Síða 1 af 1

Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 13:51
af billybob
Nú hef ég ekki keypt mér tölvuhluti í um það bil 7-8 ár og varð á að millifæra á tölvutækni þegar ég var að panta. - verslaði við búðina í gamla daga og gerði ráð fyrir því að það væri ekkert mál.

Ég fékk enga staðfestingu á greiðslu eða svar við tölvupósti svo ég reyndi að hringja nokkrum sinnum - ekkert svar - sendi tölvupóst - ekkert svar.

Svo sé ég alla póstana og ruglið varðandi fyrirtækið.

Hvað er að frétta?.. Bankinn getur ekki bakfært því ég borgaði með millifærslu - ég var að hugsa um að bíða bara í 2-3 virka daga í viðbót og heyra svo bara í lögreglunni - ég er ekki í peningastöðu til að kaupa annað kort og gefa honum einhverjar vikur og mánuði til að finna út úr þessu.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 13:55
af Diddmaster
Ég pantaði í síðustu viku sfx power suplay og það var ekkert mál og maður í afgreiðsluni svo ég veit ekki afhverju sumir fá slæma þjónustu

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 13:56
af mikkimás
Beint í Neytendasamtökin. Þau geta svo ráðlagt þér næstu skref.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 14:18
af jonsig
Þurftir þú að gera annan svona leiðinlegan thread um þetta því þú lendir í þessu ? Ekkert nýtt hérna sem var ekki í gamla þræðinum nema einn í fýlu +1

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 14:31
af billybob
jonsig skrifaði:Þurftir þú að gera annan svona leiðinlegan thread um þetta því þú lendir í þessu ? Ekkert nýtt hérna sem var ekki í gamla þræðinum nema einn í fýlu +1


Af einhverjum ástæðum var nýjasti þráðurinn lokaður svo ég gat ekki skoðað hann - einhverjir 2 eldgamlir þræðir síðan í covid og þræðir eitthvað reddit líka .. Held það sé frekar basic að vilja vita hvern maður var að láta hafa stærri part seinustu mánaðalauna og hvort hann sé á lífi eða hvað - Frá mér horft þá lítur út eins og búðin sé ekki einusinni í rekstri .. skiljanlega hafði ég áhyggjur

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 14:40
af appel
Láttu vita hvort þetta leysist.

Persónulega myndi ég alltaf greiða með kreditkort í netverslun, einfaldlega útaf því að það er meira öryggi í því ef eitthvað kemur upp á.
En alltaf best að fara á staðinn og fá vöruna strax og greiða þá.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 14:42
af billybob
appel skrifaði:Láttu vita hvort þetta leysist.

Persónulega myndi ég alltaf greiða með kreditkort í netverslun, einfaldlega útaf því að það er meira öryggi í því ef eitthvað kemur upp á.
En alltaf best að fara á staðinn og fá vöruna strax og greiða þá.



Ja ég er reynslunni ríkari :/

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 17:20
af rapport
Er í boði að millifæra ?

Finnst það eitt og sér smá skrítið, að gera það... enn skrítnara...

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Mið 12. Júl 2023 18:23
af Klemmi
Æji, ekki þetta victim blaming strákar.
Ég skil vel að menn hafi ekki áhyggjur af því að leggja inn á fyrirtæki með kennitölu frá 2004, og ég reyni almennt að greiða smærri fyrirtækjum með eins milliliðalausum hætti og mögulegt er, þar sem ég trúi því að það skili meira í reksturinn hjá þeim heldur en ella.

En að þessu máli, þá er þetta auðvitað ekki gott, en ég held að peningurinn sé ekki glataður, en auðvitað skaltu ekki sína neina linkind, bara hringja og djöflast og heyra í Neytendasamtökunum ef þú nærð engu sambandi. Efast um að lögreglan geti nokkuð gert að svo stöddu, án þess að þekkja það.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 13. Júl 2023 09:10
af Templar
Tölvutækni eru búnir að vera lengi í bransanum svo það ekki neitt athugavert við það að einhver treysti versluninni fyrir millifærslu.
Held að engin geti gert neitt fyrir þig, neytendasamtökin eru bara grín sem að fjölmiðladraslið vitnar einstaka sinnum í og þar stoppar það.
Spurning að skoða hvort að Tölvutækni geti hreinlega verið á verðvaktinni miðað við þetta ástand hjá þeim en veslunin fær svona ákveðið legit credit að hanga á listanum hérna t.d.?

