Bakmeiðsli - vantar ráð

Allt utan efnis

Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 989
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 124
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf falcon1 » Mán 15. Des 2025 09:27

Hafið þið einhver góð ráð varðandi bakmeiðsli sem urðu við lyftu á þyngslum? Ég reyndi að nota hnéin og allt það en greinilega klikkaði ég eitthvað á líkamsstöðunni eða var að taka of þungt fyrir mitt form.

Ég er búinn að fara til tveggja lækna sem voru mjög rólegir yfir þessu og ég græddi voða lítið á þeim (báðir útilokuðu brjósklos, annar talaði um að ég gæti verið með smá útbungun), fyrri sagði mér að gera teygjuæfingar en bakið varð bara að steini eftir að ég prófaði þær og tók alveg 1-2 daga að fara aftur í nýju grunnstöðuna.
Ég er ekki með mikla verki og í raun meira óþægindi en verkir finnst mér en bakið er samt allt skrítið og greinilega ekki eins og það á að vera.
Enda ef ég geng á malbiki 500m að þá er bara bakið farið að kvarta með óþægindum og jafnvel sársauka, það er skárra að ganga á grasi eða meira mjúku.

Það eru 7 vikur síðan þetta gerðist á morgun.
Ég er að bíða eftir að komast að hjá sjúkraþjálfara.

Eruð þið með einhver góð ráð þangað til maður kemst að hjá sjúkraþjálfaranum?

Ps. þetta virðist vera aðallega mjóbakið og upp að miðju baki.
Síðast breytt af falcon1 á Mán 15. Des 2025 09:30, breytt samtals 2 sinnum.




Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 989
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 124
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf falcon1 » Mán 15. Des 2025 09:28

úpps... kom óvart 2x
Síðast breytt af falcon1 á Mán 15. Des 2025 09:29, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Bassi6
Ofur-Nörd
Póstar: 276
Skráði sig: Sun 16. Jan 2005 17:36
Reputation: 2
Staða: Tengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf Bassi6 » Mán 15. Des 2025 09:51

https://www.rikki.is/
Hann hefur oft bjargað mér


Gates Free

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8647
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1387
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf rapport » Mán 15. Des 2025 10:58

Það sem ég hef gert þegar ég fer í bakinu er að fara í brennheita sturtu og teygja, bein hné + snerta tærnar og svo beygja sitt hvort hnéið til að skapa smá snúning/spennu á bakið.

Man að ég var einhverntíman að lýsa þessu í vinnunni og þá benti hann zedor mér á að hiti og bólgur fara ekki vel saman, að maður ætti að vera kæla bólgin svæði en ekki hita þau.

En mig grunar að þetta virki vel í bland, að hita og teygja og svo nota kælikrem og jafnvel kælingu eftirá.

Svo heyrði ég að bakverkir og vítamínskortur geti haldist í hendur, B12 og D vítamín - https://www.getsurrey.co.uk/news/health ... y-30295048

Það er alltaf gott að næra sig vel þegar líkaminn er að díla við eitthvað svona.




calibr
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Mið 16. Okt 2019 23:01
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf calibr » Mán 15. Des 2025 12:30

Þegar ég hef farið í baki þá er það versta sem ég hef gert er að liggja fyrir. Taka stutta göngutúra (þurfa alls ekki að vera langir, bara að ná að hreyfa sig eitthvað) er krítískt.

Það sem hefur virkað fyrir mig er að styrkja core vöðvana og ég mæli með:
- cat/cow 3x10
- deadbug 3x14
- bird dog 3x14
- superman 3x8

Ef þú getur gert eitthvað af þessum æfingum þá er það frábært, það þarf ekki að vera í einhverju flýti heldur viltu gera þetta rólega og stýra hreyfingunum vel.

Fjöldi endurtekninga fara bara eftir getu og líðan. ALLS EKKI GERA ÆFINGUNA EF ÞAÐ VELDUR SÁRSAUKA.

Disclaimer: Ég er ekki menntaður í neinu heilsutengdu, þetta er mín reynsla af bakmeiðslum og hvernig ég held mér gangandi eftir meiðlsi.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3773
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 135
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf Pandemic » Mán 15. Des 2025 13:30

calibr skrifaði:Þegar ég hef farið í baki þá er það versta sem ég hef gert er að liggja fyrir. Taka stutta göngutúra (þurfa alls ekki að vera langir, bara að ná að hreyfa sig eitthvað) er krítískt.

