appel skrifaði:Þetta er ferli sem hófst í raun löngu fyrir tíð Trumps, Biden, Obama, o.s.frv.
Bush yngri klæjaði í fingurnar að ráðast inn í Íran þegar hann var með hersveitir í Írak. Þetta hefur verið vilji BNA lengi, alveg frá 1979.
Annars snýr þetta að stöðu Evrópu gagnvart Rússlandi.
Það er alveg rétt hjá Trump að gagnrýna Evrópu, þetta eru allt bjálfar, veikburða lið.
Bretar geta ekki varið Kýpur, eiga engin herskip lengur, algjörlega steingeldur floti sem var einn sá stærsti í heiminum með mörg hundruð herskip
https://www.telegraph.co.uk/news/2026/0 ... miliation/Tekur viku fyrir eina franska flugmóðurskipið að komast á vettvang
https://www.defensenews.com/global/euro ... flares-up/Evrópa bara einfaldlega getur ekki varið sig. Þessi lönd eru að átta sig á þessu, hvað þau hafa klúðrað varnarmálum sínum, OG ÞESSVEGNA eru Frakkar að koma með þetta útspil með kjarnorkuvopn, sem eru í raun last-resort þeirra sem geta ekki varið sig.
Bandaríkin og Ísrael eru að gera Evrópu stóran greiða í að koma í veg fyrir að Íran komist yfir kjarnorkuvopn, en þetta heimska vanþakklæti er bara yfirþyrmandi að sjá, Bretar og Spánverjar eru að neita BNA um að nota herstöðvar sínar.
https://www.reuters.com/business/trump- ... 026-03-03/https://www.independent.co.uk/news/worl ... 30683.htmlEinsog ég sé þetta... Evrópa fékk alveg að vita að þetta væri að fara gerast, uppbygging bandarískra hersveita átti sér stað yfir mánaðarskeið og Trump hafði hótað þessu. SAMT... SAMT... ÞRÁTT FYRIR ALLT ÞAÐ... þá voru herskip evrópskra landa LANGGGGTTT Í BURTU...ófær um að verja eitt né neitt.
EVRÓPA er bara heimsk og vonlaus.
Tek þetta lið fyrir lið.
1 - Að verja Kýpur... þetta er "herstöð" sem er í raun bara herflugvöllur og verið notaður til að ferja hjálpargögn til Gaza. Rétt eins og Ísland mundi ekki gúddera að sett yrðu upp eldflaugakerfi í Keflavík þá hefur ekki verið gúdderað að setja upp eldflaugakerfi á Kýpur.
Niðurstaða: Varnir stöðvarinnar eru í samræmi við mikilvægi hennar, ákvarðanir og vilja stjórnvalda á svæðinu.
2 - Það tekur viku fyrir flugmóðurskip Frakka að mæta á svæðið... er mjög eðlilegt því að Frakkar eru ekki fávitar eins og USA. Af hverju hefðu Frakkar átt að vera með flugmóðurskip á svæðinu?
Niðurstaða: Af því að Frakkar voru ekki að ota sínum tota og berja sér á brjóst í einhverjum stríðsæsingi... þá voru þeir ekki á svæðinu (ólíkt stríðsherrunum frá US of A)
3 - Evrópa getur ekki varið sig og hefur klúðrað sínum varnarmálum... EÐA... Evrópa stillir vörnum sínum í takt við aðstæður hverju sinni enda ekki heimsendanöttarar eins og sum önnur lönd...
Niðurstaða: Evrópa getur varið sig en er ekki nógu fasísk til að láta ótta um hernaðarógn vera stóran hluta af daglegu lífi íbúa sinna.
4 - Bandaríkin og Ísrael eru að gera Evrópu greiða... svo Íran komist ekki yfir kjarnorkuvopn. Er galið og hugsa og ef þú segir þetta upphátt þá heyrir þú vonandi hversu vitlaust þetta er. Framtíðin verður að byggja á samstarfi, samvinnu o.þ.h. og Ísrael er búið að segja í 20-30 ár að Íran verði komið með kjarnorkuvopn eftir hálft ár... og með sínu stríðsbrölti gegn Íran skapað þær aðstæður að Íranir halda að eina leiðin til að losna við ágang annarra sé að verða sér út um kjarnorkuvopn því að USQA og allir aðrir svíkja hvern einasta samning sem gerður er.
Niðurstaða: Það er engumm greiði gerður með þessu stríði og alls ekki Evrópu. Framferði USA og Ísrael gagnvart Íran og Palestínu einkennist af stríðsglæpum og pólitísku ofstæki en ekki mannúð og virðingu fyrir mannslífum.
5 - Þrátt fyrir að USA hafi stímað á staðinn þá gerði Evrópa ekki neitt... auðvitað ekki, Evrópa vill ekki taka þátt í svona ógeði og vil að sjálfsögðu ekki þynna út sinn herafla þegar það er þegar stríð í gangi í Úkraínu.
Niðurstaða: USA er hjálpa Rússum með því að draga athygli Evrópu frá Úkraínu með stríði sem enginn tilgangur er með og hefði verið hægt að semja sig frá ef einhver raunverulegur vilji hefði verið fyrir hendi. USA er búið að sprengja Íran sundur og saman... því þetta var alltaf tilgangurinn, að starta stríði.
Samantekt:
Evrópa er friðelskandi og er ekki að pikka fight en neyðist til að vera í barnapíuhlutverki að taka til eftir USA því að USA virðist vera einhverskonar pólitískur óviti með allt of mikið af vopnum... sem fer bara sjálfum sér að voða ef enginn hefur vit fyrir þeim.