Síða 1 af 1

Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mán 27. Nóv 2023 10:56
af rapport
https://www.visir.is/g/20232495037d/ske ... -gagnavera

Þetta er skrítið, er þetta hugsanlega markaðstrikk til að skapa panikk og hærra verð?

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mán 27. Nóv 2023 11:03
af vesley
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20232495037d/skerda-orku-til-fisk-verkunar-og-gagnavera

Þetta er skrítið, er þetta hugsanlega markaðstrikk til að skapa panikk og hærra verð?



Þetta er hvorki skrítið né einhver brella.

Þetta er mjög algengt og gert reglulega. Álverin hafa oft fengið skerðingu sem dæmi ásamt öðrum stórum fyrirtækjum.

Við treystum á uppistöðulón sem þurfa vatn til að framleiða rafmagn. Það hefur verið nánast engin úrkoma á árinu og það spilar gríðarlega inn í.
Þetta er t.d. Ástæðan fyrir því að það á að byggja vindmyllugarð við Búrfell ef það væri ekki fyrir álit aðila sem ALDREI ferðast þarna uppeftir eða jafnvel fara ekki út fyrir bæjarmörk Reykjavíkur. Það myndi hafa gríðarleg áhrif á þau uppistöðulón sem eru á því svæði og jafna út framleiðslu.

Það er ekkert nema eyðimörk þarna og vex ekki svo mikið sem gras eða tré.

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:09
af rapport
Hafa úrkomumet ekki verið að falla núna í haust/vetur eftir að hafa staðið í tæp 80 ár á Akureyri og Austurlandi?

https://www.akureyri.net/is/frettir/mes ... g-fra-1946

https://austurfrett.is/frettir/mesta-ur ... skaupstadh

Skv. fréttinni þá er þetta líklega mikið til vegna þess að stórnotendur í nágrenni höfuðborgarinnar eru að nýta sína samninga í meira mæli.

https://www.landsvirkjun.is/frettir/ske ... -gagnavera

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:26
af thrkll
rapport skrifaði:Hafa úrkomumet ekki verið að falla núna í haust/vetur eftir að hafa staðið í tæp 80 ár á Akureyri og Austurlandi?

https://www.akureyri.net/is/frettir/mes ... g-fra-1946

https://austurfrett.is/frettir/mesta-ur ... skaupstadh

Skv. fréttinni þá er þetta líklega mikið til vegna þess að stórnotendur í nágrenni höfuðborgarinnar eru að nýta sína samninga í meira mæli.

https://www.landsvirkjun.is/frettir/ske ... -gagnavera



Ástæðurnar fyrir þessu koma skýrt fram í hlekknum á fréttatilkynningu Landsvirkjunar:

Tíðarfar á Þjórsársvæði var mjög þurrt frá byrjun júlímánaðar sem olli því að Þórisvatn fylltist ekki í haust og niðurdráttur hófst snemma á svæðinu, eða upp úr miðjum september. Önnur miðlunarlón Landsvirkjunar fylltust í sumar og Blöndulón og Hálslón fóru af yfirfalli í lok september. Fylling miðlunarforða í upphafi vatnsárs, sem byrjar 1. október, var 93%. Það samsvarar því að um 350 GWh hafi vantað í forðann í upphafi vetrar


Jafnvel þótt að að það hefði rignt mikið fyrir norðan og austan þá er það væntanlega bara vatnasvið miðlunarlónanna sem skiptir máli í þessu samhengi.

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mán 27. Nóv 2023 12:43
af vesley
rapport skrifaði:Hafa úrkomumet ekki verið að falla núna í haust/vetur eftir að hafa staðið í tæp 80 ár á Akureyri og Austurlandi?

https://www.akureyri.net/is/frettir/mes ... g-fra-1946

https://austurfrett.is/frettir/mesta-ur ... skaupstadh

Skv. fréttinni þá er þetta líklega mikið til vegna þess að stórnotendur í nágrenni höfuðborgarinnar eru að nýta sína samninga í meira mæli.

https://www.landsvirkjun.is/frettir/ske ... -gagnavera


Fínt að taka fram að þetta er ekki einsdæmi, umræðan hefur hinsvegar orðið meiri bæði vegna aukinnar notkunar og líkum á auknum orkuskorti.

Raforkuframleiðsla á Íslandi hefur aukist um sirka 12% síðan 2014.
Það er stórfengleg þörf á auka virkjun hér á landi til að mæta aukinni þörf, og þá að ónefndum vestfjörðum sem eru með viðvarandi orkuskort.


Svo er fínt að vitna í það sem stendur líka í fréttinni

Tíðarfar á Þjórsársvæði var mjög þurrt frá byrjun júlímánaðar sem olli því að Þórisvatn fylltist ekki í haust og niðurdráttur hófst snemma á svæðinu, eða upp úr miðjum september. Önnur miðlunarlón Landsvirkjunar fylltust í sumar og Blöndulón og Hálslón fóru af yfirfalli í lok september. Fylling miðlunarforða í upphafi vatnsárs, sem byrjar 1. október, var 93%. Það samsvarar því að um 350 GWh hafi vantað í forðann í upphafi vetrar.

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mán 27. Nóv 2023 20:10
af Skippo
Það væri eflaust betri staða í Þórisvatni ef Hálslón hefði ekki verið á yfirfalli í 3 vikur. Það er nefnilega þannig að ef það er ekki hægt að flytja rafmagn á milli landshluta til sveiflujöfnunar þá koma upp aðstæður sem þessar. Hitt er síðan enn alvarlegra, regluverk dauðans og samtök fólks sem haldið er fortíðarþrá moldarkofa og lýsisbrennslu.

Landsvirkjun er að auki búin að skortselja sig, það kann aldrei góðri lukku að stýra að selja sig upp í topp og eiga ekki fyrir fyrirsjáanlegum skakkaföllum í búskapnum.

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Þri 28. Nóv 2023 17:30
af jonsig
Hvammsvirkjun (95MW) og víðbót við blönduvirkjun uppá 31MW er svona þetta helsta sem á að virkja næst. Síðan er áætluð einhver vindmylluvitleysa á búrfellslund.

Mörg ár í þetta og hvorki fugl né fiskur á við kárahnjúkavirkjun.

Re: Orkuskortur á Íslandi

Sent: Mið 29. Nóv 2023 12:33
af TheAdder
Það væri nær að setja svo sem eitt kjarnorkuver á Vestfirði, þar sem er stanslaus orkuskortur, og mögulega nokkur til viðbótar þar sem vantar orku.