Síða 1 af 1

Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 17:08
af rapport

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 17:51
af rostungurinn77
Gott mál.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 17:58
af falcon1
Það þarf þá að hækka launin.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 18:00
af falcon1
Finnst samt verra að það eigi að skerða atvinnuleysisbótaréttindi.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 18:40
af rostungurinn77
falcon1 skrifaði:Það þarf þá að hækka launin.


Af hverju?

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 20:28
af rapport
Hef verið í opinbera geiranum nær óslitið frá 2007 og man eftir örfáum skiptum þar sem einhver hefur verið áminntur.
Þau skipti þá hefur það oftast verið vegna vítaverðs gáleysis eða hreinlega fikts (UT) en ef það var ásetningur, þjófnaður á tækjum eða gögnum eða misnotkun á aðgangi þá er það ámnning, uppsögn og jafnvel kæra.

Þannig að þetta "áminning á undan uppsögn" er useless.

En þetta opnar á að ríkið fari að haga sér eins og mörg önnur fyrirtæki, fari í árlegar hreinsanir og losi sig við fólk sem er ekki að standa sig.

Maður hefur oft orðið vitni að því að einhver hreinlega terrorizerar vinnustaðinn með lélegri framkomu og frammistöðu og yfirmenn geta ekkert gert því þetta er ekki nógu alvarlegt til að vera áminning.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 20:48
af rostungurinn77
rapport skrifaði:
En þetta opnar á að ríkið fari að haga sér eins og mörg önnur fyrirtæki, fari í árlegar hreinsanir og losi sig við fólk sem er ekki að standa sig.


Er þetta ekki hægt í dag hvort eð er? Með því að leggja niður stöður.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 22:17
af rapport
rostungurinn77 skrifaði:
rapport skrifaði:
En þetta opnar á að ríkið fari að haga sér eins og mörg önnur fyrirtæki, fari í árlegar hreinsanir og losi sig við fólk sem er ekki að standa sig.


Er þetta ekki hægt í dag hvort eð er? Með því að leggja niður stöður.


Það er meiriháttar mál að leggja niður stöður og það er líka óheiðarleg leið sem getur bitnað á öðrum sem eru að standa sig.

Ef staða er lögð niður er þumalputtaregla að það má má ekkert sambærilegt starf vera hjá stofnuninni í a.m.k. ár. Það má leggja niður starf og úthýsa en sjaldan er eitthvað að græða á því nema þú úthýsir stóru verkefni til fyrirtækis með nlgt capacity.

T.d. gerðum við þetta með alla framlínuþjónustu hjá RVK á sínum tíma, líklega um 12 viðverustöðugildi sem um 20+ starfsmenn OK sinntu eftir útboð sem heppnaðist nokkuð vel.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Fös 12. Sep 2025 22:59
af rostungurinn77
Ég geri mér grein fyrir því hvað það felur í sér að leggja niður stöður.

Mín reynsla er einfaldlega líka sú að vanhæft fólk er ekki látið fara frá opinberum stofnunum vegna þess að það er vöntun á hæfileikum og hefur verið að miklu leyti díðustu áratugina.

Stjórnendur hjá hinu opinbera sitja því uppi með skussa ekki bara vegna ríks réttar heldur vegna þess að þú færð engan í staðinn.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Lau 13. Sep 2025 00:07
af rapport
Ríkið má líka gera minni kröfur, ráða fleiri og þjálfa fólk meira og þannig spotta potential til sð ráða til lengri tína.

En UT hjá ríkinu er alltaf að verða miðlægara og staðlaðra þó við séum enn miklir kúrekar.

Vonandi þarf bara færri í reksturinn og meiri þjónusta aðkeypt eða bara innifalin.

Re: Hvað finnst vökturum um að afnema áminngarskylduna?

Sent: Sun 21. Sep 2025 21:12
af rapport
Spurning hvort að EU mundi gera kröfu um að þetta yrði afnumið því þetta er ákveðin mismunun.