Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17143
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2337
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf GuðjónR » Lau 01. Nóv 2008 21:06

BT lokaði í dag, er á leiðinni í þrot ef enginn tekur við, stutt síðan Tölvulistinn fór í þrot og var keyptur af víkingum í bjartsýniskasti.
Þar sem Árdegi er á leiðinni í þrot þá er verið að hirða bestu bitana úr eins og t.d. Skífuna.
Þetta er örugglega bara byrjunin.
Það verður fróðlegt að rifja upp þennan þráð eftir ár og sjá þá hvað verður eftir í þessu þjóðfélagi.

Greinar:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... solu_a_bt/
http://www.visir.is/article/20081101/VI ... 8191270/-1




machinehead
Geek
Póstar: 829
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf machinehead » Lau 01. Nóv 2008 21:10

GuðjónR skrifaði:BT lokaði í dag, er á leiðinni í þrot ef enginn tekur við, stutt síðan Tölvulistinn fór í þrot og var keyptur af víkingum í bjartsýniskasti.
Þar sem Árdegi er á leiðinni í þrot þá er verið að hirða bestu bitana úr eins og t.d. Skífuna.
Þetta er örugglega bara byrjunin.
Það verður fróðlegt að rifja upp þennan þráð eftir ár og sjá þá hvað verður eftir í þessu þjóðfélagi.

Greinar:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... solu_a_bt/
http://www.visir.is/article/20081101/VI ... 8191270/-1


Ég á sjónvarp frá þeim sem ég var að fatta að væri gallað (dauður pixell). Á ég að hætta á að fara með það í viðgerð til að fá nýtt.
Hræddur um að ef allt fari til fjandans fái ég hvorki nýtt sjónvarp né það gamla.

Bý úti á landi þannig að það þarf að senda það suður og þeir dæma það ónýtt, þá fyrst fæ ég nýtt tæki.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17143
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2337
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf GuðjónR » Lau 01. Nóv 2008 21:14

Efast um að það þýði í dag, ef sjoppunni verður ekki lokað og einhver annar tekur við þá tekur hann við skuldbindingum fyrri eiganda og verður að bæta þér sjónvarpið.
Svo er líka spurning um að tala við umboð tækisins, t.d. með Nokia síma þá skiptir engu máli hvar þú hefur keypt hann ef hann bilar þá sér Hátækni um ábyrgðarmálin.
Þú verður að finna út hver er með umboðið og viðgerðarþjónustu fyrir þetta merki sem þú ert með.



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2919
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 226
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf CendenZ » Lau 01. Nóv 2008 22:12

BT er nú engin góður biti.

nema maður vilji inventoryið á hálfprís og shippa það erlendis.




machinehead
Geek
Póstar: 829
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf machinehead » Lau 01. Nóv 2008 23:13

GuðjónR skrifaði:Efast um að það þýði í dag, ef sjoppunni verður ekki lokað og einhver annar tekur við þá tekur hann við skuldbindingum fyrri eiganda og verður að bæta þér sjónvarpið.
Svo er líka spurning um að tala við umboð tækisins, t.d. með Nokia síma þá skiptir engu máli hvar þú hefur keypt hann ef hann bilar þá sér Hátækni um ábyrgðarmálin.
Þú verður að finna út hver er með umboðið og viðgerðarþjónustu fyrir þetta merki sem þú ert með.


Philips. Hver sér um það?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17143
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2337
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf GuðjónR » Lau 01. Nóv 2008 23:14

machinehead skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Efast um að það þýði í dag, ef sjoppunni verður ekki lokað og einhver annar tekur við þá tekur hann við skuldbindingum fyrri eiganda og verður að bæta þér sjónvarpið.
Svo er líka spurning um að tala við umboð tækisins, t.d. með Nokia síma þá skiptir engu máli hvar þú hefur keypt hann ef hann bilar þá sér Hátækni um ábyrgðarmálin.
Þú verður að finna út hver er með umboðið og viðgerðarþjónustu fyrir þetta merki sem þú ert með.


Philips. Hver sér um það?


http://www.sm.is




machinehead
Geek
Póstar: 829
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf machinehead » Lau 01. Nóv 2008 23:21

GuðjónR skrifaði:
http://www.sm.is


Takk



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1604
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 264
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf depill » Sun 02. Nóv 2008 00:23

GuðjónR skrifaði:Stutt síðan Tölvulistinn fór í þrot og var keyptur af víkingum í bjartsýniskasti.


Ég hélt að TL hefði verið tekinn uppí skuldir af dótturfyrirtæki sjónvarpsmiðstöðvinnar IOD ? Missti ég af einhverju, hver á TL núna ?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17143
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2337
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Nóv 2008 00:58

depill.is skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Stutt síðan Tölvulistinn fór í þrot og var keyptur af víkingum í bjartsýniskasti.


Ég hélt að TL hefði verið tekinn uppí skuldir af dótturfyrirtæki sjónvarpsmiðstöðvinnar IOD ? Missti ég af einhverju, hver á TL núna ?

Það er rétt hjá þér, tæknilega myndi ég samt kalla það að vera kominn í þrot ef fyrirtækið er tekið af þér upp í skuld. Þeir sem yfirtaka og halda rekstrinum áfram gera það í þeirri von að fá sitt til baka. Það var bara það sem mér þótti bjartsýni :)



Skjámynd

AngryMachine
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Sun 15. Jan 2006 23:53
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Hirða bestu bitana og láta restina fara í þrot

Pósturaf AngryMachine » Sun 02. Nóv 2008 00:59

depill.is skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Stutt síðan Tölvulistinn fór í þrot og var keyptur af víkingum í bjartsýniskasti.


Ég hélt að TL hefði verið tekinn uppí skuldir af dótturfyrirtæki sjónvarpsmiðstöðvinnar IOD ? Missti ég af einhverju, hver á TL núna ?


Þú misstir ekki af neinu, þetta vara bara svolítið skáldlega orðað hjá honum Guðjóni. :8)

Hvað varðar BT þá er enginn söknuður að þeirri búð, amk. ekki af minni hálfu, verst með þá sem að missa vinnuna. Samt minnir mig að Bónus Tölvur hafi verið algjör bylting á sínum tíma, annað eins úrval af tölvuleikjum hafði aldrei sést hér á landi áður og verðin voru næs. Þannig að það var gagn að þeim, þó svo að það hafi hallað undan fæti síðan þá.

Þessi gjaldþrotahrina mun líka grafa undan allri samkeppni, enda virðist annað hvert fyrirtæki á landinu vera á leið í þrot, sem að er varla á bætandi þegar að verðbólgan er há og gengið lágt.


____________________
Starfsmaður @ hvergi