Það sem hefur virkað fyrir mig er að styrkja core vöðvana og ég mæli með:
- cat/cow 3x10
- deadbug 3x14
- bird dog 3x14
- superman 3x8
...


Þetta eru mjög góðar æfingar og einnig að æfa deadlift/réttstöðu er mjög gott fyrir kjarnann og hefur minnkað allt bakvesen hjá mér.

Svo getur oft tekið ótrúlegan tíma að losna við óþægindi eftir að hafa meitt sig við að lyfta einhverju og engar töfralausnir þar nema að gera æfingar og jafnvel heita bakstra, heitir pottar og slíkt.



Skjámynd

4beez
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 18:01
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf 4beez » Mán 15. Des 2025 15:32

Samúð. Farðu vel með bakið, þetta tekur tíma, gættu að því að fara ekki hratt af stað aftur þegar þér batnar. Sjúkraþjálfarar betri en læknar en engir töframenn.
Bòkin the back mechanic hjálpaði mér mikið. Dr Stuart Mcgill. En ég fékk brjòsklos tvisvar. Sumar æfingar eru morð fyrir mjòbak ef rangt form.
Hanga til að létta á en krefst styrks.
Skoðaðu liðleika og form.
Ganga á mjúku frekar en hörðu.
Gangi þér vel



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2831
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 537
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf Moldvarpan » Mán 15. Des 2025 15:59

Við erum allir að eldast.

Það er mjög líklega meira en hálfs árs bið að komast að hjá sjúkraþjálfara.
Ég myndi mæla með að hita/kæla svæðið, og reyna hreyfa þig daglega eins og þú getur. Stoppar ef þig fer að verkja.
Svo er það bara að gefa þessu tíma.

Ég keypti mér svona hitapoka fyrir nokkrum árum og ég ELSKA hann. Ekkert betra, sérstaklega á köldum dögum, að leggjast á svona hitapoka.
Það er svo þægilegt að ég sofna nánst alltaf :megasmile
https://ht.is/medisana-hitapudi-ecomed-hp-50e.html




elvarb7
Græningi
Póstar: 42
Skráði sig: Mán 12. Okt 2015 10:18
Reputation: 2
Staða: Tengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf elvarb7 » Mán 15. Des 2025 18:54

Sauna og kaldi potturinn björguðu mér alveg.


Ryzen 7 5800x3d||ASRock TAICHI RX 9070XT||X470 Gaming 7||Corsair Vengeance 16GB 3600MHz||850 PRO 265 GB||
NVMe 960 EVO 500 GB||Predator XB1 1440p 144Hz

Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1099
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 221
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 17. Des 2025 08:39

Þegar ég fæ í bakið

Þá finnst mér ýkt gott að hanga í upphífingastöng, ná alveg góðum slaka í bakið

Geri það nokkrum sinnum, Kannski 10-15sek hang. Hvíla 30-60 sek


Svo allskonar bakteygjur. Sófateygjan gerir merkilega mikið fyrir bakið á mér ásamt öllu öðru, Enda er verkur oft fórnarlamb aðstæðna og uppruni getur legið annarstaðar.


Göngutúrar eru líka key element í þessu, Halda þér mobile :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

KaldiBoi
Ofur-Nörd
Póstar: 273
Skráði sig: Mið 17. Mar 2021 14:07
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf KaldiBoi » Mið 17. Des 2025 10:04

Jón Ragnar skrifaði:Þegar ég fæ í bakið

Þá finnst mér ýkt gott að hanga í upphífingastöng, ná alveg góðum slaka í bakið ÞETTA

Geri það nokkrum sinnum, Kannski 10-15sek hang. Hvíla 30-60 sek


Svo allskonar bakteygjur. Sófateygjan gerir merkilega mikið fyrir bakið á mér ásamt öllu öðru, Enda er verkur oft fórnarlamb aðstæðna og uppruni getur legið annarstaðar.


Göngutúrar eru líka key element í þessu, Halda þér mobile :)


Hljómar líka eins og þú sért að lyfta eitthvað.
Ég hef líka átt við meiðsli að stríða í baki og það sem kom í ljós hjá mér td. eftir beygjur, róður án stuðnings oþh. að mig vantaði stuðning í core-inn og var með stífar mjaðmir þrátt fyrir fínasta liðleika í hamstring og quads.

Myndi skoða þetta - sérstaklega ef þú færð í bakið eftir gang og lyftingar.



Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1099
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 221
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 17. Des 2025 15:44

KaldiBoi skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Þegar ég fæ í bakið

Þá finnst mér ýkt gott að hanga í upphífingastöng, ná alveg góðum slaka í bakið ÞETTA

Geri það nokkrum sinnum, Kannski 10-15sek hang. Hvíla 30-60 sek


Svo allskonar bakteygjur. Sófateygjan gerir merkilega mikið fyrir bakið á mér ásamt öllu öðru, Enda er verkur oft fórnarlamb aðstæðna og uppruni getur legið annarstaðar.


Göngutúrar eru líka key element í þessu, Halda þér mobile :)


Hljómar líka eins og þú sért að lyfta eitthvað.
Ég hef líka átt við meiðsli að stríða í baki og það sem kom í ljós hjá mér td. eftir beygjur, róður án stuðnings oþh. að mig vantaði stuðning í core-inn og var með stífar mjaðmir þrátt fyrir fínasta liðleika í hamstring og quads.

Myndi skoða þetta - sérstaklega ef þú færð í bakið eftir gang og lyftingar.



Æfi kraftlyftingar og hef verið að keppa gegnum árin.

Beltsquats er líka einnig snilld ef maður er slæmur í baki!



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video


blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1811
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 147
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf blitz » Fim 18. Des 2025 05:55

KaldiBoi skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Þegar ég fæ í bakið

Þá finnst mér ýkt gott að hanga í upphífingastöng, ná alveg góðum slaka í bakið ÞETTA

Geri það nokkrum sinnum, Kannski 10-15sek hang. Hvíla 30-60 sek


Svo allskonar bakteygjur. Sófateygjan gerir merkilega mikið fyrir bakið á mér ásamt öllu öðru, Enda er verkur oft fórnarlamb aðstæðna og uppruni getur legið annarstaðar.


Göngutúrar eru líka key element í þessu, Halda þér mobile :)


Hljómar líka eins og þú sért að lyfta eitthvað.
Ég hef líka átt við meiðsli að stríða í baki og það sem kom í ljós hjá mér td. eftir beygjur, róður án stuðnings oþh. að mig vantaði stuðning í core-inn og var með stífar mjaðmir þrátt fyrir fínasta liðleika í hamstring og quads.

Myndi skoða þetta - sérstaklega ef þú færð í bakið eftir gang og lyftingar.


Hljómar eins og þú sért kominn á betri stað með þessar stífu mjaðmir. Ég er á svipuðum stað, fínt flex í quad og hams en mjaðrmir ekki nægilega góðar. Hvaða æfingar fannst þér skila mestum ávinningi?


PS4


Tesli
spjallið.is
Póstar: 475
Skráði sig: Fim 13. Feb 2003 14:37
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf Tesli » Fim 18. Des 2025 12:14

Ég fékk útbungun, svo brjósklos og endaði í aðgerð. Fór í gegnum allt sjúkraþjálfunar ferlið og fékk ráðleggingar frá læknum.
Eina sem ég vill vara við í þessum þræði er að í mínu tilfelli þá var mér bannað að teygja á bakinu því það getur gert illt verra.
Þó það hljómi rökrétt að teygjur séu alltaf til góðs þá fékk ég allavega þessar leiðbeiningar á sínum tíma bæði frá sjúkraþjálfara og lækni. Ég var með brjósklos neðst í þriðja hryggjarlið minnir mig. Farðu varlega í teygjurnar nema að þú heyrir þær leiðbeiningar frá þínum sjúkraþjálfara sem er búinn að skoða þig og greina akkurat þitt bakvandamál.




Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 989
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 124
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf falcon1 » Fim 18. Des 2025 12:58

Tesli skrifaði:Ég fékk útbungun, svo brjósklos og endaði í aðgerð. Fór í gegnum allt sjúkraþjálfunar ferlið og fékk ráðleggingar frá læknum.
Eina sem ég vill vara við í þessum þræði er að í mínu tilfelli þá var mér bannað að teygja á bakinu því það getur gert illt verra.
Þó það hljómi rökrétt að teygjur séu alltaf til góðs þá fékk ég allavega þessar leiðbeiningar á sínum tíma bæði frá sjúkraþjálfara og lækni. Ég var með brjósklos neðst í þriðja hryggjarlið minnir mig. Farðu varlega í teygjurnar nema að þú heyrir þær leiðbeiningar frá þínum sjúkraþjálfara sem er búinn að skoða þig og greina akkurat þitt bakvandamál.

Það er eiginlega það versta finnst mér í þessu að mér fannst þessir tveir læknar eiginlega ekkert skoða hvað væri að, jú seinni læknirinn gerði einhverja eina tilraun og svo búið. Kannski vegna þess að ég er ekki að drepast úr verkjum (sem er vonandi gott merki)? Hinsvegar veit ég að bakið eða vöðvarnir í bakinu virðast hafa eitthvað aflagast við þetta atvik sem startaði þessu, bara finn það þegar ég geng - er vanur að fara 2-10km göngur á dag með hundinn. Núna er bakið farið að kvarta eftir 150-250m á malbiki.
Ég t.d. prófaði cat/cow teygjuna (fyrsti læknirinn mælti með henni) og ég fékk enga verki eða neitt slíkt þegar ég var að gera hana (kannski smá stífleiki) en svo þegar ég var búinn að gera þær og settist aftur í stólinn við tölvuna að þá var bara eins og stólbakið eða bakið væri eins og rúnaður steinn að þrýsta á bakið. Ekki sársauki en óþægilegt samt.
Eftir það hef ég eiginlega ekki þorað að prófa meira sjálfur þar sem ég vil nú ekki gera hlutina verri en þeir eru og ég hef sem betur fer enga reynslu af því að díla við bakverki annað en einstaka þursabit sem hafa yfirleitt bara gengið yfir á stuttum tíma. Hinsvegar þekki ég fólk sem er með ónýtt bak og það er líka að valda mér kvíða að ég hafi óvart í einhverju hugsunarleysi eyðilagt á mér bakið.
Planið var einmitt að fara í ræktina og svoleiðis á nýju ári til að styrkja mig og þar með talið bakið þar sem ég er alveg dottinn úr formi, svo asnast ég til að gera þennan óskunda. :(
Síðast breytt af falcon1 á Fim 18. Des 2025 13:02, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

KaldiBoi
Ofur-Nörd
Póstar: 273
Skráði sig: Mið 17. Mar 2021 14:07
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Bakmeiðsli - vantar ráð

Pósturaf KaldiBoi » Fim 18. Des 2025 23:20

blitz skrifaði:
KaldiBoi skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Þegar ég fæ í bakið

Þá finnst mér ýkt gott að hanga í upphífingastöng, ná alveg góðum slaka í bakið ÞETTA

Geri það nokkrum sinnum, Kannski 10-15sek hang. Hvíla 30-60 sek


Svo allskonar bakteygjur. Sófateygjan gerir merkilega mikið fyrir bakið á mér ásamt öllu öðru, Enda er verkur oft fórnarlamb aðstæðna og uppruni getur legið annarstaðar.


Göngutúrar eru líka key element í þessu, Halda þér mobile :)


Hljómar líka eins og þú sért að lyfta eitthvað.
Ég hef líka átt við meiðsli að stríða í baki og það sem kom í ljós hjá mér td. eftir beygjur, róður án stuðnings oþh. að mig vantaði stuðning í core-inn og var með stífar mjaðmir þrátt fyrir fínasta liðleika í hamstring og quads.

Myndi skoða þetta - sérstaklega ef þú færð í bakið eftir gang og lyftingar.


Hljómar eins og þú sért kominn á betri stað með þessar stífu mjaðmir. Ég er á svipuðum stað, fínt flex í quad og hams en mjaðrmir ekki nægilega góðar. Hvaða æfingar fannst þér skila mestum ávinningi?



Ég breytti engu æfingarlega séð, en er að taka lengri upphitun í takt við það sem þau gera í WF og CrossFit en skal viðurkenna það ég var alltof latur að teygja eftir æfingar en breytti því og er að verða bara mjög fínn! SquatUniversity hjálpaði helling, það er ekki nóg að horfa á videóin, það þarf líka að gera vinnuna - ég lærði það alltof seint ](*,)