B fyrir mælikvarða á rekstrarstjórnun hjá borginni því B er ekki rekstur borgarinnar heldur annarra fyrirtækja í samstæðunni.

En A+B sýnir heildarábyrgð og árangur/áföll borgarinnar.

Í B hluta eru:

Faxaflóahafnir, Félagsbústaðir, OR, Slökkviliðið, Sorpa, Strætó, Aflvaki, Höfði, Þjóðarleikvangur, Jafnlaunastofa og íþrótta- og sýningarhöllin.

Þarna eru lögaðilar með gríðarlegar eignir og það hefur verið bent á að borgin hagnýti sér verðhækknir á fasteignum Félagsbústaða til að "leiðrétta" sinn halla.

Besta leiðin til að mæla gæði rekstrar borgarinnar er því að nota bara A hlutann.

Að segja að 15.000.000.000 kr. halli borgarinnar sé stórt vandamál, þá er það satt. Þetta er stórt vandamál en borgin er langt frá því að vera á slæmum stað og hefur verið í þessari sömu stöðu áður.

En svo má líka benda á að þessi hækkun á skuldbindingum er ekki gjaldfallin, þetta gæti gengið til baka að einhverju leiti áður en þær verða innheimtar.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 01. Maí 2023 17:05
af rapport
https://honnunarmars.is/dagskra/2023/vi ... abetriborg

Hér er frábært tækifæri til að kynnast því hvernig starfsemi borgarinnar þróast og um leið hafa áhrif.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 16:08
af Tbot
ÚPS smá villa í bókhaldinu hjá borginni, aðeins um nærri 2,5 milljarða til hins verra.

Þannig að veltufé var ekki jákvætt um 400 milljónir, heldur neikvætt um 2 milljarða.

Jæja rapport, þú getur blaðrað og blaðrað ásamt því að sýna alls konar tertur og súlurit.

Niðurstaðan er ósköp einföld rekstur borgarinnar er í kalda kol.

rapport, ef þú værir að reka heimili þitt á sama hátt og borgin gerir með sína sjóði, þá væri löngu búið að setja þig í gjaldþrot.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 18:22
af urban
Nú tek ég það fram að ég er bara ómenntaður vitleysingur og kann ekkert á fjármál.

En einsog þetta er orðað.
„í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði sagði að við end­ur­skoðun hafi verðbæt­ur í sjóðstreymi reynst oftald­ar sem nem­ur 2.492 m.kr. og lán­taka van­tal­in um sömu fjár­hæð.“

Er þetta ekki villa uppá 5 milljarða en ekki 2.5 ?
Er ekki DEBIT er 2.5 milljörðum og hátt og KREDIT 2.5 milljörðum of lágt ?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 18:52
af GuðjónR
Hvað eru tvöþúsund og fimmhundruð milljónir á milli vina.
https://www.dv.is/eyjan/2023/5/5/villa- ... rda-krona/

T.d. 385 Teslur Y model úr kassanum.
Eru leikskólakrakkar að sjá um útreikningana fyrir borgina?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 19:03
af rapport
Ég ætla ekki að reyna að afsaka þessi mistök, þau gerðust og kerfið virkaði því þau föttuðust við endurskoðun ársreiknings sem stjórn hafði samþykkt.

Auðvitað hefði maður kosið að þetta væru villa á hinn veginn en maður fær ekki allt sem maður vill.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 20:52
af jonfr1900
Það er að koma í ljós að stærsta ástæðan fyrir þessu ástandi eru verðtryggð lán sem Reykjavíkurborg er með. Þessi lán eru að hækka mjög hratt í þeirri verðbólgu sem er núna á Íslandi.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 21:13
af dadik
Þetta er rosaleg staða. Þegar veltufé frá rekstri er orðið neikvætt áttu ekki lengur pening til að borga af lánunum. Grunnrekstur borgarinnar stendur ekki lengur undir sér.

Borgin er með skuldabréfaútboð í næstu viku. Það verður mjög áhugavert að sjá hvað kemur út úr því.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 21:26
af Stuffz
..enn verið að borga reikninginn fyrir Covid?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 21:29
af appel
Stuffz skrifaði:..enn verið að borga reikninginn fyrir Covid?

Öll þjóðin fór í jogging buxurnar og overdósaði á netflix í 2 ár, engin framleiðni, og auðvitað er það skellur fyrir hagkerfið og yfirvöld sem hafa skatttekjur.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 22:17
af Hrotti
GuðjónR skrifaði:Eru leikskólakrakkar að sjá um útreikningana fyrir borgina?

Tja þau þurfa að hafa eitthvað að gera, ekki komast þau inn á leikskóla.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fös 05. Maí 2023 22:25
af Stuffz
Hrotti skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Eru leikskólakrakkar að sjá um útreikningana fyrir borgina?

Tja þau þurfa að hafa eitthvað að gera, ekki komast þau inn á leikskóla.

..Covid + Netflix kynslóðin!

