Síða 1 af 1

Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Sun 26. Nóv 2023 21:55
af brain
Hvað sýnist Vökturum um þetta ?

Virkar ? eða bara bull

https://www.visir.is/g/20232494860d/byd ... ong-evropu

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Sun 26. Nóv 2023 22:09
af Ghost
Fyrsta sem ég hugsaði var að þetta væri einhver þvæla en þeir segjast vera tilbúnir að gera þetta á eigin ábyrgð og fá greitt í áföngum. Sé þetta þá ekki nema bara win win fyrir alla. Græjað lítil göng og fyrirtækið fær séns til að sýna að þetta virki.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Sun 26. Nóv 2023 23:01
af Nariur
Það kemur samt ekki fram hvað þetta ætti að kosta.
Það er voða lítið sens í því að borga nokkurra milljarða göng undir eitthvað sem liggur nú þegar út í Eyjar eftir sjávarbotninum.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Sun 26. Nóv 2023 23:48
af dadik
Ég var búinn að lesa um þetta fyrir einhverjum tíma. Tæknin virðist legit en vandamálið er ef það er mikið af vatni í berginu. Svo lengi sem bergið er þurrt á þetta að virka ágætlega.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 01:00
af jonfr1900
Bergið til Vestmannaeyja á þessu svæði er heitt, gljúpt, mjúkt og laust í sér þar sem þetta er ungur bergrunnur ofan á eldri bergrunni (2+ km neðar). Síðan er hætta á því að bora inn í gömul kvikuinnskot á þessu svæði og annað slíkt.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 10:26
af zetor
en afhverju strax vestmanneyjar? er ekki auðveldar a prufa þetta t.d. í vík í mýrdal?

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:05
af Nariur
zetor skrifaði:en afhverju strax vestmanneyjar? er ekki auðveldar a prufa þetta t.d. í vík í mýrdal?

Undir hvað þarf 2,5m göng í Vík í Mýrdal?

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:15
af appel
breytt titlinum, ekki lýsandi að hafa url sem titil.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:26
af Hizzman
zetor skrifaði:en afhverju strax vestmanneyjar? er ekki auðveldar a prufa þetta t.d. í vík í mýrdal?

það verður gott að fá lagnastokk til Eyja. Núna er td vatnslögnin skemmd.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:27
af Baldurmar
Síðast þegar ég skoðaði þetta þá voru þau með "viljayfirlýsingar" við ýmsa staði en engin gögn eða neitt til að sýna að þetta virkaði.
Hefur þetta verið notað einhversstaðar í alvöru verkefni?

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:29
af zetor
Nariur skrifaði:
zetor skrifaði:en afhverju strax vestmanneyjar? er ekki auðveldar a prufa þetta t.d. í vík í mýrdal?

Undir hvað þarf 2,5m göng í Vík í Mýrdal?

göng.png
göng.png (439.65 KiB) Skoðað 2018 sinnum

þetta væri kjörið að prófa þetta þarna

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Mán 27. Nóv 2023 17:36
af arons4
zetor skrifaði:
Nariur skrifaði:
zetor skrifaði:en afhverju strax vestmanneyjar? er ekki auðveldar a prufa þetta t.d. í vík í mýrdal?

Undir hvað þarf 2,5m göng í Vík í Mýrdal?

göng.png

þetta væri kjörið að prófa þetta þarna

Það kemur fram í fréttinni að það séu nokkur ár í að þeir geti farið í að bora sverari göng en svona lagnastokk, þessvegna vildu þeir byrja á því.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 03:34
af Omerta
Það er víst ekki mikil klöpp í fjallinu við Vík og þ.a.l. ekki hægt að gera göng. Guði sé lof, þetta væru mikil náttúruspjöll að mínu mati. Svo skil ég ekkert í mönnum sem dettur í hug að nefna göng til Vestmanneyja. Það er ekkert svo langt síðan það var gos inn í bænum, núna streymir kvika undir Grindavík... þetta er eldjallaeyja sem við búum á. Gjörsamlega sturluð pæling sem ég hélt alltaf að Árni væri bara að kasta fram sem óraunhæfu markmiði svo hægt væri að semja um meira fé fyrir samgöngur með sjó.

Aftur á móti geta Færeyingar gert göng þvers og kruss til eyja sem örfáar hræður búa á. Afhverju getum við ekki gert almennileg göng í meira magni á vest- og austfjörðum? Nýju Dýrafjarðargöngin eru frábært skref en stór hluti byggðar lokast ennþá reglulega frá næstu kjörnum og verslunum. Vík lokast ekki nema veður sé svo slæmt að enginn ætti að vera á ferð hvort sem er. Vegurinn yfir fjallið fer ekki einu sinni það hátt yfir sjávarmál, borið saman við aðra staði á landinu.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 10:10
af Nariur
zetor skrifaði:
Nariur skrifaði:
zetor skrifaði:en afhverju strax vestmanneyjar? er ekki auðveldar a prufa þetta t.d. í vík í mýrdal?

Undir hvað þarf 2,5m göng í Vík í Mýrdal?

[Screenshot]

þetta væri kjörið að prófa þetta þarna

Þú kemur ekki fyrir vegi í 2,5m göngum.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 10:12
af appel
Mætti fara gera göng hérna á höfuðborgarsvæðinu fyrir umferð. Hvernig með Sundagöng?