Láttu vita hvernig þetta fer, hvort samskipti eiga sér stað og hvort þú færð vöruna eða ekki.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 13. Júl 2023 09:39
af billybob
Templar skrifaði:Tölvutækni eru búnir að vera lengi í bransanum svo það ekki neitt athugavert við það að einhver treysti versluninni fyrir millifærslu.
Held að engin geti gert neitt fyrir þig, neytendasamtökin eru bara grín sem að fjölmiðladraslið vitnar einstaka sinnum í og þar stoppar það.
Spurning að skoða hvort að Tölvutækni geti hreinlega verið á verðvaktinni miðað við þetta ástand hjá þeim en veslunin fær svona ákveðið legit credit að hanga á listanum hérna t.d.?

Láttu vita hvernig þetta fer, hvort samskipti eiga sér stað og hvort þú færð vöruna eða ekki.


Will do.

Miðað við hvað ég hef lesið þá eru þetta líklegast einhvern veikindi bara - hvort sem þetta er eitthvað til lengri tíma eða styttri - ég var alveg mögulega "jumping the gun" þegar ég fór að panikka yfir því að búðin gæti einfaldlega verið hætt enda beið ég ekki einusinni þessa 5 daga. En þegar ég millifæri á hann rúman 200þúsund kall og svo er ekki svarað í símann og umræðan á netinu er eins og hún er .. þá verður maður fúll ..

það er magnað hvað out-of-office reply á sala@tolvutaekni.is emailið myndi róa mann. "ég er veikur - sinni viðskiptum á morgun eða hinn" - eða "vegna manneklu þá þurfti ég að loka vegna sumarfrís - ef þú keyptir vörur og vilt ekki bíða til *dagsetning* hafðu samband í síma 1231231"

það getur vel verið að hann sé kannski bara að taka 1-5% af hverri sölu - en það breytir því ekki að fyrir viðskiptavinunum getur þetta verið hellings peningur sem hann er að meðhöndla fyrir mann - sérstaklega þegar maður er með húsnæðislán og bíl og er búinn að vera 5 mánuði að safna sér fyrir tölvu.

Ég kom við þarna í gær og einhver kona á staðnum við hliðina sem talaði litla íslensku yppti öxlum og sagði "lasinn?" þegar ég spurði hvort hann hefði sést. - sem bendir þó amk til að hann sjáist inn á milli

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 13. Júl 2023 11:38
af RassiPrump
Templar skrifaði:Held að engin geti gert neitt fyrir þig, neytendasamtökin eru bara grín sem að fjölmiðladraslið vitnar einstaka sinnum í og þar stoppar það.


Það er reyndar ekki alveg rétt hjá þér.
Ég asnaðist til að versla mér síma hjá ónefndu fyrirtæki í fyrra, frekar high end síma sem bilar eftir 3 vikur af notkun þar sem að hátalarinn í honum hætti bara að virka. Senti hann í viðgerð og þeir tuðuðu um að þar sem væri ekkert Motorola verkstæði á Íslandi þyrfti að senda hann til Bretlands og gefa þeim 15 virka daga. Sem að ég gerði og gott betur en það... Var kominn í 20 virka daga þegar ég var farinn að verða frekar óþolinmóður og hringdi í þá, fékk engin svör, hringdi aftur eftir 25 virka daga og aftur engin svör, vildi þá fá endurgreiðslu eða nýjan síma og þeir héldu nú ekki, það væri 14 daga skilafrestur ef innsiglið á kassanum væri ekki rofið og ég mátti ekki setja hann upp í ennþá dýrari síma. Gafst þá upp eftir að hafa verið með símann í rúmlega 8 vikur í "viðgerð", gekk í Neytendasamtökin, sem kostar 6500 á ári, fékk þar strax samband við mjög fínan lögfræðing sem hafði samband við fyrirtækið, þeir hunsuðu fyrstu 2 eða 3 erindin frá lögfræðingnum, en um leið og lögfræðingurinn hótaði að fara með þetta lengra (Kærunefnd vöru-og þjónustukaupa) þá endurgreiddu þeir mér daginn eftir.

