Síða 1 af 1

Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fim 30. Nóv 2023 23:23
af appel

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 00:35
af appel
$80k, um 11 milljónir, líklega nær 15 eða 20 milljónum komið hingað til lands, bara ágiskun. Basic verð á Toyota Landcruiser 11 milljónir. Þannig að tvöfalt dýrari held ég á endanum.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 03:40
af Henjo
Er þetta einusinni löglegt hérna á landi? hef heyrt að þetta standist ekki öryggisreglur í Evrópu. Því þegar það er talað um að bílar séu öryggir, þá er ekki bara hægt að hugsa um fólkið inní bílnum, heldur líka fólkið í utan bílsins. Held að það sé ekki gaman að vera gangandi vegfarandi og fá þetta á sig (meðan við t.d. "óöruggan" smábíll sem er hannaður þannig að hann valdi minnsta skaða ef hann keyrir á vegfaranda, t.d. með lágu og halandi framenda)

Bílar eins og þessi fá undanþágu í USA því þeir flokkast sem light truck eða eithv, þannig þeir þurfa ekki og geta ekki staðist hefðbundndar öryggiskröfur sem t.d. Toyota Aygo þarf að geta staðist.

Síðan tala ég ekki um það að bíll sem er yfir þrjú tonn að þyngd og er 2.5sek uppí hundrað, mér myndi líða betur ef ég þyrfti ekki deila götunum með þessu... dóti.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 09:36
af litli_b
Mér finnst enginn á Íslandi virkilega þurfa Cyber Truck. Það er bara eitthvað svo óþarfi bíst ég við.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 10:56
af CendenZ
litli_b skrifaði:Mér finnst enginn á Íslandi virkilega þurfa Cyber Truck. Það er bara eitthvað svo óþarfi bíst ég við.

Þarna ætla ég að vera ósammála, auðvitað á að pressa á rafbílavæða sem flesta á landi sem getur búið til fullt af rafmagni :happy

ps, ég er á bensínhák en eftir því sem maður kemst meira að því hversu mikið er flutt inn af olíu, eldsneyti, varahlutum í bensín/dísel osfr er Ísland eitt af þeim löndum sem gæti algjörlega farið electric. Ég er samt engin globalwarmisti, bara alls ekki :megasmile

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 15:06
af Tiger
Er mig að misminna, áttu drægnin ekki að vera miklu meiri en þetta?

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 15:35
af zetor
Tiger skrifaði:Er mig að misminna, áttu drægnin ekki að vera miklu meiri en þetta?

jú og átti að vera ódýrari

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 17:24
af appel
litli_b skrifaði:Mér finnst enginn á Íslandi virkilega þurfa Cyber Truck. Það er bara eitthvað svo óþarfi bíst ég við.

Stór munur á "þörf" og "langar í". Ef það ætti að eingöngu kaupa það sem þú "þarfnast" þá væri lífið mjög einfalt. En útaf því að mannskepnan "langar í" eitthvað þá flækjast hlutirnir.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 18:33
af Ghost
litli_b skrifaði:Mér finnst enginn á Íslandi virkilega þurfa Cyber Truck. Það er bara eitthvað svo óþarfi bíst ég við.

:uhh1 Svona eins og með 90% af hlutum sem fólk kaupir?

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 19:06
af raggos
Ljótur, stór og þungur, ljótur, ryðfrítt stál sem verður martröð að halda hreinu, ljótur, dýr og var ég búinn að segja hvað hann er ljótur.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 19:21
af appel
Hann er allavega einstakur :) Aðeins gaur einsog Elon musk myndi setja svona bíl í framleiðslu. Þyngdin einsog á vörubíl, malbikslit á eftir að aukast með aukinni rafbílaeign.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 19:51
af jonsig
Held að Elon sé sterkastur í sölumennsku, margir sjá ekki sólina fyrir honum og kaupa eitthvað svona rusl bara til að looka cool.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 20:15
af Frost
Þetta er eitthvað...

Mynd

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 20:35
af Henjo
Eins mikið og ég hata svona stóra og "wasteful" bíla þá væri alveg gaman ef það kæmi eitt eða tvö stykki hingað. Væri áhugavert að sjá þetta á götunum, og gaman að eithv bílaframleiðandi þorir að gera eitthv smá öðruvísi. Allir bílar í dag líta alveg eins út, nema akkúrat Teslur. Eini bílaframleiðandin sem nær að hafa sitt eigið útlit.

Smá sorglegt að maður sér nýjan BMW eða jafnvel Maserati, og maður heldur í fyrstu að þetta sé bara eithv Hyundai eða Kia.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 21:02
af jonsig
Henjo skrifaði:Eins mikið og ég hata svona stóra og "wasteful" bíla þá væri alveg gaman ef það kæmi eitt eða tvö stykki hingað. Væri áhugavert að sjá þetta á götunum, og gaman að eithv bílaframleiðandi þorir að gera eitthv smá öðruvísi. Allir bílar í dag líta alveg eins út, nema akkúrat Teslur. Eini bílaframleiðandin sem nær að hafa sitt eigið útlit.

Smá sorglegt að maður sér nýjan BMW eða jafnvel Maserati, og maður heldur í fyrstu að þetta sé bara eithv Hyundai eða Kia.

Ekki fallegt að líkja BMW og meserati við heimasmíðað drasl

Mynd

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 21:36
af appel
Einn mest unique bíll síðan DeLorean.

Held að þessir tveir séu í sömu fjölskyldunni:

Mynd

Mynd

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Fös 01. Des 2023 22:45
af jonsig
Delorian er amk flottur með þessa classísku perragrind að aftan. Ætli cybertruck sé rippoff af honum hmm ?

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Lau 02. Des 2023 00:29
af Henjo
jonsig skrifaði:
Henjo skrifaði:Eins mikið og ég hata svona stóra og "wasteful" bíla þá væri alveg gaman ef það kæmi eitt eða tvö stykki hingað. Væri áhugavert að sjá þetta á götunum, og gaman að eithv bílaframleiðandi þorir að gera eitthv smá öðruvísi. Allir bílar í dag líta alveg eins út, nema akkúrat Teslur. Eini bílaframleiðandin sem nær að hafa sitt eigið útlit.

Smá sorglegt að maður sér nýjan BMW eða jafnvel Maserati, og maður heldur í fyrstu að þetta sé bara eithv Hyundai eða Kia.

Ekki fallegt að líkja BMW og meserati við heimasmíðað drasl

Mynd

Var nu bara tala um útlitslega séð, held lika að þu verðir vonsvikin ef þu heldur að build qualitu hja maserati sé eithv frábært.

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Lau 02. Des 2023 00:39
af appel
Henjo skrifaði:

Btw. þetta er "engineering build" cybertruck, allur merktur þannig, hann er notaður til að prófa að fara um ýmsa jarðvegi og þannig.

https://www.youtube.com/shorts/-70eVBDjxE4

Þeir eru að keyra marga cybertrukka þarna á svona gervi "off-road". Þetta er ekki það sem kaupendur fá. Þetta er "good enough for tests" bílar sem eru ekki seldir neinsstaðar.

Þú sérð að merkingarnar á bílnum sjálfum og umhverfið er það sama og í vídjónu sem ég vísa í, þar sem sést cybertrukkar koma í röð. Þetta er "tesla test range".

Re: Tesla Cyber Truck kominn út

Sent: Lau 02. Des 2023 01:04
af Stuffz
appel skrifaði:..
(Ísland notað til að prómóta Cyber Truck, sjá vídjó þarna)
..

hmm.. og svo "Built For Any Planet"