+30% extra Birthrate!

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Lau 06. Maí 2023 21:22
af appel
Eitt skil ég ekki með þessa reykjavíkurborg.

Núna er framundan stærsti og mikilvægasti leiðtogafundur sem nokkru sinni hefur verið haldinn á Íslandi.
En ég var í bíltúr niður í miðbæ og keyrði framhjá Hörpu og nýja Landsbankahúsinu og hótelinu sem er búið að rísa. ENN er lóðin ófrágengin og lokuð af!

Þetta er akkúrat á því svæði sem leiðtogar Evrópu munu ganga um.

Ég skil þetta ekki. AFHVERJU er ekki búið að einfaldlega fá her af mönnum til að klára þessa lóð á einni viku svo þetta sé ekki svona til skammar? Þarna vantar bara að setja grús, sand og svo þjappa og helluleggja. Það er hægt að gera þetta mjög hratt. Ég vona að leiðtogar allrar Evrópu þurfi ekki að sjá þennan íslenska aulahátt.

En þetta er í boði reykjavíkurborgar.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Sun 07. Maí 2023 10:03
af GuðjónR
Stuffz skrifaði:
Hrotti skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Eru leikskólakrakkar að sjá um útreikningana fyrir borgina?

Tja þau þurfa að hafa eitthvað að gera, ekki komast þau inn á leikskóla.

..Covid + Netflix kynslóðin!

+30% extra Birthrate!

+ Bud Light :lol:

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 08. Maí 2023 13:11
af JReykdal
appel skrifaði:Eitt skil ég ekki með þessa reykjavíkurborg.

Núna er framundan stærsti og mikilvægasti leiðtogafundur sem nokkru sinni hefur verið haldinn á Íslandi.
En ég var í bíltúr niður í miðbæ og keyrði framhjá Hörpu og nýja Landsbankahúsinu og hótelinu sem er búið að rísa. ENN er lóðin ófrágengin og lokuð af!

Þetta er akkúrat á því svæði sem leiðtogar Evrópu munu ganga um.

Ég skil þetta ekki. AFHVERJU er ekki búið að einfaldlega fá her af mönnum til að klára þessa lóð á einni viku svo þetta sé ekki svona til skammar? Þarna vantar bara að setja grús, sand og svo þjappa og helluleggja. Það er hægt að gera þetta mjög hratt. Ég vona að leiðtogar allrar Evrópu þurfi ekki að sjá þennan íslenska aulahátt.

En þetta er í boði reykjavíkurborgar.

Þau fara í þetta á næstu dögum...það er íslenska leiðin :)

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 09. Maí 2023 10:42
af Le Drum
appel skrifaði:Eitt skil ég ekki með þessa reykjavíkurborg.

Núna er framundan stærsti og mikilvægasti leiðtogafundur sem nokkru sinni hefur verið haldinn á Íslandi.
En ég var í bíltúr niður í miðbæ og keyrði framhjá Hörpu og nýja Landsbankahúsinu og hótelinu sem er búið að rísa. ENN er lóðin ófrágengin og lokuð af!

Þetta er akkúrat á því svæði sem leiðtogar Evrópu munu ganga um.

Ég skil þetta ekki. AFHVERJU er ekki búið að einfaldlega fá her af mönnum til að klára þessa lóð á einni viku svo þetta sé ekki svona til skammar? Þarna vantar bara að setja grús, sand og svo þjappa og helluleggja. Það er hægt að gera þetta mjög hratt. Ég vona að leiðtogar allrar Evrópu þurfi ekki að sjá þennan íslenska aulahátt.

En þetta er í boði reykjavíkurborgar.

Hélt nú að frágangur lóðar ætti að vera á höndum verktakans/verkkaupa sem keypti byggingarréttinn. Er það ekki annars Landsbankinn sem er að byggja þarna við hlið Hörpu?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 09. Maí 2023 15:52
af appel
Le Drum skrifaði:

Helduru að þjóðarleiðtogar pæli í því? Nei, þeir hugsa "þessir íslendingar eru aular", ekki "þetta fyrirtæki er auli", því auðvitað er þetta bara okkar ákvörðun sem þjóðar og lands að bjóða upp á þetta svona.
Mér er andskotans sama "hver er ábyrgur", það á bara að drullast til að klára þetta og borgin og ríkisstjórnin á að grípa inn í ef það er einhver verktaki einhversstaðar sem er sofandi eða fyrirtæki sem er ekki með þetta í forgangi því jú því er skítsama um einhverja leiðtogafundi.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 09. Maí 2023 23:42
af rapport
Borgin er allt of lin við byggingaraðila um snyrtimennsku og ónæði á byggingartíma sem og tímamörk um frágang o.þ.h.

Hef horft út um hótelglugga í Berlín á byggingu mulda niður og flutta á brott, öll dekk skoluð sem keyrðu út af svæðinu og græjan sem muldi steypuna og hreinsaði járnið úr var indarlega hljóðlát, svæðið girt af með 3m háum krossvið.

