Ljósnet og 4k streaming


Höfundur
Viggi
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 131
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Ljósnet og 4k streaming

Pósturaf Viggi » Mið 23. Nóv 2016 21:13

Núna langar manni að uppfæra sjónvarpið næsta haust og er að klóra mér yfir því hvort ljósnetið ráði nokkuð við 4k á netflix og youtube er hjá hringdu btw


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3149
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 462
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ljósnet og 4k streaming

Pósturaf hagur » Mið 23. Nóv 2016 21:23

"To stream in 4K Ultra HD with HDR, Netflix recommends you have a consistent minimum download speed of at least 25 megabits per second. That multiplies out to roughly 11.25 gigabytes per hour."

Ætti að sleppa á 50 mbit ljósneti.




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 982
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 133
Staða: Tengdur

Re: Ljósnet og 4k streaming

Pósturaf arons4 » Mið 23. Nóv 2016 21:23

Samkvæmt smá gúggli er netflix 4k um 16mbps þannig ljósnet ætti að leyfa það.




Höfundur
Viggi
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 131
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ljósnet og 4k streaming

Pósturaf Viggi » Mið 23. Nóv 2016 21:31

Gott að vita. Þá er að bíða og sjá hvort Costco bjóði upp á oled tæki á almennilegu verði :)


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


Hizzman
Geek
Póstar: 882
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 157
Staða: Ótengdur

Re: Ljósnet og 4k streaming

Pósturaf Hizzman » Mið 23. Nóv 2016 22:07

Ljósnet á kopar hefur hraða sem er háður ýmsu, aðallega vegalengd. Aðeins hraðamæling (eða nokkrar yfir einhvern tíma) upplýsir sannan hraða. Svo er spurning með útlandasamband Hringdu, veit einhver hversu öflugt það er?




machinefart
Ofur-Nörd
Póstar: 292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Ljósnet og 4k streaming

Pósturaf machinefart » Mið 23. Nóv 2016 22:19

Hef horft á fjölmarga klukkutíma af 4k netflix á ljósneti, það hefur aldrei svo lítið sem hikstað. Það er samt mjög góður punktur að ljósnetið er ansi misjafnt. Fleira sem má hafa í huga er t.d. routerinn. Ég fór nýlega á 1000mbps ljósleiðara og það réð bara alls ekki við 4k netflix, ástæðan var mjög lélegur router frá 365, búið að bæta úr því og virkar vel. Nethraðinn þarf ekki að vera flöskuhálsinn, en allar eðlilegar ljósnets tengingar ættu að hafa þetta.