FLoC

Höfundur
JónSvT
has spoken...
Póstar: 150
Skráði sig: Fim 02. Jún 2016 20:15
Reputation: 114
Staða: Ótengdur

FLoC

Pósturaf JónSvT » Lau 24. Apr 2021 03:32

Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf vesi » Lau 24. Apr 2021 14:38

Nennir einhver að útskýra þetta fyrir mér?
Er þetta svo mikil breyting frá því sem er nú þegar gert?

Fyrir mér er þetta meiriháttar vesen að hætta notast við google.
Það snýr ekki bara að chrome, heldur nánast allt sem ég geri er tengt google með beinum eða óbeinum hætti. Ef google myndi tildæmis loka á email-inn væri ég fucked.
Gæti kanski komist í tölvuna en gæti lítið gert.

MCTS Nov´12
Asus eeePc

Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 969
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf brain » Sun 25. Apr 2021 08:05

þá ertu sennilegast akkúrat þar sem Google will hafa þig.

Höfundur
JónSvT
has spoken...
Póstar: 150
Skráði sig: Fim 02. Jún 2016 20:15
Reputation: 114
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf JónSvT » Sun 25. Apr 2021 11:39

Það er því miður þannig að margir eru orðnir svo vanir því að það sé njósnað um þá, en þeir halda bara að það sé normalt. Fólki er líka talið trú um að hlutirnir þurfa að vera svona. Að netið þurfi öll þessi gögn til að virka og að allt myndi kosta mjög mikið ef það væri ekki svona. Það er bara lygi.

FLoC er enn eitt skrefið í þessa átt. Það er verið að safna gögnum í vafranum. Áður hefur verið meira safnað á server. Fyrir okkur er það mikilvægt að vera hluti af lausninni og ekki vandanum.

Það finnast góðar lausnir sem hægt er að nota í stað Google fyrir flest allar þjónustur. Þú getur valið Vivaldi sem vafra, t.d.. Þú getur líka valið Vivaldi.net tölvupóst, sem er ókéypist og án auglýsinga, eða þú getur borgað FastMail eða öðrum þjónustum fyrir þjónustuna. Það finnast góðar lausnir, en ég skil að Google hefur gert mörgum erfitt fyrir og það er ákveðinn kostnaður við að skipta um þjónustuaðila, en það er rétt að gera ef við viljum snúa við þessari þróun.

netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf netkaffi » Sun 25. Apr 2021 16:06

vesi skrifaði:Nennir einhver að útskýra þetta fyrir mér?
Er þetta svo mikil breyting frá því sem er nú þegar gert?

Fyrir mér er þetta meiriháttar vesen að hætta notast við google.
Það snýr ekki bara að chrome, heldur nánast allt sem ég geri er tengt google með beinum eða óbeinum hætti. Ef google myndi tildæmis loka á email-inn væri ég fucked.
Gæti kanski komist í tölvuna en gæti lítið gert.
Þú getur notað google dót í öðrum vöfrum sko. Bara loggar þig inn í Gmail og þá hefurðu aðgang að öllu. Eða hvað ertu að meina?

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf Tbot » Sun 25. Apr 2021 16:23

JónSvT skrifaði:Það er því miður þannig að margir eru orðnir svo vanir því að það sé njósnað um þá, en þeir halda bara að það sé normalt. Fólki er líka talið trú um að hlutirnir þurfa að vera svona. Að netið þurfi öll þessi gögn til að virka og að allt myndi kosta mjög mikið ef það væri ekki svona. Það er bara lygi.

FLoC er enn eitt skrefið í þessa átt. Það er verið að safna gögnum í vafranum. Áður hefur verið meira safnað á server. Fyrir okkur er það mikilvægt að vera hluti af lausninni og ekki vandanum.

Það finnast góðar lausnir sem hægt er að nota í stað Google fyrir flest allar þjónustur. Þú getur valið Vivaldi sem vafra, t.d.. Þú getur líka valið Vivaldi.net tölvupóst, sem er ókéypist og án auglýsinga, eða þú getur borgað FastMail eða öðrum þjónustum fyrir þjónustuna. Það finnast góðar lausnir, en ég skil að Google hefur gert mörgum erfitt fyrir og það er ákveðinn kostnaður við að skipta um þjónustuaðila, en það er rétt að gera ef við viljum snúa við þessari þróun.

Nota sem minnst af Goggle, kemst þó ekki undan því, vegna leitarvélarinnar sem er einna best hjá þeim.

Nota í dag jöfnum höldum firefox og vivaldi í vöfrum, ekkert chrome.

Þannig að þú mátt gjarnan setja inn link á vivaldi.net tölvupóstinn.