ATH, þú þarft ekki að vera í Neytendasamtökunum, það er frí ráðgjöf hjá þeim einu sinni í viku, en þar sem að ég var orðinn brjálaður útí þetta ónefnda fyrirtæki þá ákvað ég að væri þess virði að borga 6500kr fyrir tafarlausa aðstoð.

Þannig að ef þú vilt fara þá leið að leita til Neytendasamtakanna þá ekkert að því.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 13. Júl 2023 11:49
af billybob
sko ég held þetta sé ekki svona mikið stress - sérstaklega eftir að ég komst að því að gaurinn er ekki fluttur úr landi og peningurinn minn fastur í á ónotuðum reikningi eða hverfa í eiturlyfjafíkn - þetta er einhver einn gaur sem virðist vera í basli með fyrirtækið sitt og að halda því opnu.

eins og ég segi - out of office reply eða notification á síðunni myndi bara gera allt gott - ég sá bara á netinu að fólk var að kaupa fyrir 100k+ og ekki heyra í honum í vikur og mánuði - slíkt er bara ekki í boði. - þetta væri annað ef þetta væri tölvutek sem er með lið sem pælir í svona hlutum.

En þegar þetta er einhver einn gaur sem rekur búð þá væri ég bara til í símtal eins og:
ég: "yo.. uh hvenær get ég fengið þetta? hvenær mætirðu í vinnu"
hann: "æj ég mæti ekki fyrr en á föstudag krakkinn veiktist og ég er kominn með flensu sjálfur"
"Nú okei jæja - heyri kannski í þér eftir tvo daga ef ég fæ ekkert update?"
"já flott - afsakaðu þetta"
"Ekki málið láttu þér batna"

- og þá er bara ekkert vandamál!

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 13. Júl 2023 12:30
af Templar
Held að vaktarar ættu að skoða rækilega hvort ekki sé tími til að fjarlægja Tölvutækni af listanum amk. tímabundið því það er klárlega eitthvað að.

Það er ekkert eðlilegt að heyra ekkert frá versluninni og endalaust tal um veikindi er fyrirsláttur.

Ef að Neytendasamtökin geta aðstoðað því menn eru í þeim frábært en þá þarf sá rekstur sem lögfræðingur þeirra talar við að ekki vera í dauðateygjunum, fyrirtæki sem eru að deyja svara ekki svona beiðnum svo þetta er happ og glapp.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 20. Júl 2023 13:29
af billybob
Update:

Hann lét mig hafa vörurnar: hefur víst ekki verið að fara í búðina because a few reasons sem ja.. ég veit ekki hversu gildar mér finnst - en hann bar mjög almennilegur og baðst afsökunar á þessu. Fékk dótið strax afhent og hann sagðist vera að vinna sig niður lista.

Hann semsagt hringdi þegar ég náði loksins að koma til hans tilkynningu.

Ég vona innilega að hann finni út úr þessu með reksturinn, því maður vill styðja við litla manninn (plús hann á stundum hluti sem fást hvergi annarstaðar o.fl.)

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 20. Júl 2023 23:46
af MatroX
Best væri að hringja bara í Pétur eða banka upp á hjá honum þegar svona kemur upp, myndi ekki vera leggja inn á hann miðað við sögurnar sem maður heyrir sérstaklega þegar hann pantar ekki einu sinni vörurnar sem fólk pantar sem eru ekki til á lager, bara æjji kannski með næstu sendingu ef hann nennir í vinnuna svo kemur hann með bull afaakanir

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 21. Júl 2023 11:56
af pattzi
rapport skrifaði:Er í boði að millifæra ?