Til samanburða er Heklu svæðið í dag skelfing.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 09. Maí 2023 23:47
af appel
The leaders of all the Council of Europe member states have been invited to attend the Summit. Representatives of the five observer states, i.e. the USA, the Vatican, Japan, Canada and Mexico, have also been invited to attend the Summit. Additionally, invitations to attend the Summit have been extended to the leaders of the United Nations, OSCE and the European Union, as well as to the heads of all of the Council of Europe’s principal institutions.

https://www.government.is/topics/foreig ... ik-summit/

Allur hinn siðmenntaði heimur mun mæta þarna annaðhvort þjóðarleiðtogar eða fulltrúar. En við getum ekki hellulegt 300 fermetra og fjarlægt 100 metra af girðingum.

Ég legg til að við byrjum að rassskella fullorðna opinberlega fyrir vanhæfni.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 10. Maí 2023 09:56
af jericho
Lifi einkaframtakið maður! Treystum verktökum til að sinna vinnunni sinni af fagmennsku og heiðarleika með samfélagslega ábyrgð í fyrirrúmi. Skellum bara skuldinni á opinbera aðila. Ef eitthvað er illa gert, þá er það aldrei við einkaaðila að sakast. /s

En nóg af ranti. Veit einhver til þess að sveitarfélag/ríki séu ekki búin að ýta á verktaka til að ganga frá eða hafa snyrtilegt í kringum sig?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 10. Maí 2023 10:07
af rapport
jericho skrifaði:Lifi einkaframtakið maður! Treystum verktökum til að sinna vinnunni sinni af fagmennsku og heiðarleika með samfélagslega ábyrgð í fyrirrúmi. Skellum bara skuldinni á opinbera aðila. Ef eitthvað er illa gert, þá er það aldrei við einkaaðila að sakast. /s

En nóg af ranti. Veit einhver til þess að sveitarfélag/ríki séu ekki búin að ýta á verktaka til að ganga frá eða hafa snyrtilegt í kringum sig?

Ég get lofað því að það eru búnar að fara ótaldar klukkustundir að í ýta...

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... ga_manudi/

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 10. Maí 2023 20:33
af rapport
Ekki að það fegri stöðu RVK nokkuð en hér er að verða 150.000 milljóna greiðslufall hjá sjóði reknum af íslenska ríkinu, á kostnað almennings.

Hvað er þetta búið að vofa yfir lengi, þetta getur ekki verið að koma á óvart.

https://www.visir.is/g/20232413434d/bja ... a-althingi

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 11. Maí 2023 17:09
af Minuz1
rapport skrifaði:Borgin er allt of lin við byggingaraðila um snyrtimennsku og ónæði á byggingartíma sem og tímamörk um frágang o.þ.h.

Hef horft út um hótelglugga í Berlín á byggingu mulda niður og flutta á brott, öll dekk skoluð sem keyrðu út af svæðinu og græjan sem muldi steypuna og hreinsaði járnið úr var indarlega hljóðlát, svæðið girt af með 3m háum krossvið.

Til samanburða er Heklu svæðið í dag skelfing.

Þetta er aulaháttur lögreglunnar að framfylgja ekki lögum.

Það er ólöglegt að óhreinka götur og verktakar komast upp með þetta þar sem lögreglan sinnir þessu ekki.

Það er svona vél við framkvæmdir á nýja sjúkrahúsinu en hvergi annars staðar.
Maður þakkar fyrir að það skuli vera sett grús svo það detti aðeins af bílunum áður en þeir keyra um götur með farm sem er yfirhlaðinn þannig að hann detti af í beygjum og þegar tekið er af stað.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 11. Maí 2023 17:57
af rapport
Minuz1 skrifaði:

Ég var með í einhverju workshopi þegar NLSH var að fara byrja og minntist á þessa sögu úr Berlin og talaði um hvernig veggir bygginsgasvæðisins voru skreyttir fyrir gangandi að skoða og læra um framkvæmdina. Held að þau hafi hugsanlega hlustað.... geggjað :-)

Var að heyra að NLSH verkefnið var að verða sér út um virkilega öflugt fólk í að skipuleggja upplýsinga- og heilbrigðistækni í þeim verkefnum sem NLSH er að ráðast í, held að framtíðin í heilbrigðiskerfinu sé að verða bjartari og bjartari.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Sun 14. Maí 2023 23:04
af rapport
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... milljonir/

70 leikskóla og 40 grunnskólar = lágmark 220 stjórnendur, bara skólastóri og aðstoðaskólastjóri.

200 íbúakjarnar og á hverjum þeirra er forstöðumaður = 420 stjórnendur komnir og þá er öll velferðarþjónustan, sundlaugarnar, söfnin, tölvudeildin og allt borgarskipulag og umhirða ótalin.

Finnst eins og þessir pólitíkusar sem eru að gagnrýna fatti ekki umfang starfseminnar.