Það er náttúrulega fáránlegt að byrja á einhverju jafn óraunhæfu og jarðgöng til Eyja. Veit ekki einu sinni hvort Vestmannaeyjar séu nægilegar stórar fyrir svona rampi inn/út úr göngunum. En ekki myndi ég þora að keyra um jarðgöng þarna, sem yrðu væntanlega í gegnum ansi margar sprungur, eldfjall, og gæti fyllst af sjó í jarðskjálftum einsog við höfum sé í Grindavík.

Þetta er jafnlöng vegalengd og yfir Gíbraltar-sundið, frá Spáni til Marokkó. Menn hafa lengi viljað gera brú eða göng þar, en það er ekki talið mögulegt vegna flekaskila og hreyfinga, ásamt sjávardýpi. Göng til Eyja eru enn óraunhæfari en það. Þarna við Gíbraltar-sund búa margar milljónir manna, en það er ekki farið í þessa framkvæmd. En við förum í óraunhæfari framkvæmd fyrir minna en 5 þús hræður? Fáránlegt.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 11:51
af jonsig
Hugsa að það sé eitthvað lengra í bílagöngin því þetta er jú uppvið gosbelti. Og heyrt það af mönnum sem vinna kringum svona lagað að bílagöngin séu verkfræðilega ómögulegt verkefni eins og staðan er í dag.

Líklega eru gerðar mikið minni kröfur til svona tækni -ganga rýmis. Þar sem mikið minni líkur eru á manntjóni.

Ef landeyjahöfn hefði ekki klúðrast svona svakalega, þá væri minni þrýstingur á þetta.

Re: https://www.visir.is/g/20232494860d/bydur-is-lendingum-ad-fa-fyrstu-kyndilborudu-jard-gong-evropu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 12:23
af kizi86
Nariur skrifaði:Það kemur samt ekki fram hvað þetta ætti að kosta.
Það er voða lítið sens í því að borga nokkurra milljarða göng undir eitthvað sem liggur nú þegar út í Eyjar eftir sjávarbotninum.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... r_i_eyjum/
kanski útaf svona? að eina vatnslögnin sem liggur til eyja, er ekki betur varin en þetta, smá plastkápa yfir...

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 18:11
af playman
Merkilegt hvað það eru margir hérna sem að hafa greinilega ekki lesið fréttina, hefði
haldið að það væri gáfulegra að lesa um viðfangsefnið sem þið ætlið að ræða um í stað þess að áætla hvað
sé verið að fjalla um.
Það er ekkert verið að tala um að gera nein umferðargöng til eyja, eingöngu talað um að gera lagnastokk, sem að myndi gera allann flutning
á raforku, vatni og fjarskiptum til eyja öruggari og einfaldari til viðgerða, hugsanlega væri hægt að notast við lagnastokkinn fyrir póstsendingar t.d. líka.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 19:38
af appel
playman skrifaði:Merkilegt hvað það eru margir hérna sem að hafa greinilega ekki lesið fréttina, hefði

Með 2,5 metra breiðum göngum fyrir raflagnir, ljósleiðara, vatn.

Þetta eru nú nokkuð breið göng. Væri kannski hægt að gera svona túbu-skutlur?
Mynd

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 20:30
af jonsig
appel skrifaði:Þetta eru nú nokkuð breið göng. Væri kannski hægt að gera svona túbu-skutlur?
Mynd

Veit ekki með þig, en þegar ég fer til eyja þá tek ég bílinn minn með. Og hann brennir ógeðslegum dísel.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Þri 28. Nóv 2023 23:58
af playman
appel skrifaði:
playman skrifaði:Merkilegt hvað það eru margir hérna sem að hafa greinilega ekki lesið fréttina, hefði
haldið að það væri gáfulegra að lesa um viðfangsefnið sem þið ætlið að ræða um í stað þess að áætla hvað
sé verið að fjalla um.
Það er ekkert verið að tala um að gera nein umferðargöng til eyja, eingöngu talað um að gera lagnastokk, sem að myndi gera allann flutning
á raforku, vatni og fjarskiptum til eyja öruggari og einfaldari til viðgerða, hugsanlega væri hægt að notast við lagnastokkinn fyrir póstsendingar t.d. líka.

Með 2,5 metra breiðum göngum fyrir raflagnir, ljósleiðara, vatn.

Þetta eru nú nokkuð breið göng. Væri kannski hægt að gera svona túbu-skutlur?
Mynd

Stór efast um að það væri nóg pláss fyrir svona stórar skutlur eftir að vatn, rafmagn og allt það sé komið í göngin, allavegana
ekki svo að vel færi um fólk.

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Mið 29. Nóv 2023 00:04
af appel
playman skrifaði:

Spurning um að fá Elon Musk í dæmið, hann er sniðugur og áhugasamur um svona verkefni. Einskonar hyper-loop milli lands og eyja.

Flestir bílar eru nú ekki meira en 1.8 metrar í þvermáli, nóg pláss eftir.
Kannski eyjamenn fá jarðgöng til að flytja þá á milli á mínútu eftir allt saman?

Re: Vísir frétt - Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Sent: Mið 29. Nóv 2023 19:07

Maður hefur nú heyrt heimskulegri hugmyndir. :-k