Höfundur
JónSvT
has spoken...
Póstar: 150
Skráði sig: Fim 02. Jún 2016 20:15
Reputation: 114
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf JónSvT » Mán 26. Apr 2021 12:03

Tbot skrifaði:

Þú þarft að skrá þig sem notanda á Vivaldi.net. Þar fylgir svo með Webmail / IMAP.

https://webmail.vivaldi.net

Annars er að mæla með að prófa Vivaldi Mail Client. Það er hægt að kveikja á því í snapshot, ef maður vill prófa. Það má nota hann með hvaða IMAP server sem er. Líka GMail.

https://vivaldi.com/blog/vivaldi-mail-technical-preview/

BO55
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf BO55 » Þri 27. Apr 2021 16:21

Ég er búinn að nota Vivaldi á öllum mínum tölvum í töluverðan tíma. Er mjög ánægður með alla virkni og kem til með að nota Vivaldi áfram og mæli með Vivaldi fyrir alla sem ég þekki. Er eins með Vivaldi á Android símanum og líkar vel. Setti upp Vivaldi.net póst hjá mér um daginn og er að dunda í því að færa all þangað yfir.

Það sem mér finnst vanta:

1. Ipad útgáfu af Vivaldi.
2. Póstforrit fyrir síma frá ykkur.

netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf netkaffi » Þri 27. Apr 2021 18:08

Það er allt annað að nota Vivaldi eftir nýlega uppfærslu sem gerði hann hraðari.

Uncredible
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Mið 01. Júl 2020 18:48
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf Uncredible » Þri 27. Apr 2021 21:38

JónSvT skrifaði:Ef þið eruð ennþá að nota Chrome...

https://vivaldi.com/blog/no-google-vivaldi-users-will-not-get-floced/

Núna hef ég notað Vivaldi í mörg ár og alltaf fundist hann vera mun betri en Chrome.

En hvernig aflar Vivaldi sér tekna?

Höfundur
JónSvT
has spoken...
Póstar: 150
Skráði sig: Fim 02. Jún 2016 20:15
Reputation: 114
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf JónSvT » Mið 28. Apr 2021 01:56

BO55 skrifaði:Ég er búinn að nota Vivaldi á öllum mínum tölvum í töluverðan tíma. Er mjög ánægður með alla virkni og kem til með að nota Vivaldi áfram og mæli með Vivaldi fyrir alla sem ég þekki. Er eins með Vivaldi á Android símanum og líkar vel. Setti upp Vivaldi.net póst hjá mér um daginn og er að dunda í því að færa all þangað yfir.

Það sem mér finnst vanta:

1. Ipad útgáfu af Vivaldi.
2. Póstforrit fyrir síma frá ykkur.

Gaman að heyra þetta. :)

iOS útgáfa er á listanum hjá okkur, en það mun taka smá tíma. Fókus á þessum tíma hvað varðar póstforrit er á tölvum. Símaforrit er planlagt, en mun líka taka smá tíma. Við erum ekki svo stórt teymi og við tökum á okkur mörg, stór verkefni, en þetta kemur.

Höfundur
JónSvT
has spoken...
Póstar: 150
Skráði sig: Fim 02. Jún 2016 20:15
Reputation: 114
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf JónSvT » Mið 28. Apr 2021 01:57

netkaffi skrifaði:Það er allt annað að nota Vivaldi eftir nýlega uppfærslu sem gerði hann hraðari.

Gott að heyra. :)

Höfundur
JónSvT
has spoken...
Póstar: 150
Skráði sig: Fim 02. Jún 2016 20:15
Reputation: 114
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf JónSvT » Mið 28. Apr 2021 02:00

Uncredible skrifaði:
JónSvT skrifaði:Ef þið eruð ennþá að nota Chrome...

https://vivaldi.com/blog/no-google-vivaldi-users-will-not-get-floced/

Núna hef ég notað Vivaldi í mörg ár og alltaf fundist hann vera mun betri en Chrome.

En hvernig aflar Vivaldi sér tekna?

Tekjur koma frá leitarvélum, sem eru byggðar inn, samt af bókamerkjum. Sum af þeim sem við höfum með erum við með samning við hvað varðar tekjur. Ef þú notar þessar þjónustur, gegnum okkar bókamerki, þá fáum við einhverjar prósentur. Tekjur á mann á ári eru ekki háar, um $1, en við gerur þetta á heiðarlegan hátt, án þess að safna gögnum.

Ef þú ekki notar okkar bókamerki og velur að nota aðrar leitarvélar, þá þénum við ekkert.

Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 770
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 223
Staða: Ótengdur

Re: FLoC

Pósturaf Dropi » Mið 28. Apr 2021 10:50

Á Windows hef ég notað Vivaldi á öllum tölvum síðan útgáfu 1.0. Hef enga fóbíu fyrir Chrome það er bara alltof margt sem Vivaldi getur gert sem er ómissandi.

Svo er Vivaldi chromium þannig að öll extensions fyrir Chrome virka í Vivaldi.

34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS