Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
-
GuðjónR
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 17217
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2372
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur

Hafið þið tekið eftir hve göturnar á höfuðborgarsvæðinu eru óvenjulega skítugar? Það hefur verið þannig síðan fyrir jól. Bílar eru annað hvort tandurhreinir af þvottastöð eða svo drulluskítugir að bílnúmerin eru nánast ólæsileg.
Stundum er eins og þoka sé um hábjartan dag, sérstaklega þegar sólin skín; þá er þetta sérstaklega áberandi. Sumir segja á FB að verið sé að nota vikurblandað salt sem hálkuvörn, sel það ekki dýrara en ég keypti það. Nýlega sá ég saltdreyfibíl; úr honum sprautaðist vökvi úr 12–16 spíssum. Mig grunar að það hafi verið meira en salt í þeirri vatnsblöndu, því vatnið í hjólförunum var ljósbrúnt.
Ég keypti mánaðaráskrift á Glans og þurfti að byrja á að fara tvisvar í gegn til að ná því mesta, því þetta var svo fast á bílnum. Núna fer ég daglega, stundum tvisvar á dag, en bíllinn er oft drulluskítugur nokkrum mínútum síðar. Ég hef aldrei upplifað neitt í líkingu við þetta áður.

falcon1
- </Snillingur>
- Póstar: 1032
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 139
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Það er engin að þvo göturnar!
Þetta er sama ástand hérna í Reykjanesbæ. Hef ekki séð einn einasta götuhreinsunarbíl frá því fyrir áramót. Veðrið gæti ekki hafa verið betra frá áramótum til að hreinsa göturnar. Þetta er bara vanræksla, ekkert annað.

rostungurinn77
- Gúrú
- Póstar: 569
- Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
- Reputation: 192
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
https://www.visir.is/k/994f7f03-2d27-44 ... gur-byrja-
Hjalti Guðmundsson skrifstofustjóri Borgarlandsins um snjómokstur í borginni
Löng saga stutt. Reykjavík þvertekur fyrir að eitthvað sé í saltinu. Líklegast rétt. Saltið er selt samkvæmt stöðlum.

Viktor
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6858
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 964
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.

- Viðhengi
-
- IMG_0902.jpeg (76.4 KiB) Skoðað 982 sinnum
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
rostungurinn77 skrifaði:https://www.visir.is/k/994f7f03-2d27-44c4-9d76-3a3f300691ac-1770229548252/-veit-ekki-hvar-thessar-sogur-byrja-
Hjalti Guðmundsson skrifstofustjóri Borgarlandsins um snjómokstur í borginni
Löng saga stutt. Reykjavík þvertekur fyrir að eitthvað sé í saltinu. Líklegast rétt. Saltið er selt samkvæmt stöðlum.
Kaupa það örugglega frá Ölgerðinni…. Eða var það öfugt…
-
emil40
- Bara að hanga
- Póstar: 1506
- Skráði sig: Þri 28. Jún 2016 11:27
- Reputation: 227
- Staðsetning: Njarðvík
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
nei ég hef ekki tekið eftir þessu, ég bý í njarðvík 
| Pure Base 500DX | Ryzen 9 9950X | X870E AORUS PRO ICE | RTX 5090 GameRock 32GB | 3 × 4TB 9100 Pro NVMe RAID0 | 1x 16TB + 2x 20TB HDD | 96GB DDR5-6000 Trident Royal Neo Gold | Straight Power 12 1500W | Samsung Odyssey OLED G9 | Soundcore Q30 |
„Langbesta dótið á vaktinni – Moldvarpan, 2025.“

Gemini
- Ofur-Nörd
- Póstar: 227
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 45
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Viktor skrifaði:Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Held að þetta fari bara endalaust upp afþví þetta er líklega að telja alla númerslausu bílana líka sem er ekki skilað til niðurrifs. Margir með gommu af bílum á sér ennþá sem eru ekkert í notkun. Ég er með 5 en bara 1 á númerum
-
GuðjónR
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 17217
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2372
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Ekkert nýtt að blýantsnagarar borgarinnar viti ekkert…
Enda best að vita sem minnst til að forðast ábyrgð.
Það eru 40 ár síðan ég fékk bílpróf og þetta hefur ALDREI verið svona áður! Þetta hefur ekkert með nagladekk að gera. Þetta byrjaði í nóvember að mig minnir, eftir fyrsta vetrarhretið.
Ef þeir eru ekki að blanda saltið með einhverjum skítaefnum, þá eru þeir farnir að nota önnur efni í malbiksblöndunni því þetta er ekki eðlilegt.
Enda best að vita sem minnst til að forðast ábyrgð.
Það eru 40 ár síðan ég fékk bílpróf og þetta hefur ALDREI verið svona áður! Þetta hefur ekkert með nagladekk að gera. Þetta byrjaði í nóvember að mig minnir, eftir fyrsta vetrarhretið.
Ef þeir eru ekki að blanda saltið með einhverjum skítaefnum, þá eru þeir farnir að nota önnur efni í malbiksblöndunni því þetta er ekki eðlilegt.
-
rostungurinn77
- Gúrú
- Póstar: 569
- Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
- Reputation: 192
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Gemini skrifaði:Viktor skrifaði:Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Held að þetta fari bara endalaust upp afþví þetta er líklega að telja alla númerslausu bílana líka sem er ekki skilað til niðurrifs. Margir með gommu af bílum á sér ennþá sem eru ekkert í notkun. Ég er með 5 en bara 1 á númerum
https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/ ... tisnotkun/
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/fo ... 70-thusund
Talning um fjölda bíla virðist byggja á skrásettum bílum og mætti því ætla að þú ættir einn bíl.
-
Gemini
- Ofur-Nörd
- Póstar: 227
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 45
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
rostungurinn77 skrifaði:Gemini skrifaði:Viktor skrifaði:Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Held að þetta fari bara endalaust upp afþví þetta er líklega að telja alla númerslausu bílana líka sem er ekki skilað til niðurrifs. Margir með gommu af bílum á sér ennþá sem eru ekkert í notkun. Ég er með 5 en bara 1 á númerum
https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/ ... tisnotkun/
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/fo ... 70-thusund
Talning um fjölda bíla virðist byggja á skrásettum bílum og mætti því ætla að þú ættir einn bíl.
Skrásett ökutæki eru öll ökutæki í bifreiðaskrá. Það þýðir ekki að þau séu á skráningarnúmerum og ökuhæf samt.
Ég á því 5 skrásett ökutæki en 4 af þeim eru ekki á skráningarnúmerum og flest þeirra ekki farið á götu í yfir 5 ár núna.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Gæti þetta tengst að það hefur varla ringt eða snjóað í tvo mánuði? Jafnvel ef það snjóar, þá hlýtur snjórin að draga í sig drulluna, hann verður svartur og allt, og síðan er honum mokað í burtu og eða þiðnar niður drenið.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Ég bý úti á landi og hérna blandar Vegagerðin salti og möl saman til að búa til hálkuvarnarefnið sem fer á bílana sem dreifa því svo um göturnar. Enda eru vegirnir hérna haugskítugir og bílarnir líka.
Það kæmi mér akkúrat ekkert á óvart ef þetta væri það sem er verið að gera í Reykjavík.

Minuz1
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1287
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Reputation: 152
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Umferðarþungi innan höfuðborgarsvæðissins
https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/ga ... edinu-2025
Helstu aksturleiðir inn/úr borginni fara úr 116k í 182k frá árunum 2005 yfir í 2025 á dag að meðaltali.
Saltið er ekki blandað, ekki nema bara með pækli(salt/vatn)
Götur eru þrifnar á nóttinni, en það eru 1-2 bílar í því eftir því sem ég hef séð.
Kv. Snjóplógsökumaður í Rvk, vinn fyrir verktaka undir Vegagerðinni

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
“
Úrkoma í Reykjavík mældist 26,5 mm sem er innan við þriðjungur af meðalúrkomu áranna 1991-2020. Þar hefur aðeins einu sinni mælst minni úrkoma í janúar, árið 1936 þegar úrkoman mældist einungis 2,4 millimetrar.

gRIMwORLD
- FanBoy
- Póstar: 758
- Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
- Reputation: 53
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Það er ekki verið að blanda neinu í saltið hérna í bænum en veðráttan, skortur á almennilegri rigningu eða almennilegu roki er að skilja göturnar eftir grútskítugar. En það er ekki verið að þrifa göturnar með götusópum á veturna þvi þeir segja það pointless ef það er frost á götunum, las það í einhverju blaðaviðtali í vetur.
9950X | 96GB | 2TB Gen5 | 3090 | ProArt X870 Creator
-
Viktor
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6858
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 964
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
gRIMwORLD skrifaði:Það er ekki verið að blanda neinu í saltið hérna í bænum en veðráttan, skortur á almennilegri rigningu eða almennilegu roki er að skilja göturnar eftir grútskítugar. En það er ekki verið að þrifa göturnar með götusópum á veturna þvi þeir segja það pointless ef það er frost á götunum, las það í einhverju blaðaviðtali í vetur.
Það var götusópur á fullu hjá mér kl. 3 eina nóttina fyrir nokkrum vikum hér í Reykjavík.
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
rapport
- Kóngur
- Póstar: 8783
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1409
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Það voru bílar að salta með "brine" og það var framtak sem ég fagna, held að það spari salt og fari betur með göturnar.
Annars er þetta bara skortur á vatni, snjó rigningu sem skolar þessu burt.
Vonandi eru Veitur ready fyrir allan skítinn sem mun fara í holræsin í næstu góðu úrkomu.
Annars er þetta bara skortur á vatni, snjó rigningu sem skolar þessu burt.
Vonandi eru Veitur ready fyrir allan skítinn sem mun fara í holræsin í næstu góðu úrkomu.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Væntanlega vegna þess það hefur varla snjóað síðan október siðasta? Venjulega hefur mesta drullan skolast burt með rigning og snjókoma.
það hefur heldur ekki verið neitt mikið vindasamt til þess að blása rykið burt heldur.
það hefur heldur ekki verið neitt mikið vindasamt til þess að blása rykið burt heldur.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Stórfurðulegt veðurfar, maður getur hengt hjólhýsið aftaní og farið nánast hvert sem er, það er svo lítill vindur verið í vetur, ef vetur má kalla?
Kjalarnesið ekkert lokað, Hafnarfjall ekkert veður verið heldur. það er að grænka grasið í garðinum hjá mér.
Hvað er að gerast ?

Ryzen 9 5950x | Geforce RTX 5090 | 32 Gigabyte 3600mhz | Kapall og Roblox
Gaming -> Hp-Dc5800 | Core2quad Q9650 | 8Gb DDR2 800Mhz | GPU Rx550 4Gb | 1280x1024 |
Gaming -> Hp-Dc5800 | Core2quad Q9650 | 8Gb DDR2 800Mhz | GPU Rx550 4Gb | 1280x1024 |
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Ég bjó í Noregi í rúm 16 ár og þar á undan í Svíþjóð. Það snjóar þar, rignir og er allskonar veður, miklu kaldara, miklu heitara svo ekki er hægt að kenna veðrinu um og þar búa milljónir manns svo ekki er hægt að segja að það sé vegna of margra bíla.
Ég hef aldrei séð annað eins og á höfuðborgarsvæðinu að það sé eins og það sé þoka, eða sand stormur. Plús, bíllinn hjá mér verður eins og ég hafi verið í drullubíla rallý alveg um leið. I útlöndum gat bíllinn verið alveg glansandi í einhverjar vikur. Það er nánast óþarfi að eyða tíma í að þrífa bílinn.
Í Noregi þá keyrðu þessir sópunarbílar reglulega á nóttunum, göngum var lokað öðrum megin og fleira eftir þessu. Mjög reglulega voru götur hreinsaðar. Ég er ekki einu sinni að ýkja, en mökkurinn sem er yfir hérna er oft eins og við værum að keyra á malarvegum.

Black
- Vaktari
- Póstar: 2428
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Reputation: 157
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
rapport skrifaði:Það voru bílar að salta með "brine" og það var framtak sem ég fagna, held að það spari salt og fari betur með göturnar.
Annars er þetta bara skortur á vatni, snjó rigningu sem skolar þessu burt.
Vonandi eru Veitur ready fyrir allan skítinn sem mun fara í holræsin í næstu góðu úrkomu.
Vandamálið með holræsin er að þau taka ekki við skítnum, undir eðlilegum kringumstæðum þá flæðir vatnið og sandurinn ofaní niðurföllin, en það eru svo djúp hjólför og lélegt vegakerfi að vatnið og sandurinn safnast bara í þeim, svo rignir og þá er skvett þessari drullu upp á umferðareyjur og grasfleti.
Svo þegar það er svona þurrt þá þyrlast upp rykdrullan og sandurinn verður eftir í hjólförunum og á umferðareyjunum.
Getið líka séð þetta þar sem vegir eru byrjaðir að síga, þá rennur vatnið og drullan ekki rétta leið.
Fyrir utan að það væri vel hægt að hreinsa göturnar oftar yfir vetrartímann.
Að skýla sér á bakvið það að sóparnir virka ekki í frosti er bara rugl. Þá á að finna aðra leið til að sópa verstu vegakaflana.
Vel hægt að þurrsópa undirgöng og moka því upp á tæki án þess að það sé þartilgerður götusópur sem virkar illa í frosti.
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |
-
rapport
- Kóngur
- Póstar: 8783
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1409
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Black skrifaði:...
Þó að útskýringin fyrir skítnum sé "lítil rigning" þá er ég algjörlega sammála því að það megi þrífa borgina miklu miklu betur.