Sælir
Ég er í lyklaborðs hugleiðingum. Er með Razer Huntsman V2 sem dóttirin sullaði aðeins yfir. Var alltaf hrikalega ánægður með það.
Fór að skoða nýja Huntsmaninn og fékk smá óbragð í munninn þegar ég sá 50þ kr verðmiðann.
Langar í full size lyklaborð, þ.e.a.s. með numpadinu. Hvað er hægt að fá á þokkalegum præs range og sem fer ekki yfir 90 desíbelin þegar ég smelli á takkana. Hverju hafið þið góða reynslu af ?
Ráðleggingar með lyklaborð
-
Gemini
- Ofur-Nörd
- Póstar: 204
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 43
- Staðsetning: 105
- Staða: Tengdur
Re: Ráðleggingar með lyklaborð
https://wooting.io/wooting-two-he
Þessi eru snilld. Ég keypti 80HE útgáfuna og aldrei verið sáttari með lyklaborð yfir ævina.
Þetta eru dálítið nördalyklaborð samt sem hægt er að gera trilljón hluti með. Stilla hvenær takkanir triggerast og svona og helling af hugbúnaðarhlutum í boði í drivers líka. En já ef þú ert í gaming eitthvað mæli ég hiklaust með þessu. Nóg af reviews til líka.
Allir takkarnir eru analog líka. Svo þú getur stillt t.d. W eða einhvern takka til að virka þannig að þú labbar t.d. ef þú ýtir bara smá niður en hleypur ef þú ýtir alla leið.

Takk fyrir það, ég skoða það ! Var að leitast þó helst eftir einhverju sem ég fengi heima bara einn tveir og núna, en ég kannski sýni smá þolinmæði og panta að utan
Hef þó séð að það er ansi langur biðtími eftir Wooting.
-
peer2peer
- </Snillingur>
- Póstar: 1088
- Skráði sig: Þri 18. Apr 2006 01:26
- Reputation: 81
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Re: Ráðleggingar með lyklaborð
Þú getur keypt c.a 3450 lyklaborð sem eru hljóðlát og kosta ekki mikið 
Iqunix, Lofree, Nuphy, Ajazz, Aula, Mchose og fl.
Iqunix, Lofree, Nuphy, Ajazz, Aula, Mchose og fl.
Síðast breytt af peer2peer á Mán 24. Nóv 2025 18:57, breytt samtals 1 sinni.
LEGION 5 PRO | ASUSTOR NAS 38TB | LG B1 OLED | PS5 PRO | Switch 2 | Klipsch 5.0 | Yamaha |
-
dadik
- Tölvutryllir
- Póstar: 669
- Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
- Reputation: 119
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ráðleggingar með lyklaborð
Eru menn alveg hættir að setja lyklaborð í uppþvottavélina eins og maður gerði í gamla daga?
ps5 ¦ zephyrus G14