Síða 1 af 1

Kerfisstjóri og laun

Sent: Fim 06. Júl 2023 10:41
af ZiRiuS
Halló vaktarar.

Mig langar aðeins að forvitnast þó án þess að setja upp könnun hvað kerfisstjórar hér eru með í laun. Ég er eingöngu að spyrja í eigin þágu og langar í smá samanburð. Ég er nýtekinn við kerfisstjóra hlutverkinu í vinnunni minni eftir að hafa unnið annað skrifstofustarf. Þannig hérna eru nokkrar spurningar:

Hver eru launin þín sem kerfisstjóri?
Hvað ert þú búinn að vinna lengi sem kerfisstjóri?
Ertu kerfisstjóri með háskólagráðu?
Hver er vinnan þín í stuttu máli?
Ert þú með mannaforráð?

Ef þið viljið ekki svara opinberlega þætti mér ótrúlega vænt um ef þið gætuð svarað mér í einkaskilaboðum.

Takk takk.

Re: Kerfisstjóri og laun

Sent: Fim 06. Júl 2023 10:50
af Hizzman
Ættirðu ekki að svara þessum spurningum sjálfur, til að gefa tóninn í spjallinu?

Re: Kerfisstjóri og laun

Sent: Fim 06. Júl 2023 10:58
af ZiRiuS
Ég get sagt frá laununum mínum í PM ef fólk vill vita, endilega hendið á mig skiló :). En launin sem ég er með núna eru náttúrulega ekki kerfisstjóralaun, þessvegna er ég að forvitnast hver þau eru.

En hinar spurningarnar:

Hvað ert þú búinn að vinna lengi sem kerfisstjóri?
2 mánuði

Ertu kerfisstjóri með háskólagráðu?
Nei

Hver er vinnan þín í stuttu máli?
Sé um öll tölvumál á lítilli skrifstofu, í raun öll tæknimál

Ert þú með mannaforráð?
Nei

Re: Kerfisstjóri og laun

Sent: Fim 06. Júl 2023 11:18
af rapport
Tölvulaun.png
Tölvulaun.png (80.8 KiB) Skoðað 2551 sinnum


Skv. Hagstofunni

EDIT: Þessar tölur eru mikið til frá opinbera geiranum þar sem starfaflokkun o.þ.h. er til staðar.

Re: Kerfisstjóri og laun

Sent: Fim 06. Júl 2023 11:33
af ZiRiuS
Þetta eru t.d. allt aðrar tölur en launakönnun VR þegar maður velur kerfisstjóra þar. En alltaf gott að geta borið hluti saman, allavega launatengda hlutann.