Síða 2 af 2

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Lau 13. Maí 2023 11:43
af Moldvarpan
Hizzman skrifaði:Virðist bara vera manngert, sýnist vera dýpra en víkurnar í kring, útskotið hægra megin gæti verið fyrir bát sem bíður. Gæti verið nógu djúpt fyrir kafbát sem siglir á yfirborðinu. Mögulega stutt stopp til að sækja varahlut eða láta veikan skipverja frá borði.


Það er ekki sjens að þeir myndu sigla $368 billion dollara kafbát svona upp að landi.

En þarna sökk Jamestown árið 1881 og líklega hefur verið farið með búnað í og úr sjónum þarna í gegnum tíðina.

https://ferlir.is/reykjanesstrandid-mikla-og-jamestown/

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Lau 13. Maí 2023 12:12
af Hizzman
Moldvarpan skrifaði:Það er ekki sjens að þeir myndu sigla $368 billion dollara kafbát svona upp að landi.


er meira að giska á að þetta hafi verið í notkun fyrir einhverjum áratugum

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Lau 13. Maí 2023 13:46
af Moldvarpan
Hizzman skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Það er ekki sjens að þeir myndu sigla $368 billion dollara kafbát svona upp að landi.


er meira að giska á að þetta hafi verið í notkun fyrir einhverjum áratugum


Þetta gisk er absúrd. Kafbátar munu aldrei komast þarna. Þetta er ekki djúpt. Það sökk skip þarna....

En sýnist tinfoil hattarnir séu komnir upp, þá er ég farinn út.

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Lau 13. Maí 2023 16:32
af jonsig
B0b4F3tt skrifaði:
Hizzman skrifaði:þetta er alveg við kef.

Er þetta mögulega viðkomustaður kafbáta?


Mynd

Veit ekki alveg hvað kafbátar ættu að gera þarna. Það er gjörsamlega ekkert þarna, mér sýnist einnig dýpið ekki vera nærri því nógu mikið þarna til þess að kafbátar komist nálægt landi þarna.
Aftur á móti þá lá strengur/strengir út í sjó þarna eða aðeins norðar sem voru einmitt notaðir í kafbátarleit en ég held að það sé búið að fjarlægja allan þann búnað.


Venjulega nota menn svokölluð sjókort með dýptarlínum þegar þeir spegulera svona....

" $368 billon" kafbátur er með möskva af breiðbands botnstykkjum á sér svo þeir sjá þrívíddarlíkan af landgrinninu mjög skýrt í amk 30mtr radíus útfrá afstöðu kafbátsins. Svo þeir eru ekki að fara rekast utaní eitthvað óvænt nema kannski hval. En það er bara eins og fluga á rúðuna á bílnum fyrir þá.

Mynd

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Sun 14. Maí 2023 10:37
af JReykdal
Kafbátarnir munu koma að landi við Helguvík, sem er stórskipahöfn. Samkvæmt fréttum munu þeir ekki leggjast að landi heldur ferjað út í þá.

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Sun 14. Maí 2023 12:51
af Moldvarpan
JReykdal skrifaði:Kafbátarnir munu koma að landi við Helguvík, sem er stórskipahöfn. Samkvæmt fréttum munu þeir ekki leggjast að landi heldur ferjað út í þá.


Jubb, hérna eru myndir og umfjöllun um þetta. Sem dæmi eru skrúfur á kafbátum hernaðar leyndarmál, það má enginn sjá skrúfuna.

Það eru margar ástæður afhverju þeir koma ekki að bryggju, þeir munu alltaf verða þjónustaðir úti á flóa þar sem þeir getað stjórnað aðstæðunum.

https://www.vf.is/frettir/thjonustudu-kafbat-vid-gardskaga

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Þri 16. Maí 2023 15:25
af haffi210
Svarið er já, ég myndi samt seigja að þetta eru þær árásir sem var viðbúist, árásir frá aðilum sem eru frá Rússlandi, ekki endilega rússnenska ríkið sjálft, þeir eru samt pottþétt á verktaka launum eða eitthvað

https://www.cert.is/frettir-og-tilkynni ... netumdaemi

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Þri 16. Maí 2023 15:29
af Stuffz
haffi210 skrifaði:Svarið er já, ég myndi samt seigja að þetta eru þær árásir sem var viðbúist, árásir frá aðilum sem eru frá Rússlandi, ekki endilega rússnenska ríkið sjálft, þeir eru samt pottþétt á verktaka launum eða eitthvað

https://www.cert.is/frettir-og-tilkynni ... netumdaemi


tja fleiri en Rússinn sem hafa horn í síðu reykjavíkurborgar ;P

https://www.timesofisrael.com/iceland-s ... ts-policy/
https://www.theguardian.com/world/2021/ ... r-facility

Re: Eru góðar líkur á áruás frá Rússum bráðlega?

Sent: Þri 16. Maí 2023 16:04
af Le Drum
Hizzman skrifaði:þetta er alveg við kef.

Er þetta mögulega viðkomustaður kafbáta?


Mynd


Þarna lá hlustunarkapall í sjó fram. Ekki langt frá voru radarbyggingar á vegum Sáms frænda, sem nú er búið að rífa því miður, ásamt radarstöðinni í Rockwille. Voru fín mið á dugguárunum mínum.