Finnst það eitt og sér smá skrítið, að gera það... enn skrítnara...


Mér finnst nú ekkert athugavert að það sé í boði?

maður bara sendir kvittun vegna greiðslu....ömurlegt þegar Elko og fleiri búðir hættu með millifærslu


Maður millifærði alltaf enda á maður að geta treyst fyrirtækjum en kort í dag því ekkert annað í boði en sumstaðar millifærsla en þarf þá alltaf að senda kvittun á email

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fim 19. Okt 2023 22:58
af MuGGz
Gamall þráður enn vildi ekki fara stofna nýjan

Langaði að ath hvort einhver hafi verslað við tölvutækni nýlega og hvernig það gekk ?

Og hvernig ætli sé með ábyrgð og viðgerðir hjá þeim

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 20. Okt 2023 08:43
af Mossi__
Var í næsta húsi við Tölvutækni fyrir nokkrum vikum, hádegi á virkum degi.

Allt kyrfilega lokað og læst.

Held að það sé bara reglan núorðið.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 20. Okt 2023 18:44
af rapport
Ég þoli þennan þráð ekki... finnst þetta eitthvað rangt (skil samt að það sé það ekki).

En lítið fyrirtæki sem er lokað í hádeginu á virkum degi... er ekki vísbending um að allt sé í fokki.

Hef séð auglýsingar frá þeim nýlega á FB + held að tengdó hafi verið að versla af þeim fleiri Deco punkta, hann verslaði þá a.m.k. upphaflega hjá þeim, eru aðrir sem selja þá?

Ef þið eruð að pæla, af hverju sendið þið þeim ekki línu á fésinu frekar en að posta hingað?

Það er eins og ásetningurinn sé að letja fólk frá því að versla þarna.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 20. Okt 2023 20:23
af Hausinn
rapport skrifaði:Ég þoli þennan þráð ekki... finnst þetta eitthvað rangt (skil samt að það sé það ekki).

En lítið fyrirtæki sem er lokað í hádeginu á virkum degi... er ekki vísbending um að allt sé í fokki.

Hef séð auglýsingar frá þeim nýlega á FB + held að tengdó hafi verið að versla af þeim fleiri Deco punkta, hann verslaði þá a.m.k. upphaflega hjá þeim, eru aðrir sem selja þá?

Ef þið eruð að pæla, af hverju sendið þið þeim ekki línu á fésinu frekar en að posta hingað?

Það er eins og ásetningurinn sé að letja fólk frá því að versla þarna.

Fólk væri ekki að tala um þetta með svona reglulegu millibili ef það væri ekki klárlega eitthvað í ólagi. Reyndi sjálfur að fara þangað um daginn; allt læst.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 20. Okt 2023 20:56
af Vaktari
Veit um einn sem var að kaupa sér tölvu þarna nýlega.
Fékk hana afhenta viku eftir pöntun og með heimsendingu.
Allavega ekkert vesen með það.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 05. Jan 2024 15:28
af brain
Sá að Tölvutækni er á Já.is skráð núna sem netverslun.

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Fös 02. Feb 2024 16:03
af gogomal
Bought a mouse on the 25. Jan and they haven't shipped it still. Just realized it's been a week. I'll email and see what happens :/

update: they are not responding on emails or phonecalls as of now. im too tired to go by the store so next week im doing chargeback with the bank if they dont get back to me

Re: Jæja - and again - Tölvutækni ásigkomulag?

Sent: Lau 10. Feb 2024 11:08
af Klemmi
gogomal skrifaði:Bought a mouse on the 25. Jan and they haven't shipped it still. Just realized it's been a week. I'll email and see what happens :/

update: they are not responding on emails or phonecalls as of now. im too tired to go by the store so next week im doing chargeback with the bank if they dont get back to me


I'm sorry about your troubles, please contact me so we can finish your business.

Also sorry that the following declaration is only in Icelandic, hope Google translate can help sufficiently:
viewtopic.php?f=33&t=96292