10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Allt utan efnis

Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf jonfr1900 » Þri 09. Feb 2021 22:58

Nýjustu staðlar af 5G útgáfa 16 (sjá hérna) munu ráða við 10Gbps 5G og mun einnig auka orkusparnað í farsímum með nýjum orkustöðlum. Þessi hraði veltur á því farsímakerfi sem er notað og ég er ekki viss um að þetta verði stutt á Íslandi þar sem þetta mun væntanlega krefjast notkunar á 26Ghz tíðnisviðinu. Það eru ekki komnir neinir samskipta örgjörvar sem ráða við 5G útgáfu 17 sem er ennþá í þróun og 5G útgáfa 18 er einnig á leiðinni og er í þróun núna. Sýnist einnig á þróunni að það eigi í framtíðinni að opna fyrir tíðnisviðið 52,6Ghz til 71Ghz fyrir 5G þjónustu.

Hérna eru nánari upplýsingar um Snapdragon X65 sem mun ráða við þennan hraða.

Snapdragon X65: Qualcomm says its next-gen 5G modem handles up to 10Gbps downloads, knows if you're holding it wrong




Hizzman
FanBoy
Póstar: 794
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 135
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf Hizzman » Þri 09. Feb 2021 23:19

Þannig að gagnamagnið klárast á hvað mörgum mínútum? :catgotmyballs

Annars, orkuveitan áformar rauntímamælingu á rafnotkunn og breytileg verð. Veistu hvernig þeir munu tengjast mælunum?




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf jonfr1900 » Mið 10. Feb 2021 11:31

Orkuveitan mun væntanlega nota 5G IoT staðla sem bæði Síminn og Vodafone bjóða upp á. Ég veit ekki hvort að Nova er með svoleiðis þjónustu. Það er hægt að senda gögn með 5G IoT frá 1Mbps upp í 10Mbps en ekki mikið meira en það.

Það sem Síminn býður upp á, Síminn IoT hlutanet.
Ég hef ekki fundið þessa síðu hjá Vodafone.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf jonfr1900 » Mán 05. Apr 2021 02:15

Til að bæta við þetta. Þá sá ég í dag að Evrópa er farin að undirbúa notkun á bandi 257 (26,50 - 29,50Ghz) og með bandvídd uppá 400Mhz á hverja rás. Í 5G þá komast fyrir rúmlega 250Mbps á hver 20Mhz. Þannig að 400Mhz rás ætti að geta boðið upp á 100Gbps (100.000Mbps) í hraða. Í Þýskalandi og Danmörku verða 3250Mhz í boði á þessu tíðnisviði. Gallinn er auðvitað sá að þetta tíðnisvið drífur mjög stutt og veður truflar það mjög auðveldlega.

Tíðskipulagið í Þýskalandi.
2021-04-04 (1).png
2021-04-04 (1).png (78.65 KiB) Skoðað 1664 sinnum



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1547
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf depill » Mán 05. Apr 2021 14:45

jonfr1900 skrifaði:Orkuveitan mun væntanlega nota 5G IoT staðla sem bæði Síminn og Vodafone bjóða upp á. Ég veit ekki hvort að Nova er með svoleiðis þjónustu. Það er hægt að senda gögn með 5G IoT frá 1Mbps upp í 10Mbps en ekki mikið meira en það.

Það sem Síminn býður upp á, Síminn IoT hlutanet.
Ég hef ekki fundið þessa síðu hjá Vodafone.


Vodafone eru lang stærstir í þessu á Íslandi. Í samstarfi við Vodafone Group eru þeir bæði með Controlant og svo Veitur í viðskiptum.

https://vodafone.is/fyrirtaeki/lausnir/ ... tanet-iot/
https://vodafone.is/frettir/frettir/202 ... tataekni-/
https://www.veitur.is/frett/veitur-snja ... vatnsveitu
https://www.vodafone.com/business/iot



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf dori » Þri 06. Apr 2021 12:43

Hizzman skrifaði:Þannig að gagnamagnið klárast á hvað mörgum mínútum? :catgotmyballs

Annars, orkuveitan áformar rauntímamælingu á rafnotkunn og breytileg verð. Veistu hvernig þeir munu tengjast mælunum?

Mig minnir að 1Gbps speedtest taki ~500MB af gagnamagni (það tekur meira gagnamagn að mæla meiri hraða) þannig að ég geri ráð fyrir að þú myndir klára t.d. 50GB pakka ansi hratt ef þú myndir gera mikið af speedtestum til að monta þig af 10Gbps símatengingunni þinni.




kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf kjartanbj » Þri 06. Apr 2021 13:04

Það á að sjálfsögðu bara að hætta með þetta gagnamagns rugl, maður hefur ekki verið takmarkaður með gagnamagni á ljósleiðaranum lengi og vonandi verður hætt með þetta í símanum líka á endanum, sérstaklega þegar svona stórar tengingar verða í boði í símum




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 609
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 10Gbps 5G verður fljótlega í farsímum

Pósturaf dadik » Mið 07. Apr 2021 12:29

Þú ert aldrei af fara að fá einhverja 10Gbps nema þú standir við hliðina á sendinum.


ps5 ¦ zephyrus G14